Morgunblaðið - 16.04.2008, Side 10

Morgunblaðið - 16.04.2008, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Þetta kemur nú alveg í bakið, góði, við höfum talið okkur vera vel tækjaða og unnið af fagmennsku, það eina sem vantar á græjubúnaðinn eru rafbyssur. VEÐUR Óneitanlega hljóta menn aðstoppa við og hugleiða hvað er hið sanna, þegar orð talsmanna ol- íufélaganna fjögurra hér í Morg- unblaðinu í gær eru skoðuð.     Eigandi flutningafyrirtækis upp-lýsti að hann hefði talið að hugsanlegt væri að hann gæti feng- ið meiri afslátt í olíukaupum sínum og því hefði hann óskað eftir tilboðum í viðskiptin frá öllum olíufé- lögunum.     Hann fékktvö skrif- leg tilboð og tvö munnleg „og þau voru öll upp á sömu krónu- tölu. Það er ekki hægt að draga aðra ályktun en að enn sé samráð í gangi“, sagði eigandinn, sem vildi ekki koma fram undir nafni, því hann óttaðist að það kynni að hafa áhrif á þau afsláttarkjör sem hann þó nýtur!     Talsmenn allra olíufélagannahöfnuðu því alfarið að eitthvert samráð væri í gangi milli félaganna um verð. Það kemur í sjálfu sér ekkert á óvart.     En er það trúverðugt að fjögur ol-íufélög, sem beðin eru að gera tilboð í viðskipti, bjóði upp á krónu sömu kjör?     Er hér um einskæra tilviljun aðræða?     Hvar er þá samkeppni olíufélag-anna um viðskiptin, þegar þau bjóða nákvæmlega sömu krónu- tölu?     Er hér ekki komið verðugt verk-efni fyrir Samkeppniseftirlitið að skoða? STAKSTEINAR Samráð eða tilviljun? SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                       *(!  + ,- .  & / 0    + -                    !!"       !!   # #  !!  ! $ 12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (      % %         !!"         !!"   !!! &       :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? #    #  # #    # #  #   #                          *$BC                 ! " #""   " $"   % $& '  *! $$ B *! ' () (  $ & *& <2 <! <2 <! <2 ' $) ! + !" ,- &!.  D $                  <7   B  %($"!   ) $"   "  (   #     " ) *+")    ) ( " "     <     ,       "  " " "  (" -"    "  "     )   ( %  .     " /0  &11 ! &  2 &  &+ !" Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Kristinn Petursson | 15. apríl Hvalveiðar geta satt hungur margra Uppþot víða um heim, allt frá Haítí til Bangla- desh og Egyptalands, vegna snarhækkandi verðs á nauðþurftum hafa beint athygli heimsbyggðarinnar að þeim vaxandi vanda sem verðhækkun á matvælum er orðin. Hvalveiðar gætu lækkað mat- arverð. Svo mætti þurrka hvalkjöt til að selja inn á þau svæði í heiminum þar sem neyðin er mest. Grænfriðungar eru varla … Meira: kristinnp.blog.is Hermann Einarsson | 15. apríl Áhrif loftslagsbreyt- inga á fiskveiðar Mjög áhugaverð lesning að mínu mati og hvet ég alla þá sem áhuga hafa á umhverfismálum að skoða þetta vel. Hvaða áhrif hafa loftslagsbreytingar á fiskistofna og fiskveiðar? Um þetta verður rætt á ráðstefnu sem haldin verður í Björgvin í Noregi dagana 17. og 18. apríl. Ráðstefnugestir verða fulltrúar stjórnvalda, fiskveiði- samtaka og vísindamenn hvaðanæva af Norðurlöndum og … Meira: smalinn.blog.is Vilhjálmur Þorsteinsson | 15. apríl Er hraðfrysting skynsamleg? Seðlabankinn virðist hafa ákveðið að hrað- frysta hagkerfið. Verð- bólga um þessar mundir er einkum vegna veik- ingar krónunnar en að hluta vegna hækkana á heimsmarkaðsverði hrávara. Bankinn getur ekkert gert við hækkunum á hrá- vörum. Hann er að reyna að stöðva veikingu krónunnar en vegna stíflu á gjaldeyrisskiptamarkaði (swap- markaði) hefur hækkun vaxta lítil sem engin áhrif í þá átt. Þá er aðeins eftir … Meira: vthorsteinsson.blog.is Ólína Þorvarðardóttir | 15. apríl Olíuhreinsistöð – hver er að stjórna? Þá hefur hulunni verið svipt af því hverjir standa á bak við hug- myndina um olíu- hreinsistöð á Vest- fjörðum. Ég segi hugmyndina – því það vill brenna við í umræðunni að menn tali eins og olíuhreinsistöð sé orðin staðreynd. Hún hljóti að koma úr því allir eru að tala um hana. En nú hafa 24 stundir upplýst það sem líka kemur fram á skutull.is í dag, að það eru rússnesku olíurisarnir Gazprom og Lukoil sem standa þarna að baki. Þessi fyrirtæki ku vera sam- starfsaðilar Geostream (móðurfyr- irtækis Katamak-NAFTA) ásamt vest- rænu olíufyrirtækjunum Shell og Exxon Mobil. Þetta eru sumsé fyr- irtækin sem Íslenskur hátækniiðn- aður hefur átt í viðræðum við um að reisa olíuhreinsistöð á Vestfjörðum. Þá eru stór bandarísk verktakafyr- irtæki, Halliburton og Washington Gro- up, einnig nefnd sem samstarfsaðilar. Á heimasíðu Katamak-Nafta kemur einnig fram að félagið hafi valið Ísland sem stað fyrir olíuhreinsistöð vegna þess að hér sé orkukostnaður afar lágur og að hér sé hagstætt fjárfest- ingaumhverfi. Þá er það talið til kosta að flestar ákvarðanir vegna fram- kvæmdarinnar liggi hjá sveit- arstjórnum og ákvörðunarferlið geti því gengið hratt fyrir sig. Í máli Össurar Skarphéðinssonar iðnaðarráðherra á Alþingi í síðustu viku kom fram að ráðuneytið hefði ekki vitneskju um hvaða fjárfestar stæðu að baki olíuhreinsistöðinni, sem yrði í heild verkefni upp á rúma 400 milljarða króna, ef af yrði. Hann áréttaði einnig að losun stöðvarinnar myndi ekki rúmast innan losunarheimilda samkvæmt skuld- bindingum Íslands fyrir árin 2008- 2012. Því þyrfti annað tveggja að koma til, förgun/nýting koltvísýrings eða aðkeypt losunarheimild erlendis frá af hálfu framkvæmdaraðila. Hvernig ætla stjórnvöld nú að leysa þennan vanda? Olíurisarnir fagna því að „flestar ákvarðanir vegna fram- kvæmdarinnar liggi hjá sveit- arstjórnum“. Ég verð að viðurkenna að nú er vak- inn hjá mér sá uggur í brjósti að kannski sé málið ekki raunverulega í höndum stjórnvalda – heldur … Meira: olinathorv.blog.is BLOG.IS FRÉTTIR NEYTENDASAMTÖKIN hyggjast standa fyrir átaki í dag milli kl. 15 og 18 til þess að bæta verðmerkingar í verslunum. Óska þau eftir sjálfboða- liðum til að taka þátt í átakinu og hvetja jafnframt almenning til að vera með. Þetta kemur fram á vef Neytendasamtakanna (www.ns.is), en þar kemur fram að samtökin hafi lengi gagnrýnt lélegar merkingar og telja að nú sé tími til aðgerða runn- inn upp. Fulltrúar Neytendasamtakanna og sjálfboðaliðar verða við nokkrar verslanir í dag á fyrrgreindum tíma með límmiða til taks og leiðbeina öll- um sem vilja taka þátt í átakinu. Þátttakendur eru beðnir að skrifa verð þeirra vara sem þeir setja í inn- kaupakörfu sína á lítinn límmiða og líma á vöruna. Sé ekkert verð sjáan- legt við þá vöru sem fólk hyggst kaupa á að líma litaðan límmiða í skærum lit á hillukantinn þannig að starfsmenn geti séð hvar verðmerk- ingar vantar. Þegar komið er á kassa á fólk að fylgjast með því að kassaverð sé það sama og verðið sem fólk hafði skráð. Einnig er hægt að skoða strimilinn og bera saman við límmiðana þegar búið er að borga. Samkvæmt upplýsingum frá Neytendasamtökunum er markmið átaksins að hvetja verslanir til að sinna verðmerkingum betur og sjá til þess að þær séu ávallt réttar og fyrir hendi. Að mati samtakanna eru verðupplýsingar mjög mikilvægar og því alvarlegt ef þær eru rangar eða hreinlega ekki til staðar. Átak í verð- merkingum Segja verðupplýsingar afar mikilvægar Morgunblaðið/Golli Verðvitund Munu íslenskir neyt- endur öðlast aukna verðvitund?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.