Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 75

Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 75
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 75 VEFSÍÐA VIKUNNAR: Videojug.com» Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is HVAR á maður að byrja með Videojug.com? Þessi síða vikunnar er einn allsherjar leið- arvísir um allt lífið, allt frá því hvernig á að fást við hækkandi kollvik yfir í hvernig á að borða sushi, þjálfa hvolpa eða vera góður tengdason- ur. Það þarf ekki einusinni að hafa fyrir því að lesa – góðu ráðin eru öll framreidd í stuttum og hnitmiðuðum myndskeiðum sem allir geta skil- ið. Allt er þetta ókeypis og laust við íþyngjandi auglýsingar. Fróðleiksbrunni síðunnar er skipt niður í nokkra flokka: Einn flokkurinn er um mat og drykk, þar sem m.a. er hægt að læra allt frá einföldum uppskriftum upp í flóknar meist- arakúnstir í eldhúsinu. Annar flokkurinn fjallar um ástarlífið og tæklar jafnt tilhugalíf, góða kossa, eða hvernig á að komast á séns í strætó. Videojug er líka endalaus uppspretta heil- ráða um útlit, tísku, heilsu og líkamsrækt, allt í sínum flokkum. Karlar geta t.d. lært alla helstu bindishnúta, og hollráð við rakstur – það má jafnvel læra hvernig á að flétta túrban! Viltu læra spilagaldra? – Þá er Videjug allt sem þú þarft. Viltu taka listrænar nekt- armyndir? – Þá er Videojug líka staðurinn fyrir þig. Langar þig að vista myndbönd af Youtube? Veistu ekki hvernig þú festir hún á hurð? Vant- ar þig leiðbeiningar um hvernig á að klæða hunda í föt? Þú finnur lausnina á öllum lífsins vandamálum á Videojug. Hvernig á að gera … allt! Ótæmandi Á Videojug.com má finna leiðbeiningar um allt frá hvernig best er að klæða hundinn yfir í hvernig á að elda roast beef. Þar má sem sagt finna leiðbeiningar um flest. UNGFRÚ Bandaríkin var krýnd við hátíðlega athöfn á Planet Holly- wood-hótelinu í Las Vegas í Nevada á föstudagskvöldið. Svo fór að ungfrú Texas, Crystle Stewart, hreppti hnossið, enda fönguleg stúlka þar á ferðinni – eins og sjá má á myndunum. Klassískt Stewart brosti í gegnum tárin, eins og segir í textanum. Gleði Hinir keppendurnir sam- glöddust Stewart þegar úrslitin lágu fyrir í Las Vegas. Léttklædd Stewart sýnir baðföt. Titillinn til Texas

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.