Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 70

Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 70
70 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Lag Gnarls Barkleys,„Crazy“, sló eftir-minnilega í gegn fyrirtveimur árum og þegar hæst lét varð ekki þverfótað fyrir því þar sem það glumdi í útvarpi, á skemmtistöðum og á kaffihúsum. Það var ekki einu sinni hægt að kveikja á sjónvarpi án þess að kenj- ótta tvíeykið stykki á mann með ein- földu en einkar áhrifaríku mynd- bandi við þennan sama smell. Gnarls-liðar voru alls staðar, þótt þeir bærust ekki mikið á sjálfir, helst að þeir brygðu á leik á ein- kennilegum ljósmyndum sem var dreift á fjölmiðla (og sá galgopahátt- ur hefur reyndar spillst upp á sviðið líka (sjá mynd)). Þar skrýðast þeir mismunandi búningum og hafa ýmis þemu verið í gangi (kokkar, náttföt, skylmingaþrælar …) en á myndum herma þeir hins vegar eftir frægum atriðum úr kvikmyndasögunni. Tæknivæddur smellur Hinar gríðarlegu vinsældir „Crazy“ komu poppspekingum á óvart; lagauppbygging og áferð er óvenjuleg og minntu vinsældirnar dálítið á það þegar „Hey Ya!“, lag Outkast, sló í gegn þremur árum áð- ur. Bæði lögin hallast þó nokkuð til „vinstri“ eins og Einar Bárðarson myndi orða það en það er eitthvað í Sjálfsagðir bólfélagar „Klikkaði“ dúettinn Gnarls Barkley, sem sam- anstendur af upptökuundrinu Danger Mouse og þungavigtarrapparanum Cee-lo, leggur í hann aftur með plötunni The Odd Couple. Klikkaðir „Nýja platan er sannarlega „hin erfiða plata nr. 2“ eins og svo oft er, og allir bíða náttúrulega eftir „Crazy“, númer 2. Hér má sjá þá Danger Mouse og Cee-lo í Star Wars-búningum á tónleikum. TÓNLIST Á SUNNUDEGI Arnar Eggert Thoroddsen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.