Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 67
studdur af vinum
og fjölskyldu.
Mitchell hlaut
undir lok síðustu
aldar titilinn
„Tölvuleikja-
leikmaður ald-
arinnar“ enda
setti hann met í
Donkey Kong
sem enginn átti
von á að yrði slegið. Víkur þá sög-
unni að Wiebe, manninum sem hirti
metið af honum um stund.
Náði milljón stigum
Wiebe ákvað fyrir fimm árum að
reyna við met Mitchells, nýorðinn
atvinnulaus og orðinn sjúkur í að
spila Donkey Kong. Á endanum
náði Wiebe 1.000.000 stigum í leikn-
um, hærri tölu en nokkur hafði áður
náð, og sló met Mitchells. Mitchell
hefndi sín fyrir tæpu ári og á enn
heimsmetið. Wiebe gefst hins vegar
ekki upp eins og sjá má á vefsíðuni
Twin Galaxies, en þar eru tölvu-
leikjaheimsmet skráð. Blaðamaður
nær tali af Wiebe í frímínútum,
hann kennir stærðfræði í grunn-
skóla í Finn Hill Junior High í
borginni Kirkland í Washington.
– Hversu mörgum stigum er
hægt að ná í Donkey Kong?
„Það er fræðilegt hámark til, um
1.250.000 stig,“ svarar Wiebe.
– Eiginkona þín segir í myndinni
að þú sért með áráttu- og þrá-
hyggjueinkenni, COD. Er eitthvað
til í því?
Wiebe hlær og segist aldrei hafa
verið greindur með einkenni áráttu
og þráhyggju en vissulega sé nauð-
synlegt að vera haldinn þráhyggju
upp að ákveðnu marki, vilji maður
slá heimsmet í einu eða öðru.
– Ertu kappsamur að eðlisfari?
„Já, ég kann vel við mig í keppni
en ég ræð alveg við það að tapa,“
svarar Wiebe. Reyndar segir góð-
vinur Wiebes í heimildarmyndinni
að hann hafi aldrei séð neinn tárast
jafnoft af reiði yfir ósigri og Wiebe,
en látum það liggja milli hluta.
– Eitt skemmtilegasta atriði
myndarinnar er tekið upp í bíl-
skúrnum heima hjá þér, þú að
rembast við að slá heimsmet í leikn-
um á meðan sonur þinn skipar þér
að skeina sig.
„Honum líkar illa við þann hluta
myndarinnar,“ segir Wiebe og
skellihlær. Strákurinn sé þó að
verða átta ára, var fjögurra ára
þegar myndin var tekin og sé því að
jafna sig á niðurlægingunni.
– Ertu sáttur við hvernig fjallað
er um þig í myndinni?
„Já, ég held að þetta sé heiðarleg
lýsing. Ég er ekki gallalaus en þó
ekki eins mikill vesalingur og kann
að virðast af myndinni, ég hef notið
velgengni líka í lífinu,“ áréttar
Wiebe. Að svo búnu þarf hann að
fara í tíma, að kenna unglingum
stærðfræði.
Gefst aldrei upp
Ed Cunningham, framleiðandi
myndarinnar, segist hafa horft á
myndina margoft og víða um
Bandaríkin. Af viðbrögðum áhorf-
enda að dæma sé myndin marg-
hliða, dramatísk, spaugileg og allt
þar á milli.
– Myndin snýst að miklu leyti um
lítilmagnann, Wiebe, mann sem
syndir gegn straumnum ekki satt?
„Okkur varð ljóst eftir að hafa
rætt við vini hans og ættingja að
hann er afar hæfileikaríkur en kann
ekki nógu vel að nýta sér það,“
svarar Cunningham. Wiebe gefist
hins vegar aldrei upp og áhorfendur
finni til samkenndar með honum og
baráttu hans við vonda karlinn.
Mitchell virðist að mörgu leyti
andstæða Wiebes, sjálfumglaður
mjög og hrokafullur. Mitchell rekur
fyrirtæki sem framleiðir bragð-
sterkar sósur og er þónokkuð
fjallað um velgengni hans á sósu-
markaði í myndinni, m.a. af for-
eldrum hans. Cunningham segir
menn eins og Mitchell yfirleitt ná
langt í Bandaríkjunum, með trúnni
á eigið ágæti. Mitchell njóti vel-
gengni í starfi því hann trúi á eigin
velgengni, svo að segja. Þetta teng-
ist í raun bandaríska draumnum
svokallaða, þ.e. að draumar manna
rætist með því að leggja nógu hart
að sér. Cunningham segir Seth
Gordon, leikstjóra myndarinnar,
hafa komið auga á þennan hluta
umfjöllunarefnisins og gert viljandi
út á hann í frásögninni. „Það er
fjöldi fólks hér í landi sem hefur náð
árangri á sjálfstraustinu einu sam-
an.“
Golf-nördar ekki til
Cunningham segir auðvelt að
hlæja að mönnum sem eyða öllum
stundum í tölvuleiki til að ná
ákveðnum árangri og kalla þá lúða
eða nörda. Enginn hlæi hins vegar
að mönnum sem eyði öllum sínum
frítíma í golf, það þyki einhverra
hluta vegna í lagi. Um leið og menn
eyði öllum sínum tíma í tölvur eða
eitthvað sem þeim tengist séu þeir
lúðar. „Mér finnst það ekki sann-
gjarnt,“ segir Cunningham. Í mynd-
inni sé mönnunum sýnd sú virðing
sem þeir eiga skilið. „Við höfum öll
þessa þörf fyrir að setja alla í litla
kassa, þú ert X, Y eða Z, ég held
það sé ekki endilega hollt,“ bætir
Cunningham við.
– Bentirðu Steve á að hann ætti
kannski að fara að vinna í kauphöll-
inni á Wall Street?
Cunningham skellir upp úr. „Ef
hægt er að græða á því að einbeita
sér að upplýsingum á tölvuskjá í
mjög langan tíma þá getur Steve
orðið vellauðugur,“ svarar Cunn-
ingham hlæjandi.
Dagskrá Græna ljóssins:
http://graenaljosid.is/
Apalegt? Úr Donkey Kong sem naut mikilla vinsælda á 9. áratugnum.
Ed Cunningham
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 67
Búlgaría
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
3
29
63
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík · Sími: 591 9000
www.terranova.is · Akureyri, sími: 461 1099
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
T
er
ra
N
o
va
á
sk
ilu
r
sé
r
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
BEINT MORGUNFLUG
Golden Sands í Búlgaríu hefur slegið í gegn hjá Íslendingum. Þessi einstaki sum-
arleyfisstaður býður þín með með frábæra strönd, einstakt loftslag, ótæmandi af-
þreyingarmöguleika, fjölbreytta veitingastaði og fjörugt næturlíf.
Athugið að það er mjög takmarkaður fjöldi flugsæta og gistingar í boði á
þessu einstaka tilboðsverði!
Perla Svartahafsins
– glæsilegur aðbúnaður í fríinu
Bókaðu núna!
www.terranova.is
- síðustu sætin í júní & júlí
150 sæti á frábæru sértilboði
• Sól og frábær strönd
• Ótrúlega hagstætt verðlag
• Endalausir möguleikar á afþreyingu
• Spennandi skoðunarferðir
Þú færð hvergi meira
frí fyrir peninginn!
Hotel Perla
Vinsælt hótel með stórum og góðum sundlauga-
garði og fjölbreyttri og mjög góðri sameiginlegri
aðstöðu. Stórt og gott móttökusvæði með bar,
veitingastað o.fl. Herbergi eru rúmgóð og loftkæld,
öll með baðherbergi og eru nýlega endurnýjuð á
smekklegan hátt með síma og sjónvarpi. Hótel með
fína aðstöðu og gott andrúmsloft. Morgunverð-
arhlaðborð innifalið í gistingu.
Frá kr. 54.990 í viku
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði á
Hotel Perla í viku, 16., 23. eða 30. júní og 7. eða 21. júlí.
Glarus – íbúðir / Club Paradise Park – íbúðir
Frábærar íbúðir
Club Paradise Park
Huggulegt nýlegt (2006) íbúðahótel efst í bænum, í
fallegu skógi vöxnu umhverfi, 600 m. frá strönd og
miðbæ. Móttaka opin allan sólarhringinn, veitinga-
staður, bar og líkamsrækt. Góður sundlaugagarður
með barnalaug. Íbúðirnar eru með 1 eða 2 svefn-
herbergjum og eru rúmgóðar og vel búnar með
sjónvarpi, loftkælingu, síma, ísskáp, örbylgjuofni og
öryggishólfi. Svalir með húsgögnum. Góðar íbúðir
og aðbúnaður fyrir gesti.
Glarus
Glarus er nýlegt (2006) íbúðahótel norðarlega við
Golden Sands ströndina. Góður sundlaugagarður
með barnalaug og sólbekkjum og veitingastaður
hótelsins er opinn inn í garðinn. Líkamsræktar-
aðstaða, snyrtistofa og heilsulind. Íbúðir eru
loftkældar með einu svefnherbergi, baðherbergi
með hárþurrku og stofu með eldunaraðstöðu. Sími
og gervihnattasjónvarp er á öllum íbúðum. Örygg-
ishólf í gestamóttöku. Mjög góður kostur!
Frá kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í
íbúð á Glarus íbúðahótelinu eða Club Paradise Park íbúða-
hótelinu í viku, 16., 23. eða 30. júní og 7. eða 21. júlí.
Aukavika kr. 15.000.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Rhodos
7. júní og 14. júní
frá kr. 59.990
Aðeins örfáar íbúðir í boði!
Bjóðum nú frábært sértilboð á einum af okkar vinsælasta gististað á Rhodos,
Hotel Forum, með hálfu fæði. Njóttu lífsins á þessum vinsæla áfangastað
Heimsferða. Íbúðahótelið Forum stendur aðeins um 100 m. frá ströndinni.
Á hótelinu er góð sundlaug, barir og veitingastaður. Góð aðstaða er fyrir börn
s.s. barnalaug, leikaðstaða, billiard, pílukast, borðtennis o.fl. Á daginn og
kvöldin er skemmtidagskrá fyrir bæði börn og fullorðna.
Örfáar íbúðir í boði á þessu frábæra verði.
Verð kr. 59.990 - hálft fæði
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð m/1 svefnherbergi í viku.
M
bl
99
12
73
Sértilboð á Forum ***
- með hálfu fæði
Verð kr. 71.990 - hálft fæði
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna í íbúð m/1 svefnherbergi í viku.