Morgunblaðið - 13.04.2008, Page 71
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 71
formúlunni sem olli því að bæði lög
grófu sig á bólakaf í hjarta hins al-
menna tónlistarneytanda.
Það var kannski ekki ætlunin að
slá í gegn hjá þeim Danger Mouse
og Cee-lo, ekkert frekar a.m.k.
„Crazy“ hafði „lekið“ út í óravíddir
alnetsins seint á árinu 2005 og Zane
Lowe, hinn áhrifaríki plötusnúður
BBC, spilaði það linnulítið og nýtti
það auk þess í sjónvarpsauglýsingar
fyrir þátt sinn. Lagið varð hið fyrsta
í sögunni til að setjast í efsta sæti
breska vinsældalistans sem niðurhal
eingöngu. Lagið sat í efsta sætinu í
níu vikur, nokkuð sem hafði ekki
gerst í tíu ár. En það segir sitthvað
um viðhorf Gnarls-manna til þessa,
og forsendnanna sem þeir höfðu í
upphafi, að þeir fjarlægðu smáskíf-
una úr búðum á endanum, til að
koma í veg fyrir að „fólk fengi upp í
kok af því“. En þær aðgerðir komu
of seint – platan varð engu að síður
söluhæsta smáskífa Bretlands það
árið. Og jú, á tímabili var maður sos-
um kominn með upp í kok af laginu.
Það breytir þó ekki þeirri staðreynd
að lagið er snilld.
Samkrull
Samstarf þeirra félaga hófst árið
2003 en þá voru þeir báðir orðnir
sæmilega gildandi í samtímapoppi.
Dangermouse var einn af umtöl-
uðustu upptökustjórunum í hipp-
hoppi og frægð hans jókst til muna
eftir að hann tók upp margverðlaun-
aða plötu Gorillaz, Demon Days
(2005). Einnig hafði The Grey Al-
bum, plata þar sem hann blandar
plötu Jay-Z, The Black Album, sam-
an við Hvítu plötu Bítlanna, vakið
talsverða eftirtekt.
Cee-lo kom hins vegar úr Goodie
Mob, einni mikilvægustu suðurríkj-
arappsveitinni, og var að keyra sóló-
feril þegar samkrull þeirra félaga
varð.
Fyrsta breiðskífan, St. Elsew-
here, kom út 2006 og hýsir m.a.
„Crazy“. Platan hefur selst í tæpum
fjórum milljónum eintaka um heim
allan sem verður að teljast harla
gott. Nýja platan er því sannarlega
„hin erfiða plata nr. 2“ eins og svo
oft er, og allir bíða náttúrlega eftir
„Crazy“ númer 2.
Við Íslendingar erum auðvitað sí-
þyrstir í fréttir af einhverjum teng-
ingum héðan út í hinn stóra útheim
og því er verðugt að geta þess að Ís-
lendingur hannar umslagið á The
Odd Couple. Sigurður Eggertsson,
Siggi Eggerts, hannaði líka um-
slagið á sólóplötu Bigga í Maus, id
(handbragðið er greinilegt), og er að
slá í gegn í hinum alþjóðlega hönn-
unarheimi. Hann gefur hins vegar
ekki mikið fyrir Gnarls Barkley en
þetta er haft eftir honum í Frétta-
blaðinu 6. febrúar síðastliðinn.
„Ef ég fæ einhver verkefni út á
þetta verður það örugglega allt jafn
glatað og Gnarls Barkley.“
Hmmm … hann er doldið klikk-
aður, þessi heimur í kringum
Gnarls-menn.
arnart@mbl.is
RÖNG mynd birtist með Af listum-
pistli Péturs Blöndal sem birtist í
Morgunblaðinu á fimmtudaginn.
Rétt mynd birtist hér með, en hún
sýnir Sigurð Guðmundsson lista-
mann við verk sitt Aðdáendur verka
minna á sýningu Sigurðar í Lista-
safni Reykjavíkur.
LEIÐRÉTT
Aðdáendur
verka minna
Morgunblaðið/Einar Falur