Morgunblaðið - 13.04.2008, Page 62
62 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Lögga, læknir og lögfræðingur
Kippan
ÉG VIL EKKI
HITTA NEINAR
AF VINKONUM
ÞÍNUM
EN JÓNA ER FRÁBÆR...
HÚN ER HLÝ, FYNDIN,
GÁFUÐ, ÖGRANDI...
„ÖGRANDI“?! ÞÚ ÁTT SEM SAGT VIÐ
AÐ HÚN SÉ Í ANDLEGU ÓJANVÆGI
HVERNIG
VISSIRÐU?
ÉG ER
LÖGGA!
MIG LANGAR
Í LÍKAMA
ÞINN
ÉG ER
ÚTFARAR-
STJÓRI
HVERSU DJÚP ER
EIGINLEGA ÞESSI
GLOMPA?
BIRNIRNIR
ÞRÍR VORU
HÆTTULEGA
LEIÐIN-
LEGIR
VIÐ FÁUM OK
KUR
EKKI ALLTAF
GRAUT...
STUNDUM FÆ
ÉG MÉR
MORGUNKORN
...
OG STUNDUM FÆR
KONAN MÍN SÉR
RISTAÐ BRAUÐ...
EN
STRÁKURINN
MINN ELSKAR
GRAUTINN
SINN
NEYÐAR
-SÍMI
ÞETTA ER 1496
ÁRGERÐ AF
KÚSTSKAFTI
KALLAR ÞÚ
ÞETTA
LÍKRÆÐU?!?
Í DAG VAR
DAGURINN
HENNAR...
SUNNUDAGUR
SUNNA,
HVAÐA
DAGUR ER
Í DAG?
dagbók|velvakandi
Skröggur týndur
SKRÖGGUR er högni, hann er fjög-
urra ára gamall, svartur með hvítt á
fótunum, hvíta blesu á andlitinu og
svart í kringum augun. Hann er
eyrnamerktur 1607 og örmerktur.
Hann getur hafa lokast inni einhvers
staðar en hann á heima á Njálsgöt-
unni og hefur ekki komið heim til sín
í viku. Ef einhver hefur upplýsingar
um hann þá langar mig að biðja
þann að hafa samband við mig í síma
551 9364, hvort sem hann er lífs eða
liðinn.
Steingerður
Myndavél fannst í Heiðmörk
UM síðustu helgi fannst myndavél á
útivistarsvæðinu í Heiðmörk.
Eigandi er vinsamlegast beðinn
um að gefa sig fram við Birgi í síma
848 1189 eða Björk í síma 866 1783.
Birgir
Minningargreinar
MORGUNBLAÐIÐ hefur þá frá-
bæru sérstöðu í íslensku fjölmiðla-
flórunni að birta minningargreinar.
Þessi hefð minningargreina er mjög
mikilvæg og snar þáttur í sorgarferl-
inu fyrir margar fjölskyldur. Enda
er nauðsynlegt fyrir sálarheill fólks
að fá að tjá tilfinningar sínar og
vinna úr þeim þegar ástvinur deyr.
Einnig hjálpar það fjölskyldunni
sem heild í sorgarferlinu. Sá dagur
sem jarðarförin fer fram er yfirleitt
sá dagur sem fólk hefur hvað mest
tækifæri til að tjá sorg sína og vinna
úr henni. Á þessum degi kemur fólk
saman til að minnast hins látna,
njóta samveru, gefa og þiggja stuðn-
ing. Því er lykilatriði að fólk fái tæki-
færi til að lesa allar minningargrein-
arnar um viðkomandi á einmitt
þessum degi. En þetta vill oft bregð-
ast hjá Morgunblaðinu og það getur
reynst syrgjendum æði erfitt.
Minningargreinar í Morg-
unblaðinu hafa verið mjög jákvæður
vettvangur og þessi þjónusta mik-
ilvæg. Það er von mín að Morg-
unblaðið birti héðan í frá allar minn-
ingargreinar á þeim degi sem
viðkomandi er jarðaður.
Ingibjörg Sveinsdóttir
Baráttukveðjur
MIG langar að senda baráttukveðj-
ur til allra vörubílstjóra og ég styð
þá heilshugar. Ykkar barátta er okk-
ar hagur.
Útivinnandi mamma í Garðabæ
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
TRILLUKARLARNIR í Sandgerði eiga heiðurinn af þessari þráðbeinu röð,
þar sem þeir skilja bílana sína eftir á meðan þeir sinna vinnunni á hafi úti.
Morgunblaðið/Arnór
Allir í röð
FRÉTTIR
SVÆÐISRÁÐSFUNDUR Þórs-
svæðis var haldinn 29. mars sl. í
Þórshöfn í Færeyjum og mættu þar
27 Kiwanisfélagar frá Íslandi
ásamt 7 mökum, alls 34, og í
tengslum við fundinn fóru Kiw-
anisfélagar frá Íslandi og Fær-
eyjum, auk 8 kvenfélagskvenna frá
Ísafirði, samtals 50 manns, til
Skálavíkur í Sandey 30. mars síð-
astliðinn.
Við athöfn í Skálavík afhenti
Gylfi Ingvarsson, umdæmisstjóri
Kiwanisumdæmisins Ísland-
Færeyjar, styrk frá Styrktarsjóði
umdæmisins til Barnaheimilisins
Leikan í Skálavík að andvirði
1.000.000 ísl. kr. til kaupa á leik-
tækjum. Gylfi sagði styrkinn til-
kominn sem stuðning við bæj-
arfélagið sem varð fyrir miklu tjóni
í vetur. Gunnlaugur Gunnlaugsson,
svæðisstjóri Þórssvæðis, var um-
dæmisstjóra til aðstoðar en Palli Ol-
sen bæjarstjóri og Tora Millhamer
leikskólastjóri tóku við styrknum.
Sagði Palli Olsen að í Skálavík
hefði orðið gífurlegt tjón í miklu
óveðri sem varð á kyndilmessu, 2.
febrúar sl., og voru sýndar myndir
af tjóninu og björgunaraðgerðum.
Palli þakkaði stórhug og velvilja
Kiwanismanna á Íslandi við börnin
í bæjarfélaginu og bað fyrir bestu
kveðjur og þakkir til stjórnar sjóðs-
ins og Kiwanismanna á Íslandi. Að
athöfn lokinni var leikskólinn skoð-
aður, segir í fréttatilkynningu.
Styrkur F.v.: Gunnlaugur Gunnlaugsson, svæðisstjóri Þórssvæðis, Tora
Millhamer, leikskólastjóri Barnagarðsins Leikan, Palli Olsen bæjarstjóri í
Skálavík, og Gylfi Ingvarsson, umdæmisstjóri Kiwanis Ísland-Færeyjar.
Kiwanis styrkir barna-
heimili í Skálavík