Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 65

Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 65 Heimili og hönnun Glæsilegt sérblað tileinkað heimili og hönnun fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 18. apríl. • Sjónvörp, hljómtæki og útvarpstæki. • Glerhýsi, markísur, heitir pottar og útiarnar. • Sólpallar. • Sniðugar lausnir og fjölbreytni. og fjölmargt fleira. Meðal efnis er: • Hönnun og hönnuðir. • Hvaða litir verða áberandi í vor og í sumar. • Eldhúsið, stofan, baðið, svefnherbergið. • Ljós. • Listaverk á heimilum. Auglýsendur! Pantið fyrir klukkan 16, mánudaginn 14. apríl. Allar nánari uppl. veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is. Kröfuharður makker. Norður ♠8642 ♥K9 ♦D942 ♣Á76 Vestur Austur ♠10973 ♠KD5 ♥873 ♥ÁG106542 ♦85 ♦-- ♣8532 ♣DG4 Suður ♠ÁG ♥D ♦ÁKG10763 ♣K109 Suður spilar 6♦. „Gat ég varist þessu?“ Sem fórn- arlamb þvingunar átti austur von á lít- ilsháttar samúð frá félaga sínum, en einu viðbrögð vesturs voru að sveifla laufáttunni um loftin blá. Austur hafði opnað á hjarta og þar kom vestur út gegn slemmunni – ásinn upp og spaðakóngur í öðrum slag. Sagnhafi drap, tók öll trompin, fór inn í borð á laufás og spilaði hjartakóng. Þá voru þrjú spil eftir á hendi: Heima átti sagnhafi ♠G og K10 í laufi, en austur var í vandræðum með ♠D og ♣DG. Einföld kastþröng og óverjandi, að því er best verður séð. Þvingunin er óverjandi á þessu stigi, en vörnin var í öðrum slag. Þá hefði austur betur spilað hjarta áfram til að neyða sagnhafa til að henda strax í ♥K. Hendi suður laufi – sem hann gerir lík- lega – getur vestur valdað þann lit með áttunni. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú ert farinn að skilja þarfir sem þú vissir ekki að þú hefðir – eins og þörf- ina fyrir að láta hlusta á þig án truflunar. Komdu þér upp góðum hlustendahóp. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú færð stöðuhækkun og völd og elskar það! Auðvitað eykst ábyrgðin líka, en þú fílar það. Fiskar og sporðdrekar sýna þér virðingu. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú hleypur um og það er bölvað vesen á þér og þetta átti að vera hvíld- ardagur! Ljúktu einu af í einu og þetta reddast. Brostu! (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Tilfinningar eru raunverulegar en fljótandi. Þú tengist einhverjum áhuga- verðum á daðursnótum núna seinni part- inn. Um leið og augnablikið er horfið, hef- ur það enga merkingu lengur. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þér tekst vel upp við að finna eitt- hvað aðdáunarvert í fari fólksins í kring- um þig. Ekki setja neinn ofar þér eða neð- ar. Allir verðskulda jafnmikla virðingu. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Kínverjarnir kalla veraldarorkuna „chi“. Þegar þú notar hugmyndaflugið til að leysa vandamál, flýtur þessi orka í gegnum þig og lætur þér líða vel. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Framkoma lýgur. Forsendur eru rangar. Ef þú kemur auga á vissa eig- inleika, leitaðu eftir andstæðunni. Viska og heimska eru hlið við hlið, klikkun og al- vara. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú vinnur að því að skerpa áhæfileikunum. Þá þarftu að neita þér um hluti sem þú hefðir viljað gera. Þú hefur ásett þér að taka framförum, svo þetta verður ekki mjög erfitt. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú leyfir fortíðinni að lita hugsanir þínar – sem er gáfulegt. En haltu þér á jákvæðu nótunum. Láttu þekkinguna auka valmöguleikana, ekki takmarka þá. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Ef þú hlýðir grunsemdum þín- um endar þú á alveg nýjum stað. Það hef- ur enga þýðingu til styttri tíma en seinna meir sérðu að þetta er rétti staðurinn fyr- ir þig. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú þarft ekki að íhuga í lengri tíma til að ná orkunni upp. Haltu bara þitt eigið danspartí heima í stofunni. Það ætti að virka fyrir þig. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú hélst að þú þyrftir réttu sam- böndin til að hleypa draumnum af stokk- unum. Nú sérðu að þarft að ákveða drauminn fyrst – svo koma samböndin. stjörnuspá Holiday Mathis Krossgáta Lárétt | 1 borguðu, 4 snauð, 7 deilu, 8 kunn- átta, 9 tek, 11 askar, 13 hugboð, 14 fjallsbrúnin, 15 flasa í hári, 17 atlaga, 20 blóm, 22 lítilfjörlegur, 23 hefur í hyggju, 24 rétta við, 25 bind saman. Lóðrétt | 1 óþétt, 2 taka land, 3 sæla, 4 tölustafur, 5 söngvari, 6 gleðin, 10 klaufdýr, 12 skolla, 13 gyðja, 15 nær í, 16 for- smán, 18 daufinginn, 19 kyrtla, 20 elska, 21 naumt. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 hnausþykk, 8 fótur, 9 aular, 10 agg, 11 særir, 13 arður, 15 holls, 18 harma, 21 ker, 22 fíkja, 23 eyðir, 24 hrollköld. Lóðrétt: 2 nýtur, 3 urrar, 4 þvaga, 5 kálið, 6 ofns, 7 frár, 12 ill, 14 róa, 15 hæfa, 16 lokar, 17 skafl, 18 hrekk, 19 rið- il, 20 arra. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 dagbók|dægradvöl 1. c4 Rf6 2. Rc3 e6 3. Rf3 c5 4. g3 b6 5. e4 d6 6. d4 Bb7 7. De2 cxd4 8. Rxd4 Rc6 9. Rc2 a6 10. Bg2 Dc7 11. O–O Be7 12. Re3 O–O 13. b3 b5 14. Bb2 b4 15. Ra4 Rd7 16. f4 Hfe8 17. Rg4 e5 18. Df2 Rf6 19. Rxf6+ Bxf6 20. Rb6 Hab8 21. Rd5 Dd8 22. Had1 Bc8 23. c5 Bg4 24. Rxf6+ Dxf6 25. Hxd6 He6 Staðan kom upp á alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu sem lauk fyrir skömmu. Alþjóðlegi meistarinn Amon Simutowe (2457) frá Zambíu hafði hvítt gegn Snorra G. Bergssyni (2333). 26. Hxc6! og svartur gafst upp enda staðan að hruni komin eftir 26… Hxc6 27. Bxe5. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik. Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig 1 Gamall íþróttafréttamaður hefur tekið sæti á þingisem varaþingmaður. Hver er það? 2 Delphine Boel gerir harða hríð að Belgíukonungi ogvill að hann viðurkenni hana sem dóttur sína. Hvað heitir konungurinn? 3Möguleikhúsið hefur þurft að selja húsnæði sittvegna niðurskurðar á styrkjum. Hvar var húsnæðið? 4 16 Íslendingar fóru í þyrluskíðaferð til fjarlægslands. Hvaða land var það? Svör við spurningum gær- dagsins: 1. Hverjum hefur mennta- málaráðherra falið að semja drög að nýju fjölmiðlafrumvarpi? Svar: Karli Axelssyni. 2. Ákveðið hefur verið að kanna evruvæð- ingu atvinnulífsins. Hver er fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins? Svar: Vilhjálmur Egilsson. 3. Hvað hét steinbær- inn að Vegamótastíg 9 í Reykja- vík og rætt er um að endurreisa ofan á nýbyggingu sem þar á að rísa? Svar: Herdísarbær. 4. Ólaf- ur Elíasson og Bloomberg borgarstjóri New York voru í morg- unþætti ABC-sjónvarpsstöðvarinnar í fyrradag. Hvað heitir þátt- urinn? Svar: Good Morning America. Spurter… ritstjorn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.