Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 29

Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 29
inn í fjármálakerfið. Við erum komn- ir með meistarapróf, en það verður ekki fyrr en þá sem við fáum dokt- orsprófið.“ – Það hefur verið talað um eig- endakrísu hjá Glitni, meðal annars vegna erfiðleika FL Group. Held- urðu að endurskipulagning hjá Baugi hafi jákvæð áhrif? „Ég held það, nú eru fleiri fjár- festar að baki hlut Baugs í FL Group. En FL Group er fjárfest- ingafélag sem hefur unnið af ábyrgð úr sinni stöðu og sýnt Glitni mikinn stuðning. Ég hef yfir engu að kvarta við þá, en einhverra hluta vegna hef- ur þeim verið kennt um allt sem af- laga fer. Erlendir fjárfestar leggja mikið upp úr dreifðri eignaraðild og við búum að því leyti ágætlega, að við erum með dreifðan hóp af hlut- höfum.“ – Eru eignatengsl of mikil í ís- lensku viðskiptalífi? „Við réðumst í tiltekt í þeim efn- um eftir krísuna 2006. Jarðvegurinn var því vel undirbúinn og bankarnir eiga hrós skilið fyrir það. Það er ekk- ert venjulegt sem gengið hefur á og ég er ekki viss um að margir bankar í heiminum hefðu staðist að vera frá mörkuðum í sex til sjö mánuði!“ – Þannig að krísan árið 2006 var holl lexía? „Hún var það besta sem gat komið fyrir. Við fengum brunaæfingu og þurftum að fara yfir ferlana í kjölfar- ið: „Þessi stigagangur er ekki opinn. Hann þarf að komast í lag.“ Og út- sjónarsemin hefur nýst okkur vel – menn gefast ekki auðveldlega upp. Íslendingar geta verið stoltir af því, sama hversu menn elska að hata bankana núna, þá hafa þeir staðist þessa þolraun vel.“ – Hefur það vakið tortryggni að eigendur bankans séu einnig í mikilli útrás og lánsfjárþörf? „Mikið hefur verið spurt um það, sem eðlilegt er. En það eru stórir eigendur í öllum íslensku bönk- unum, sem allir eru virkir í við- skiptum. Þessi mál hafa verið gagnsæ hjá okkur, farið er eftir reglum Fjármálaeftirlitsins og þau fara í gegnum stjórn bankans. Sum- um verkefnum getum við sinnt, öðr- um ekki. Fagmennska í íslenska fjármálakerfinu hefur aukist og ég held að við séum ekkert frábrugðin öðrum þjóðum í þessum efnum.“ Ekkert persónulegt – Ef þú hefðir vitað hvað var fram- undan, hefðirðu samt sest í for- stjórastól Glitnis fyrir ári síðan? „Það þýðir ekkert að rýna í bak- sýnisspegilinn. Maður verður bara að horfast af ábyrgð í augu við þau verkefni sem tekist er á við og gera sitt besta. Við sem erum í þessari stöðu njótum þess að vinna með stórum hópi af hæfileikaríku fólki og það stendur upp úr. Þetta eru allt verkefni, miserfið og ekki alltaf skemmtileg. Ljóminn lýsir gjarnan á þann sem er í forsvari fyrir verk starfsmanna sinna og hann verður því líka að geta staðið í fæturna þeg- ar á móti blæs. Við lifum á áhuga- verðum tímum.“ – Eigum við að sleppa krónunni? „Ég held að við séum í svolítið erf- iðri stöðu og þurfum að gera upp við okkur hvert við viljum fara með hag- kerfið. Ef við viljum opna fyrir meiri alþjóðavæðingu og alþjóðlegri fjár- málastarfsemi, þá er einfaldast að fara í gjaldmiðil sem er partur af stærra kerfi. En þetta gerist ekkert á augabragði, fyrst þurfum við að skapa stöðugleika. Það er nauðsyn- legt að krónan sveiflist í samræmi við helstu viðskiptamyntir okkar, því annars er erfitt að vinna með hana. Og það hefur ekki tekist, hverju sem um er að kenna. Við höfum reynt það lengi án árangurs og ef grunnein- ingin í hagkerfinu er erfið, þá þurf- um við að velta því fyrir okkur hvað er landinu fyrir bestu, til þess að tryggja áframhaldandi hagsæld. Það er erfitt að vera með minnsta gjald- miðil í heimi og auðvitað gefum við höggstað á okkur. Ef einhver ákveður að fara gegn krónunni, þá er það ekkert mál. Ef menn gátu fellt breska pundið, þá geta menn leikið sér að íslensku krónunni. Við verðum að horfast í augu við það.“ – Var gerð aðför að íslenskum fjármálamarkaði? „Við erum hluti af alþjóðlegu fjár- málakerfi og þegar menn sjá tæki- færi til að hagnast verulega með því að djöflast á markaði, þá er engin ástæða til að taka því persónulega. Menn stunda viðskipti til að hagnast á því. Ef þeir geta auðveldlega hreyft markaði, þá munu þeir gera það.“ – Tóku íslensku bankarnir þátt í slíkri aðför? „Nei, þeir þurftu að verja eigið fé gagnvart sveiflu sem var fyrirsjá- anleg, en ekki má gleyma því að þótt hagnaður myndist í krónum talið, þá erum við ekkert ríkari í útlöndum. Menn tóku bara stöðu í evrum. Svo veiktist krónan, en þetta er ennþá sömu evrurnar. Við getum ekki keypt fleiri pylsur og kók í Frakklandi, þó að það sé hægt tímabundið á Íslandi, þar til skriður kemst á verðbólguna. Það er mikilvægt að horfa á þetta svona. Sá eini sem tapar á þessu til skamms tíma er sá sem er með tekjur í krónum. Við erum með mikla starfsemi erlendis og þurfum því að verja okkar höfuðstól.“ – Hvenær fara landsmenn aftur að geta fengið evrulán? „Eiga menn að taka evrulán? Er gjaldmiðillinn okkar ekki króna? Eiga menn ekki að taka lán í krón- um? Það er órökrétt að taka erlend lán á móti tekjum í krónum. Ég held að skuldabréf muni opnast á ein- hvern hátt bráðlega, en það er viss- ara fyrir alla að fara varlega í þessu umhverfi, fara sér hægt í fjárfest- ingum og skuldsetningum, sér- staklega ef þeir taka erlend lán á móti tekjum í krónum. Krónan veiktist um 23% á fyrsta ársfjórð- ungi og það er ljóst að bankarnir munu haga lánveitingum í takt við þetta – annað væri óábyrgt af þeim.“ – Er ekki skiljanlegt að fólk vilji skipta yfir í erlend lán, úr því krónan hefur veikst svona mikið, og von um gengishagnað? „Jú, auðvitað vilja allir gera það, en því miður er heimurinn ekki tilbú- inn að lána Íslendingum mikið af er- lendum gjaldmiðlum í augnablik- inu.“ – Og álver rís í Helguvík? „Það hefur áhrif til skamms tíma að það kemur fjárfesting inn í kerfið og til lengri tíma litið er jákvætt að við aukum gjaldeyristekjur þjóð- arbúsins. Og það getur hjálpað í samdrætti að fá aftur viðskiptahalla og koma hjólunum aftur af stað. Síð- an getum við spurt hvort við viljum ekki einnig fjölbreyttari orkufrekan iðnað, til dæmis vefþjónabú. Við þurfum fjölbreyttari og fleiri stoðir undir íslenskt efnahagslíf. Við hjá Glitni viljum leggja okkar af mörk- um til að svo megi verða.“  » Ljóminn lýsir gjarnan á þann sem er í for- svari fyrir verk starfsmanna sinna og hann verður því líka að geta staðið í fæturna þegar á móti blæs. Við lifum á áhugaverðum tímum.“ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 29 Vorráðsstefna Matís og Matvælastofnunar (Mast) 16. apríl 2008 á Hilton Reykjavík Nordica Matur, öryggi og heilsa Hvaðan kemur maturinn okkar og hvað er í honum? Matvælastofnun www.mast.is Þér er boðið á vorráðstefnu Matís og Matvælastofnunar Matur, öryggi og heilsa, ráðstefna á vegum Matís og Matvælastofnunar fer fram á Hilton Reykjavík Nordica þann 16. apríl 2008. Á ráðstefnunni, sem er frá 12:30 til 16:30, verður leitast við að svara spurningum á borð við hvers vegna rekjanleiki matvæla verður sífellt mikilvægari, hvað felst í staðbundinni matvæla-framleiðslu, hverjar eru helstu hætturnar tengdar matarsjúkdómum og hvað ný matvælalöggjöf Evrópu- sambandsins þýðir fyrir Ísland. Bás 1 Matfugl ehf. Kynning – gæðastýring við kjúklinga- framleiðslu sérstaklega er varðar öryggi framleiðslunnar. Kynning á kjúklingaréttum. Bás 2 MS Kynning - innri eftirlitskerfi í mjólkuriðnaði og öryggi mjólkurvara. Kynning á framleiðsluvörum. Bás 3 Sölufélag garðyrkjumanna Kynning – gæða- og öryggiskröfur sem gerðar eru til grænmetis. Bás 4 Matís Hraðvirkar mælingar hjá Matís Bás 5 Matís Þjónustu- og öryggismælingar Matís Bás 6 Matvælastofnun Almenn kynning á starfsemi MAST Dagskrá ráðstefnunnar 12:30 – 16:30 Kynning Ráðstefnustjóri er María Ellingsen 13:00 Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra setur ráðstefnuna. 13:15 Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís. 13:25 Jón Gíslason, forstjóri MAST. 1. hluti 13:35 Alisdair Wotherspoon, Food Standards Agency (FSA), UK. Food Safety – Global trade and new challanges in Food Safety. 14:05 Franklín Georgsson, Matís. Matarsjúkdómar á Íslandi – þróun á Íslandi, helstu hættur og samanburður við aðrar þjóðir. 14:20 Jón Gíslason, MAST. Innleiðing á heildarlöggjöf EU á sviði matvæla – þýðing fyrir Ísland og matvælaöryggi. 14:35 Hlé – kynning á básum. 2. hluti 15:05 Rúnar Gíslason, Kokkarnir ehf. Stóreldhús - öryggi við matreiðslu og þjónustu á stórveislum. 15:20 Friðrik Valur Karlsson, Friðrik V. Uppruni hráefnis á veitingastöðum. 15:35 Guðmundur Heiðar Gunnarsson, Matís. Staðbundin matvælaframleiðsla – tækifæri og ógnir. 15:50 Reynir Eiríksson, Norðlenska. Mikilvægi rekjanleika fyrir öryggi matvæla. 16:05 Davíð Gíslason, ofnæmislæknir. Fæðuofnæmi og fæðuóþol. 16:20 Helga Gunnlaugsdóttir, Matís. Íslenskt umhverfi og aðskotaefni. 16:35 Samantekt og ráðstefnuslit. 16:45 Móttaka og kynning í básum Aðgangur ókeypis Nánari upplýsingar eru á: www.matis.is Okkar rannsóknir allra hagur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.