Morgunblaðið - 16.03.2008, Síða 47

Morgunblaðið - 16.03.2008, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 47 ✝ Valur Magn-ússson rak- arameistari fæddist í Arabíu í Borg- arnesi 29. desem- ber 1926. Hann andaðist á Landa- koti 12. febrúar síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Magnús Ólafsson, f. í Borgarfirði 1. október 1879, d. 3. september 1974, og Guðrún Guðmunds- dóttir, f. á Hvít- árvöllum 20. mars 1885, d. 22. desember 1958. Valur átti fjögur systkini, þau voru, sammæðra: 1) Kristjana Margrét Jensdóttir, f. 20. apríl 1912, d. 10. mars 1995, og alsystkini: 2) Gyða, f. 11. sept- ember 1918, d. 25. mars 2000, 3) Kristján Óskar, f. 24. september 1920, d. 9. apríl 1975, og 4) Þórð- ur, f. 28. ágúst 1922, d. 20. des- ember 1990. Valur kvæntist hinn 21. júlí 1950 Guðrúnu Helgu Högnadótt- ur, f. í Reykjavík 18. mars 1931. Foreldrar hennar voru hjónin Högni Eyjólfsson rafvirki, f. í Reykjavík 19. júní 1905, d. 22. desember 1979, og Sigríður Ein- arsdóttir húsmóðir, f. í Holtahól- um í Mýrahreppi í Austur- Rán Gylfadóttir, 23. febrúar 1960. Börn Einars og Bjargar Bragadóttur, f. 22. júlí 1963, eru a) Eyþór Bragi, f. 18. janúar 1982, sambýliskona Þóra Kristín Eyþórsdóttir, f. 11. mars 1982, dóttir þeirra er Kristjana Rakel Eyþórsdóttir. Sonur Eyþórs og Hörpu Bjarnadóttur er Emil Snær, f. 2. september 1998. b) Kristrún, f. 11. mars 1985, sam- býlismaður Hafsteinn Grétar Kjartansson, f. 27 ágúst 1981, börn þeirra eru Júlía Björg, f. 24. apríl 2003, og Óðinn Þorri, f. 24. október 2005. Börn Einars og Kristínar Wíum Gunnarsdóttur, f. 24 ágúst 1975 eru Arnar Freyr, f. 2. júní 1996, Bryndís Ósk, f. 16 nóvember 1997, og Einar Smári, f. 8. október 1999. Valur lærði rakaraiðn í Iðn- skólanum í Reykjavík, útskrif- aðist 1944, fór til Danmerkur til starfa og vann þar í 2 ár. Heim kominn stofnaði hann eigin rak- arstofu ásamt Pétri Guðjónssyni á Skólavörðustíg 10 í Reykjavík. 1971 flutti hann sig um set að Njálsgötu 11. 1975 hætti hann störfum sem rakari og vann eftir það hjá danska sendiráðinu í Reykjavík, Flugleiðum, Heild- versluninni Festi og hjá Land- síma Íslands þar sem hann lauk sínum starfsferli. Útför Vals fór fram frá Fossvogskapellu 26. febrúar, í kyrrþey að ósk hins látna. Skaftafellssýslu 28. september 1907, d. 19. júní 1986. Synir Vals og Guðrúnar eru: 1) Högni for- stöðumaður, f. 20. september 1951, kvæntur Lilju Ást- valdsdóttur, f. 10. apríl 1955. Börn þeirra eru: a) Jón Ív- ar, f. 25. desember 1975, d. 19. mars 1976. b) Guðrún Helga, f. 10. júní 1977, gift Jón Hirti Finnbjarnarsyni, f. 23. febrúar 1972, sonur þeirra er Finnbjörn Hjartarson, f. 10. september 2003. c) Viðar Daði, f. 10. október 1981. d) Högni Valur, f. 15. ágúst 1983, sambýliskona Yrsa Örk Þorsteinsdóttir, f. 16. júní 1985. 2) Magnús bifvélavirki, f. 2. októ- ber 1955, kvæntur Ingileif Að- alheiði Gunnarsdóttur, f. 16. des- ember 1958. Dætur þeirra eru: a) Sigríður Aðils, f. 29. janúar 1982, sambýlismaður Halldór Haukur Sigurðsson, f. 22. desember 1980. Dóttir hans er Aníta Sól, f. 27. nóvember 1999, og sonur þeirra er Huginn Aðils, f. 21. september 2006. b) Ásrún Ester, f. 28. júlí 1988. 3) Einar bílstjóri, f. 29. ágúst 1961, sambýliskona Olga Þegar einhver sem maður elskar kveður þennan heim, fara ótal minn- ingar um hugann. Það að fara í helg- arferð til Reykjarvíkur og gista hjá ömmu og afa í Grænó var alltaf skem- tilegur viðburður fyrir okkur systur. Afi tók alltaf svo vel á móti okkur og var endalaust tilbúinn að dekra við afabörnin sín, hann var mjög dugleg- ur að tefla og spila við okkur og las upp úr Andrés fyrir svefninn. Ekki má gleyma öllum ferðunum í laugarn- ar sem við fórum með honum og ömmu, ef einhver var tilbúinn til að skreppa með manni í sund þá var það hann afi enda fannst honum fátt betra heldur en að fara í sund, liggja í heita pottinum og ræða heimsmálin. Ekki var heldur leiðinlegt í þau skipti sem við fórum öll saman til Spánar, við systurnar, mamma og pabbi og afi og amma. Munum við þá sérstaklega vel eftir því þegar við fór- um til Benidorm 1992, við systurnar, mamma og pabbi vorum á leiðinni heim nokkrum dögum á undan ömmu og afa og vorum í rútunni á leiðinni á flugvöllinn. Við áttum hjólabretti sem við unnum í tívolí og vildum endilega fá að taka það með til Íslands svo amma og afi buðust til að taka það með fyrir okkur. Allt í einu heyrum við: „Sjáðu gamla, þessi er hress“, lit- um út um gluggann og þá stendur afi úti með annan fótinn á hjólabrettinu, alveg eins og alvöru hjólabrettatöff- ari. Já, það eru margar minningarnar sem leita á mann þegar afi er ekki lengur til staðar. Einna sárast verður að heyra ekki lengur „sæl vinkona“ þegar maður kemur í heimsókn í Grænó. Við viljum biðja góðan Guð að veita ömmu styrk á þessum erfiðu tímum Bless elsku afi, þú hefur það svo mikið betra þar sem þú ert núna. Ástar- og saknaðarkveðjur frá okk- ur systrum. Sigríður Aðils og Ásrún Ester Magnúsdætur. Valur Magnússon Vönduð og persónuleg þjónusta Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj., s. 691 0919                               ! "# $!% &   ' (!!%  ! $) (!!*% !! +! ( (!!*% , ( '$  (!!*% - $ .! $  (!!*% /  0  (!!*% 0  1 ! (!!*% ✝ Elskuleg móðir okkar, SVAVA SÆUNN GUÐBERGSDÓTTIR, til heimilis á Hrafnistu, Reykjavík, áður Álftamýri 46, lést mánudaginn 10. mars á Landspítalanum við Hringbraut. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Davíð Vilhjálmsson, Svanhildur Vilhjálmsdóttir, Sæunn Guðjónsdóttir, Hanna Guðjónsdóttir. ✝ Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES BJARNASON, áður til heimilis í Sólheimum 25, Reykjavík, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli föstu- daginn 29. febrúar verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju miðvikudaginn 19. mars kl. 15.00. Guðmunda H. Jóhannesdóttir, Bjarni M. Jóhannesson, Herdís Guðjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ HJÁLMAR ÁGÚSTSSON frá Bíldudal, Hvassaleiti 58, Reykjavík, lést föstudaginn 14. mars á Landakotsspítala. Svandís Ásmundsdóttir, Hera Hjálmarsdóttir, Martha Ásdís Hjálmarsdóttir, Þorsteinn Arnór Jónsson, Jakob Ágúst Hjálmarsson, Auður Daníelsdóttir. ✝ Ástkær systir mín og föðursystir okkar, JÓRUNN ÁSTA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Siglufirði, áður Sléttuvegi 11, sem lést á Droplaugarstöðum laugardaginn 8. mars, verður jarðsungin frá Grensáskirkju mánudaginn 17. mars kl. 15.00. Hannes Guðmundsson, Ragnhildur Hannesdóttir, Gerður Hannesdóttir, Edda Hannesdóttir, Guðrún Hannesdóttir. ✝ Elskuleg móðir okkar, MÓEIÐUR HELGADÓTTIR frá Selfossi, sem lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi á Hellu miðvikudaginn 12. mars, verður jarðsungin frá Selfosskirkju föstudaginn 28. mars kl. 13.30. Helgi Garðarsson, Kristín Ólafsdóttir, Haukur Garðarsson, Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, Þorvarður Örnólfsson. ✝ Elskuleg systir okkar, frænka og mágkona, AUÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR frá Ytra-Skógarnesi, síðast til heimilis á Bræðraborgarstíg 55, Reykjavík, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, fimmtu- daginn 13. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Jens Kristjánsson, Ingibjörg Þorvaldsdóttir, Einar Haukur Kristjánsson, Anna Jóna Sigurðardóttir, Kristjana Ágústa Kristjánsdóttir, Sigríður Dinah Dunn, Magnús Hansson, Birgir Sigmundsson, Ásdís Guðmundsdóttir og aðrir ættingjar og vinir. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hve- nær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvað- an útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.