Morgunblaðið - 13.04.2008, Page 13

Morgunblaðið - 13.04.2008, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 13 milljónir á ári. Um 35.000 íbúar höfuðborgarsvæðisins nota strætó einu sinni í viku eða oftar, og eru námsmenn á framhalds- og há- skólastigi 40% farþega en þeir ferðast ókeypis. Af 30 þúsund út- gefnum skólakortum eru aðeins um 12 þúsund í notkun. Þá eru níu af hverjum tíu farþegum ánægðir með þjónustu Strætó og telja hana falla vel að þörfum sínum. Þetta bendir til þess að almenningssamgöngur séu á réttri leið í borginni. Akureyrarbær afnam fyrir rúm- um fimmtán mánuðum gjöld í Strætisvagna Akureyrar (SVA) með góðum árangri. „Þetta hefur tekist mun betur en við þorðum að vona,“ segir Sigrún Björk Jak- obsdóttir bæjarstjóri. Stefán Baldursson, forstjóri SVA, staðfestir að yfir 60% aukning hafi orðið á nýtingu vagnanna síðan gjaldið var afnumið. „Áður fluttum við um 600 manns á dag yfir vetrar- tímann en nú flytjum við um 1.600,“ segir hann. Vilja draga úr umferð Sigrún Björk segir tilganginn hafa verið tvíþættan. Annars vegar var nýtingin á kerfinu léleg en ekki þótti koma til greina að leggja það niður. „Við verðum að hafa stræt- isvagna í jafnstórum bæ og Ak- ureyri,“ segir Sigrún Björk. Hins vegar er það yfirlýst stefna yf- irvalda að draga úr umferð í bæn- um, fyrst og fremst vegna svif- ryksmengunar sem er mjög mikil á Akureyri vegna veðráttu og legu bæjarins. Á Akureyri er notaður sandur til hálkuvarna og það getur verið hluti af þessu vandamáli og eins hefur ekki af öryggisástæðum þótt forsvaranlegt að hvetja bæj- arbúa til að draga úr notkun nagla- dekkja yfir vetrartímann. „Ástand vega á Norðurlandi er oft þannig að nagladekkin eru talin öruggari, en þróun í loftbólu- og harðkornadekkj- um er ör og þau munu vonandi leysa hin af hólmi í framtíðinni,“ segir Sig- rún Björk. Hún segir almenna ánægju með gjaldfrjálsar strætisvagna- samgöngur, ekki síst meðal barnanna sem noti nú strætó í aukn- um mæli til styttri ferða ef illa viðr- ar. „Það er að sjálfsögðu jákvætt en breytir ekki því að við munum áfram hvetja börn og alla sem geta til að ganga stuttu leiðirnar þegar þannig viðrar.“ Fordæmi stjórnvalda Engin tímamörk eru á verkefninu og bæjarstjórinn segir afar ólíklegt að gjöld verði tekin upp að nýju hjá SVA. „Tekjur af fargjöldum voru hverfandi hluti af rekstrarkostnaði strætisvagnanna, þannig að í sjálfu sér skipti það litlu sem engu máli. Síðan er vitaskuld engin ástæða til að hrófla við því sem gengur vel.“ Sigurður Ingi Friðleifsson segir brýnt að stjórnvöld sýni gott for- dæmi og marki skýra stefnu í sam- göngumálum. „Opinberar stofnanir og fyrirtæki eiga að vera fyrst til að kaupa umhverfisvæna bíla og taka upp nýja tækni enda þótt hún geti stundum verið dýrari. Oftast er það þó á heildina litið sparnaður fyrir fyrirtæki að reka slíka bíla. Í þess- um efnum má gera miklu betur. Þetta er spurning um pólitískt þor.“ Egill Jóhannsson segir flókið fyrir fyrirtæki eins og Brimborg að taka af skarið í þessum efnum ef stóra línan er ekki til staðar frá hendi stjórnvalda. „Við erum í viðskiptum. Við verðum að borga starfsfólki okk- ar laun og gæta þess að það sem við gerum standi undir sér. Samt höfum við og fleiri gert ýmislegt til að sýna viðleitni í þá veru að gera bílaflota landsmanna vistvænni. Brimborg fór í etanól-átak á okkar kostnað í fyrrahaust sem gekk ágætlega en það er ekki hægt að fara út í slíkar aðgerðir til lengri tíma án stuðnings og hvatningar frá stjórnvöldum,“ segir Egill. Það er skýr stefna Brimborgar að leggja sitt af mörkum í umhverfis- málum og í hnotskurn snýst stefnan um að taka það sem Egill kallar „vistvæn skref“. „Við höfum gagn- rýnt ýmsa umhverfissinna fyrir að vilja taka eitt risastórt lokaskref í þessum efnum vegna þess að við teljum það ekki hægt. Það er mun farsælla að fyrirtæki og ein- staklingar taki mörg smærri skref yfir lengri tíma og stefni að því að gera betur í dag en í gær. Það var hvatinn að etanól-verkefninu.“ Kenna starfsmönnum vistakstur Af fleiri verkefnum Brimborgar nefnir Egill að unnið sé að því að kenna öllum starfsmönnum fyrir- tækisins vistakstur á þremur árum. „Við byrjuðum á framlínunni, sölu- mönnum og móttökumönnum í þjón- ustu, til þess að geta komið þessari þekkingu eins fljótt og hægt er til viðskiptavina okkar. Svona vistvæn skref kosta peninga en við erum sannfærðir um að það skili sér til baka í ánægðari viðskiptavinum.“ Egill Jóhannsson er líka formaður Bílgreinasambandsins og það hefur lagt fram róttæka tillögu um að lækka gjöld á öllum bílum niður í 15% í því skyni að auka endurnýj- unarhraðann á þeim, þ.e. vera alltaf með nýjustu tækni á götunum. „Tapið á gjöldunum yrði þá fært í notkunina, t.d. með grænum skatti á eldsneyti. Svíar hafa tekið þessa hugmynd upp og eru komnir með 30 kr. koltvísýringsskatt á bensín og 36 kr. á dísilinn. Ástæðan fyrir því að skatturinn á dísilinn er hærri er sú að það er hærra hlutfall koltvísýr- ings í honum en bensíni, öfugt við það sem margir halda. Þarna ráðast Svíar að rót vandans enda eru þeir með hugrakkari stjórnmálamenn þegar kemur að umhverfismálum en flestar aðrar þjóðir. Það er hugrekki að hækka álögur á eldsneyti en Sví- ar treysta sér til að gera það vegna þess hvað almenningur er vel upp- lýstur og skilur tilganginn.“ Ef þú hefur hraðan á geturðu tryggt þér glæsilega útgáfu af Mitsubishi Pajero á einstökum kjörum. Fullkomið fjórhjóladrif með 100% læsingu að aftan og stöðugleikastýring eru sniðin að íslenskum vegum. Komdu og prófaðu! Þú finnur um leið hvernig 3.300 kg dráttar- geta og þægindi fyrir allt að sjö manns, 860w Rockford hljómkerfi og 18" álfelgur ásamt bakkmyndavél fullkomna aksturinn. ÖRFÁIR BETUR BÚNIR PAJERO TIL AFGREIÐSLU STRAX Á Á HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi  Morgunblaðið/Ómar Umferðin Það lætur nærri að tveir þriðju hlutar Íslendinga aki um á eigin bíl og þá eru börn meðtalin. »Kæmi til álita að fyrirtæki og stofnanir fækkuðu stæðum en greiddu starfsfólki fyrir að koma öðruvísi en með einkabíl í vinnuna? » Þarna ráðast Svíar að rót vandans enda eru þeirmeð hugrakkari stjórnmálamenn þegar kemur að umhverfismálum en flestar aðrar þjóðir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.