Morgunblaðið - 13.04.2008, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 13.04.2008, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Matarkreppa | Ört stækkandi millistétt þrýstir á verðhækkanir á ýmsum vörum með þeim afleiðingum að fátækir hafa ekki lengur efni á að kaupa sér helstu nauðsynjar og hætta skapast á hungursneyð. Glæpir | Bonnie og Clyde lifðu lífi glæpa og urðu þjóðþekkt í Bandaríkjunum. Kvikmyndin, sem gerð var um þau fyrir 40 árum, breytti kvikmyndasögunni. VIKUSPEGILL » Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is Mannkynið stendur á mikl-um krossgötum. Fram-leiðslu- og tæknibylt-ingin sem færði Vesturlöndum gífurlegan auð er að umbylta lífsskilyrðum hundruðum milljóna manna í fjölmennustu ríkj- um heims og óumdeilt er að ásókn í auðlindir á eftir að aukast gífurlega frá því sem nú er. Millistéttin í fátækum ríkjum er sá hluti íbúafjöldans sem mun vaxa hraðast. Á sama tíma og jarðarbú- um mun fjölga um milljarð á næstu tólf árum er áætlað að átján hundr- uð milljónir manna muni bætast við millistétt heimsins. Þessi fyrirséða og óumflýjanlega þróun á eftir að móta hagkerfin og allar líkur eru á að ríki auðug af auðlindum muni hagnast gríðarlega á komandi áratugum, eftir því sem verðið á hráefnisvörum fer stöðugt hækkandi. Enginn veit hvenær lögmál fram- boðs og eftirspurnar munu koma á jafnvægi á matvörumarkaðnum, þótt greinendur hafi nefnt allt að áratug í þessu samhengi. Það er langur tími. Þróunin á eftir að færa mörgum auð og gera milljónum manna kleift að upplifa draum sinn. En það er önnur dekkri hlið á teningnum, nefnilega hin grimmu og miskunn- arlausu félagslegu áhrif þess þegar fátækasti hluti mannkyns hættir að geta haldið í við hækkandi verð á nauðsynjum. Braskarar spenna upp verðið Matarkreppan sem nú ríður yfir heimsbyggðina er ágætt dæmi. Hröð fjölgun fólks í millistétt í Asíu kallar á aukna kjötframleiðslu, sem aftur eykur eftirspurnina eftir fóðri og kornmeti. Spákaupmenn braska með hráefnisvörur og áhersl- an á vinnslu lífræns eldsneytis þrýstir á hækkanir á landbúnaðar- vörum. Tíðarfarið hefur vegið þungt og miklir þurrkar í Ástralíu leitt til hækkana á hveiti, samtíma því sem aukin velmegun hefur gert milljón- um kleift að láta af sjálfsþurftarbú- skap. Lítum á nokkrar tölur. Sérfræðingar McKinsey Global Institute ráðgera að verði meðal- hagvöxtur á Indlandi næstu árin í kringum 7,3 prósenti muni ársvelta indverska neytendamarkaðarins fjórfaldast, úr 372 milljörðum dala árið 2005 í 1.532 milljarða dala 2025, eða úr 26.892 milljörðum íslenskra króna í 110.750 milljarða króna, ígildi tæplega 180-faldra heildar- tekna hins opinbera á Íslandi 2007. Á sama tíma muni fólki í millistétt samkvæmt skilgreiningu stofnunar- innar fjölga úr 50 milljónum manna í 583 milljónir manna, hátt í tvöfald- an íbúafjölda Bandaríkjanna í dag. (Talið er að um þetta leyti muni Ind- verjar fara fram úr Kínverjum sem fjölmennasta þjóð mannkynssög- unnar). Stærsti neytendamarkaðurinn Kínverjar stefna í sömu átt. Árið 2025 er því spáð að kín- verska millistéttin verði sú fjöl- mennasta í heiminum. Fimm árum áður, árið 2020, áætlar Homi Kha- ras, sérfræðingur hjá Brookings- stofnuninni, að 52% jarðarbúa muni tilheyra millistétt, samanborið við 30% í dag. Mannhafið mun reyna á fram- leiðslugetu matvælaiðnaðarins. Tökum dæmi frá Kína. Fram til 2012 er því spáð að fram- leiðsla matvæla- og drykkjarvöru- iðnaðarins þar í landi muni aukast Vaxtarverkir neyslusprengju  Matarkreppan ein afleiðing síaukinnar eftirspurnar ört vaxandi millistéttar í Asíu  Fjölgar um 1.800 milljónir í millistéttinni næstu ár  Mannkynið þarf að tvöfalda matarframleiðsluna á næstu áratugum AP Umskipti Indversk „rútufreyja“ reiðubúin til þjónustu í indverskum lúxusfarþegavagni í Nýju Delhí. Á næstu áratugum munu hundruð milljóna Asíubúa tileinka sér neyslumynstur Vesturlandabúa. Þróunin er þegar farin að hafa áhrif á matvælaverðið og borið hefur á óreiðum víða um heim af þeim sökum. MATARKREPPA» Í HNOTSKURN »Sérfræðingar FAO áætla aðárið 2050 muni matvæla- framleiðslan hafa tvöfaldast. »Þessi aukning getur lyfthundruðum milljóna manna úr sárri fátækt til bjargálna, á sama tíma og aukin eftirspurn kann að halda matarverðinu of háu fyrir fátækasta hluta mannkyns. ANDSTÆÐURNAR gætu vart verið meiri þegar hreysin í hverfinu varpa skugga á teinana þar sem lestin brunar í átt frá glansandi háhýsaþyrpingunum. Við erum stödd í lest á leið frá Casa- blanca í Marokkó skömmu fyrir síðustu áramót, í hverfi sem alið hefur af sér hryðjuverkamenn á síðustu árum. Lestin er þéttsetin og fyrir framan blaðamann sitja tvær konur, móðir og dóttir sem liggja ekki á skoðunum sínum um þjóðmálin. „Við viljum ekki þessar verslanir og öll þessi hótel. Venjulegt fólk hefur ekki leng- ur efni á að búa í miðborginni,“ segir móð- irin og vísar til uppbyggingarinnar í Marrakech, lágreistri borg ljósbrúnna leir- steinshúsa, sem er í þann mund að taka á sig vestrænan blæ með marmaraklæddum tískuverslunum. Við fyrstu kynni af Marokkó virðist ekki erfitt að setja sig inn í hugarheim kon- unnar. Maturinn er hlægilega ódýr og launin eftir því: Mánaðarlaun meðalmanns dygðu ekki fyrir nóttinni á bestu hótelum. Bilið hefur síðan breikkað og líkt og í mörgum Afríkuríkjum hafa efnalitlir Mar- okkóbúar streymt út á götur til að mót- mæla matarverðinu. Ólgan er jafnvel meiri í Jórdaníu, þar sem matarverðið rauk upp í febrúar, eftir að ríkisstjórnin afnam niður- greiðslur á eldsneyti vegna olíuhækkana. Vara við spennu milli þjóðfélagshópa Stjórnvöld í Sádi-Arabíu hafa áhyggjur af verðbólgu og hafa trúarleiðtogar varað við spennu á milli ólíkra þjóðfélagshópa. Blaðamenn The New York Times tóku nýlega dæmi frá Jórdaníu. Þar er haft eftir Jórdananum Abdul Raheem að verð á pundinu af kartöflum hafi hækkað úr 32 sentum úr Bandaríkjadal í 76 sent, bakki af 30 eggjum úr ríflega tveimur dölum í um 4,25 dali og gúrkur úr um 22 sentum pundið í 58 sent, á aðeins nokkrum vikum. Raheem telur sig heppinn að eiga fyrir matnum, nauðsynjar séu orðnar að lúxus- vörum. Matarkreppan kyndir undir spennu og lágu tuttugu í valnum í Kamerún fyrr í mánuðinum, þegar mótmæli leigubílstjóra út af eldsneytisverði brutust út í blóðugar óeirðir. Ólgan hefur kraumað undir í Senegal og Búrkína Fasó, svo nokkur Afríkuríki séu nefnd, og í Asíu hafa efnalitlir Indverjar borið eld að hundruðum útibúa sem sinna matvæladreifingu, vegna uppsafnaðrar reiði í garð dreifingaraðila í Vestur- Bengal, sem vændir eru um selja matvörur á svarta markaðnum. Hækkandi eldsneytisverð setur óhjá- kvæmilega af stað vítahring hækkana, áburðarvinnslan verður dýrari og flutn- ingskostnaður eykst, og þessir þættir velta út í verðlagið. Hrísgrjónabirgðir Asíuríkja hafa ekki verið minni í um aldarfjórðung og ef svo fer sem horfir gætu sjónarmið mæðgnanna í Casablanca kynt frekar undir því báli sem himinhátt matvælaverð hefur þegar kveikt á síðustu mánuðum. Hungraðir streyma út á götur borganna Dýrari matur Sómölsk börn leita að matar- leifum í ruslahaug í borginni Mogadishu. AP AP Reiði Filippseyingar mótmæla hækkandi hrísgrjónaverði í Manilla fyrr í mánuðinum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.