Morgunblaðið - 16.03.2008, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 16.03.2008, Qupperneq 30
sjónarhólar og sjónarmið XII 30 SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ A T er nafnið á Tímariti íslenzkra arkitekta og líklega koma fleiri af fjöllum en ég og kann- ast ekki við þetta tímarit. En það þarf víst meira en nafnið eitt til að fá menn til að reka upp stór augu í öllu því of- flæði prentmiðla sem dengt er inn úr dyrunum hjá hverjum manni. Þá er eins víst að spurt sé: Eru það nú einhver tíðindi að nýtt tímarit, kannski glanstímarit, skjóti upp kollinum? Í sjálfu sér þarf það ekki að vera fréttnæmt, en ég tel að svo hafi verið þegar þessu riti var hleypt af stokkunum. Svo mjög kemur byggingarlist hverri mann- eskju við að það er vægast sagt fráleitt að reyna ekki að fylgjast með því sem þar er á döfinni. Þegar Tímaritið AT rak á mínar fjörur nýlega og fyrir einskæra tilviljun, þá hafði ég aldrei séð það eða heyrt getið um það. Ég hélt satt að segja eftir að hafa í marga áratugi verið áhugamaður um byggingarlist, innlenda sem er- lenda, og ritað einhver ókjör um efnið, aðallega í Lesbók Morg- unblaðsins, að ég þekkti helztu heimildir íslenzkar um samtíma byggingarlist. En svo reyndist nú ekki vera og því verð ég að bæta við að þetta kom mér ánægjulega á óvart Ritstjórinn, Valþór Hlöðversson, útvegaði mér nokkur blöð frá síð- ustu árum og vitanlega kom það ekki á óvart að efni er vandað og áhugavert og og í annan stað er það góð heimild um það bezta í ís- lenzkri byggingarlist síðustu ára. Guggenheim við Lækjartorg Þeirri hefð er haldið að ritstjór- inn, sem nú er Valþór Hlöðvers- son, skrifar ritstjórnargrein fremst í blaðið og fjallar þá um eitthvert stórmál sem á döfinni er. Í næstsíðasta hefti tímaritsins, sem út kom í maí 2007 er óhætt að mæla með áhugaverðum leiðara eftir ritstjórann um íslenzku byggingalistarverðlaunin, sem af- hent voru seint á síðasta ári. Sér- stök valnefnd valdi tíu verk sem þóttu koma til greina og fengu þau viðurkenningu. Albína Thordarson arkitekt skrifar einnig athyglisverða grein um verðlaunin, Einar E. Sæ- mundsson landslagsarkitekt skrif- ar um sína sérgrein og Þráinn Hauksson landslagsarkitekt skrif- ar um Bláþráðinn – útivistarleið um strandlengju höfuðborg- arsvæðisins. Hér er að mörgu að hyggja. Þungaviktarefni tímaritsins er umfjöllun um Íslenzku byggingar- listarverðlaunin 2007 Með svo glæsilegt myndefni í höndunum hefðu aðstandendur blaðsins átt að láta það koma fram svo enginn vafi léki á, hver eða hverjir eru höfundar ljósmyndanna. Eftir all- nokkra leit fann ég það líka, en þá með svo smáu letri að annað eins smáletur hef ég ekki séð áður. Munið að góðir ljósmyndarar eru líka listamenn eins og þið og eiga skilið fulla virðingu. Undir að- almyndini úr Bláa lóninu er nafn ljósmyndarans þar að auki sett of- an í dökkan flöt og er gersamlega ólæsilegt. En þetta eru smáatriði. Flestir muna eftir þeim um- ræðum sem urðu þegar bruninn varð á horni Austurstrætis og Lækjargötu. Í ljósi þess að ör- skammt frá þessum stað á sér nú stað stórfelld ný uppbygging, þar sem Tónlistarhúsið verður í önd- vegi, mátti láta sér detta í hug að nú yrði tækifærið notað og þetta fræga „Haraldarhorn“ við Lækj- artorg yrði látð verða glæsilegt framhald af byggingunum við Tónlistarhúsið. En varla var hætt að rjúka úr brunarústunum þegar ráðamenn lýstu því yfr að við uppbyggingu hér yrði íhaldssemin í fyrirrúmi og allt endurreist sem líkast þeim byggingum sem fyrir voru. Af þessu tilefni skrifaði Valþór Hlöðversson leiðara í tímaritið sem ber fyrirsögnina „Guggen- heim við Lækjartorg“. Þar segir hann meðal annars svo: „Hvað varðar uppbyggingu á brunareitnum á horni Lækjargötu og Austurstrætis á hiklaust að fela færustu arkitektum að hanna þar hús sem sómir nýrri öld og fellur að þeim háreistu brunagöfl- um sem þar eru beggja vegna. Það er unnt með því að færa Hressingarskálann úr stað og loka þar með þeim hring sem Guðjón Samúelsson og félagar sáu fyrir sér þegar Reykjavík hóf að þróast úr bæ í borg. Það segir e.t.v. nokkuð um læsi þjóðarinnar á nútímaarkitektúr þegar því er haldð fram í sífellu að ef ný hús verði byggð í mið- borginni hljóti þau að verða ljót; musteri gróðafíknar og í fullkom- inni andstöðu við allt sem fagurt er, gamalt og gott! Hverslags bull er þetta eig- inlega? Hvers vegna svara arki- tektar ekki fyrir sig? Er ekki ver- ið að vega að starfsheiðri þeirra? Í þessu sambandi má minna á fyrirhugaða uppbyggingu allt frá Tónlistar- og ráðstefnuhúsi suður að Lækjartorgi og má gera ráð fyrir að þau hús verði glæsilegir fulltrúar nútímaarkitektúrs. Nýtt hús á þessu horni handan torgs- ins, í nútímalegum stíl, mundi þá tengja gamla mðbæinn einkar vel við þetta uppbyggingarsvæði.“ Í framhaldi af þessu segir Val- þór Hlöðversson að ýmsar fornar iðnaðarborgir hafi risið úr ösku- stónni vegna verka eftir snillinga á borð við Calatrava, Pelli og Foster að ógleymdum Frank Gehry, sem með Guggenheimsafn- inu í Bilbao á Spáni eigi mestan þátt í því að mikill fjöldi ferða- manna komi nú sérstaklega þang- að vegna þess. Og að lokum spyr Valþór: „Væri ekki gaman að sjá nýtt Guggenheim við Lækjartorg?“ Ég segi jú, ekki kannski alveg eins krumpað og í Bilbao á Spáni, en eitthvað sem vakið gæti athygli út fyrir landsteinana. „Hversvegna svara arkitektar ekki fyrir sig?“ Þessi spurning ritstjórans hefur lengi verið tímabær. Á meðan ég vann við Lesbók Morgunblaðsins reyndi ég hvað eftir annað að vekja upp umræður meðal arki- tekta og að minnsta kosti að fá þá til að taka þátt í umræðum um það sem efst var þá á baugi. En það var árangurslaust. Þeir tóku mér ævinlega vel og lofuðu öllu fögru en síðan gerðist ekki neitt. AT, tímarit arkitekta, ætti þó að geta orðið sá vettvangur sem Perla Sigvalda Með grein um arki- tektinn Sigvalda Thordarson eftir Albínu Thordarson er birt þessi mynd af stofunni á Ægisíðu 90, sem er íbúðarhús og ein af perlum Sig- valda. Þarna hefur hann bók- staflega teiknað allt, stórt og smátt, en Þjóðminjasafnið lét mynda það áður en fjölskyldan seldi húsið. Sendiherrabústaður í Berlín Arkitektar: Hjördis Sigurgísladóttir og Dennis Davíð Jóhannesson. Hér er glæsibragur hvar sem á er litið og húsið er dæmi um frábæran íslenzkan arkitektúr, en hefur líklega kostað sitt. Þegar blaðinu er flett og það lesið, þá getur maður ekki annað en dáðst að því hvað við eigum þrátt fyrir allt mörg mannvirki sem eru glæsileg og listræn. Glerkápa Tónlistarhúsið er efa- laust merkasta bygging sem nú er á döfinni og er forsíðumyndin á kápu tímaritsins í nóv. 2005 helguð þessu verki. Þarna hafa menn leikið sér með hin myndrænu áhrif frá gler- kápu Ólafs Elíassonar listamanns. Góð leiðsögn þegar mikið er Íslensk tímarit um byggingalist hafa ekki verið á hverju strái og því kom tilurð AT, Tímarit íslenskra arki- tekta, Gísla Sigurðs- syni skemmtilega á óvart. Eftir að hafa gluggað í nokkur tölu- blöð er dómur hans sá að tímaritið sé menn- ingarrit á sínu sviði.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.