Morgunblaðið - 13.04.2008, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 13.04.2008, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 39 Átak vegna ölvunar í Manchester E rlendu borgirnar, sem sérstaklega er vísað til, eru Manchester og London á Englandi, Auckland á Nýja Sjálandi og Kaupmanna- höfn. Í Manchester fór fram mikil uppbygging skemmtistaða í mið- borginni í kringum 1990 í stað verslunarkjarna. „Þessi stefna endurspeglaði þróunina í mörgum borgum Bretlands á sama tíma,“ segir í tillög- unum. „Fljótlega greindi lögreglan í Manchester aukningu á áfengistengdum vandamálum í mið- bænum sem uxu í beinu hlutfalli við þessa miklu uppbyggingu skemmtistaða.“ Tíu árum eftir að fjölgun bara, klúbba og vínveitingastaða hófst í borginni var mælirinn fullur: „Árið 2000 hóf lög- reglan í Manchester samvinnu við borgaryfirvöld þar, kráareigendur og fleiri, til að draga úr mið- bæjarvandamálum og gera borgina öruggari. Úr samvinnunni varð til verkefnið Manchester City Centre Safe. Höfuðtilgangurinn með verkefninu er að draga úr áfengistengdum vandamálum, glæpum, óspektum og óþrifnaði í miðborginni. Frá upphafi hefur verkefnið verið unnið í samráði við ríkisstjórnina. Það hefur reynst árangursríkt og verið notað sem fyrirmynd í 50 borgum í Bret- landi og auk þess í borgum víða um heim, m.a. í Stokkhólmi.“ Markmiðin með verkefninu voru fjórþætt, í fyrsta lagi að efla samráð og samvinnu hagsmuna- aðila til að draga úr alvarlegum líkamsmeiðingum og slysum, í öðru lagi að efla samvinnu borgaryf- irvalda og lögreglu við eigendur kráa og vínveit- ingahúsa til að bæta stjórnun staðanna, í þriðja lagi að semja og fylgja eftir reglum sem stuðla að öruggari drykkju og í fjórða lagi að bæta ímynd borgarinnar með því að draga úr drykkju og ólát- um á almannafæri um nætur. Þau vandamál, sem þarna eru rakin, hljóma kunnulega. En hvað var gert til að bæta ástandið? Settar voru reglur, sem bönnuðu áfengisneyslu á almannafæri og gáfu lögreglunni um leið vald til að taka áfengi af fólki á ákveðnum stöðum í borg- inni. Settir voru upp gámar í miðbænum svo að lögreglan gæti losnað við drykkjarílát. Áhersla var lögð á sýnileika lögreglu þar sem vandræði og glæpir höfðu verið áberandi. Lögregla og öryggisverðir fylgdust með stræt- isvögnum á ákveðnum leiðum auk þess sem örygg- ismyndavélum var komið fyrir í þeim og vagn- stjórar í beinu sambandi við lögreglu. Áhersla var lögð á forvarnastarf fyrir almenning og fræðslu um ábyrga áfengisdrykkju fyrir eigendur og starfsmenn veitingastaða til að auka ábyrgð þeirra í starfi. Að síðustu var lögð áhersla á skýr ákvæði í leyfisveitingu og virkt eftirlit með vín- veitingastöðum. Síðan eru í tillögunum raktar þær aðgerðir, sem gripið hefur verið til eða verið er að hefja í Lond- on, Kaupmannahöfn og Auckland. Tillögurnar, sem samráðshópurinn leggur fram, eru að miklu leyti byggðar á þeim og er ástæða til að rekja þær. Þar er lagt til að mótuð verði skýr stefna og skipu- lagsmál bætt í borginni út frá þremur forsendum. Bæta þurfi skipulag út frá umhverfisþáttum, ör- yggi og samvist vínveitingastaða og íbúðabyggð- ar. Skoða þurfi sérstaklega þéttni vínveitinga- staða. Stuðla verði að því að gera miðborgina öruggari, hreinni og fegurri en hún er nú og bæta eftirlit og eftirfylgni. Þá leggur hópurinn til að reglur um leyfisveit- ingar og kröfur til vínveitingastaða verði endur- skilgreindar. Vínveitingastaðir verði flokkaðir eft- ir eðli þeirra og staðsetningu og umsækjendur skilgreini fyrirhugaða starfsemi. Kröfur til þeirra, sem reka vínveitingastaði, verði endurskilgreind- ar. Markviss eftirfylgni með starfseminni verði tryggð og afgreiðslutími þeirra vínveitingastaða skilgreindur eftir eðli þeirra og staðsetningu. Hópurinn vill skoða möguleika á að stofna til samstarfs hagsmunaaðila um rekstur miðborgar- innar og meta tækifæri til samstarfs í mikilvægum átaksverkefnum, til dæmis gegn veggjakroti. Myndaður verði samráðsvettvangur helstu hags- munaaðila, borgarinnar, lögreglu, rekstraraðila, íbúa o.s.frv. Á þeim vettvangi væri hægt að gera samninga, meðal annars til að draga úr ofnotkun áfengis og áfengistengdum vandamálum og efla samstarf til að sporna við ofbeldi, skemmdarverk- um og andfélagslegri hegðun. Skipulag miðborgar endurmetið H ópurinn vill setja reglur um með- ferð áfengis á götum úti og efla öryggi með því að bæta sam- göngur úr miðbæ um nætur, tryggja sýnilega og öfluga lög- gæslu og auka fjölda öryggis- myndavéla. Að auki er lagt til aukið eftirlit með veitingavögnum og sölu úr þeim að næturlagi og að verkferlar verði gerðir skilvirkari til að bæta viðbrögð við athugasemdum um frágang húsa. Hópurinn leggur til að Skipulags- og bygging- arsviði Reykjavíkur verði falið að hafa forgöngu um að endurmeta skiplag miðborgarinnar í sam- ræmi við markmið tillagna hans og leitað verði fyrirmynda þar sem skipulag og þróunaráætlanir ýmissa hverfa séu bundnari en hér. „Með tilliti til núverandi ástands er lagt til að sérstaklega verði greint sem fyrst hvort rétt sé að draga úr þéttni vínveitingastaða í miðborg Reykjavíkur,“ segir í tillögunum. „Einnig þarf að skoða hvort ekki megi takmarka frekar opnunar- tíma vínveitingastaða sem eru staðsettir á jaðri íbúðarsvæða í miðborginni. Ennfremur er lagt til að kannað verði hvort finna megi nýja staðsetn- ingu fyrir einstaka vínveitingastaði í samráði við leyfishafa og/eða draga úr nýjum leyfum fyrir vín- veitingarekstri á jaðri íbúðasvæða.“ Er síðan vísað til þess að viðamiklar rannsóknir sýni að þéttni vínveitingastaða í miðborgum hafi áhrif á tíðni áfengistengdra vandamála. Það vekur sérstaka athygli að fulltrúar vínveit- ingastaða í samráðshópnum skrifa undir þessar hugmyndir og fleiri, til dæmis ábyrgð þeirra á svæðum utan veitingastaðanna og tillögur um markvissara eftirlit með vínveitingastöðum en nú er. Hins vegar var ósamkomulag um tillögur að breyttu fyrirkomulagi afgreiðslutíma vínveitinga- staða í miðborginni. Fulltrúar Reykjavíkurborgar og íbúa lögðu til að gerð yrði tilraun með af- greiðslutíma þeirra vínveitingahúsa, sem nú mega hafa opið lengur en til kl. þrjú um helgar þannig að þeim yrði lokað, til dæmis klukkan þrjú, en gest- um leyft að vera áfram inni á staðnum í skilgreind- an tíma, jafnvel til klukkan sex. Markmiðið er að draga úr rápi og koma í veg fyrir að vandamál skapist þegar allir fari út á sama tíma. „Fulltrúar veitingamanna og kráareigenda í starfshópnum taka ekki undir þessar hugmyndir, telja þær illframkvæmanlegar og mótmæla þeim kröftuglega,“ segir í tillögunum um viðbrögð þeirra, en samt loka þeir ekki alveg á breytingar. „Þeir geta þó fallist á að þar sem vandamál eru mjög sýnileg geti einhvers konar aðgerðir í þessa veru komið til greina.“ Hér hefur ekki verið fjallað um nema hluta af þeim tillögum, sem samráðshópurinn lagði fram. Í þessum tillögum ber í raun allt að sama brunni. Rót vandans er drykkjuskapur og fyllirí. Það sama má lesa úr erindum Hildigunnar Ólafsdóttur og Jóns Óttars Ólafssonar, sem vísað er í hér fyrir ofan. Borgaryfirvöld hafa ekki farið hátt með þessar tillögur, en hins vegar er ljóst að ástandið í miðborginni er óboðlegt þeim, sem þar búa, og raunar er borgarbúum öllum nóg boðið. Í tillögum samráðshópsins er tekið á vandanum og veitinga- menn hafa gengist inn á það að gera þurfi gagn- gerar breytingar. Nú er því lag til þess að koma á umbótum í miðborginni, sem geta gert hana betri og þróttmeiri og snúið við þeirri óheillaþróun, sem þar hefur átt sér stað á undanförnum árum. En það er ekki nóg að breyta skipulagi og starfs- háttum. Verkefnið snýst líka um að breyta drykkjusiðum heillar þjóðar – draga úr markvissri ofdrykkju. Aðeins þannig verður hægt að draga úr tilviljanakenndu ofbeldi og líkamsárásum á ís- lenskum skemmtistöðum. »Nú er því lag til þess að koma á umbótum í miðborginni,sem geta gert hana betri og þróttmeiri og snúið við þeirri óheillaþróun, sem þar hefur átt sér stað á undanförnum árum. En það er ekki nóg að breyta skipulagi og starfsháttum. Verk- efnið snýst líka um að breyta drykkjusiðum heillar þjóðar – draga úr markvissri ofdrykkju. Aðeins þannig verður hægt að draga úr tilviljanakenndu ofbeldi og líkamsárásum á íslenskum skemmtistöðum. rbréf Morgunblaðið/Kristinn Næturlífið Samráðshópur um betri miðborg hefur lagt fram rækilegar tillögur til umbóta í miðborginni með yfirliti yfir aðgerðir í öðrum borgum, meðal annars til að sporna við ofdrykkju.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.