Morgunblaðið - 13.04.2008, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 13.04.2008, Qupperneq 35
heyrðum ekki betur en einhver kall- aði á íslensku: „Er einhver hér að passa túrista?“ Og já, heldur betur; Zorrow víkur ekki frá lærisveinum sínum svo mik- ið sem eitt andartak og segir okkur hvenær á að sitja og standa. Pínulítil fótboltaamma kemur trítlandi í full- um skrúða með regnhlíf eins og Amma Mús og allir faðma hana að sér og taka mynd; líka ég. Áhang- endur Flórensmanna eru aftur á móti hafðir á sérstökum stað í eins konar búri svo þeir geri engan ósk- unda af sér. Sjóið byrjar á því að Napólí- markvörðurinn kemur og dansar einhvers konar ræl eða einkadans um allan völlinn undir dynjandi lófa- taki. Eins gott fyrir markverði að kunna að dansa, lauma ég að mínum upprennandi markmanni sem púar á alla dansskóla. En aumingja Flór- enskallarnir eru auðvitað púaðir nið- ur um leið og þeir birtast, þrátt fyrir sína fallegu fjólubláu búninga. Ráfað um í 11 mínútur og reynt að skora Dómararnir voru nú búnir að gera stífar teygjuæfingar í hálftíma en enn virðist langt í leikinn. Allt er að fyllast en ekkert bólar á skylm- ingaþrælum Napólímanna sjálfra, nema markmanninum og einum framherja. Löggan flýgur stöðugt yfir á helikofterum. En svo þegar loks er flautað til leiks kemur fá- viska mín í ljós, enda er þetta minn allra fyrsti fótboltaleikur utan að hafa horft á sex til sjö ára stráka á Íslandi sparka eina helgi uppi á Akranesi. Nema hvað mér sýnist ná- kvæmlega ekkert vera að gerast. Sérfræðingur minn segir mér þó að heilmikið sé í gangi og Napólímenn hafi byrjað betur, fyrir utan smá- kafla þegar Flórens-kallarnir voru að gabba þá svolítið með þríhyrn- ingi … ókei! Svo sýnist mér þeir skalla hver annan alveg svakalega hérna, en það er víst alltaf svoleiðis segir sérfræðingurinn. Skorar svo allt í einu hann La- vezzi litli frá Argentínu mark fyrir Napólí og þá var nú gaman. Svo halda allir áfram að ráfa um og reyna að skora í svo sem 11 mínútur í viðbót en þá skorar Lazzi litli aftur mark og allt ætlar vitlaust að verða. Sjálfri líst mér vel á Calaio, númer 11, og eins einn lítinn spretthlaup- ara, Sósa heitir hann, númer 9. Eftir hlé grípa Flórensmenn til örþrifaráða og setja inn á ljótan karl númer 17, Papa Waigo heitir hann, og er allur hinn lymskulegasti. Ég sé ekki betur en hann sé á háhæl- uðum skóm en sérfræðingurinn seg- ir mér að þetta sé nýjasta tíska í takkaskóm. Mér er sama; alla vega hagar hann sér svívirðilega þótt hann sé á þessum dýru skóm; tekur Napólímenn hálstaki og reynir að toga þá niður í svaðið en er látinn komast upp með það, þótt hinir og þessir fái gult spjald fyrir minni sakir. Áfram Napólí, niður með Flórensínu! Æsist nú samkoman þegar stefnir í óvæntan sigur á Flórens, menn kveikja á rauðum neyðarblysum og Zorrow er farinn að steyta hnefana, sjúkraliðar eru á stöðugum hlaupum inn og út af sviðinu, en enginn gefst þó upp. Skarinn er farinn að syngja einum rómi, 70.000 manns, og við æpum: „Áfram Napólí, niður með Flórensínu!“ Og svo er allt í einu allt búið og allir syngja Napólílagið saman. Zor- row verður aftur hinn ábyrgi stjórn- andi og segir Ísleifi versgú að leiða mömmu sína, og strollar svo með okkur lærisveina sína gegnum um- ferð og öryggistálma upp í rútu þar sem hinir Equense-þorpararnir bíða okkar og feðgarnir Rafael og Paolo heldur glaðir að fara með okkur heim eftir vel heppnaða ferð til Na- pólí. Á torginu bíður allt þorpið og allir fá sér pízzu í bakaríinu sem hafði opið fram á nótt af tilefninu. Zorrow borðar með Ísleifi, kyssir okkur svo góða nótt og segir okkur að drífa okkur í háttinn. Góða nótt, já, sjáumst á morgun. Villihundarnir í Pompei spangóla langt fram á nótt utan virkisveggj- anna, annars friðsöm nótt í klaustri heilags Francescos. » Þegar inn til Napólíkom hlupum við í halarófu rétt eins og hermenn Mussolinis á eftir Zorrow, hringinn í kringum leikvang Heil- ags Páls, og hvort sem við fórum yfir götur, umferðareyjar eða mannmergðina, þá klofnaði mannhafið á undan honum. m í Napólí                Höfundur er leikkona. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 35                                !" # $  %  &% '  (  ! "##$ %!&%' (%"!")!*' %! +*,,'"!" -  ./" 01/  2  ) *+,- 3 ,$!  '01!!  ! ! , %"!4&%'!*%% %5!6/ '-"%" 50 !-% '!*%% %! 01/  7 8* % 50 !5 ' %! '5" .5*! 01/   9 : (%"!")!*' %!  +*,,'" ; 8&  % '01!! < 8&  %="! ,&/=/ ="! ,&/"!5>%  4 ,?(!/""" '01!!  @"!                ! 5"= "" .5*! 01/"! ,*$0" 5"!. >!)*' %".+01" '" ? / 01/5> !./0!* 1    2    3  Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • fax 511 4040 • utflutningsrad@utflutningsrad.is www.utflutningsrad.is P IP A R • S ÍA • 80 76 0 Viðskipta- málsverðir Grand Hótel 17. apríl 2008 Bergþór Pálsson er einn þekktasti óperusöngvari þjóðarinnar. Hann hefur skrifað bók um veislur og borðsiði, auk þess hefur hann haldið fjölmörg námskeið um sama efni fyrir stjórnendur fyrirtækja og félagasamtök. Við framkvæmd viðskipta er nauðsynlegt að hafa borðsiði á hreinu enda fer stór hluti viðskipta fram við borðhald og í veislum. Útflutningsráð Íslands stendur fyrir stuttu hádegisnámskeiði í borðhaldi og „etiquette“ sem tengist viðskiptamálsverðum fimmtudaginn 17. apríl nk. Leiðbeinandi er Bergþór Pálsson. Námskeiðið fer fram á Grand Hótel, 4. hæð, og stendur yfir frá kl. 11.00-13.00. Samskonar námskeið var haldið á vegum Útflutningsráðs fyrr á árinu og komust færri að en vildu. Fyrirlesturinn er ætlaður fólki í viðskiptum. Þar verður m.a. farið yfir grunnatriði í borðsiðum og sætaskipan. Sá sem ber sig kunnáttusamlega að við borðhaldið er vís til að hafa pappírana einnig á hreinu. Einnig verður komið inn á hugarfar sem framkallar traust milli fólks í viðskiptum. Verð á þetta skemmtilega námskeið er 5.900 kr. Hádegisverður er innifalinn. Fjöldi sæta er takmarkaður. Skráning fer fram í netfanginu utflutningsrad@utflutningsrad.is eða í síma 511-4000. Nánari upplýsingar veitir Bergur Ebbi Benediktsson, verkefnisstjóri hjá Útflutningsráði. Fáðu úrslitin send í símann þinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.