Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 42

Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 42
42 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ HESTAR Sigluvogur 7 - Glæsileg risíbúð Opið hús í dag milli kl. 14 og 15 BORGARTÚN 29 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net REYNIR BJÖRNSSON ELÍAS HARALDSSON LÖGG. FASTEIGNASALAR Mikið endurnýjuð á glæsilegan hátt 105,6 fm 4ra herb. ris- íbúð ásamt bílskúr sem er innréttaður sem stúdíóíbúð. Fallegur garður m/palli. Ný- leg hvít eldhúsinnrétting. Fallegir stórir kvistir. Nýtt parket, björt stofa, 3 herb. og glæsilegt bað. Róleg botngata, frábær staður. Sjón er sögu ríkari! Verð 29,9 millj. Sólveig og Elvar taka vel á móti gestum. Teikningar á staðnum. Húsavík – GOTT ORÐSPOR – TRAUST VIÐSKIPTI Skrifstofur okkar í Reykjavík og Hafnarfirði eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17 Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr., lögg. fast.- og skipasali Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali, Ásmundur Skeggjason, lögg. fasteignasali Sími: 533 6050 www.hofdi.is Vélsmiðja Hornafjarðar rekur smurstöð og dekkja- verkstæði, bifreiðaverkstæði og vélsmiðju. Er í eignin 1900 fm húsnæði. Félagið er til sölu í heilu lagi eða hlutum. Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur hjá Höfða í síma 895 3000. Vélsmiðja Hornafjarðar til sölu KEPPNI hélt áfram í Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum fimmtudaginn 10. apríl. Að þessu sinni var keppt í gæðingaskeiði og 150 m skeiði. Sú nýbreytni var að mótið fór að þessu sinni fram á félagssvæði Fáks í Víði- dalnum en ekki í Ölfushöllinni eins og fyrri mót. Það var frábært veður í Víðidalnum en vallarskilyrðin voru hins vegar ekki þau bestu en völl- urinn var blautur og þungur. Það dró samt ekki úr keppendum því þó tímarnir væru ekki þeir bestu þá var spennan mikil enda mikið af stigum í húfi. Fyrir mótið á fimmtudaginn var það sigurvegari Meistaradeild- arinnar 2007, Viðar Ingólfsson, sem leiddi en aðeins með einu stigi. Á hæla hans komu svo margir öflugir knapar sem eru ekki á þeim bux- unum að láta Viðar hirða titilinn aft- ur. Keppnin á fimmtudaginn hófst á gæðingaskeiði en sú grein er flókin þar sem hún krefst tæknilegrar út- færslu og faglegrar reiðmennsku. Blautur völlurinn gerði keppendum enn erfiðara fyrir og sumir knapar lentu í vandræðum. Viðar Ingólfsson mætti með hann Gamm frá Skíð- bakka og náði fjórða sætinu svo það þýddi nokkur stig í viðbót fyrir meistarann. Árni Björn klifraði líka upp töfluna með því að ná þriðja sætinu í gæðingaskeiðinu. Einn af nýliðunum í Meistaradeildinni í ár, hann Jakob Svavar, mætti með stóð- hestinn Glotta frá Sveinatungu og gerði sér lítið fyrir og krækti í 2. sætið. Það var hins vegar reynslu- boltinn Hinrik Bragason sem sigraði á Flugari frá Barkarstöðum en það kom nokkuð á óvart því Flugar er að stíga sín fyrstu skref á keppn- isbrautinni. Keppnin í 150 metra skeiði er frá- bær grein fyrir alla íþróttaunn- endur. Áhorfendur þurfa ekki að vera miklir hestaáhugamenn til að hafa ánægju af því að fylgjast með þessum „kappakstri“ ef svo má að orði komast. Í fyrri umferð var fljót- astur áðurnefndur Jakob Svavar Sigurðsson og Músi frá Miðdal með tímann 15,32 sek. Í seinni umferð var Daníel Ingi Smárason og marg- verðlaunaður skeiðhestur, Óðinn frá Efsta-Dal, með besta tímann, 15,06, sem var jafnframt besti tíminn sem náðist á mótinu. Þessir knapar fóru því beina leið í úrslitasprettinn en upp úr milliriðlum, sem voru sæti 3– 10, komst Sigurður Sigurðarson og Veigar frá Varmalæk og gömlu brýnin Sigurbjörn Bárðarson og Neisti frá Miðey með fjórða besta tímann. Í úrslitaspretti var allt lagt undir. Mikil spenna var bæði í keppendum og meðal áhorfenda. Allt verður að ganga upp þegar í úrslitin er komið. Startið verður að heppnast, nið- urtakan að ganga upp og hesturinn að liggja alla leið. Og svo fór að skeiðsnillingurinn Sigurbjörn Bárð- arson stakk ungu strákana af og kom fyrstur í mark. Ekki í fyrsta skipti sem sá kappi fagnar sigri á íþróttavellinum. Daníel Ingi og Óð- inn urðu í öðru sæti en þar sem Sig- urður og Jakob fengu hesta sína ekki til að liggja gilti árangur úr fyrri umferðum og Jakob og Glotti hlutu því þriðja sætið og Sigurður og Veigar það fjórða. Eftir þennan dag varð svo breyting á stöðu efstu knapa. Hinn yfirvegaði nýliði Jakob Svavar náði fyrsta sætinu og er kominn með 32 stig. Viðar datt niður í annað sætið með 30 stig og Sig- urður Sigurðarson er með 29 stig. Og nú þegar aðeins 2 keppn- isgreinar eru eftir þá geta 8 knapar unnið deildina svo að spennan verð- ur gríðarleg síðasta keppnisdaginn. Einnig er mikil barátta um að ná 14. sætinu því fjórtán efstu knaparnir vinna sér þátttökurétt í Meist- aradeildinni á næsta ári en aðrir verða að fara í gegnum úrtöku. Í deildinni fer einnig fram liðakeppni en knöpunum er skipt í fjögur lið. Þar er einnig mikil og jöfn keppni. Eftir keppni fimmtudagsins er það Skúfslækur sem náði efsta sætinu af Blend-liðinu sem er í öðru sæti. Síðasta mótið fer fram 24. apríl og verður þá keppt í slaktaumatölti og flugskeiði. Þetta eru greinar sem all- ir íþróttaunnendur hafa gaman af og því má reikna með troðfullri Ölf- ushöll þegar þetta mót fer fram. Það er oft sagt að það sé erfitt að vera á toppnum og það er því spurn- ing hvernig Jakob tekst á við press- una sem fylgir því að vera á toppn- um. Einnig er ljóst að Viðar ætlar ekki að gefa neitt eftir og Sigurður er ekki óvanur því að fagna titlum. Og eins og áður segir eiga átta knap- ar enn möguleika á sigri og því alls ómögulegt að spá hver það verður sem stendur uppi sem sigurvegari Meistaradeildar VÍS 2008. Staða 14 efstu fyrir síðustu keppnina Jakob Sigurðsson 32 Viðar Ingólfsson 30 Sigurður Sigurðarson 29 Sigurbjörn Bárðarson 25 Eyjólfur Þorsteinsson 21 Hinrik Bragason 21 Þorvaldur Árni Þorvaldsson 20 Hulda Gústafsdóttir 15 Árni Björn Pálsson 11 Ísleifur Jónasson 10 Páll Bragi Hólmarsson 9 Daníel Ingi Smárason 9 Svanhvít Kristjánsdóttir 8 Ragnar Tómasson 8 Liðakeppni Skúfslækur 419 Blend 415,5 IB 346,5 Top Reiter 320,5 Frumherji 300 Málning 298,5 Gífurleg spenna í Meistaradeildinni Í Víðidal Skeiðsnillingurinn Sigurbjörn Bárðarson stakk ungu strákana af í 150 m skeiði. Átta knapar eiga enn möguleika á sigri, nú þegar aðeins eru eftir tvær keppnisgreinar. Efstir Sigurbjörn Bárðarson, Daníel Ingi Smárason og Jakob Svavar Sig- urðsson voru efstu menn í 150 m skeiðinu sem þykir skemmtileg grein. Eftir Ólaf Árnason Flettu upp nafni fermingarbarnsins mbl.is FERMINGAR 2008 NÝTT Á mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.