Morgunblaðið - 16.03.2008, Síða 18
Hliðarspor | Tvöfeldnin varð Eliot Spitzer ríkisstjóra í New York að falli en hann var opinberlegur baráttumaður
gegn spillingu og lauslæti. Tónlist | Hvaða erindi átti Fílharmóníuhljómsveit New York undir stjórn Lorins Maa-
zels til Norður-Kóreu? Tíska | Michelle Obama kemur til dyranna eins og hún er klædd - í „kennetískunni“ sígildu.
18 SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Freystein Jóhannsson
freysteinn@mbl.is
Jón og séra Jón eru hvergiþað sama; ekki í Banda-ríkjunum og ekki í kynlífiog allra sízt í kynlífi í
Bandaríkjunum. Bill Clinton for-
seti og Eliot Spitzer ríkisstjóri
New Yorkríkis eiga það sameig-
inlegt að vera demókratar. Og báð-
ir féllu á siðferðissvellinu. Clinton
lét sig hafa auðmýkinguna og
komst upp með sambandið við Mo-
nicu Lewinsky, en Spitzer átti hins
vegar engra kosta völ, þegar upp
komst um vændiskaup hans og
hefur nú sagt af sér.
Hliðarsex þarf því ekki að binda
endi á stjórnmálaferil, en getur á
hinn bóginn gert það. Alexandra
Marks og Ron Sherer benda á það
í The Christian Science Monitor,
að Clinton var orðlagður kvenna-
maður og því var hliðarspor hans
með Monicu Lewinski talið honum
líkt, og almenningi dugðu iðrun
hans og yfirbót. Eliot Spitzer hins
vegar er opinberlega baráttumað-
ur gegn spillingu og lauslæti og
það er tvöfeldnin sem verður hon-
um fyrst og fremst að falli. Vænd-
iskaup eru líka litin öðrum augum
en önnur kynferðisleg samskipti.
„Ég hef valdið vonbrigðum og
ekki staðizt þær siðferðiskröfur
sem ég setti mér,“ sagði Spitzer,
þegar upp komst um vændiskaup
hans. Það þótti þunnur þrettándi
til yfirbótar fyrir hræsni mannsins
sem hafði farið hörðum orðum um
hvers kyns spillingu og verið kall-
aður „herra Hreinn“ fyrir vikið.
Það hefur alltaf gefizt illa að tala
tungum tveim. Og úr því hærri
söðli sem menn detta, þeim mun
verr koma þeir niður. Láttu þá
bara gruna þig um græsku sagði
ráðgjafi í bandarískri kvikmynd.
Ef þú ert heppinn verður þér ekk-
ert á og þá telst það þér heldur
betur til tekna, en ef þú misstígur
þig umbera menn það af því að þú
ert bara ekki betri en þetta í
þeirra augum og því hafa þeir hálft
í hvoru alltaf átt von á mistökum
hjá þér. En umfram allt ekki reyna
að villa á þér heimildir. Það er
yfirdrepsskapurinn sem er óþol-
andi.
Gegn fjármálaspill-
ingu og vændi
Eliot Spitzer fæddist í Bronx,
New York, 10. júní 1959. Hann
nam við Princetonháskóla og
stundaði framhaldsnám í lögum við
Harvard, sem hann lauk 1984.
Tveimur árum síðar varð hann að-
stoðarhéraðssaksóknari í Manhatt-
an og gegndi þeirri stöðu í sex ár.
Barátta hans gegn bófum vakti at-
hygli og út á hana sóttist hann eft-
ir því að verða saksóknari New
York ríkis 1994. Litlu munaði að
hann næði því takmarki þá en það
tókst í annarri tilraun 1998. Fjór-
um árum síðar var hann endur-
kjörinn og naut þá hörku sinnar
ekki einasta gegn byssubófum
heldur og bankabófum, sem honum
tókst að knýja til þess að greiða
háar sektir fyrir margs konar fjár-
málamisferli. Þeir sigrar öfluðu
honum gælunafnsins „Fógetinn á
Wall Street.“ Spitzer beitti sér líka
gegn spillingu í stórfyrirtækjum
og þótti handtakagóður við að
hreinsa til í mörgu skúmaskotinu.
Þá stjórnaði hann árangursríkri
sókn á sviði atvinnu- og neytenda-
mála og barátta hans gegn meng-
un færði honum auknar vinsældir
almennings sem og sókn hans á
Jón og séra Jón
HLIÐARSPOR»
Clinton og Spitzer eru báðir demókratar og báðir duttu á siðferðissvellinu. Annar hélt forseta-
embættinu þrátt fyrir Lewinskimálið, en hinn hefur sagt af sér sem ríkisstjóri vegna vændiskaupa.
Reuters
Dupre Ashley Alexandra Dupre hyggst nota sér frægðina til söngframa.
Reuters
Spitzer Eliot Spitzer sagði af sér sem ríkisstjóri vegna vændiskaupa
» Þetta verður án efa einn afþeim leikjum sem maður mun
rifja endalaust upp þegar ferl-
inum er lokið.
Hermann Hreiðarsson landsliðsmaður eft-
ir að lið hans, Portsmouth, sigraði Man-
chester United, 1:0, í ensku bikarkeppn-
inni.
» Á þessum tíma var Bobby sábesti og tefldi betur en ég. En
hann átti hins vegar við sálræna
erfiðleika að stríða.
Boris Spasskí, fyrrverandi heimsmeistari í
skák, minntist vinar síns Bobbys Fischers
á samkomu í Þjóðmenningarhúsinu á 65.
ára afmælisdegi þess síðarnefnda, sem lést
fyrr á árinu, en Spasskí tapaði fyrir Fisc-
her í heimsmeistaraeinvígi í skák, sem
haldið var í Reykjavík 1972.
» Samband hugar og hjarta –af því ræðst karakter tafl-
mennskunnar.
William Lombardy, skákmeistari og kenn-
ari og aðstoðarmaður Fischers, þegar „afa-
keppnin“ var haldin á Reykjavík-
urskákmótinu.
» Ég ætla að stjórna með þaðað leiðarljósi að bæta það
sem við gerðum vel og leiðrétta
mistök okkar.
Jose Luis Rodriguez Zapatero, forsætis-
ráðherra og leiðtogi Sósíalistaflokksins,
sem sigraði í þingkosningunum á Spáni.
» Það koma sífellt verri fréttir,sérstaklega frá Bandaríkj-
unum, sem skipta miklu máli fyr-
ir heimshagkerfið.
Gylfi Magnússon, dósent við hagfræðideild
Háskóla Íslands, um efnahagsástandið.
» Það er klárlega aðgeng-isvandamál að heilbrigð-
iskerfinu öllu.
Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson, yfirlæknir
á slysa- og bráðadeild Landspítalans í
Fossvogi. Með endurskipulagningu á vinnu
starfsfólks á slíkum deildum spítalans er
vonast til að hægt verði að stytta biðtíma
eftir þjónustu um 50-75%.
» Ég sé ekki fyrir mér miklabyltingu.
Hrefna Haraldsdóttir, sem tekur við starfi
listræns stjórnanda Listahátíðar í Reykja-
vík í haust.
» [Bubbi] hefur aldrei veriðleiðandi afl. Hann er eins og
svampur sem sýgur umhverfi
sitt inn og mótar sig og skoðanir
sínar eftir því hvað er í gangi
hverju sinni.
Úr leiðara Birgis Arnar Steinarssonar,
ritstjóra tónlistartímaritsins Monitors.
» Biggi verður að kyngja þvíað staðreyndin er sú að með
Ísbjarnablús breytti ég íslenskri
tónlistarsögu ásamt
Utangarðsmönnum.
Af vef Bubba, bubbi.is.
» Vorboðinn ljúfi, lóan sjálf,ætti síðan að láta sjá sig fljót-
lega eftir páska.
Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur,
spurður um komu farfuglanna.
» Ég lít á þetta sem algerlegafræðilega spurningu
vegna þess að bankarnir
hafa það ágætt.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanrík-
isráðherra, þegar hún, á ráðstefnu í Kaup-
mannahöfn um alþjóðavæðinguna á Ís-
landi, var spurð hvernig íslenska
ríkisstjórnin myndi bregðast við færi svo
að íslensku bankarnir lentu í erfiðleikum.
» Að sýkna tvo þeirra á þeimforsendum að ekki var vitað
nákvæmlega hver sparkaði í
hvern og hvenær finnst mér
mjög skrýtin niðurstaða.
Sveinn Ingiberg Magnússon, formaður
Landssambands lögreglumanna, um dóm
héraðsdóms yfir þremur Litháum, sem
sýknaðir voru af ákæru fyrir ofbeldi gegn
lögreglumönnum.
» Íslandi hefur verið umbylt ogí þeirri byltingu eru lyk-
ilorðin einkavæðing, kvótakerfi,
misskipting, útrás, græðgi, þræl-
sótti, innflytjendur og stóriðja.
Hannes Sigurðsson, safnstjóri Listasafns
Akureyrar, í tilefni af uppákomunni
„Átaksverkefni“ með yfirskriftinni Bæ bæ
Ísland, sem 23 myndlistarmenn og fjöl-
margir aðrir, sem vilja ræða landsins gagn
og nauðsynjar, taka þátt í.
Ummæli vikunnar
Morgunblaðið/Golli
Mesta tap FL Group Jón Sigurðsson, Jón Ásgeir Jóhannesson og Pálmi Haraldsson á aðalfundi FL Group þar sem
fram kom að tap félagsins nam tæplega 70 milljörðum króna á síðasta ári.
VIKUSPEGILL»