Morgunblaðið - 16.03.2008, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 35
inu, jafnvel þótt þingmenn Vinstri grænna væru
ekki taldir með.
Staða Frjálslynda flokksins er áhugaverð í
þessu sambandi. Flokkurinn er í raun klofnings-
brot úr Sjálfstæðisflokknum og sækir fylgi sitt til
kjósenda, sem ætla mætti að gætu stutt Sjálfstæð-
isflokkinn. Það er alveg ljóst, eins og Morgunblað-
ið hefur margsinnis bent á síðustu árin, að Sjálf-
stæðisflokkurinn nær ekki fyrri stöðu í íslenzkum
stjórnmálum nema sættir takist á milli Sjálfstæð-
isflokks og þeirra Sjálfstæðismanna, sem skipa
raðir Frjálslynda flokksins. Tveir fyrrverandi
trúnaðarmenn Sjálfstæðisflokksins eru nú í þing-
flokki Vinstri grænna, þeir Guðjón Arnar Krist-
jánsson og Jón Magnússon.
Sjálfstæðisflokkurinn kom illa við Framsókn-
armenn, þegar flokkurinn hafnaði áframhaldandi
samstarfi við Framsóknarmenn í ríkisstjórn, þótt
þingmeirihluti væri til staðar. Og tónninn í Fram-
sóknarmönnum í garð Sjálfstæðisflokksins breytt-
ist í samræmi við það. Nú hefur Ingibjörg Sólrún
hins vegar komið Sjálfstæðisflokknum til hjálpar.
Með yfirlýsingu sinni í Kaupmannahöfn hefur hún
gert Framsóknarflokknum ljóst, að þrátt fyrir allt
væri Sjálfstæðisflokkurinn fýsilegri samstarfsaðili
í ríkisstjórn en Samfylkingin. Ekki ætlar Guðni
Ágústsson að taka þátt í því að leiða Ísland inn í
Evrópusambandið.
Hvað gerir
Sjálfstæðisflokkurinn?
H
vað gerir Sjálfstæðisflokkurinn í
þessari stöðu? Samfylkingin
hefur dregið nýjar víglínur í ís-
lenzkum stjórnmálum. Flokkur-
inn hefur lýst því yfir, að hann
stefni á að kosið verði um aðild
að Evrópusambandinu í næstu þingkosningum. Í
því felst óhjákvæmilega, að Samfylkingin mun
hefja baráttu fyrir aðild á þessu kjörtímabili, þvert
á það samkomulag, sem núverandi stjórnarflokkar
gerðu sín í milli. Það verður auðvitað óþolandi fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn að þeirri baráttu verði
stjórnað úr utanríkisráðuneytinu, þar sem for-
maður Samfylkingar situr í krafti atkvæða þing-
manna Sjálfstæðisflokksins á Alþingi. Ekki sízt
þegar ljóst er að skýr meirihluti er á Alþingi á móti
aðild að Evrópusambandinu.
Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn? Situr hann
og lætur þetta yfir sig ganga? Varla.
Skyndilega er komin upp ný og áhugaverð staða
í íslenzkum stjórnmálum. Og hún getur orðið enn
áhugaverðari ef Vinstri grænir hrista af sér þá sál-
rænu fjötra, sem þeir virðast vera í gagnvart Sam-
fylkingunni.
Hér á þessum vettvangi var lýst áhyggjum yfir
stöðu Sjálfstæðisflokksins eftir myndun ríkis-
stjórnar með Samfylkingunni vorið 2007 fyrir
tæpu ári og talið, að Sjálfstæðisflokkurinn gæti
verið í þeirri stöðu, að enginn annar flokkur mundi
vilja við hann tala og vinstri stjórn blasti við að
loknum næstu kosningum.
Ingibjörg Sólrún hefur gjörbreytt þessari stöðu
með yfirlýsingu sinni í Kaupmannahöfn. Hún hef-
ur opnað nýjar leiðir fyrir bæði Sjálfstæðisflokk,
Framsóknarflokk og Frjálslynda flokkinn og jafn-
vel Vinstri græna, kunni þeir að notfæra sér það
tækifæri. (Þeir eru að vísu ekki góðir í því að not-
færa sér pólitísk tækifæri, sem blasa við þeim!)
Sjálfstæðismenn hljóta að vera henni þakklátir
fyrir það. En það er ekki nóg að þakka Ingibjörgu
Sólrúnu. Þeir verða að sýna að þeir séu menn til
þess að brjóta af sér viðjar vanans og leita á nýjar
slóðir ef þær eru í augsýn og svo er nú.
Nú gæti stefnt í alvarlegri vandamál í efnahags-
og fjármálum þjóðarinnar en við höfum áður
kynnzt. Ástæðunnar er ekki að leita í okkar at-
vinnulífi heldur hinu, að bankarnir á Íslandi og
raunar nokkur íslenzk stórfyrirtæki eru orðin háð
því, sem gerist á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.
Vonandi breytist sú staða til batnaðar. Það getur
margt óvænt gerzt á fjármálamörkuðum en við lif-
um ekki á voninni einni. Í umræðum hér hefur
komið fram sú skoðum, að aðild að Evrópusam-
bandinu gæti bjargað okkur í þessum efnum.
Menn ættu að líta til Írlands í þeim efnum. Þar er
nú rætt um að hugsanlega þurfi að þjóðnýta írsku
bankana eða alla vega einhverja þeirra. Sú skoðun
hefur skotið upp kollinum í umræðum hér að það
sama gæti gerzt undir lok þessa árs eða snemma á
næsta ári í okkar samfélagi.
Í frétt, sem birtist hér í blaðinu í gær, föstudag,
kom fram sú skoðun sérfræðings á Írlandi að þeir
gætu nánast ekkert gert. Hvers vegna ekki?
Vegna þess, að þeir eru aðilar að evrusvæðinu:
menn taki eftir. Vegna þess að Írar eru aðilar að
evrusvæðinu. Ekki vegna þess, að Írar standi utan
við evrusvæðið. Þeir sem mest tala fyrir því að við
leysum okkar vanda með aðild að ESB og með því
að taka upp evru ættu að taka sér ferð á hendur til
Írlands og kynna sér stöðuna þar.
Forystumönnum Sjálfstæðisflokksins er vandi
á höndum en sá vandi er minni en hann var fyrir
nokkrum mánuðum vegna þess, að nú blasa við
þeim ný tækifæri.
Í stjórnmálum skiptir tímasetning miklu máli.
»Hafi menn ekki veitt því eftirtekt er ástæða til að benda á, að á Alþingi Íslendinga nú er skýr meirihluti gegn
aðild Íslands að Evrópusambandinu, jafnvel þótt þingmenn
Vinstri grænna væru ekki taldir með.
rbréf
Ljósmynd/Helgi Garðarsson
Vetrarstillur við Eskifjörð.