Morgunblaðið - 16.03.2008, Side 39

Morgunblaðið - 16.03.2008, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 39 Háteigsvegur 3 Nýtt heimili í miðborginni. Við bjóðum ykkur að koma og skoða vandaðar íbúðir rétt við Klambratúnið í dag milli klukkan tvö og fimm. Komdu við í miðbænum, við bjóðum upp á fallegar íbúðir, kaffi og súkkulaði. Opið hús 14:00 - 17:00 Nýtt heimili - fasteignasala Hamraborg 10 Sími: 414 6600 Fax: 414 6601 www.nyttheimili.is Reynir Erlingsson Lögg. fasteignasali Hér er um að ræða um 1.035 fm verslunar- og skrifstofuhúsnæði í traustri leigu. Í húsnæðinu eru reknar tvær verslanir auk kaffiteríu. Húsið stendur á stórri lóð með nægum bílastæðum. Eignin gefur mikla möguleika hvað varðar nýtingu o.fl. Allar nánari upplýsingar gefur Þorleifur St. Guðmundsson löggiltur fasteignasali. 7314 Skeifan - fjárfestingarkostur Skeifan – Fjárfestingarkostur aðild að ESB. Fram kemur í Evr- ópuskýrslu stjórnmálaflokkanna, að ekki sé til neitt „Evrópuverð“ á matvælum og að aðild að ESB snerti þetta mál aðeins að litlu leyti. Hér vita allir að engir tollar eru á innfluttum matvælum frá ESB nema þeim búvörum sem íslenskir bændur framleiða einnig. Í dag er staðan sú að þær vörur sem hér eru hlutfallslega dýrastar eru innfluttar án tolla og koma verr út úr sam- anburði á landbúnaðarvörum okkar. Þarna á ég við grænmeti, innflutt brauð og kornvörur, gosdrykki, safa, sykur, súkkulaði og sælgæti, olíur og feitmeti. Íslenskur landbún- aður er okkur dýrmætur og þessar niðurstöður kannana benda aðeins til fórnar á auðlind landbúnaðarins en ekki á lækkun á matvælaverði. Hagvöxtur og full atvinna er styrkur okkar Íslendinga og sér- staða í Evrópu. Víða gengur 10-15% vinnuafls um án atvinnu. Þá stöðu vill enginn kjósa yfir börn sín. Hag- vöxtur ESB er að auki miklu lægri en á Íslandi þótt að sjálfsögðu verði að hafa í huga að hagvöxtur og at- vinnuleysi er mjög mismunandi á milli landa og svæða innan sam- bandsins. Sannleikurinn er sá að hinn opni heimur kann að færa okkur fleiri tækifæri en fást með inngöngu í ESB. Því væri það verðugt næsta verkefni stjórnmálaflokkanna að skoða hvernig Íslandi framtíð- arinnar vegnar með áframhaldi EES-samningsins og utan ESB. Þetta ber að gera, ekki síst í ljósi sérstöðu Íslands á nýjum kross- götum við opnum siglingaleiða frá Asíu til Evrópu og Norður- Ameríku. Þar verður Ísland í nýju stúkusæti varðandi orku- og farm- flutninga. Stærstu hindranir hugsanlegrar aðildar að ESB Þau atriði sem vega langþyngst gegn hugsanlegri aðild Íslands að ESB felast í Rómarsáttmálanum. Innifalið í honum er að sérkröfur, bæði í sjávarútvegi og landbúnaði, eru nánast útilokaðar. Lagasetningarvald á sviði sjávar- útvegs er fyrst og fremst hjá stofn- unum ESB og aðildarríkin hafa framselt vald til stefnumótunar á sviði sjávarútvegs til sambandsins. Afleidd löggjöf á þessu sviði þarf aukinn meirihluta atkvæða í ráð- herraráðinu til að hljóta samþykki, en Evrópuþingið hefur eingöngu ráðgefandi hlutverk á þessu sviði. Samkvæmt meginreglunni um jafnan aðgang hafa öll aðildarríki ESB ótvíræðan rétt fyrir fiskiskip sín til veiða á öllum miðum aðild- arríkjanna innan 200 mílna mark- anna. Aðgangurinn er þó ekki ótak- markaður því takmarkanir eru í reglum sambandsins sem kveða á um úthlutun veiðiheimilda með hlið- sjón af reglu um hlutfallslegan stöð- ugleika sem byggist á sögulegri veiðireynslu. Margir Íslendingar munu aldrei sætta sig við framsal á sjálfsákvörð- unarrétti íslensku þjóðarinnar til Brussel. Þá felast í aðganginum að ESB mikil fjárútlát. Þar deila menn um upphæðir upp á 8–11 milljarða króna eða u.þ.b. 2–6 milljarða króna nettó. Lokaorð Mín niðurstaða sem einstaklings og formanns í stjórnmálaflokki er þessi. Það er ekkert sjálfgefið í þessu efni. Það er mikilvægt bæði í mínum flokki og öðrum að halda umræðunni áfram og kanna alla kosti hvað varðar framtíð Íslands, horft til lengri og skemmri tíma. Það gengur engin skyndilausn upp. Pólitíkin og stjórnmálaflokkarnir verða að setjast á rökstóla með okk- ar framsýnasta fólki. Það er okkar að hugsa eins og þeir sem færðu landið okkar frá hungri og fátækt yfir í eitt auðugasta land veraldar. Höfundur er formaður Framsókn- arflokksins. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.