Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 51

Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 51 UMRÆÐAN Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is ÉG VIL bjarga fiskimiðunum við Íslandsstrendur sé það ekki orðið of seint. Við Guðbjörn Jónsson ráðgjafi sömdum við drög að eftirfarandi þingsályktunartillögu: Svæðið innan 50 sjómílna sam- kvæmt línu frá landi skal friðlýst gegn öllum botndregnum veið- arfærum svo og flottrollum sem eru að stærð á við þrjá fótboltavelli. Fiskfóstrum skal sökkt niður til að mynda afdrep fyrir lífríkið í heild eftir hreinsum spilliefna. Þessu til viðbótar vil ég stöðva allar uppsjáv- arveiðar með nót innan 12 mílna. Íslensk stjórnvöld munu þvinguð af hálfu umheimsins til að hrinda því í framkvæmd að gera þessa til- lögu að lögum. Hér eru upplýsingar um vélarafl þeirra jarðvinnslutækja sem notuð eru til fiskveiða við Íslands- strendur: Vélarafl loðnuflotans í hestöflum er frá 4077 hestöflum upp í 7344 hestöfl. Þessi hestöfl fara létt með að draga flottroll sem er á við þrjá fót- boltavelli að stærð. Þar sem flott- roll fer yfir skilur það eftir sig nokkurs konar svarthol sem er gjörsneytt lífi. Vélarafl tog- araflotans af stærri gerðinni er yfirleitt um 10.000 hestöfl. Þessi hestöfl fara létt með að draga trollvirki sem eru 90 tonn að eigin þyngd. Þessi 90 tonn mylja allt og mala undir sig kóralla og hraun. Þessir togarar mega fara upp að 12 mílum. Svæðið innan við 12 mílur er notað af minni togurum upp að 3 sjómílum. Vélarstærð þeirra er 699 hestöfl og svipað vélarafl hafa svo- kölluð dragnótaskip en dragnót er eitt allsherjarútrýmingartæki á grunnslóð. Dæmi eru til að drag- nótabátar hafi kastað framan við bryggjusporðinn og dregið út fjörð- inn. Upplýsingar um vélarstærðir í þessum svonefndu fiskiskipum á Ís- landi eru frá Siglingastofnun Ís- lands. Útgerðarmenn á Íslandi hafa á seinni árum ekki komist í takt við hjartslátt náttúru hafsins kringum landið, sannast það best á því að allir fiskistofnar á Íslandsmiðum eru nú í sögulegu lágmarki og sum- ir í algjörri útrýmingarhættu, sbr. lúðustofninn. Íslendingar hafa ekki siðferð- islegt leyfi til að eyðileggja fiski- miðin sín, sem eru í raun mat- arforðabúr þjóðanna. Á árunum 1948-1960 voru hér veidd á milli 500-600 þús tonn ár- lega af bolfiski en hvað er það nú? Eina úrræðið til að bjarga fiski- miðunum er að friða landgrunnið innan 50 sjómílna fyrir dregnum veiðarfærum og flottrollum og tak- mörkun á nótaveiðum að 12 mílum. Laugardaginn 29. mars var tog- skipið Skagstrendingur dreginn inn á Hafnarfjarðarhöfn með veiðarfæri í skrúfunni, en Skagstrendingur var á veiðum með botntrollvirki á Sel- vogsbanka sem er stærstu hygn- ingastöðvar við Ísland. Nú er allur þorskur á háannatímanum í hrygn- ingu. Ef þessi framangreind vinnu- brögð eru ekki landráð, hvernig skilgreinir maður þá landráð? Kalla ég á alla náttúruvernd- arsinna og fiskafurðakaupendur til liðs við náttúruverndarsamtökin Framtíð Íslands um að gera Ísland á ný að alvöru fiskveiðiþjóð. GARÐAR H. BJÖRGVINSSON, frkvstj. Framtíðar Íslands. Björgum fiskimiðunum Frá Garðari H. Björgvinssyni Garðar H. Hjörgvinsson NÚ ER verðbólgudraugurinn kominn af stað eina ferðina enn og blórabögglarnir eru þeir sömu og áður: óhófleg græðgi láglauna- fólks, hækkanir á erlendum mörk- uðum og gengisfall krónunnar. Við búum hins vegar við peninga- málakerfi sem hjálparlaust býr til verðbólgu með því að auka pen- ingamagn í umferð. Þegar tekið er lán er sama krónan aðgengileg sem innlán og útlán og því eykst peningamagn í umferð, og mark- aðurinn bregst smám saman við með því að minnka verðgildi krón- unnar. Síðustu tíu ár hefur pen- ingamagn í umferð aukist að með- altali um 26% (M1) á ári meðan framleiðsluaukning hefur verið um 4%. Verðbólgan grefur sífellt und- an kaupmætti launa og veldur því að neytendur njóta ekki lægra verðs á vöru og þjónustu sem auk- in skilvirkni í hagkerfinu leiðir af sér. Stéttir landsins eru í misgóðri stöðu til að verja sig fyrir verð- bólgunni. Þeir sem eru bundnir af kjarasamningum eru verst settir því þegar samningar losna leggj- ast stjórnmálamenn á eitt við að láta hina samningsbundnu taka á sig verðbólguna sem stafar af bankakerfinu. Verðbólgan er því tæki til að færa til gæði í kerfinu óháð framlagi einstaklinganna og helsta ástæða misskiptingar í sam- félaginu. Þar sem framleiðsluaukningin stendur ekki undir peningamagns- aukningunni minkar kaupmáttur og það fer að kreppa að. Þá minnka bankarnir útlán og pen- ingamagn í umferð dregst saman sem gerir kreppuna enn verri. Þegar markaðurinn hefur náð jafnvægi getur svo ballið byrjað upp á nýtt. Þetta fyrirkomulag er ekki nátt- úrulögmál heldur pólitísk ákvörð- un sem hægt er að breyta og koma í veg fyrir óþarfa hagsveiflur með tilheyrandi óhagræði, ekki síst ef almenningur á að bjarga bönk- unum í hvert einasta skipti. KÁRI MAGNÚSSON, Hringbraut 90, Reykjavík. Er verðbólguhagkerfið náttúrulögmál? Frá Kára Magnússyni ÉG LAS gagnrýni um Hönnu Montana í Morgunblaðinu laug- ardaginn 20. mars. Þar sagði Heiða Jóhannesdóttir að myndin um tónleika Hönnu Montana hefði verið ófrumleg og tónlistin innantómt fjöldafram- leiðslupopp. Þegar ég las þessa grein sá ég strax að höfundur hennar vissi greinilega ekki mikið um þessa mynd og persónuna Hönnu Mont- ana. Þessi mynd var fyrst af öllu búin til þar sem ekki var nóg af sýn- ingum fyrir stóran hóp af aðdáend- um út um allan heim. Það er ekki mikið af aðdáendum hennar hér á Íslandi þó að nokkrir þættir hafi verið sýndir á RÚV. Nokkrir hafa samt kannski fylgst með þessu á Disney Channel. Íslendingar vita þess vegna kannski ekki svo mikið um þessa þætti og þessa persónu. Í öðru lagi eru lögin fjörug og skemmtileg og hafa innhaldsríka og sniðuga texta. Krakkar út um allan heim geta séð sig sjálf í þessum þáttum á einn eða annan hátt og þeir eru frábær fyrirmynd fyrir krakka á eiginlega öllum aldri! Heiða segir líka að hápunktur myndarinnar sé þegar á að kasta Hönnu upp í loftið en það mistekst. Þið getið rétt ímyndað ykkur að vera fyrir framan þúsundir áhorf- enda og detta í miðri sýningu. Ég fór sjálf á þessa tónleika þar sem ég hafði verið mjög mikill aðdáandi hennar og kunni flesta lagatexta hennar. Ég, vinkona mín og systir mín, sem er vel komin yfir unglings- aldur, skemmtum okkur kon- unglega og sungum hástöfum með. Þess vegna skil ég ekki hvernig hún Heiða getur sagt að Hanna Montana sé lík Sylvíu Nótt þar sem ég sé ekkert líkt með þessum tveimur persónum. Sylvía Nótt var frábær skemmt- un og sagði flestallt sem henni fannst en var leikkonan einhvern tímann hún sjálf í þáttunum? Hanna Montana á hins vegar að vera fyrirmynd fyrir krakka á ung- lingsárum. Hún tekst á við mörg vandamál sem allir geta tengst og fundið sjálfa sig í. Það er líka svo margt bak við þessa tónleika, t.d. voru Jonas Brothers stór partur af tónleik- unum og allir góðu dansararnir áttu stóran þátt í að gera þessa sýningu flotta. Þar á meðal voru öll lögin mjög glaðleg og tónleikarnir alveg æð- islegir! HREFNA BJÖRG GYLFADÓTTIR grunnskólanemandi. Innantómt framleiðslupopp? Frá Hrefnu Björg Gylfadóttur HVAÐ er að gerast í þessu þjóð- félagi? Loksins þegar kemur aðili sem virkilega kann sitt fag og hefur sannað sig svo um munar í starfi sem yfirmaður löggæslumála á Suð- urnesjum, þá sér hann sig til- neyddan að íhuga uppsögn í starfi. Það er óskiljanlegt hvers vegna þarf alltaf breytingar á aðferðum við að gera hlutina þegar þeir ganga nú þegar sem skilvirkilegast upp, samanber samvinna tollyfirvalda og lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli. Loksins þegar kominn er góður kjarni og ómetanleg þekking og færni þessara tveggja deilda þá þarf breytingar vegna þess að einhverjir menn inni í ráðuneyti, sem eflaust hafa ekki neitt fyrir sér í sparnaði frekar en innsæi í störf þessa fólks, ákveða það með einu pennastriki. Það er til háborinnar skammar að störf manna eru oft ekki metin að verðleikum og menn uppskera ekki eins og til var sáð. Mín skoðun er sú að þessir menn inni í ráðuneyti ættu að skoða árangur tollyfirvalda og löggæslu undir stjórn Jóhanns R. Benediktssonar áður en þeir fram- kvæma jafnmikil mistök og nú lítur út fyrir að verði að veruleika. Það er líka umhugsunarvert þeg- ar þessi ákvörðun er tekin, að þetta mun vera gert vegna sparnaðar- aðgerða. Ég spyr sem skattgreið- andi og borgari þessa lands: Á ég engan rétt á því að það sé haldið uppi öruggri löggæslu ásamt því að tolleftirlit sé það besta sem völ er á? Við vitum hvað við höfum en við vit- um ekki hvað við fáum! Er ekki tími til kominn að fá starfsmenn þessa embættis, bæði tollverði og lögreglumenn, til að sitja nefndafundi hjá þessum aðilum og veita þeim ráð og umsagnir þeg- ar svo alvarlegt mál sem þetta er annars vegar? Það er mín tilfinning að þetta sé allt gert í fljótfærni, það sé ekki hugsað um hag starfsmanna. Það ríkir mikil óvissa, hún ein leiðir til vinnukvíða, sem leiðir síðan til óvissu í starfi sem endar á því að mannauður þessara deilda tapast og eftir stöndum við, þegnar og skatt- greiðendur þessa lands, með óör- yggi og stjórnleysi sem hefur gríð- arlegar afleiðingar í för með sér. Stjórnvöld verða að fara að átta sig á því að löggæsla og tollgæsla, ásamt fleiri störfum er tengjast Keflavíkurflugvelli og nágranna- sveitarfélögunum, kosta mikla pen- inga. Við vitum að meðan varn- arliðið var hér á landi var hægt að ganga í drjúga sjóði, en sem betur fer er það nú farið og sjóðirnir líka þannig að ef við ætlum að halda hér uppi samsvarandi þjónustu og verið hefur þá gott og vel, það kallar á aukafjárveitingar af hálfu hins op- inbera. Ég skora á stjórnvöld að endur- skoða hlutina og sjá til þess að Jó- hann R. Benediktsson verði áfram í brúnni sem yfirmaður löggæslumála á Suðurnesjum. Það ættu fleiri að hugsa sinn gang þar sem ég er þess nokkuð viss að Jóhann R. Bene- diktsson er ekki sá fyrsti sem hefur farið fram úr fjárveitingum. Góðar stundir. SIGURJÓN HAFSTEINSSON, Reykjanesbæ. Er þetta gert í anda jafnaðarmennsku? Frá Sigurjóni Hafsteinssyni ÉG tók upp á því kominn nokkuð til ára minna, án þess þó að vera kominn átakanlega nærri graf- arbakkanum, að flytjast til út- landa. Fyrir valinu varð Þýska- land, Berlín. Þangað kominn bjó ég ekki svo vel að geta mælt nokkuð sem heitið getur á þá tungu og ekki var skilningurinn betri. Samt var ég þess fullviss að þetta gæti vart verið svo erfitt. Tungumálin íslenska og þýska eru jú náskyld. Germanski arfurinn og það allt. Mér skjátlaðist. Þetta reyndist nefnilega fjandanum erf- iðara og olli mér ómældum höf- uðverkjum. Þannig hlýt ég að hafa brotið hverja einustu málfræði- reglu sem fyrirfinnst (og geri enn). Og ekki var og er framburð- urinn neitt til að hrópa húrra fyr- ir. Oft var ég kominn á fremsta hlunn með að hætta þessari við- leitni og tala bara ensku. Er mál- færni mín innan enskunnar ögn skárri og þekki ég líka þó nokkuð af fólki í Berlín sem hefur komist upp með að læra vart nokkuð ann- að en hvernig maður pantar sér döner kebap og bjór á þýsku. Það varð mér þó til happs að innfæddir voru ansi hreint dugleg- ir að ræða við mig á móðurmálinu og virtust ekki kippa sér mikið upp við málfötlun mína. Þeir eru enda nokkuð vanir því að heyra margvíslegar útgáfur af tungumáli sínu, enda fjöldinn allur af útlend- ingum sem spreyta sig á máli stórskáldanna að ógleymdum öll- um þeim mállýskum sem fyrirfinn- ast hér í landi. Þannig hafa fjöl- margir innfæddir, í Berlín í það minnsta, komið sér upp umburð- arlyndi gagnvart villtum tungu- málssauðum, líkt og mér sjálfum og sýna manni þolinmæði er mað- ur reynir að gera sig skiljanlegan. Það hefur hjálpað mér ómælt í þeirri viðleitni minni að geta tjáð mig á þýskan máta, sem er eitt- hvað sem er óendanlega mikilvægt ætli maður sér að geta tekið þátt í þjóðfélaginu og til að hreinlega skilja hvað sé um að vera í manns nánasta umhverfi. En hvað er það sem ég vil segja með þessum pistli við ykkur, landa mína? Jú, kannski það að næst þegar einhver mælir til ykkar: „já, ég talur íslenskur“ vil ég hvetja ykkur til að mæla ekki eitthvað á þessa leið „Really and were do you come from?“ ÓLAFUR GUÐSTEINN KRISTJÁNSSON býr í Þýskalandi. Það er málið Frá Ólafi Guðsteini Kristjánssyni ENGINN á að deila við dómara, það þýðir samt ekki að allir þurfi að vera sammála dómnum. Ég fæ ekki skilið réttlæti nýlegs héraðs- dóms þar sem móðir fatlaðrar 11 ára stúlku var gerð ábyrg fyrir slysi sem varð innan veggja Mýr- arhúsaskóla. Sveitarfélagið sem rekur skólann var sýknað af bótakröfu kennara og móðirin gerð ábyrg fyrir hegðun fatlaðs barns í kennslustund. Ég vona að viðkomandi móðir áfrýi þessum dómi til hæstaréttar. Foreldrar verða að fá úr því skorið hvort börn og kennarar séu ótryggð við nám og störf í skólum landsins. Sýknun Mýrarhúsaskólans er enn furðulegri þar sem heilbrigð- iseftirlit hafði gert athugasemdir við rennihurðir skólahúsnæðisins og dómkvaddur matsmaður taldi vankanta vera á búnaði þeirra hurðar sem um ræðir. Þeim úrbót- um hafði ekki verið sinnt, því tel ég ábyrgð skólans augljósa og hvet alla foreldra til stuðnings við móð- ur hins fatlaða barns. Dóminn tel ég dulúð, þrugl djúpt í mál ei kafað. andlegheitin algjört rugl og á vansæmd lafað. Ef hæstiréttur staðfestir héraðs- dóminn þarf greinilega lagabreyt- ingar til þess að börn og kennarar njóti fullra trygginga við störf og nám. PÁLMI JÓNSSON, Sauðárkróki. Torskilinn dómur Frá Pálma Jónssyni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.