Morgunblaðið - 16.03.2008, Síða 67

Morgunblaðið - 16.03.2008, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 67          Mótormax Reykjavík - Kletthálsi 13 - Sími 563-4400 Mótormax Egilsstöðum - Sími 470-5080 / 470-5070 Mótormax Akureyri - Sími 460-6060 www.motormax.is Páskatilboð Mótormax á síðustu 2008 vélsleðunum er ávísun upp á 75.000 kr. í fatnaði og fylgihlutum og frítt bensín fyrir 25.000 kr. Láttu drauminn rætast núna, fáðu þér t.d. þennan magnaða Yamaha Nytro RTX ER 40th anniversary og við hjá Mótormax gefum þér kaupauka upp á 100.000 kr. Síðustu sleðarnir á páskatilboði 75.000kr. fatnaður og aukahlutir 25.000kr. bensínkort Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is ARMED America heitir vefsíða sem geymir fjölda ljósmynda af Banda- ríkjamönnum innan um vopn á heim- ilum sínum. Skotvopnaeign Banda- ríkjamanna er víðfræg og gefst hér gott tækifæri til að virða fyrir sér fólkið og byssurnar, spá og spek- úlera í smekk manna fyrir skotvopn- um og skoða hvernig þeir kjósa að geyma þau á heimilum sínum. Á síðunni segir að árið 1999 hafi um 215.000.000 byssur verið í eigu Bandaríkjamanna og einnig að skot- vopn hafi verið að finna á öðru hverju bandarísku heimili á þeim tíma. Helstu baráttusamtök landsins gegn skotvopnaeign almennings, The Brady Campaign, telja skot- vopnin 192.000.000 nú um stundir og að þau eigi 39% þjóðarinnar. Vefsíðan Armed America tengist útgáfu bókar með ljósmyndum Kyle Cassidy. Cassidy segir í inngangi að hann hafi langað að hitta þessa vopnuðu Bandaríkjamenn, sjá hvernig þeir litu út og hvernig heim- ili þeirra væru. Afraksturinn er bók- in Armed America: Portraits of Am- erican Gun Owners in Their Homes, þ.e. Vopnuð Bandaríki: Portrett af bandarískum skotvopnaeigendum á heimilum sínum. Cassidy lagðist í ferðalag um Bandaríkin þver og endilöng og tók myndir í gríð og erg, enda eru byssueigendur æstir í að láta mynda sig, að því er segir á síð- unni. Fjölda myndanna má sjá á síð- unni auk svars hverrar fyrirsætu við spurningunni „Af hverju áttu byssu?“ Svörin eru jafnfjölbreytt og fólkið og byssurnar. Byssuglaðir Bandaríkjamenn Hluti fyrstu valmyndar á vefnum Armed America, en þar má sjá myndir af Bandaríkjamönnum og byssum þeirra. Gráir fyrir járnum EINS og áhugamenn um Formúlu 1- kappaksturinn vita verða útsend- ingar frá honum framvegis á sjón- varpsstöðinni Stöð 2 sporti, sem áður hét Sýn. Eigandi Formúlu 1 og fram- kvæmdastjóri, Bernie Ecclestone, setur það skilyrði fyrir útsendingum á kappakstrinum að þær séu í opinni dagskrá og á Stöð 2 sport því ekki aðra valkosti en að opna dagskrána þegar sýnt er frá kappakstri og tíma- töku. Aðrir þættir tengdir Formúlu 1 eru í lokaðri dagskrá. Í ljósi þessa er vert að vekja at- hygli á því að stöðin næst með eft- irfarandi leiðum: Í gegnum Digital Ísland-myndlykil frá Vodafone, eða myndlykil Símans fyrir Skjáinn, og hafi menn ekki þessa myndlykla næst stöðin í sérstökum sjónvörpum með innbyggðum móttakara sem gerir myndlyklana óþarfa. Eigi menn engar af þeim græjum sem taldar hafa verið upp næst stöðin með hefðbundnu sjónvarpsloftneti, skv. upplýsingum frá Stöð 2 sporti, á eftirtöldum stöðum: í Reykjavik, á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi og nágrenni – það er að segja ef útsend- ingin er opin. Bein útsending var í nótt frá kapp- akstri og þáttur verður sýndur í kvöld þar sem farið verður yfir móts- helgina, að vísu í lokaðri dagskrá. Næsta útsending verður svo um páskana en að öllu jöfnu eru mót á hálfsmánaðarfresti fram í nóvember. Formúla 1 í opinni dag- skrá á Stöð 2 sporti Reuters Spænt Sebastien Vettel á fullri ferð í Melbourne F1 Grand Prix kappakstrinum í fyrradag. VEFSÍÐA VIKUNNAR: WWW.ARMEDAMERICA.ORG»

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.