Morgunblaðið - 16.03.2008, Side 43
» Skurðhjúkr-
unarfræð-
ingar mótmæla
vaktabreyt-
ingum á Landspítala,
telja þær m.a. stofna
sjúklingum í hættu og
hafa því sagt upp störf-
um frá og með 1/5.
MIKILL meirihluti skurð- og
svæfingarhjúkrunarfræðinga á
Landspítalanum lætur af störfum frá
og með 1. maí næstkomandi vegna
fyrirhugaðra breytinga á vaktafyr-
irkomulagi. Breytingarnar á skurð-
og svæfingardeildum Landspítalans
eru gerðar undir því yfirskini að ver-
ið sé að auka og bæta þjónustu við
sjúklinga og færa vinnutíma hjúkr-
unarfræðinga nær vinnutíma-
tilskipun.
Við teljum aðgerðirnar þvert á
móti minnka þjónustu við sjúklinga
og geti jafnvel stofnað þeim í hættu.
Ein af breytingunum sem við erum
andvígar felur í sér að nú verði skurð-
hjúkrunarfræðingur alltaf í húsinu á
Hringbraut en bakvöktum í Fossvog-
inum hætt. Það þýðir að sérhæfðum
skurðhjúkrunarfræðingum sem
bregðast við á kvöld- og næt-
urvöktum er fækkað úr þremur niður
í einn, og er hann staðsettur á Hring-
braut.
Einn og utan sérsviðs
Með nýja fyrirkomulaginu er þess-
um eina skurðhjúkrunarfræðingi
gert að sinna gæsluvakt, kvennadeild
og augndeild samtímis. Hann á það
því til dæmis á hættu að vera kall-
aður samtímis til keisaraaðgerðar á
kvennadeild og til bráðaaðgerðar á
gjörgæsludeild. Það gefur augaleið
að slíkt getur haft alvarlegar afleið-
ingar fyrir sjúklinga. Að velja milli
bráðatilfella, lífs og dauða, fellur ekki
undir starfssvið hjúkrunarfræðinga.
Skurðhjúkrunarfræðingar eru
metnaðarfullir sérfræðingar með ólík
sérsvið, rétt eins og skurðlæknar.
Sem dæmi fara skurðhjúkrunarfræð-
ingar í gegnum 9 mánaða samfellda
þjálfun á hjartaskurðdeild áður en
þeir standa bundna vakt á hjarta-
skurðstofu. Þar til nú hefur það ávallt
þótt brýn nauðsyn að hafa hjarta-
skurðhjúkrunarfræðing á vakt eftir
hjartaaðgerðir. Með sameiningu
sviðanna er þessi sérhæfing virt að
vettugi, og að kalla slíkt aukna og
bætta þjónustu við sjúklinga er fá-
sinna.
Það er krafa okkar að allar þeir
sem koma að skurðaðgerðum séu
sérfræðingar í viðkomandi fagi og
það hlýtur einnig að vera krafa sjúk-
linga og aðstandenda þeirra.
Sparnaður, ekki hagræðing
Við höfnum því að þessar vakta-
breytingar séu sjúklingum til góðs og
leyfum okkur að auki að fullyrða að
þær geti stofnað þeim í hættu.
Breytingarnar snúast fyrst og
fremst um sparnað. Við viljum hvorki
að sá sparnaður bitni á sjúklingum
með lakari þjónustu né á okkur, með
auknu vinnuálagi og lægri launum.
Þessu neitum við að taka þátt í og
það er meðal annars þess vegna sem
að við höfum gert upp hug okkar og
munum láta af störfum frá og með 1.
maí nk.
Sjúklingum
stofnað í hættu
Elín Ýrr Halldórs-
dóttir og Vigdís
Árnadóttir fjalla um
fyrirhugaðar breyt-
ingar á vaktafyr-
irkomulagi á Land-
spítala
Vigdís
Árnadóttir
Höfundar eru skurðhjúkrunarfræð-
ingar á skurðstofu við Hringbraut.
Elín Ýrr
Halldórsdóttir
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 43
UMRÆÐAN
Stangarhyl 5, sími 567 0765
Ítarlegar upplýsingar um
eignirnar á www.motas.is
Skipalón 16-20 á Hvaleyrarholti
2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir
á frábærum stað.
www.motas.is
Sími 565 5522 | www.fasteignastofan.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/M
O
T
3
56
41
0
1/
07
Söluaðili:
> Glæsilegar íbúðir, fyrir 50 ára og eldri, í Hafnarfirði
Hvaleyrarholti
Sölusýning í dag
kl. 14:00 – 16:00
Skipalón
• Tvennar svalir, bæði út úr eldhúsi og stofu.
Ótrúlegt útsýni.
• Stórar stofur.Tvö baðherbergi, baðherbergi
inn af hjónaherbergi.
• Amerískur ísskápur, kvörn í vaski og
uppþvottavél fylgja.
• Granít á borðum og sólbekkjum.
• Arinn og 2 stæði í bílageymslu með stærstu
íbúðunum.
• 80 m2 salur í sameign fylgir (afmæli og
minniháttar tilefni).
• Þvottastæði í bílageymslu.
• Golfvöllur í göngufæri.
Verðdæmi:
• 2ja herb. m/ bílskýli
frá 18.500.000 kr.
• 3ja herb. m/ bílskýli
frá 24.500.000 kr.
• 4ra herb. m/ bílskýli
frá 29.000.000 kr.
Viðar ehf (Amaro heildverslun)
hefur ákveðið að selja fasteign sína
við Frostagötu 6c á Akureyri. Eignin
er 570 fermetrar auk millilofts að
hluta. Ástand eignarinnar er mjög
gott, tvær stórar innkeyrsludyr og
stórt malbikað athafnarsvæði. Til
greina kemur að selja eignina í einu
lagi eða í hlutum. Bein sala eða
makaskifti koma til greina.
Upplýsingar um eignina gefur Kristján Skarphéðinsson
í síma 899-3218 eða á amaro@amaro.is
Til sölu á Akureyri