Morgunblaðið - 13.04.2008, Síða 36
arkitektúr
36 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Karl Blöndal
kbl@mbl.is
H
úsagerðarlist franska
arkitektsins Jean
Nouvel er stöðug til-
raunastarfsemi þar
sem virkjun sköp-
unarkraftsins er í fyrirrúmi. Nú hef-
ur hann fengið Pritzker-verðlaunin
fyrir störf sín. Meiri viðurkenningu
getur arkitekt ekki fengið.
Í viðtali í tímaritinu Newsweek var
Nouvel spurður í tilefni af verðlaun-
unum hver heimspekin á bak við
hönnun hans væri: „Þegar ég byrjaði
að læra arkitektúr á sjöunda ára-
tugnum var ég í losti yfir því hve
margar byggingar um allan heim
voru eins, í alþjóðlega stílnum [mód-
ernisma]. Þær tengdust ekki hinum
ýmsu borgum eða ólíku loftslagi. Ég
hafði því snemma ákveðnar hug-
myndir um sambandið milli arkitekt-
úrs og stöðu arkitektúrsins. Samfara
þróuninni í heiminum á undanförnum
40 árum held ég að staðan hafi versn-
að. Þegar maður ferðast um heiminn
eru allar borgirnar eins. Ég vinn því
alltaf úr frá spurningunni um eðli og
að tengja arkitektúrinn menning-
arlegu eðli borgarinnar, loftslaginu,
gróðrinum ásamt hinu ljóðræna og
sögulega. Af þessum sökum eru
byggingar mínar aldrei reistar á
sama orðaforðanum, sömu litunum,
sama efninu. En auðvitað hef ég
ákveðin föst gildi, svo sem anda okk-
ar tíma. Arkitektúr er steingerving
augnabliks í menningunni. Það er
mín skilgreining á arkitektúr.“
Nouvel fæddist í suðvesturhluta
Frakklands og þar fékk hann ástríðu
fyrir rúbbíi, mat og samræðum.
Hann útskrifaðist frá Beaux-arts-
skólanum í París árið 1972 og vakti
heimsathygli þegar hann fékk það
verkefni að teikna Arabaheimsstofn-
unina í París árið 1981. Sú bygging
var hluti af áætlun Francois Mitterr-
ands, þáverandi forseta, um að reisa
fjölda nýrra, stórbrotinna bygginga
til að breyta svip Parísar. Lokið var
við að reisa bygginguna árið 1987 og
þykir einstakt hvernig hann notar
ljós í henni. Stillanlegar málmlinsur
eru greyptar í útveggina og stjórna
þær því hvernig ljósið berst í inn í
bygginguna.
Megnið af byggingum Nouvels er
að finna í Frakklandi. Þar má nefna
Quai Branly-safnið, sem var opnað
2006, og hefur að geyma þjóðflokkal-
ist frá Asíu, Ameríkunum, Eyjaálfu
og Afríku. Þar síast ljósið meðal ann-
ars í gegnum blágrænt steint gler á
einn útvegginn.
Nouvel er einnig þekktur fyrir
Cartier nútímalistastofnunina, sem
var opnuð árið 1994, Agbar-turninn í
Barcelona og óperuhúsið í Lyon. Um
þessar mundir er verið að reisa tón-
listarhús eftir hann í Kaupmanna-
höfn og fór langt í ferlinu um það
hver ætti að hanna tónlistarhúsið í
Reykjavík, þótt ekki færi hann alla
leið.
Eins og fram kemur hér fyrir ofan
tekur Nouvel mið af umhverfi bygg-
inga sinna og forðast hann að end-
urtaka sig. „Verk mín snúast um það
sem er að gerast núna, okkar tækni
og efnivið og það sem við getum gert
í dag,“ segir Nouvel.
Andóf gegn einsleitni
Franski arkitektinn
Jean Nouvel er þekkt-
ur fyrir að fara sínar
leiðir. Nouvel forðast
að endurtaka sig og
fyrir vikið er sagt að
hann hafi ekki sér-
stakan stíl, en hann for-
dæmir einsleitni húsa-
gerðarlistar á okkar
tímum og segir að
sama sé hvert litið er;
allar borgir séu eins.
Reuters
Í svörtu Jean Nouvel situr fyrir, svartklæddur að venju við vígslu Agbar-
turnsins í Barselónu 2005. Hann lætur hús sín kallast á við umhverfið.
Sveipaðar ævintýraljóma Félagslegu íbúðirnar Nemausus 1 í Nimes í Frakklandi setja svip á umhverfið.
Turn Sigurhönnun Nouvels á
turni í Verre.
Flæðandi línur Fílharmónían í París eftir Nouvel.
Á paradísareyju Innviðir Louvre-safnsins, sem verið er að reisa í Abu Dhabi.
Safnið er á eyju þar sem verið er að reisa Guggenheim-safn eftir Frank
Gehry auk þess sem þar er að finna hús eftir Zaha Hadid og Tadao Ando.
Upplýsing Agbar-turninn í Barselónu upplýstur.