Morgunblaðið - 16.04.2008, Síða 1
STOFNAÐ 1913 103. TBL. 96. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
HAMAST VIÐ HÖNNUN
KANDÍS, DÖÐLUR, KONÍAK, SLIFSI OG OFUR-
SEXÍ GRIMM KONA Í BRYNJU MEÐ KLÆR >> 40
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
FJÓS þar sem notast er við mjalta-
þjóna skila að meðaltali meiri afurð-
um en fjós þar sem mannshöndin sér
um mjaltir. Snorri Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri búrekstrarsviðs
Landbúnaðarháskólans, segir að
ástæðan fyrir þessu sé sú að með því
að nota mjaltaþjóna séu kýrnar
mjólkaðar oftar á sólarhring og það
skili sér í meiri afurðum.
Í rannsókn sem gerð var árið 2005
voru meðalafurðir í fjósum með
mjaltaþjóna 5.326 kg eftir kú, en
rannsókn sem Snorri gerði á afurðum
síðasta árs sýndi að þá námu meðalaf-
urðir í þessum fjósum 5.791 kg. Þetta
eru talsvert meiri afurðir en eru í
fjósum þar sem mannshöndin sér um
mjaltir, en í fyrra voru meðalafurðir
eftir kú 5.590 kg.
Snorri sagði að þegar rannsóknin
var gerð árið 2005 hefði þessi mjalta-
tækni verið ný á Íslandi og bændur
ekki búnir að ná fullri nýtingu á
henni. Þessi niðurstaða núna kæmi
ekki á óvart enda væri hún í samræmi
við erlendar rannsóknir. Hann sagði
að það færi betur með kýr sem
mjólka mikið að mjólka þær oftar en
tvisvar á sólarhring. Rannsóknir
sýndu að það yki heilbrigði þeirra og
endingu gripanna.
Snorri sagðist hins vegar ekki
treysta sér til að svara því hversu
fjárhagslega hagkvæmt væri fyrir
bændur að nýta sér mjaltaþjóna.
Helmingur í nýjum fjósum
Rannsóknin sýnir jafnframt að
meðal afurðuhæstu búanna, þ.e. bú
sem skila meira en 6.000 kg eftir kú,
eru það básafjós með rörmjaltakerfi
sem skila mestum afurðum. Mun-
urinn á þeim og fjósum með mjalta-
þjón er 2,3%. Snorri sagði að ástæðan
væri að í básafjósi væri hægt að sinna
einstökum gripum betur en í róbótaf-
jósi. Þar væri t.d. hægt að mismuna
gripunum með því að gefa bestu kún-
um betra fóður.
Skýrsla Snorra sýnir að liðlega
helmingur af öllum kúm á Íslandi er
núna hýstur í nýjum fjósum eða fjós-
um sem hafa verið endurnýjuð.
Morgunblaðið/RAX
Fjós Á Vöðlum í Önundarfirði er
róbótafjós. Árni bóndi tekur lagið.
Er róbót
betri en
fjósamaður?
Mestar afurðir í fjós-
um með mjaltaþjóna
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
AÐKOMA fjárfesta að Reykjavík Energy Invest (REI)
er eitt af því sem skoðað verður í stefnumótun fyrirtæk-
isins til framtíðar, að því er kom fram í máli Kjartans
Magnússonar, stjórnarformanns Orkuveitu Reykjavíkur
og REI, á borgarstjórnarfundi í gær. Kjartan sagðist
ekki sjá fyrir sér að REI fengi fjármagn frá Orkuveit-
unni í framtíðinni og fyrirtækið myndi lágmarka áhættu í
þeim verkefnum sem þegar væru komin í gang. Á meðan
vinna við stefnumótun væri í gangi þyrfti hins vegar að
standa vel að rekstri REI og halda áfram með verkefnin.
Borgarfulltrúi Framsóknarflokks sagði útrásarstefnu
meirihlutans af sama meiði og mörkuð var af fyrsta
meirihluta þessa kjörtímabils – sem sprakk eftirminni-
lega þegar REI-málið stóð hvað hæst.
Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokks,
bar það undir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, oddvita sjálf-
stæðismanna í borginni, hvort Kjartan hefði haft umboð
borgarstjórnarflokksins þegar hann undirritaði sam-
komulag milli REI og ríkisstjórnar Afríkuríkisins Djíb-
útís og vilyrði fyrir frekari viðræðum við orkufyrirtæki
jemenska ríkisins nú nýverið. Vilhjálmur játti því að
Kjartan hefði haft umboð „til að vinna að framgangi
þessara mála en með lágmarksáhættu að leiðarljósi“.
Hann hrósaði jafnframt stjórnarformanninum fyrir vel
unnin störf.
Þetta taldi Óskar staðfesta að stefnubreyting hefði
orðið í flokki sjálfstæðismanna. Þeir færu nú fremstir í
flokki í að fylgja eftir stefnu sem ekki samræmdist hug-
sjónum þeirra fyrir rúmum fimm mánuðum. Og rökin
væru þau, að minna fé yrði varið í áhættufjárfestingar og
aðrir samstarfsaðilar kallaðir til.
Orkuveita Reykjavíkur | 8
Skoða aðkomu fjárfesta og
halda áfram verkefnum REI
Í HNOTSKURN
»Reykjavík Energy Invest erdótturfélag Orkuveitu Reykja-
víkur, stofnað í júní á sl. ári.
»Stefnt var að því að REI yrðileiðandi á heimsvísu í fjárfest-
ingum í jarðvarmavirkjunum.
»Sameina átti fyrirtækið GeysirGreen Energy, en upplýs-
ingagjöf var fyrir borð borin og
REI-málið svonefnda varð úr.
»Á eigendafundi OR í febrúarvar samþykkt að REI yrði í
100% eigu Orkuveitunnar.
GLEÐIN var við völd þegar Lilja
Pálmadóttir á Hofi á Höfðaströnd og
Steinunn Jónsdóttir á Bæ á Höfða-
strönd tóku í gær fyrstu skóflustung-
una að nýrri sundlaug á Hofsósi að
viðstöddum Ólafi Ragnari Grímssyni,
forseta Íslands, og eiginkonu hans,
Dorrit Moussaieff. Sigríður Sigþórs-
dóttir, arkitekt sundlaugarinnar, var
einnig viðstödd, en hún teiknaði m.a.
Bláa lónið. Fjölmargir aðrir gestir
voru viðstaddir og gullu húrrahrópin
þegar skóflunni hafði verið stungið í
jörðina fyrsta sinni. Sundlaugin er
gjöf Lilju og Steinunnar til samfélags-
ins og væntanlegt byggingarsvæði er
við Suðurbraut.
Gunnar Bragi Sveinsson tilkynnti
að aflokinni skóflustungunni að í gær
hefðu verið opnuð tilboð í jarðvinnu
vegna byggingarinnar, þannig að nú
væri einboðið að hefjast handa.
Dagskrá forsetahjónanna var að
öðru leyti þéttskipuð, m.a. var farið
heim að Hólum, í Flugumýri voru
gæðingar skoðaðir og Dorrit Mouss-
aieff reyndi sig við mjaltir. | 9Ljósmynd/Gunnar Geir Vigfússon
Húrra-
hrópin gullu
TALIÐ er að spákaupmenn sem skipta með vaxtamun á
milli landa sitji á um 800 milljörðum íslenskra króna, jafn-
gildi um 75% af vergri landsframleiðslu Íslands. Þetta kom
fram í ræðu Björgólfs Thors Björgólfssonar á aðalfundi
Straums sem haldinn var í gær.
Björgólfur vitnaði í ræðu sinni í skýrslu Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins frá því í haust þar sem segir að jafnvægisgildi
gengisvísitölu krónunnar sé á bilinu 150-190 stig en þá var
vísitalan 115 stig. Sjóðurinn spáði því meira en 30% veikingu
krónunnar og því ættum við að búast við frekari veikingu að
mati Björgólfs Thors. „Verkefni dagsins, og út árið, er að ná
til baka trúverðugleika Íslands sem hagkerfis,“ sagði Björg-
ólfur Thor í samtali við Morgunblaðið í gær. | 13
Spákaupmenn sitja
á 800 milljörðum
Björgólfur Thor
Björgólfsson
Ástin er diskó,
lífið er pönk >> 37
Öll leikhúsin
á einum stað
Leikhúsin í landinu
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8-
00
80
NÝJAR OG HANDHÆGARI UMBÚÐIRostur.is