Morgunblaðið - 16.04.2008, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.04.2008, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Þórarinn Jóns-son, múr- arameistari, fæddist á Ísafirði 16. mars 1923. Hann lést á Landspítala, Landa- koti, miðvikudaginn 2. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jón Jónsson klæð- skeri, f. á Höfða í Dýrafirði 4. febrúar 1890, d. 1. október 1979, og Karlinna Grein Jóhann- esdóttir húsmóðir, f. í Bolungarvík 7. febrúar 1896, d. 10. ágúst 1979, en foreldrar hennar bjuggu lengst af að Seljalandi í Skutulsfirði. Þórarinn var þriðji í röð fjögurra barna þeirra. Elst systkinanna var Margrét, garð- yrkjufræðingur, f. 17. okt. 1920, d. 10. mars 1995, gift Skafta Jós- efssyni, f. 1. mars 1920, d. 28. nóv- ember 1993. Næst var Kristín, garðyrkjukona, f. 16. janúar 1922, d. 19. september 2003, gift Sig- mundi Kristberg Guðmundssyni, f. 27. nóvember 1915, d. 10. ágúst 1980. Þær systur ásamt eig- inmönnum sínum ráku báðar blóma- og garðyrkjustöðvar í Hveragerði. Þriðja barnið var Þór- arinn og yngstur er Sigurður Al- bert Jónsson, garðyrkjufræðingur og fyrrverandi forstöðumaður Grasagarðs Reykjavíkur í Laug- ardal, f. 25. okt. 1929. Eiginkona hans er Sigrún Óskarsdóttir. Eiginkona Þórarins var Hanna fræðingur 10. maí 1940, á hernáms- degi breska hersins hér á landi. Á unglingsárunum vann Þórarinn við síldarsöltun á Siglufirði og fékk 16 ára gamall hásetapláss á síldarbát hjá frænda sínum Magnúsi Jóns- syni skipstjóra. Síðan komu stríðs- árin og vann hann oft á tíðum myrkranna á milli við að stafla fiski í bresk fisktökuskip sem sigldu með fiskinn frá Ísafirði til Bret- lands. Þórarinn gekk í Iðnskólann á Ísafirði, þaðan sem hann útskrif- aðist og lærði múraraiðn hjá Þórði Jónssyni, múrarameistara á Ísa- firði. Löngu síðar bætti hann við sig námi í Iðnskólanum í Reykjavík og varð múrarameistari. Árið 1946 fékk Þórarinn ásamt nokkrum öðr- um styrk til framhaldsnáms í Stokkhólmi við Stockholms Tekn- iska Institut. Þar lærði hann nokk- uð í byggingatæknifræði og kynnt- ist undirstöðuatriðum í arkitektúr. Þórarinn vann lengi á höf- uðborgarsvæðinu hjá múr- arameisturunum Magnúsi Árna- syni og síðar Magnúsi Baldvinssyni. Hann tók líka að sér arinhleðslur og prýða þau verk hans þónokkur hús. Þá starfaði hann einnig mikið fyrir bræðurna Loft og Þórarin Jónssyni og við fyrirtæki þeirra JL húsið. Meðal annars hlóð hann hús fyrir báða bræðurna, annað hér í Reykjavík og hitt á sunnanverðu Snæfellsnesi, þar sem hann naut dyggrar aðstoðar Hönnu eiginkonu sinnar. Síðustu starfsár sín starfaði Þórarinn sem sundlaugarvörður hjá Sundlaugunum í Laugardal. Útför Þórarins fer fram frá hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Bjarnadóttir, söng- kona, f. á Akureyri 11. september 1928, d. 31. maí 1999. For- eldrar hennar voru báðir Skagfirðingar, Sigríður Ósland Sig- urjónsdóttir, hús- móðir, f. á Óslandi í Óslandshlíð 27. febr- úar 1902, d. 23. apríl 1973, og Bjarni Mar- teinn Jónsson, fanga- vörður, f. á Hrauni í Sléttuhlíð 23. júní 1905, d. 1. janúar 2002. Systkinin voru tvö og er bróðir hennar Frosti, fyrrverandi flugstjóri hjá Flugleiðum, f. 21. jan- úar 1930, kvæntur Kötlu K. Ólafs- dóttur, djákna. Dóttir Þórarins og Hönnu er Sig- ríður, f. 6. maí 1950, gift Ólafi Ósk- ari Jakobssyni, f. í Vestmanna- eyjum 15. ágúst 1952. Þau eiga fimm börn sem eru: 1) Þórarinn Jó- hannes, viðskiptafræðingur og stundar einsöngsnám, f. 1973, 2) Jakob Óskar, rannsóknarlög- reglumaður, f. 1975, kvæntur Hrafnhildi Heimisdóttur, sölufull- trúa, f. 1973, sonur þeirra er Aron Ísak, f. 2004, 3) Sigurður Anton, tölvunarfræðingur og hönnuður, f. 1978, 4) Hanna Lísa, leikskóla- starfsmaður og tónlistarskólanemi, f. 1986, og 5) Pétur Jóhann grunn- skólanemi, f. 1995. Þórarinn stundaði hefðbundið barna- og gagnfræðaskólanám á Ísafirði og útskrifaðist sem gagn- Mikill öðlingur hefur nú kvatt okk- ur að sinni. Ég segi og skrifa „að sinni“, þar sem Þórarinn tengdafaðir minn átti innra með sér von. Bjarg- fasta, óhagganlega eilífðarvon, sem byggist á trúnni á fagnaðarerindið, Drottinn okkar og frelsara Jesú Krist. Æskuheimili Þórarins á Ísafirði einkenndist af glaðværð, umhyggju, kærleika og hlýju samfara reglusemi og aga. Foreldrarnir Jón og Karlinna höfðu orðið fyrir sterkri trúarvitjun í upphafi 20. aldarinnar. Guðs nafn var því ekki lagt við hégóma á heimilinu og blótsyrði fundust ekki í orðasafni fjölskyldunnar. Jafnframt var rík áhersla lögð á frelsishugsjón, jafn- rétti og bræðralag. Hér var um að ræða opið alþýðuheimili, þar sem hvorki var vítt til veggja né hátt til lofts en því meira hjartarými. Full- orðnir sem börn voru ávallt velkomin og sönn lífsgleði, hjálpsemi og hlýja einkenndi heimilislífið. Góð æskuvinkona Þórarins og systra hans Guðrún Gunnarsson frá Ísafirði bjó í heimabyggð minni í Eyj- um, þegar ég kynntist Sigríði. Móðir mín spurði því Guðrúnu hvort hún þekkti eitthvað til Þórarins föður Sig- ríðar. Hún svaraði leiftursnöggt eins og henni einni er lagið: „Ég þekki mjög vel manninn með gullhjartað“. Ekki var spurt frekar. Ég skynjaði, að trúin mótaði mjög líf Þórarins, sem var farsæll og naut í miklum mæli blessunar Guðs. Hann gekk öruggur að verki sínu og hafði ekki áhyggjur af morgundeginum. Hann hafði alveg einstakt lag á að láta gott af sér leiða, fór ekki í manngrein- arálit og fólk naut þess að vera í ná- vist hans. Við vinnu sína heima á lóð söfnuðust oft að honum börn. Eitt sinn var bankað á útihurðina. Við Hönnu blasti barnahópur: „Má góði grjótamaðurinn koma út að leika?“ Já, lífið var honum sem góður og skemmtilegur leikur. Í annan tíma átti óstýrilátur strákahópur í hverfinu það til að venja komur sínar til hans á lóðinni. Aftur var bankað. Úti fyrir voru ærslafullu drengirnir og spurðu: Þórarinn Jónsson ✝ Ástríður Hafliða-dóttir húsmóðir fæddist í Reykjavík 5. ágúst 1926. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Skóg- arbæ laugardaginn 5. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Hafliði Baldvinsson, fisk- kaupmaður í Reykja- vík, f. í Laugabóli við Ísafjarðardjúp 5.5. 1888, d. 10.4. 1949, og Jónea Hólmfríður Fríðsteinsdóttir, f. í Valgerðarbæ við Grundarstíg í Reykjavík 24.8. 1889, d. 18.5. 1967. Systkini Ástríðar voru Hákon, f. 1918, d. 1981, Halldóra, f. 1920, d. 1992, og Helgi, f. 1922, d. 2007. Hálfsystir Ástríðar samfeðra var Baldvina H. Hafliðadóttir, f. 1908, d. 1991. Móð- ir hennar var Ágústína M. Aradótt- ir, f. 1883, d. 1954. Hinn 12. maí 1945 giftist Ástríð- arssyni, starfsmanni Orkustofn- unar. Dætur þeirra eru Ástríður Linda, Elín Hlíf og Halldóra. 2) Hafdís, f. 19. mars 1949, kennari. Börn hennar eru Rakel, Daníel og Róbert. 3) Guðmundur Karl, f. 1. apríl 1953, sóknarprestur. Kona hans er Hjördís Birg- isdóttir, hjúkrunarfræðingur. Börn þeirra eru Ágúst Karl, Birgir Örn og Auður Hanna. 4) Ástrún Björk, f. 26. maí 1959, framkvæmdastjóri útibúaþjónustu Glitnis. Maður hennar er Guðmundur Ásberg Arn- bjarnarson, vörustjóri hjá EJS. Börn þeirra eru Andri Elvar, Ásta Lára, Davíð Árni og Kristjana. Langömmubörnin eru níu. Ástríður ólst upp í Reykjavík. Hún var húsmóðir allt sitt líf. Utan heimilis starfaði hún hjá mötuneyti Loftleiða, í mjólkurbúð Mjólk- ursamsölunnar á Brekkulæk. Einn- ig vann hún í nokkur ár hjá Hag- kaupum í Kjörgarði. Og síðustu árin vann hún á dagdeild lamaðra og fatlaðra í Hátúni. Útför Ástríðar fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. ur Ágústi Karli Guð- mundssyni bruna- verði, f. á Efra-Apavatni í Laugardal 16. janúar 1922, d. 9. mars 2004. Foreldrar hans voru Guðmundur Ás- mundsson bóndi á Efra-Apavatni í Laugardal og org- elleikari í Mosfells- kirkju í Grímsnesi um árabil, f. í Eyvind- artungu í Laugardal 29. mars 1889, d. 26. desember 1967, og kona hans Jón- ína Kristín Þorsteinsdóttir, f. í Stekkholti í Biskupstungum 17. september 1890, d. 20. desember 1963. Ástríður og Ágúst Karl hófu búskap sinn í Reykjavík og bjuggu þar alla tíð, lengst af á Rauðalæk 57, en síðustu árin á Sléttuvegi 13. Þau eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Jóna skrifstofumaður, f. 24. desember 1945, gift Helga Gunn- Elsku besta amma mín, nú er kom- ið að kveðjustund. Mig langar að þakka þér allt sem þú hefur gefið mér en minningarnar eru ótrúlega margar og góðar. Allar stundirnar sem ég átti með ykkur afa á Apavatni í sumarbú- stað ykkar – þar var svo gott að vera og gaman að koma. Þú varst svo lag- inn við saumaskapinn og það voru ófáar flíkurnar sem þú saumaðir á okkur barnabörnin. Það var alltaf gaman að koma að heimsækja ykkur afa og spjalla um daginn og veginn. Þú með kaffiboll- ann þinn, með mikilli nýmjólk og syk- urmola. Þú varst einstök kona, alltaf glöð, jákvæð og stutt í stríðnina og þú gast alltaf séð skoplegu hliðarnar á lífinu. Þegar við systurnar vorum að alast upp fannst mér alltaf skemmtilegast að opna jólapakkana þína, þeim var pakkað inn í hvert lagið á fætur öðru og þú fylgdist alltaf spennt með þegar þeir voru opnaðir til að sjá svipinn á okkur, þú hafðir ekki síður gaman af þessu en við. Á 20 ára afmælisdaginn minn var ég í námi í Þýskalandi og þú og afi senduð mér pakka að heiman. Að sjálfsögðu var honum vandlega pakk- að inn í mörg lög og ég var ótrúlega forvitin og fannst verst að þú værir ekki á staðnum til að fylgjast með því með þínu stríðnisbrosi. Ég tók hvert lagið utan af öðru og í ljós kom að þú hafðir bakað uppáhaldskökuna mína, „Góðu kökuna“, og sent hana með pósti alla leið til Þýskalands. En svona voru uppátækin þín, svo ótrúleg. Ég man þær stundir þegar ég kynnti þig fyrir mikilvægum mann- eskjum í mínu lífi, fyrst Henrik og síð- an dóttur okkur Hildi Mei og hversu glöð þú varst að við Henrik værum loksins búin að eignast lítinn sólar- geisla. Þú tókst þeim báðum strax opnum örmum. Þið Henrik urðuð Ástríður Hafliðadóttir ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN GUÐLEIFUR PÁLSSON frá Krossum í Staðarsveit, til heimilis í Hagalandi 4, Mosfellsbæ, andaðist sunnudaginn 13. apríl á Hrafnistu. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 21. apríl kl. 13.00. María Bjarnadóttir, Heiðar Jónsson, Sigríður Hrefna Jónsdóttir, Magnús V. Friðbergsson, Ásmundur Jón Jónsson, Kolbrún Guðmundsdóttir, Bjarndís Jónsdóttir, Halldór Hildar Ingvason, Páll Jónsson, Stefanía Helga Jónsdóttir, Guðni Á. Haraldsson, Bjarni Jón Jónsson, Ágústa Óladóttir, María Jónsdóttir, Gunnar Helgi Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar og sonur, BJÖRN KRISTJÁNSSON kjötiðnaðarmaður, Skúlabraut 45, Blönduósi, andaðist sunnudaginn 13. apríl. Jarðarför verður auglýst síðar. Ásgeir Már Björnsson, Eyþór Björnsson, Erla Hafliðadóttir. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SVERRIR ARNGRÍMSSON kennari, Kópavogsbraut 51, lést á heimili sínu miðvikudaginn 9. apríl. Útförin fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 17. apríl kl. 13.00. Áslaug Jóelsdóttir, Guðný Sverrisdóttir, Margrét Sverrisdóttir, Guðmundur H. Friðgeirsson, Guðrún Vigdís Sverrisdóttir, Trausti Aðalsteinn Egilsson, Jóel Sverrisson, Guðfinna Guðnadóttir, Sveinn Áki Sverrisson, Ragnhildur Pála Tómasdóttir, Arngrímur Sverrisson, Steinþóra Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HALLDÓR ANTONSSON, Tumabrekku, sem lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks aðfaranótt föstudags 11. apríl, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 19. apríl kl. 11.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigrún Hartmannsdóttir. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, HULDA GUÐJÓNSDÓTTIR frá Bæ í Lóni, lést að Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn 13. apríl. Útför fer fram þriðjudaginn 22. apríl kl. 13.00 frá Bústaðakirkju. Erla Sigfúsdóttir, Geir Sigurðsson, Kristín Sæmundsdóttir, Þórður Þórðarson, Þórarinn Sæmundsson, Brynja Benediktsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.