Morgunblaðið - 13.04.2008, Síða 76

Morgunblaðið - 13.04.2008, Síða 76
Íslenskir bankar ekki fremstir í röðinni Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is MÖRKUÐ hefur verið sú stefna að Glitnir ein- beiti sér að kjarnastarfsemi á Íslandi og lykilfyr- irtækjum á Norðurlöndum, að sögn Lárusar Welding, forstjóra Glitnis. Enn meiri áhersla verður lögð á sérhæfingu í orkugeiranum og sjávarútvegi á alþjóðavísu. Þegar hefur verið ráðist í hagræðingu innan Glitnis, nið- urskurður verið töluverður í Noregi, skrifstofunni lokað í Kaupmannahöfn og útlána- starfsemi lögð niður í Lúxem- borg. „Sú hagræðing heldur áfram á öðrum ársfjórðungi, en slíkum aðgerðum verður vonandi að mestu lokið á síðari hluta ársins. Nú gefst tækifæri til að skoða spilin – hver sé kjarnarekstur Glitnis.“ Lárus segir að farið sé að rofa til á erlendum lánsfjármörkuðum. „En við megum ekki rasa um ráð fram. Það þarf að endurfjármagna alla banka heimsins og Íslendingar eru ekki fremstir í röð- inni, þannig að við megum ekki fara strax af stað.“ Mikilvægt er að fá erlenda fjárfesta inn í ís- lensk fjármálafyrirtæki, segir hann. „Það er vandamál að geta ekki lokað krónu- áhættunni og þessi síðasta veiking færir okkur nokkur ár aftur í tímann. Svo hefur okkur ekki tekist nógu vel að vekja traust og tiltrú á við- skiptamódelinu okkar. Það eru erlendir fjár- festar í öllum stærstu fyrirtækjum á Norður- löndum nema þeim íslensku. Þar held ég að við getum komið á óvart, því að við finnum mikinn áhuga.“ Áhætta fylgir gjaldmiðlinum Þá fylgir því áhætta að halda úti minnsta gjaldmiðli í heimi, að sögn Lárusar. „Ef einhver ákveður að fara gegn krónunni er það ekkert mál. Ef menn gátu fellt breska pundið geta menn leikið sér að íslensku krónunni. Við verð- um að horfast í augu við það.“ Aðspurður hvort aðför hafi verið gerð að ís- lenskum fjármálamarkaði segir hann Ísland hluta af alþjóðlegu fjármálakerfi. „Þegar menn sjá tækifæri til að hagnast verulega með því að djöflast á markaði er engin ástæða til að taka því persónulega. Menn stunda viðskipti til að hagn- ast á því. Ef þeir geta auðveldlega hreyft mark- aði munu þeir gera það.“  Ekki lengur litla saklausa Ísland | 26 Í HNOTSKURN »Lárus telur gæði eignasafnsins vinna meðbankanum. »Að hans mati er fjármálakreppan í Banda-ríkjunum ein sú alvarlegasta sem þar hef- ur skollið á og bandaríski seðlabankinn aldrei brugðist jafnhratt og harkalega við. Lárus Welding Glitnir leggur meiri áherslu á sérhæfingu í orkugeiranum og sjávarútvegi SUNNUDAGUR 13. APRÍL 104. DAGUR ÁRSINS 2008 Heitast 5 °C | Kaldast 0 °C  Suðlæg átt, 8-13 m/s og dálítil snjókoma eða slydda en úrkomu- lítið austan til framan af degi. » 8 ÞETTA HELST» Á auglýsingastigi  Fyrirhugaðar framkvæmdir við Bakkafjöru hafa verið auglýstar á Evrópska efnahagssvæðinu, að sögn Jóns Rögnvaldssonar vegamála- stjóra. Reiknað er með að opnað verði fyrir tilboð í júní. Hópur Vest- mannaeyinga vill fara aðra leið og byggja stórskipahöfn við Eiðið. » 4 Turninn illa á sig kominn  Næstu mánuði verður Hallgríms- kirkja hulin vinnupöllum þegar gert verður við veðrunar- og frost- skemmdir. Gert er ráð fyrir að verk- ið muni kosta um 250 milljónir. Turninn er um 74 metra hár og því er verkefnið vandasamt. » 2 Póstur á víðavangi  Það er algengt hjá póstburðar- mönnum að skilja póstburðartöskur eftir utandyra án eftirlits þrátt fyrir að verklag kveði á um að slíkt skuli ekki gert. » 2 Reyna á lögmætið  Til stendur að reyna á lögmæti út- varpsgjalda eða afnotagjalda Ríkis- útvarpsins í núverandi mynd fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Grund- völlur málshöfðunarinnar byggist á þeim skilningi að útvarpsgjöld séu skattur. » 6 SKOÐANIR» Staksteinar: Talað af viti Forystugreinar: Tvöföldun þjóðvega | Reykjavíkurbréf Ljósvakinn: Hvar eru tónlistar- myndböndin? UMRÆÐAN» Síðasta kerið gangsett hjá Fjarðaáli Vandaðu gerð ferilskrárinnar 10% fyrir neðan lágtekjumörk Góð ráð fyrir starfsviðtalið Grunnsævið gulls ígildi? Til fróðleiks fyrir Halldór Blöndal Nýsköpun meðal hjúkrunarfræðinga Fylgir frelsi ábyrgð? ATVINNA» FEGURл Ungfrú Texas var kjörin ungfrú Bandaríkin. » 75 Úrvalssveitin sem sýnd er á Bíódögum Græna ljóssins fær fjórar og hálfa stjörnu hjá Sæbirni Valdimarssyni. » 69 KVIKMYNDIR» Eins og hnefahögg FÓLK» Kate Hudson er sátt við tölvubreytingar. » 68 TÓNLIST» Eminem ætlar að rappa fyrir Mandela. » 68 Heimildarmyndin King of Kong segir frá tveimur mönnum sem keppa í tölvu- leiknum vinsæla Donkey Kong. » 66 Meistarar leikjanna KVIKMYNDIR» reykjavíkreykjavík 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 VEÐUR» » VEÐUR mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Dæmdur í 7 ára fangelsi 2. Ávanabindandi sultarhormón 3. Bílstjórar ræða um „stórt stopp“ 4. „Viljum ekki sjá svona aksturslag“ STEFNT er að því að búa til svokallaða al- mynd af tónlist- armanninum Vil- hjálmi Vilhjálmssyni fyrir tónleika sem haldnir verða til minn- ingar um hann í Laugardalshöll- inni í ágúst. Almynd, sem á ensku nefnist „hologram“, er aðferð til þess að taka ljósmynd, í þessu til- felli myndband, og breyta í þrí- vídd. Þetta var til dæmis gert í bandarísku Idol-þáttunum fyrir nokkru þegar Celine Dion söng „með“ almynd af Elvis Presley. „Hver veit nema Villi geti verið þarna með okkur. Það gæti orðið dúett með Vilhjálmi og einhverjum núlifandi söngvara,“ segir Jón Ólafsson, athafnamaður og einn af skipuleggjendum tónleikanna. | 73 Almynd af Vil- hjálmi Tæknin nýtt á tón- leikum í Höllinni Vilhjálmur Vilhjálmsson NÝTT og gott heimili hefur fundist fyrir læðuna sem fannst í bíl við BSÍ, þar sem hún hafði verið inni- lokuð í marga daga. Sigríður Heið- berg í Kattholti segir nýja eigand- ann, Elísu Friðjónsdóttur, nýlega hafa misst kött af persakyni og hafa boðist til að veita læðunni heimili eftir að hún las um hremm- ingar hennar í Morgunblaðinu. Enginn hefur gefið sig fram með upplýsingar um fyrri eigendur læð- unnar. Að sögn Sigríðar er læðan öll að braggast og er hún ósköp ljúf og hinn besti köttur. Hún hefur verið rökuð, enda var feldurinn hlaupinn í flækjur. Hún er þó enn lítið farin að éta en Sigríður vonar að þegar hún verði komin á gott og rólegt heimili taki hún við sér. Fjöldi katta bíður nýrra eigenda í Kattholti. Hægt er að skoða þá virka daga milli kl. 14 og 16. Fékk nýtt og gott heimili Morgunblaðið/Árni Sæberg Læða sem fannst innilokuð í bíl við BSÍ er á batavegi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.