Morgunblaðið - 16.04.2008, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
MAGNÚS Kristinsson, útgerðarmaður í Vest-
mannaeyjum, segir það mun betri kost að smíða
nýjan, hraðskreiðari Herjólf en að verja 6–8
milljörðum í gerð nýrrar hafnar í Bakkafjöru.
Um 35% íbúa í Vestmannaeyjum hafa skrifað
undir mótmæli við Bakkafjöruhöfn, en undir-
skriftasöfnuninni lýkur í kvöld.
Magnús sagðist hafa miklar efasemdir um
höfn á Bakkafjöru. Hann sagðist taka með mik-
illi varúð fullyrðingum fræðimanna um að ekki
verði miklar frátafir í nýrri höfn vegna veðurs.
Þessar rannsóknir byggi allar
á líkindum. Hann benti á að
aðeins eitt dufl væri fyrir ut-
an Bakkafjöru sem aflað hefði
upplýsinga um sjólag.
„Sjómenn sem ég hef talað
við segja að það hafi aldrei
verið hægt að leggja trossur á
þessu svæði. Straumurinn sé
það mikill að þær hafi alltaf
borið vestur með landinu.
Líkurnar á að þarna sé hægt
að búa til höfn eru mun minni en þeir segja hjá
Siglingastofnun. Ég vil líka benda á að það
vantar ekki nýjar hafnir á Íslandi,“ sagði Magn-
ús.
Magnús sagði að í skýrslu sem Háskólinn á
Bifröst hefði gert hefði verið bent á að nauðsyn-
legt væri að rannsaka betur íbúaþróun í Vest-
mannaeyjum og hvaða áhrif höfn í Bakkafjöru
gæti haft á hana. Þetta hefði ekki verið gert.
Magnús sagði að tæknin væri þannig í ferju-
smíði á Íslandi að það ætti að vera hægt að
smíða ferju af svipaðri stærð og núverandi
Herjólfur, en mun hraðskreiðari, öflugri og
öruggari. Hann sagðist vona að menn fallist á
að fara þá leið að smíða nýja ferju sem sigli á
skemmri tíma milli lands og Eyja á sumrin og
lengri tíma á veturna. Síðan ættu menn að sam-
einast um að berjast fyrir stórskipahöfn í Vest-
mannaeyjum, en hún myndi kosta þriðjung af
stofnkostnaði Bakkafjöruhafnar.
Magnús sagði að tillaga sín væri að óskað yrði
eftir tilboðum frá Samskip og Eimskip um nýja
ferju og að sá sem fengi verkið fengi samning til
7–8 ára.
Hægt er að skrifa undir mótmæli við Bakka-
fjöruhöfn á www.strondumekki.is.
Nýr Herjólfur mun betri
kostur en Bakkafjöruhöfn
Um 35% Eyjamanna hafa
þegar skrifað undir
Magnús
Kristinsson
AÐGERÐAHÓPUR vegna mið-
borgar Reykjavíkur sem hóf störf á
dögunum á m.a. að fara yfir reglur
um leyfisveitingar og kröfur til vín-
veitingastaða.
Borgarstjóri er í forsvari fyrir
hópinn en hann skipa sviðsstjórar
Reykjavíkurborgar, bygginga-
fulltrúi og lögreglustjóri.
Þá sitja í hópnum borgarfull-
trúarnir Jórunn Frímannsdóttir og
Dagur B. Eggertsson.
Markmiðið með starfi hópsins er
að samræma og gera tillögur um
nauðsynlegar aðgerðir í miðborg-
inni með það að markmiði að bæta
umgengni, hreinlæti og öryggi, að
því er fram kemur í erindisbréfi
hópsins. Gert er ráð fyrir að að-
gerðahópurinn skoði hugmyndir
sem fram komu í skýrslu starfshóps
sem borgarstjóri skipaði í fyrra-
haust og nefnist Reykjavík, betri
miðborg.
Í skýrslu starfshópsins er m.a.
lagt til að reglur um leyfisveitingar
og kröfur til vínveitingastaða verði
endurskilgreindar. Jórunn Frí-
mannsdóttir segir að ekki sé hægt
að segja til um hvort eða hvaða til-
lögur verði gerðar í þessum efnum.
Málið verði skoðað, m.a. þær breyt-
ingar sem orðið hafa eftir að af-
greiðslutími skemmtistaða var gef-
inn frjáls.
Skoði leyfi
vínveit-
ingastaða
PÓLSKUR karlmaður, sem er
grunaður um aðild að manndrápi í
heimalandi sínu, var úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 6. maí í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær að kröfu
lögreglu.
Í lögum um framsal sakamanna
og aðra aðstoð í sakamálum segir
m.a. að við rannsókn vegna fram-
salsbeiðni megi beita þeim þving-
unaraðgerðum sem lög um með-
ferð opinberra mála heimila við
rannsókn sambærilegra sakamála.
Við ákvörðun þess hvort skilyrði
séu til beitingar þvingunaraðgerð-
um má leggja til grundvallar
dómsákvarðanir þær sem fram-
salsbeiðni fylgja án frekari rann-
sóknar um sönnun sakar viðkom-
andi manns.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra hitti í gær Michal Sikorski,
ræðismann Póllands á Íslandi, og
ræddu þeir nánara samstarf milli
lögreglu Póllands og Íslands.
Sætir þriggja
vikna gæslu-
varðhaldi
♦♦♦
HÁTT í hundrað iðnaðarmenn, þeirra
á meðal pípulagningamenn, rafvirkjar,
smiðir og tæknifræðingar, leggja nú
nótt við nýtan dag til þess að klára við-
bygginguna og endurbætur á Sund-
laug Kópavogs en að sögn forstöðu-
manns laugarinnar á að vígja nýja og
endurbætta sundlaug 11. maí nk. á af-
mælisdegi bæjarins.
Að sögn Guðbjörns Ævarssonar,
pípulagningameistara og eiganda
Bunustokks, verður lagnakerfið í end-
urbættri sundlaug með því fullkomn-
asta sem þekkist á landinu. Aðspurður
segir hann lagnakerfið samtals vera
marga tugi kílómetra að lengd. Kerfið
allt verður tölvustýrt en um er að ræða
um 30 einingar sem hverja um sig þarf
að vera hægt að hita- og klórstilla.
Þeirra á meðal eru 10 m og 25 m inni-
laugar, heitir pottar, vaðlaug með kol-
krabba, lítil rennibraut fyrir yngri
börnin og sveppur.
Að sögn Péturs Birgissonar, for-
stöðumanns Sundlaugar Kópavogs, er
verkið á áætlun. Vatn var sett á laug-
arkerfi nýju eininganna í gær til þess
að prufukeyra kerfið og sjá hvort allt
virkaði sem skyldi. Aðspurður segir
hann ljóst að endurbætta laugin muni
þjóna breiðum hópi sundiðkenda, jafnt
ungum sem öldnum, keppnisfólki sem
og áhugafólki.
Endurbæt-
ur standa
sem hæst
Flókið og fullkomið lagnakerfi í endurbættri Sundlaug Kópavogs
Morgunblaðið/Frikki
Lagnaverk Jón Steinar Ingólfsson vinnur við flókinn hreinsibúnaðinn.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur fellt úr gildi ákvörðun Útlend-
ingastofnunar frá árinu 2006 um að
synja umsókn manns frá Máritaníu
um hæli, neita honum um dvalarleyfi
og vísa honum úr landi. Dómurinn
felldi einnig úr gildi þá ákvörðun
dómsmálaráðuneytisins að staðfesta
ákvörðun Útlendingastofnunar.
Maðurinn kom til landsins í októ-
ber 2004 og sagðist hann þá vera
ferðamaður en framvísaði fölsuðu
vegabréfi frá Belgíu. Í framhaldi af
því óskaði hann eftir hæli á Íslandi,
þar sem hann óttaðist að sín biðu þau
örlög að verða hnepptur aftur í
ánauð og þrældóm í heimalandi sínu.
Íslensk stjórnvöld sögðust hafa
leitað eftir upplýsingum um ástand
mála í Máritaníu, bæði að því er
varðar þrælahald og mismunandi
stöðu fólks í samfélaginu eftir kyn-
þætti og menningarhópum. Komið
hafi fram að þrælahald sé bannað
með lögum í Máritaníu og ný stjórn-
völd þar í landi hafi fylgt því eftir af
festu. Þá liggi ekkert fyrir um að
maðurinn eigi von á ofsóknum í
heimalandi sínu vegna trúarbragða
eða þjóðfélagsstöðu.
Hann búi því ekki við ástæðuríkan
ótta um að verða hnepptur í þræl-
dóm eða ótta um ofsóknir eða að ör-
yggi hans, lífi og frelsi verði ógnað.
Dómurinn taldi hins vegar, að nið-
urstaða íslenskra stjórnvalda væri
ekki byggð á fullnægjandi upplýs-
ingum um aðstæður mannsins í
heimalandinu þannig að unnt hafi
verið að meta hvort maðurinn hefði
lögmæta ástæðu til að óttast að hon-
um yrði haldið í þrælkun í heima-
landinu, færi hann aftur þangað.
Bæri þegar af þeirri ástæðu að
taka kröfu hans til greina og fella úr-
skurðinn úr gildi.
Felldi synjun um
dvalarleyfi úr gildi
FLUTNINGABÍLSTJÓRAR fund-
uðu í gær með starfshópi fjármála-
ráðuneytis sem vinnur að endur-
skoðun álagna á bifreiðar og
eldsneyti.
Að sögn Sturlu Jónssonar, tals-
manns bílstjóranna, kom efni fund-
arins á óvart, en hann hafði vænst
þess að þar yrðu kynntar hugmyndir
til að koma til móts við flutningabíl-
stjórana: „Á fundinum voru bara
ræddar hugmyndir, og sögðum við
nefndinni allt það sama og við sögð-
um síðast,“ sagði Sturla í samtali við
blaðamann.
Þó Sturla hafi verið óhress með
framvindu mála í fjármálaráðuneyt-
inu lýsti hann ánægju með viðbrögð
Kristjáns Möller samgönguráð-
herra, en ráðuneyti hans upplýsti í
gær að ráðuneytið mun biðja Eftir-
litsstofnun EFTA um undanþágu
fyrir Ísland á reglugerð ESB um
aksturs- og hvíldartíma ökumanna.
Flutningabílstjórar vinna að
stofnun hagsmunasamtaka og verð-
ur stofnfundur haldinn á fimmtudag.
Miðar hægt í deilunni
Flutningabílstjórar eru ánægðir með framtak samgöngu-
ráðherra Vilja hraðari viðbrögð viðskiptaráðuneytis
Morgunblaðið/Golli
Viðræður Flutningabílstjórar á fundi með fulltrúum fjármálaráðuneytis.