Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 48

Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 48
48 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞAÐ hefur ekki farið fram hjá neinum að rán í verslunum þar sem ofbeldi og vopnum er beitt hafa aukist. Þeir sem starfa að ör- yggismálum eru sam- mála um að grófari brot færast í aukana, starfsfólki er hótað og það hefur lent í átök- um og komist jafnvel í stórhættu. Skipu- lögð þjófnaðarstarf- semi er orðin algeng- ari en áður var og ekki verður undan því komist að huga af al- vöru að öryggis- málum þar sem vörur eða þjónusta er seld. Starfsfólk sem lendir í ofbeldi af þessu tagi fær áfall sem þarf að meðhöndla hratt og vel. En hvað er til ráða til þess að tryggja ör- yggi starfsfólks og hvað er hægt að gera innan fyrirtækjanna til þess draga úr líkum á því að fram- in verði vopnuð rán? Innan vé- banda SVÞ eru öflug öryggisfyr- irtæki sem bjóða upp á margs konar þjónustu í öryggisvörnum við fyrirtæki og stofnanir. Eitt af því sem boðið er upp á er forvarn- arverkefni sem heitir Varnir gegn vágestum. Því er ætlað að auka öryggi starfsmanna og tryggja rétt viðbrögð við komu vágesta. Verkefnið er þríþætt: Komið er upp nauðsynlegum öryggisbúnaði, allir starfsmenn fá vandaða örygg- isfræðslu og að lokum vottar lög- reglan fyrirtækið með merki Varna gegn vágestum. Merkingin gefur til kynna að þekking starfsfólks á þessum málum sé fyrir hendi og öryggisbúnaður og viðbúnaður réttur. Reynslan af nám- skeiðunum sýnir að starfsfólk er öruggara með sig og eftir að starfsmenn hafa setið námskeiðin hefur ár- vekni þeirra leitt til þess að hnupl hefur minnkað. Hvað ránin varðar er aftur á móti annað upp á teningnum. Fólk sem stundar rán er oftar en ekki undir áhrifum áfengis eða annarra vímu- efna og hugsar ekki lengra en að verða sér úti um vöru til þess að koma í verð. Varnir sem þessar hafa því takmarkaðan fæling- armátt gagnvart þeim hópi. Rétt viðbrögð starfsmanna sem lærast á námskeiðinu geta því haft úr- slitaáhrif á ferli mála og leiða oft- ar en ekki til farsælli málaloka. Ef rán á sér stað í fyrirtæki sem hef- ur verið vottað fer fram ákveðið ferli sem lýkur ekki fyrr en starfs- menn hafa fengið áfallahjálp. Þátttaka í forvarnarverkefninu Varnir gegn vágestum er ekki kostnaðarsöm miðað við árangur. Nánari upplýsingar um verkefnið og þau öryggisfyrirtæki sem bjóða upp á VGV er að finna á vef SVÞ http://svth.is en fyrirtækin hafa verið vottuð af SVÞ og lögreglunni til að kenna starfsfólki rétt og fumlaus viðbrögð. Rétt er að taka fram að Varnir gegn vágestum tekur ekki aðeins til rána heldur er í því farið yfir öll öryggismál sölustaða og öryggismappa og fleiri hjálpartæki verða eftir í þeim fyrirtækjum sem taka þátt í verkefninu. Það er von SVÞ að sem flest fyrirtæki nýti sér þessi námskeið sem efla öryggi fyrirtækjanna svo og sjálfs- öryggi og starfsánægju starfs- manna. Rétt viðbrögð starfs- manna alltaf aðalatriðið Sigríður Anna Guðjónsdóttir skrifar um gildi þess að starfs- fólk bregðist rétt við vopnuðum ránum í verslunum »Rétt viðbrögð starfs- manna sem lærast á námskeiðinu geta því haft úrslitaáhrif á ferli mála. Sigríður Anna Guðjónsdóttir Höfundur er verkefnastjóri hjá SVÞ – Samtökum verslunar og þjónustu. HINN 23. mars sl. ritar Guð- björg Rannveig Jóhannesdóttir grein í Morgunblaðið um hugs- anlegt álver í Helguvík sem nefn- ist „Þolinmæði eða þrýstingur?“ Þar seg- ir m.a.: „Það var ekki skynsamlegt af bæj- arstjórnum Garðs og Reykjanesbæjar að veita Norðuráli bygg- ingarleyfi á þessari stundu þar sem það á eftir að afla orku, tryggja losunarkvóta, komast að niðurstöðu um línulagnir, auk þess sem niðurstaða er ekki komin vegna kæru Landverndar til umhverfisráðuneytis". Öllum má ljóst vera að bygging- arleyfið eitt og sér tryggir ekki að álver rísi í Helguvík, m.a. vegna þess sem Guð- björg telur upp. Hún virðist hinsvegar telja að ekki hefði átt að veita byggingarleyfið „á þessari stundu“ heldur bíða með það þangað til búið væri að ganga frá öllum lausum endum þannig að nokkurn veginn væri tryggt að álverið risi ef byggingarleyfið fengist. Enda þótt sjálfsagt sé að sveit- arfélög láti sér annt um atvinnu- mál innan sinna vébanda virðist nokkuð langt gengið að ætlast til að þau geri þær kröfur til einka- fyrirtækis að það sýni fram á það fyrirfram að fyrirhugaður atvinnu- rekstur þess í sveitarfélagi sé gull- tryggður áður en starfsleyfi er veitt fyrir honum. Það verður að vera verkefni fyrirtækjanna sjálfra að tryggja rekstur sinn að fengn- um tilskildum leyfum, enda er áhætta þeirra sjálfra mest. Guðbjörg minnist á fyrirtæki í upplýsinga- iðnaði uppi á Keflavík- urflugvelli. Álver í Helguvík kemur ekk- ert í veg fyrir að þau geti dafnað og blómg- ast. Fjölbreytni í at- vinnulífi er einmitt það sem Suð- urnesjamenn þurfa á að halda, en atvinnulíf þar hefur lengi ein- kennst af of mikilli einhæfni. Eins og raunar atvinnulífið í mörgum fleiri byggð- arlögum hér á landi. Færa má rök að því að álframleiðsla með raforku úr endunýj- anlegum orkulindum dragi úr losun gróð- urhúsalofttegunda í heiminum, en auki hana ekki. Til slíkrar framleiðslu ætti því að réttu lagi ekki að þurfa losunarkvóta. Ís- lensk stjórnvöld ættu að vinna að því að það sjónarmið fáist við- urkennt í því sem við tekur af Kyoto. Álverið í Helguvík Jakob Björnsson fjallar um framgang álversfram- kvæmdanna á Suðurnesjum Jakob Björnsson » Það verður að vera verkefni fyr- irtækjanna sjálfra að tryggja rekstur sinn að fengnum tilskildum leyf- um, enda er áhætta þeirra sjálfra mest. Höfundur er fyrrverandi orkumálastjóri. UNDIRRITUÐ eru foreldrar langveiks barns og viljum við byrja á að þakka Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra fyrir að breyta lögum um greiðslur til foreldra lang- veikra barna. Þetta er mikill og góð- ur áfangi sem gerir lífið auðveldara hjá þeim fjölskyldum sem eiga rétt á þessum greiðslum. En við megum ekki láta sem búið sé að afgreiða þennan málaflokk í eitt skipti fyrir öll. Hann er bæði flókinn og erfiður. Tilgangur okkar með þessum skrifum er að stuðla að opinskárri umræðu um það hvernig íslenskt samfélag styður og tekur á móti fjöl- skyldum sem eignast langveik börn. Í þessari grein veltum við stuttlega fyrir okkur hvernig læknavísindin hafa þróast mun hraðar en fé- lagslega stoðkerfið og afleiðingar þess. Læknavísindin þróast hraðar en félagslega stoðkerfið Árið 2004 eignuðumst við hjónin tvíbura og áttum fyrir eina tveggja ára stúlku. Annar tvíburinn sem er yndisleg stúlka á við mörg mjög al- varleg og flókin læknisfræðileg vandamál að stríða. Hún dvaldi meira og minna í 1 ár á Barnaspít- alanum áður en hún útskrifaðist heim, en er oft inniliggjandi öðru hvoru enn sem komið er. Eftir margar og mislangar dvalir á vökudeild, hágæslu og almennum deildum Barnaspítala Hringsins höf- um við talað við fjölmarga heilbrigð- isstarfsmenn. Þeir hafa lýst því fyrir okkur hvernig tækninni hefur fleygt fram síðustu áratugi og gert þeim kleift að bjarga börnum og koma þeim til lífs sem hefði ekki verið tæknilega mögulegt fyrir 20 árum. Við höfum heyrt vitnað í fyrirlestur sem Sævar Halldórsson barnalækn- ir, fyrrverandi yfirlæknir á Kópa- vogshæli og barnadeild Landakots, flutti um 1980. Þar benti hann mjög ákveðið á það að nauðsynlegt væri að samfélagið brygðist hratt við þeim tækniframförum læknavísind- anna, sem gerði læknum og heil- brigðisstarfsfólki kleift að bjarga mjög veikum börnum. Börnum sem fyrirséð er að þurfa mikla umönnun innan og utan sjúkrahúsa, jafnvel alla sína ævi. Slíkum börnum mun fjölga með árunum, bæði hlutfalls- lega og rauntölulega. Nú, næstum 30 árum síðar, velt- um við fyrir okkur: Hvernig ætlar íslenskt samfélag að bregðast við þeirri staðreynd að sú góða ákvörðun sem var tekin á sínum tíma, að reka fyrsta flokks vöku- og bráðadeild við Barnaspítala Hringsins, veldur því að fjölskyldum fjölgar sem þurfa aðstoð og úrræði fyrir veika barnið, heilbrigðu börnin og foreldrana sjálfa? Hvernig gengur samstarf heil- brigðis- og félagsþjónustu, þ.e. þjón- ustunni inni á sjúkrahúsum og utan þeirra? Í okkar tilviki hittum við fé- lagsráðgjafa þremur dögum eftir að tvíburarnir fæddust. Á viðkvæmum tíma undir miklu álagi og siðferði- legum vangaveltum höfðum við ótal spurningar sem við bárum undir við- komandi. Enn í dag höfum við ekk- ert frétt af þeim spurningalista, hvorki um rétt okkar né möguleika í stöðunni. Það lenti síðan á líflækni hetjunnar okkar að greiða úr ýms- um málum tengdum Trygg- ingastofnun og öðrum réttindum okkar, s.s. framlengingu fæðing- arorlofs og heimahjúkrun, en það er tæplega í verkahring læknis. Til eru lög um réttindi sjúklinga og réttindi barna sem eru góð og gild, einnig eigum við mjög fært starfsfólk á flestum vígstöðvum í hinu svokallaða „kerfi“. Það er sam- dóma állit flestra sem vinna við þetta svið að það sé í fjársvelti. Fjármagn skortir til þess að veita lögbundna þjónustu, og þjónustu sem mætir þörfum hverrar fjöl- skyldu fyrir sig en ekki endilega að fjölskyldan þurfi að passa inn í eitt- hvert ákveðið form á sérstöku eyðu- blaði til þess að fá einhverja þjón- ustu sem vonandi nýtist. Við höfum heyrt það hjá fólki sem starfar á þessum vettvangi að ómögulegt sé að sinna öllum fjöl- skyldum með þeim hætti sem við- komandi starfsmaður telur nauðsyn- legt vegna manneklu. Það er hugsanlega stórt vandamál hvernig þjónustan er framsett, skipulögð og gerð aðgengileg. Því miður er ein- hvers konar innri barátta á milli rík- is og sveitarfélaga um það hver beri ábyrgð á hverju og hver skuli borga brúsann. Stundum er velferð heilu fjölskyldunnar lögð undir í barátt- unni um hvor aðilinn sleppi frá kostnaðinum. Þegar við komumst í þá aðstöðu að ræða við þær persónur sem vinna í „kerfinu“ er niðurstaða okkar af umræðunum að pólitískan vilja skortir til að gera „kerfinu“ kleift að uppfylla lagalega skyldu sína og að- laga kerfið raunverulegum fjöl- skyldum í hversdagslífinu, en ekki reyna að láta alla passa inn í form og staðla. Hér teljum við að stjórn- málamennirnir eigi að leggja lín- urnar og forgangsraða fjármunum ríkisins og tryggja að embætt- ismenn framfylgi þeim ákvörðunum. Gleymum því aldrei að á bak við veikt barn er fjölskylda og oft sem betur fer heilbrigð börn líka sem eiga sinn rétt til að lifa eðlilegu lífi undir verndarvæng fjölskyldunnar. Litlar hetjur Hilmar Þór Sævarsson og Guðrún Elvira Guðmundsdóttir » Tilgangur okkar er að stuðla að op- inskárri umræðu um það hvernig íslenskt samfélag styður og tek- ur á móti fjölskyldum sem eignast langveik börn. Hilmar Þór Sævarsson og Guðrún Elvira Guðmundsdóttir Höfundar eru foreldrar langveiks barns. Glæsilegar íbúðir á frábærum stað við sjávarsíðuna með mögnuðu útsýni. Húsið er teiknað af Birni Ólafs. Um er að ræða 2ja-4ra herbergja fullbúnar íbúðir. Allt að 95% lán frá seljanda. ÍBÚÐIRNAR VERÐA TIL SÝNIS Í DAG SUNNUDAG FRÁ KL. 13.00-14.00. Norðurbakki 23-25, í miðbæ Hafnarfjarðar Mb l 99 39 07 Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095 Sími: 588 9090 Sölusýning í dag Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.