Morgunblaðið - 13.04.2008, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VISTVÆNAR SAMGÖNGUR
farartæki áttu upp á pallborðið fyrir
nokkrum misserum en eru ekki
lengur efst á baugi í umræðunni um
valkosti við bensín- og dísilbíla. Egill
segir menn þó síður en svo hafa
slegið vetnið út af borðinu. „Vetnið
mun að öllum líkindum koma en
ekki 2020-2030 eins og menn voru
farnir að spá, heldur verður því
seinkað til 2040 til 2050 til að færa
þróunarpeninginn nær í tíma í tækni
sem getur a.m.k. dregið úr losun
koltvísýrings núna. Við erum sumsé
að tala um millistig fram að vetninu
enda brýnt að draga þegar í stað úr
losuninni.“
Á grænasta skriðdrekanum
Sigurður er sannfærður um að út-
blástursumræðan sé farin að ná eyr-
um fólks. „Fólk er í auknum mæli
farið að biðja Orkusetur að aðstoða
sig við val á bílum. Þá er ég jafnvel
að tala um 7-15 milljón króna bíla og
fyrir fólk sem hefur efni á slíkum
bílum getur eldsneytisverð varla
skipt máli, þannig að verið er að
velja bíl út frá lægsta útblástursgildi
í þeim flokki. Fólk vill áfram vera á
skriðdreka – en grænasta skrið-
drekanum. Þetta er kannski ekki að
fara alla leið en tvímælalaust skref í
rétta átt.“
Sé vel haldið á spöðunum segir
Sigurður raunhæft að draga veru-
lega úr útblæstri á næstu árum. „Þá
er ég bara að tala um að fylgja
tækninni. Stefni fólk að því að gera
betur við næstu bílainnkaup getum
við hæglega náð því takmarki að
minnka útblástur frá samgöngum
um 20% fram til ársins 2020. Tækn-
in er alltaf að verða okkur hagstæð-
ari og stökk framundan í þeim efn-
um með rafmagnsbílum og öðru.
Þetta á því að verða sársaukalaust
út frá einkabílnum. Það þarf bara að
hjálpa fólki að feta þennan veg.“
Sigurður segir fækkun bílastæða
líka leið til að draga úr losun koltví-
sýrings. „Flugvél sem hefur engan
stað til að lenda á fer aldrei í loftið.
Sama gildir um bílinn. Fækki bíla-
stæðum mun bílum fækka líka.
Verðmæti lands er víða mikið og ég
veit að menn eru farnir að velta fyrir
sér hvort það sé forsvaranlegt að
verja stóru svæði undir bílastæði.
Er nauðsynlegt að vera með eitt til
eitt og hálft bílastæði á hvern starfs-
mann eða íbúa? Kæmi til álita að
fyrirtæki og stofnanir fækkuðu
stæðum en greiddu starfsfólki fyrir
að koma öðruvísi en með einkabíl í
vinnuna? Það er spurning um þor.“
Að stökkva yfir stórfljótið
Sigurður segir ekki alfarið við al-
menning að sakast í samgöngu-
málum enda sé oft og tíðum ekki
auðvelt að fara út úr bílnum á Ís-
landi. Þar á hann ekki endilega við
veðurfarið, heldur skipulag byggð-
arinnar. „Ef við tökum höfuðborg-
arsvæðið sem dæmi þá er byggðin
mjög dreifð og almennings-
samgöngur mættu vera betri.
Skipulagið vinnur m.ö.o. gegn okkur
í þessum efnum.“
Aukið vægi almennings-
samgangna er klárlega leið til að
stemma stigu við útblæstri og rætt
hefur verið um hugsanlegar lest-
arsamgöngur á Íslandi í framtíðinni.
Sigurði þykir sú umræða ótímabær.
„Mér finnst hugmyndin um lest-
arkerfi ekki bara eins og að stökkva
yfir lækinn, heldur stórfljótið. Fyrst
verðum við að láta reyna á þær al-
menningssamgöngur sem við höfum
lagt upp með til þessa, þ.e. stræt-
isvagna, áður en lengra er haldið.
Þá er ég að tala um alvöru þjónustu,
ferðir á tíu mínútna fresti, alvöru
stoppistöðvar, auðvelt aðgengi og
gjaldaumhverfi sem virkar. Gangi
það má alveg fara að skoða lest-
arnar.“
Egill telur þessa umræðu líka á
villigötum. „Það er í sjálfu sér allt í
lagi að kasta fram hugmyndum af
þessu tagi en mér finnst menn
stundum hafa tilhneigingu til að
sækja vatnið yfir lækinn. Það myndi
væntanlega kosta tugi milljarða að
byggja upp lestarkerfi hér á landi.
Má ekki frekar bæta núverandi al-
menningssamgöngur fyrir mun
lægri upphæð? Þá er ég að tala um
að tvöfalda fjölda strætisvagna og
fjölga þannig ferðum. Gera kerfið
aðgengilegra. Missi maður af neð-
anjarðarlest í Lundúnum andar
maður rólega vegna þess að maður
veit að næsta lest kemur eftir
augnablik. Hér getur maður þurft
að bíða heillengi eftir næsta strætó.
Þetta myndi kosta peninga, þó það
yrði mun ódýrara en byggja upp
lestarkerfi frá grunni, en hvetja fólk
til að nýta sér almennings-
samgöngur og draga þannig úr los-
un koltvísýrings.“
Strætófarþegum fjölgar
Frá því var greint hér í Morg-
unblaðinu á föstudag að farþegum
með vögnum Strætó bs. hefði fjölg-
að um milljón á ársgrundvelli miðað
við fyrra ár. Þeir eru nú um 8,7
Sigrún Björk
Jakobsdóttir
Sigurður Ingi
Friðleifsson
Egill
Jóhannsson
LEÐURINNRÉTTING 170 HESTÖFL DREGUR 3.300 KG STÖÐUGLEIKASTÝRING SPÓLVÖRN ÞAKBOGAR
SUPER SELECT® 4X4 DRIFBÚNAÐUR SEX ÞREPA SJÁLFSKIPTING SJÖ SÆTA DÖKKAR RÚÐUR 100%
LÆSING AÐ AFTAN 18 TOMMU ÁLFELGUR XENON LJÓS 860W ROCKFORD HLJÓMKERFI MEÐ 4 GB
MINNI FYRIR TÓNLIST 7" LCD DVD SKJÁR MEÐ BAKKMYNDAVÉL OG FLEIRA
Pajero Instyle Dísil 6.990.000 krónurPajero kostar frá
5.890.000 kr.
BETRA VERÐ OG BÚNAÐUR
FYRIR LAND OG ÞJÓÐ
Morgunblaðið/Kristinn
Á gangi Það er heilsubætandi að ganga en getur verið blautt og kalt, að minnsta kosti yfir háveturinn.