Morgunblaðið - 13.04.2008, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.04.2008, Blaðsíða 24
Lífshlaup 24 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Námskeið við ofsakvíða og félagskvíða Nánari upplýsingar á heimasíðu Kvíðameðferðarstöðvarinnar: www.kms.is. • Færðu ítrekuð og óvænt kvíðaköst þar sem þú finnur fyrir hjartslætti, svima, svita, skjálfta, andnauð eða óraunveruleikatilfinningu? • Hefurðu áhyggjur af að fá fleiri kvíðaköst? EÐA • Finnurðu fyrir miklum kvíða innan um fólk? • Hefurðu miklar áhyggjur af áliti annarra? Tvenns konar námskeið eru að hefjast á vegum Kvíðameðferðarstöðvar- innar undir stjórn Sigurbjargar J. Ludvigsdóttur og Sóleyjar D. Davíðsdótt- ur sálfræðinga: Námskeið við ofsakvíða þar sem kenndar eru leiðir til að rjúfa vítahring kvíðakasta og námskeið við félagskvíða þar sem kenndar eru leiðir til að draga úr kvíða í samskiptum. Skráning fer fram á kms@kms.is eða í síma 822-0043 og lýkur 17. apríl nk. M b l 9 94 16 0 JÓGA Ásta Arnardóttir • 862 6098 www.this.is/asta • astaarn@mi.is www.lotusjogasetur.is • Borgartúni 20 MORGUN / HÁDEGI / SÍÐDEGI BYRJENDANÁMSKEIÐ HEFST 14. APRÍL umfjöllun um opinber fjármál að við gefum okkur ekki tíma til að setjast niður og skoða hvað við fáum fyrir það sem við leggjum út. Mér finnst stundum bæði í heil- brigðismálum og kannski mennta- málum að við mættum leggja meira til og hugsa ekki bara um hvort krónan skilar sér til baka – fremur ætti að huga að hverju fjárfest- ingin skilar fyrir samfélagið.“ Hvenær fórst þú að hafa afskipti af heilbrigðismálum? „Það gerðist strax þegar ég fór að vinna að fjárlagaundirbúningi um 1985 til 1988. Þá voru settir miklir peningar í heilbrigðismál, þá var t.d. að koma ný geðdeild við Landspítala og af því tilefni komu inn um 80 nýjar stöður við spít- alann á einu ári. Vöxtur var líka í öðrum þáttum heilbrigðiskerfisins. Þetta var í takt við það sem var að gerast í Evrópu á sama tíma. Við höfum þó gjarnan verið dálítið á eftir í þróuninni. En á þessu tíma- bili var verið að styrkja félagslega þjónustu í Evrópu, ekki síst í heil- brigðismálum. Sameining var hárrétt ákvörðun Á árunum 1996 til 1998 voru mikil átök um fjármál Borgarspít- alans og ríkisspítalanna innan kerf- isins. Þáverandi ráðherrar, Friðrik Sophusson og Ingibjörg Pálmadótt- ir skipuðu þá menn í nefnd til að reyna að finna sátt í þessum mál- um, einkum ágreiningi sem var á milli ríkisins og Reykjavíkurborgar um fjármál Borgarspítalans. Þá var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri. Þrír menn voru settir í þetta starf, Kristján Erlendsson frá heilbrigðisráðuneyti, Hjörleifur Kvaran frá Reykjavíkurborg og svo ég. Við áttum að skila sameig- inlegu áliti. Það gerðum við árið 1997. Sagan endurtók sig svo ári síðar. Það var deilt um peninga, dálítið hart, en út kom aftur sam- eiginleg niðurstaða sem ráðherrar og borgarstjóri féllust á. Sú nið- urstaða var tvíþætt, annars vegar að gera tilteknar breytingar, svo sem að sameina Landakot Borg- arspítala og að veita meira fé í starfsemina. Einnig voru fengnir útlendir aðilar til að leggja mat á rekstur sjúkrahúsanna. Álit eins þeirra var að mig minnir að hægt væri að spara 502 ársverk með því að sameina sjúkrahúsin. Við trúð- um þessu varla en togstreitan hélt áfram. Ég minnist þess að borg- arstjóri sagði: „Það gengur ekki að halda Borgarspítalanum í herkví!“ Og síðla árs 1998 krafðist borg- arstjóri niðurstöðu í málinu – ann- aðhvort yrði ríkið að taka yfir rekstur Borgarspítala eða verja til hans meiri fjármunum. Nið- urstaðan varð sú að ákveðið var að sameina sjúkrahúsin. Þetta var mikið átakamál og mjög pólitískt. Aðdragandinn var þó stuttur. Mín skoðun var að það myndu sparast miklir fjármunir við sam- einingu. Ég tel nú að þetta hafi verið hárrétt ákvörðun. Þetta spar- aði bæði peninga, nú eru um 250 færri starfsmenn á sjúkrahúsunum en voru fyrir sameiningu en eigi að síður veita spítalarnir miklu meiri þjónustu en þeir gerðu. Starfsemin hefur gjörbreyst. Ekki aðeins var sameiningin hárrétt fjárhagslega, hún var líka hárrétt faglega séð. Sumir segja að það vanti sam- keppni, ég held að samkeppnin áð- ur hafi ekki verið fagleg heldur fyrst og fremst um sjúklinga og að einhverju leyti sú að ef menn voru óánægðir á einum stað gætu þeir fengið vinnu á öðrum.“ Hvenær komst þú til formlegra starfa sem forstjóri spítalanna? „Ég var gerður að forstjóra yfir báðum spítölunum frá 1. janúar 1999. En þá voru þeir starfræktir sem tvær einingar. Fyrsta árið fór í að læra á starfsemina, sú sam- vinna sjúkrahúsanna sem þá fór fram skilaði vissum hlutum en í ársbyrjun 2000 var ákveðið að sam- eina sjúkrahúsin. Þetta gekk ekki átakalaust fyrir sig. Margir ólm- uðust gegn sameiningunni, bæði áður en hún var ákveðin og á eftir. En það voru líka mjög margir sem studdu hana í ljósi þess að hún myndi styrkja þjónustuna. Mér gekk ágætlega að komast af við þá sem voru á móti sameining- unni, þótt auðvitað sætti ég gagn- rýni, skárra væri ef svo hefði ekki verið. Maður fer ekki í svona starf með það í huga að losna við gagn- rýni – og hún var sannarlega tölu- verð. Ég ræddi við mjög marga vegna þessa og stundum voru deil- ur þannig að ekki var hægt að skera úr þeim hér, þá leitaði ég til erlendra aðila til ráðgjafar og sam- ið var um að fylgja því áliti. Deilur hafa þann eiginleika að leysast ef unnið í þeim. Það var vissulega tekist á milli manna og hópa en það var reynt að leysa mál og auð- vitað fær maður ekki alltaf sínu framgengt þegar þannig háttar til.“ Mikil breyting undanfarin 10 ár Hver var þinn næsti yfirmaður? „Það var heilbrigðisráðherra. Yf- irleitt var samstarfið við þá stuðn- ingur. Ég starfaði með fjórum heil- brigðisráðherrum þessi níu ár sem ég gegndi starfi sem forstjóri Landspítala. Fyrst var Ingibjörg Pálmadóttir, þá Jón Kristjánsson, svo Siv Friðleifsdóttir og loks Guð- laugur Þór Þórðarson. Á þessum tíma störfuðu tveir fjármálaráð- herrar Geir H. Haarde og Árni Mathiesen.“ Mjög skiptar skoðanir eru um stefnuna í heilbrigðismálum? „Breytingin á sl. tíu árum er mikil. Í upphafi þessa tímabils ef- uðumst við ekki um að heilbrigð- isþjónusta væri félagslegt viðfangs- efni sem ætti að þjóna öllum með sama hætti, rétt eins og menntun. Og þannig hefur þetta verið fram- undir þetta. Nú finnst mér málin hins vegar snúast um spurninguna: „Getum við mætt kröfum almenn- ings?“ Það er enginn efi um að sjúklingur er kröfuharðari en hann var, með löggjöf hefur staða hans verið styrkt til að fá þjónustu. Við fólk er sagt: „Þið eigið rétt – þið eigið að gera kröfur og að ykkar þörfum sé mætt.“ Nútíma sjúkling- ur hefur ekki mikla biðlund. Nú erum við stödd á kross- götum, viljum við leggja meiri fjár- muni í heilbrigðisþjónustu, hvort sem það eru opinberir fjármunir eða einkafjármunir? Þegar efna- hagur fólks styrkist, eins og hefur gerst undanfarin ár hér á landi, þá segir það: „Ég vil leggja meira í heilbrigðisþjónustu og fá góða þjónustu strax.“ Hitt sjónarmiðið er að samfélagið er kannski ekki reiðubúið að mæta þessum kröfum í gegnum skatta.“ Hvað er dýrast í heilbrigðiskerf- inu? „Heilbrigðiskerfið í heild sinni tekur til sín 9,2% af vergri lands- framleiðslu og það er töluvert mik- ið borið saman við ýmislegt annað. Þetta virðist þó ekki vera nægilegt til að mæta þörfum fólks nú. Hvar er vöxturinn nú? Hann er ekki á Landspítalanum, hann er m.a. í einkaþjónustunni. Landspítalinn veitir þó miklu meiri þjónustu en hann gerði fyrir tíu árum með lítt breyttum fjármunum og mér finnst það dágóður árangur. Biðlistum hefur verið eytt að mestu nema hvað snertir hjartaaðgerðir, bækl- unaraðgerðir og augasteinsaðgerð- ir. Meginmeinsemdin er sú að það er of ófullkomið samband á milli þess hvernig fjárveiting til sjúkra- hússins er ákveðin og þeirrar þjón- ustu sem vænst er að spítalinn veiti. Það er ófullkomin aðferð að láta Landspítalann hafa 30 millj- arða á ári og segja: „Þetta er fyrir öllu?“ Erlendis er þetta ekki gert svona. Það er búið að kostnaðargreina spítalann enda á milli og við vitum hvað hver og ein aðgerð kostar, það ætti að miða fjárveitingar við þessa kostnaðargreiningu. Land- spítalanum er sagt að forgangsraða en það er erfitt mál. Við viljum helst veita öllum góða þjónustu, óháð aldri, stöðu eða stétt.“ Er fólk sent heim hættulega fljótt núna? „Sú breyting hefur orðið að legu- dögum á Landspítalanum hefur fækkað en miklu fleiri koma á dag- og göngudeildir og ég treysti starfsmönnum fullkomlega til að greina á milli hvaða fólk er óhætt að útskrifa, hvenær sjúklingur er ferðafær. Spítalinn er vissulega yf- irfullur en hitt er það að í nútíma- þjónustu eru sjúklingar ekki látnir liggja lengur inni en bráðnauðsyn- legt er. Hins vegar vantar staði sem hægt er að senda fólk á eftir að sjúkrahúslegu lýkur, t.d. skortir tilfinnanlega öldrunarúrræði. Mér hefur ekki síður verið annt um þjónustu við sjúklinga en hinn fjárhagslega rekstur Landspít- alans. Kostnaður vegna tækjakaupa og nýrra lyfja eru eitt af því sem vax- ið hefur mjög undanfarin ár. Ým- islegt hefur verið leyst með aukinni tækni en svo er auðvitað álitamál hve fljótt eigi að taka hér upp nýja tækni, ætli við séum ekki á svipuðu róli hér í þeim efnum og nágranna- löndin. Ef við ráðumst í dýrar framkvæmdir á þessum sviðum þá endar það sem svokallaður „halli“ á spítalarekstrinum. En mín skoðun er að fólk vill fá eins góða heil- brigðisþjónustu og hægt er og það er viðtekin skoðun í velferðarríki þar sem efnahagur er góður.“ Skyndilegt brotthvarf frá starfi Þú hættir skyndilega störfum, hvað olli því? „Í öll skiptin sem skipt var um heilbrigðisráðherra bauðst ég til að hætta störfum ef það mætti þjóna betur þeim markmiðum sem við- komandi ráðherra hefði sett sér. Mér finnst þetta ágætis embættis- mennska. Niðurstaðan var sú að ég hélt áfram störfum mínum þar til Guðlaugur Þór tók við sem heil- brigðisráðherra. Við hina fyrri heil- brigðisráðherra hafði ég mikið og beint samband, bæði til að upplýsa þá og til að ræða málefni Landspít- alans. Það skorti kannski svolítið á þetta samband milli okkar Guð- laugs Þórs. Hann kaus að fara aðr- ar leiðir. Eitt af því sem hann gerði var að koma á svokallaðri til- sjónarnefnd undir formennsku Vil- hjálms Egilssonar og vísaði málum þangað til umfjöllunar. Með þessu móti varð minna úr beinu sam- bandi okkar Guðlaugs. Ráðherrar mega auðvitað velja sér tiltekið vinnulag, það er ekkert athugavert við það. Tilsjónarnefndin er í raun að fjalla um sömu mál og forstjóri og spítalastjórnendur hafa hingað til gert. Hún fer nú yfir útreikinga og ákvarðarnir starfsmanna Land- spítala, auk þess að skoða grund- völl spítalans, hlutverk hans og skipulag og fleira. Með þessu fyr- irkomulagi fannst mér búið að veikja hlutverk forstjóra Landspít- ala meira en góðu hófi gegndi. Mér fannst þessi nefnd komin talsvert inn á verksvið forstjórans. Við ræddum þetta í mesta bróðerni Guðlaugur Þór og ég og komumst að þeirri niðurstöðu að best væri að ég breytti til. Ef samvinnan er ekki fullkomin, traust og trúnaður milli ráðherrans og forstjórans, þótt í annan búning sé sett, þá er grundvöllurinn að mínu viti brostinn. Ég neita því ekki að hún hefur angrað mig tölu- vert þessi nefndaskipan. Mér fannst ekki sérstakt tilefni til að setja á fót nefnd sem vinnur eins og forstjóri og stjórnir spítalans gera. Mér finnst það eins og að setja frakka yfir yfirfrakka.“ Telur þú aðferð Guðlaugs Þórs skilvirkari leið við stjórnun Land- spítala? „Nei, ég tel ekki að svo sé. Öll lagaumgjörð hins opinbera und- anfarin ár hefur miðað að því að auka ábyrgð og skyldur forstjóra Morgunblaðið/Golli Kveðjustund Magnús Pétursson þekkir hundruð starfsmanna Landspítala með nafni og fór um sjúkrahúsið til að kveðja starfs- fólk áður en hann hætti fyrir mánaðamót. Morgunblaðið/Jim Smart Uppsagnir? Í mörg horn er að líta hjá stjórnanda stórs sjúkrahúss. Þarna ræðir Magnús Pétursson við fulltrúa nokkurra stéttarfélaga vegna samdráttaraðgerða sem þá var óttast að leiddu til uppsagna. Morgunblaðið/Árni Torfason Áttatíu rúm Magnús Pétursson, forstjóri LSH, afhendir hér Hjálp- arstarfi kirkjunnar 80 rúm frá spítalanum þegarsamtökin unnu að söfnun hjúkrunargagna sem send voru til Kabúl á vegum utanrík- isráðuneytisins er Ísland tók við stjórn alþjóðaflugvallarins þar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.