Morgunblaðið - 13.04.2008, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Tökum við umsóknum núna
Kynntu þér námið á www.hr.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-0
6
0
8
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
MARGIR hafa eflaust tekið eftir því
að vinnupallar skríða nú hærra og
hærra upp eftir veggjum Hall-
grímskirkjuturns. Ástæða þess er
sú að umfangsmikil viðgerð á
steypuskemmdum í turninum er að
hefjast. Að sögn Jóhannesar Pálma-
sonar, formanns sóknarnefndar
Hallgrímskirkju, hefur lengi verið
unnið að fjármögnun þessarar við-
gerðar og því mjög ánægjulegt að
hún sé að komast í gang.
Vinnupallarnir munu teygja sig
alla 74 metrana upp á topp og við-
gerð fara fram á öllum turninum.
Gert er ráð fyrir að viðgerðin taki
12-18 mánuði og því ljóst að kirkjan
verður í þessu dulargervi eitthvað
fram á næsta ár.
Skemmdirnar sem hér um ræðir
segir Jóhannes ekki vera alkalí-
skemmdir, heldur séu þær mest-
megnis veðrunar- og frostskemmd-
ir. Skoðunarferðir með körfubílum
fyrr í vor hafi sýnt að frostskemmd-
ir séu ekki síst ofan á hinum fjöl-
mörgu stöplum kirkjunnar. Þar sé
víða sprungunet.
Gæti kostað 250 milljónir
Jóhannes segir viðgerðina nokk-
uð kostnaðarsama. Kostnaðar-
áætlun frá Verkfræðistofu Sig-
urðar Thoroddsen (VST), miðað við
verðlag síðasta árs, meti verkið á
um 230 milljónir króna en nú sé
frekar gert ráð fyrir 250 millj-
ónum. Fjármögnun verksins tókst í
samstarfi við ríkissjóð, Reykjavík-
urborg og þjóðkirkjuna, en á
grundvelli samkomulags við þessa
opinberu aðila hefur fé til verksins
verið tekið að láni hjá SPRON.
„Ástandið er talið mjög slæmt.
Við skoðun hefur komið í ljós að
þessi áætlun er síst ofmetin. Óttast
er að steypuskemmdir séu jafnvel
meiri en talið var. Þeirri spurningu
er þó ekki hægt að svara fyrr en
hafist verður handa,“ segir Jóhann-
es.
Þetta er ekki fyrsta viðgerðin á
kirkjunni. Árin 1988-1989 fór fram
umfangsmikil viðgerð á turnspír-
unni ofan klukknaports, þar sem
um 470 stöplar eru. Skv. upplýs-
ingum frá VST voru þá yfirfarnir
333 stöplar, svo um 140 þeirra gætu
verið illa á sig komnir í dag. Sú við-
gerð segir Jóhannes að hafi líklega
haldið sér nokkuð vel en þó verði
ekki hjá því komist að yfirfara hana
aftur nú. Þá var einnig gert við báð-
ar álmur kirkjunnar sem ganga til
suðurs og norðurs út frá turninum,
á árunum 1992-1995, en vitað var
að fara þyrfti í turninn sjálfan.
Örn Steinar Sigurðsson, verk-
fræðingur hjá VST, segir viðbúið
að gera þurfi viðgerðir sem þessar
á kirkjunni með reglulegu millibili
til framtíðar. Hann segir enn óvíst
hvernig vinnupallarnir verði út-
færðir. Vonast sé til að stálpallar
Ístaks geti náð alla leið upp en ann-
ars gæti þurft að byggja trépalla
utan um efsta hlutann. Slíkir pallar
eru dýrir og þyrftu líklega að hvíla
á stálbitum sem reknir væru í gegn-
um klukknaportið.
Morgunblaðið/Golli
Turninn illa
á sig kominn
út af steypu-
skemmdum
Hallgrímskirkjuturn klæðist vinnupöllum á ný
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
MJÖG algengt vinnulag virðist vera
hjá Póstinum að póstburðarpokar
séu keyrðir út og skildir eftir án eft-
irlits, utandyra eða í ólæstum stiga-
göngum fjölbýlishúsa, þar til póst-
burðarmaður á hverjum stað nær í
pokann. Í Morgunblaðinu á föstudag
var sagt frá tilfelli í Grafarvogi þar
sem svona pokar lágu dag eftir dag
án eftirlits og fólk var farið að gramsa
í þeim.
Líka í Mosfellsbæ og Kópavogi
Finnbogi Rútur Hálfdánarson, íbúi
í Brattholti í Mosfellsbæ, hefur svip-
aða sögu að segja. Síðastliðinn sunnu-
dag hirti hann upp póstburðarpoka í
götunni sinni, sem lá þar á glámbekk.
Daginn eftir hringdi hann í Póstinn
og lét sækja pokann.
Starfsmaðurinn sem sótti pokann
gaf Finnboga þau svör að ekki hefði
staðið til að dreifa pósti á þessum
tíma, en veikindi starfsmanna orðið
þess valdandi að enginn sótti pokann.
Hann hafði þá legið úti á götu frá því
á föstudegi. „Hún sagði mér að þar
sem póstpokar væru oft afar þungir,
gætu bréfberar ekki sótt þá á póst-
húsið og borið þá og því væru svona
„pit-stop“ hér og þar, þangað sem
þau keyrðu pokana og skildu eftir.
Bréfberinn kæmi svo alla jafna ekki
löngu seinna og sækti pokann, “ segir
Finnbogi.
Sverrir Halldórsson, íbúi í Engi-
hjalla í Kópavogi, segir algengt að
póstburðarpokar séu skildir eftir í
ólæstu anddyri fjölbýlishússins þar
sem hann býr, án samráðs við hús-
félag eða nokkurs eftirlits. „Þeir
koma yfirleitt með pokann klukkan á
bilinu eitt til tvö og póstburðarmaður
sækir hann um klukkan fjögur.“
Sverrir segist hafa kvartað undan
þessu í Póstinum án árangurs, en
þessu hafi linnt eftir að hann hafði
samband við Póst- og fjarskiptastofn-
un. Nú sé þetta hins vegar byrjað aft-
ur.
Pósturinn sér um flutning og af-
hendingu mikilvægra upplýsinga. Í
töskum sem þessum geta leynst upp-
lýsingar um fjármál, heilbrigði og
einkalíf fólks.
„Nú verður eitthvað gert“
„Það er mjög alvarlegt mál ef póst-
ur liggur á glámbekk,“ segir Tryggvi
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
framkvæmdasviðs Póstsins. Hann
segir skýrt að vinnureglur leyfi fyrr-
greint vinnulag ekki. Hann hafi þegar
á fimmtudag sett í gang vinnu vegna
þessara mála, en „ef vinnureglan er
ekki að virka þarf að fara í aðgerðir til
að laga það. Við munum fara yfir
þetta í heild með okkar stjórnendum
á dreifingarstöðvum og meta hversu
sterkar aðgerðir þarf að fara í. En nú
verður eitthvað gert, það er alveg
ljóst.“ segir Tryggvi. Aðspurður tek-
ur hann undir að eðlileg ráðstöfun sé
að póstur sé aldrei án eftirlits, þegar
hann er ekki í læstum hirslum.
Póstur liggur
án eftirlits víða
um borg og bæ
Framkvæmdastjóri hjá Póstinum segir
ljóst að nú verði eitthvað gert í málinu
Ljósmynd/Ólafur V. Ólafsson
Opið hús Algengt vinnulag virðist
vera að skilja póst eftir á víðavangi.
Í HNOTSKURN
»Í 31. gr. laga um póstþjón-ustu segir að póstsending sé í
vörslu og á ábyrgð póstrekanda
frá móttöku til afhendingar á til-
greindum ákvörðunarstað.
» Í 32. gr. segir: „Póstrekendurskulu gera allar eðlilegar
ráðstafanir til að koma póstsend-
ingum til skráðra viðtakenda.“
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu hafði töluverðan viðbúnað þegar
símtal barst klukkan 7.30 á laug-
ardagsmorgni frá blaðbera sem til-
kynnti að maður væri fastur í skotti
bifreiðar á Miklubraut, til móts við
Miklatún, en blaðberinn hefði heyrt
í manninum innan úr skottinu.
Fjöldi lögreglumanna var sendur
á vettvang enda grunur um að um
mannrán væri að ræða.
Hins vegar reyndist bíllinn kyrr-
stæður og með kalda vél og mann-
laus að öðru leyti en að í skottinu
var ungur maður í annarlegu
ástandi.
Var hann frelsaður úr prísund-
inni en gat ekki veitt lögreglu nein
svör um hvernig hann hafnaði í
skottinu.
Maður sem lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu hafði afskipti af
vegna gruns um ölvun við akstur á
laugardagsmorgun, við bensínstöð
N1 við Hringbraut, brást illa við af-
skiptunum. Hann veittist að lög-
reglumanni og veitti honum áverka.
Var mikill liðsauki fljótt kominn á
staðinn og maðurinn yfirbugaður.
Hann var síðan færður í fanga-
geymslu.
Færður á slysadeild
Lögreglumaðurinn meiddist m.a.
í andliti og var færður til skoðunar
á slysadeild þar sem hann fékk
áverkavottorð. Að öðru leyti var
nóttin róleg á höfuðborgarsvæðinu
og aðeins fjórir vistaðir í fanga-
geymslum.
Ungur mað-
ur í bílskotti
Réðst að lögreglumanni við bensínstöð
LÖGREGLAN telur sig hafa haft
hendur í hári þeirra sem stóðu fyrir
öldu veggjakrots sem hófst í Hvera-
gerði fyrir um hálfum mánuði.
Hafði m.a. verið krotað á hús, á
hliðar flutningabíla og á gróðurhús.
Blaðamaður ræddi við bæjarbúa
sem varð fyrir skemmdarvörgunum
og reiknaði með að þurfa að mála á
ný grindina á flutningabíl sínum.
Eru stálpaðir unglingar grunaðir
um spjöllin. Verða þeir líklega látnir
þrífa eftir sig krotið eða borga
skaðabætur.
Krotarar
gómaðir í
Hveragerði
Skemmdu bíla og hús
Skemmdir Víða er krotað.