Morgunblaðið - 16.04.2008, Side 28

Morgunblaðið - 16.04.2008, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Marta Sveins-dóttir fæddist á Steindyrum á Látra- strönd 11. nóv- ember 1915. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Skógarbæ 3. apríl síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Sveinn Jóakimsson útvegsbóndi og tré- smiður, f. á Kus- sungsstöðum í S- Þing. 1874, d. 1961 og Þórunn Krist- insdóttir húsmóðir, f. í Hléskógum í Höfðahverfi í S-Þing. 1878, d. 1967. Systkini Mörtu eru Anna, f. 1901, d. 1976, Guðný, f. 1904, d. 1932, Trausti, f. 1910, lést sem kornabarn, Elín, f. 1915, d. 2004, og Jónína, f. 1917, d. 1974. Eiginmaður Mörtu var Guð- mundur Jörundsson útgerðar- maður, f. 1912, d. 1990. Foreldrar hans voru Jörundur Jörundsson útgerðarmaður í Hrísey, f. 1885, d. 1961, og María Friðrika Sigurðar- dóttir, f. 1880-1940 frá Skarðdal í Siglufirði. Börn Mörtu og Guð- mundar: 1) Sigurður Þorsteinn út- gerðarmaður, f. 1940, d. 1999. Fyrri kona hans var Inga R. Holdö, f. 1942. Börn þeirra eru: a) Marta Rut nuddari, f. 1963. Fyrri maki Viðar Pétursson bóndi, f. 1961. Synir þeirra eru Pétur, f. 1982, og Sigurður Már, f. 1986. Eiginmaður Stefán Heiðar Vilbergsson stýri- maður, f. 1969. Synir þeirra eru Andri Dagur, f. 1994, Vilbergur Davíð, f. 1997 og Hlynur Logi, f. heiður Marta nemi, f. 1993. 5) Jör- undur forstöðumaður, f. 1957. Fv. maki Jakobína Þórðardóttir þroskaþjálfi, f. 1958. Börn þeirra eru a) Auður háskólanemi, f. 1980, gift Benedikt Hermanni Her- mannssyni tónlistarmanni, f. 1980, sonur þeirra er Guðmundur Ari, f. 2007, b) Guðmundur nemi, f. 1987, og c) Þórður nemi, f. 1990. Marta ólst upp fyrstu ár ævi sinnar á Látraströnd, þar sem fað- ir hennar stundaði búskap og sjó- sókn við harðar aðstæður. Marta fluttist til Hríseyjar með for- eldrum sínum og systrum á ung- lingsárum eftir að foreldrar henn- ar brugðu búi. Hún átti ekki kost á skólanámi umfram það sem skylt var á þeim árum, en lét ekki þar við sitja því hugur hennar stóð til náms í Húsmæðraskólanum á Ísa- firði. Hún aflaði sér sjálf þess sem til þurfti til námsins, sem hún lauk 1934. Marta giftist Guðmundi Jör- undssyni 1938 og sama ár fluttust þau til Akureyrar og bjuggu þar til ársins 1959 er þau fluttu til Reykjavíkur. Marta stóð alla tíð fyrir umfangsmiklu heimilishaldi, enda sá hún farboða stórum barnahópi og foreldrum þeirra hjóna lengi vel. Hún var manni sín- um alla tíð mikil stoð í hans um- fangsmikla atvinnurekstri og stoltur þátttakandi í því starfi. Hún unni mikið félagslífi og var þátttakandi í nokkrum félaga- samtökum. Ferðalög voru henni mikið gleðiefni, sem og spila- mennska og hún var höfðingi heim að sækja og bjó fjölskyldu sinni glæsilegt heimili. Útför Mörtu fer fram frá Há- teigskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. 1998. b) Dagný María verslunarkona, f. 1965, gift Jóni Stef- áni Þórðarsyni raf- virkjameistara, f. 1963. Börn þeirra eru Sigurður Bergur, f. 1985, Elín Inga, f. 1986, dóttir hennar Dagný Mist Guð- björnsdóttir, f. 2007, og Marinó, f. 1989. c) Guðmundur við- skiptafræðingur, f. 1972, kvæntur Helgu Sigríðu Eiríksdóttur leikskólakennara, f. 1972. Börn þeirra eru Júlíus Ingi, f. 1997, Jas- on Máni, f. 2002, og Díana Ásta, f. 2006. Seinni kona Sigurðar var Ingibjörg Aradóttir, f. 1935, inn- kaupastjóri. 2) Ævar fram- kvæmdastjóri, f. 1945, kvæntur Sigrúnu Fríðu Óladóttur skrif- stofukonu, f. 1950. Börn þeirra eru Þórunn háskólanemi, f. 1982, og Óli Vernharður háskólanemi, f. 1987. 3) Sveinn fisktæknir, f. 1951, kvæntur Sigurveigu Sigmunds- dóttur snyrtifræðingi, f. 1952. Börn þeirra eru: a) Sindri við- skiptafræðingur, f. 1978, sambýlis- kona Kristín Vala Matthíasdóttir verkfræðingur, f. 1981. Sonur þeirra er Viktor Már, f. 2005. b) Örvar háskólanemi, f. 1984, unn- usta Daggrós Stefánsdóttir há- skólanemi, f. 1981. 4) María upp- lýsinga- og fræðslufulltrúi, f. 1954, gift Kjartani Jóhannessyni kerf- isfræðingi, f. 1955. Börn þeirra eru Jóhannes hönnuður, f. 1983, Guðmundur nemi, f. 1986, og Álf- Yndislegur eiginleiki er að kunna að hlakka til, njóta stundarinnar og lifa lengi á minningunum. Það var þér, tengdamóðir mín, eðlislægt og hvatning til okkar sem eftir erum, ekki síst að staldra við í núinu. Oft á síðkvöldi þínu hallaðir þú þér aftur í hægindastól og sagðir: „Ó, það var svo gaman,“ er hugsað var til baka. Oft var minnst á Úthlíð 12 en sá tími var þér afar kær en þar bjó fjöl- skyldan lengst af. Marta hafði mjög gaman að spila brids og kallaði það leikfimi hugans, en aðra leikfimi gaf hún lítið fyrir. Marta var frábær gestgjafi, fagurkeri og umfram allt húmoristi sem naut lífsins. Við áttum stóra, sameiginlega stund árlega öðrum fremri, gamlárs- kvöld. Fyrst í meira en áratug í Út- hlíðinni og síðar á heimili okkar Sveins sonar þíns í tvo áratugi. Með þér var ævinlega yndislegt að gleðj- ast. Áföllum í lífinu tókst þú með skiln- ingi og æðruleysi enda af þeirri kyn- slóð sem bar tilfinningar ekki á torg. Elsku tengdamamma, þér varð að ósk þinni að deyja inn í vorið. Það var gott að eiga þig sem vinkonu og tengdamóður í 35 ár, hafðu þökk fyrir allt. Minning þín er ljós í lífi okkar. Sigurveig. Aldrei hefði mig grunað, þegar ég svona tíu ára í krakkahópi fyrir utan Úthlíð 12 – þar var staur sem hentaði afar vel fyrir „Fallin spýta“ – að fína konan með manninum á flotta bíln- um, sem var stundum að sussa á okk- ur, yrði seinna tengdamóðir mín. María konan mín var svo miklu, miklu eldri en ég þá – þá var hálft ár heil eilífð. Seinna þegar María kynnti mig tengdaforeldrunum var mér strax tekið opnum örmum, hún var ekkert að erfa við mig lætin úr æsku, og Guðmundur Jörundsson ekkert nema góðvildin, hafði enda dreymt fyrir komu minni, dreymt jarpan hest Maríu sinnar. Þegar risíbúðin í Út- hlíð 12 kom svo í sölu, þá varð úr að við keyptum hana sem okkar fyrstu íbúð. Sumir hefðu kannski þurft að hugsa sig um tvisvar áður en þeir færu í slíkt sambýli með tengdamóð- ur sinni, ekki ég. Ekki sé ég eftir því, þarna bjuggum við í átta góð ár. Við fengum heimsins bestu barnapössun fyrir strákana okkar tvo sem voru heimagangar á hæðinni hjá þeim og búa að því góða og gefandi samneyti alla ævi. Er heilsa Guðmundar bilaði þá var gott að það var stutt til Maju á loftinu. Við fluttum nokkru eftir and- lát Guðmundar en tengslin héldu. Börnin rifja upp góðar minningar úr Úthlíðinni þegar byggðir voru kast- alar úr púðum, teppum og stólum, gjarna tengdar góðum mat því Marta var listakokkur. Þær voru ófáar veisl- urnar, stórar og smáar, sem haldnar voru í Úthlíðinni. Líklega enn meira „grand“ hér áður fyrr, á velmektar- dögum Guðmundar sem útgerðar- manns. Marta í essinu sínu í hlutverki sem hún var stolt af, hélt fallegt heimili fyrir glæsilegan mann og mannvænleg börn, foreldra sína og foreldra hans á tímabilum. Árið 1945 veiktist Marta alvarlega og lá sex mánuði á spítala í Reykjavík meðan Þórunn mamma hennar sá um nýfætt ungabarnið Ævar á Akureyri. Óvíst er að menn hefðu trúað því þá, að hún ætti eftir að verða 92 ára gömul. Reyndar urðu nú spítalaferðirnar fleiri áður en yfir lauk. Þær eru ófáar stundirnar sem þær mæðgur María og Marta Sveins máttu eyða á bráða- móttökum, er sú eldri hafði farið úr mjaðmalið eða brotið bein. Er Marta minnkaði við sig, flutti úr Úthlíðinni í Bólstaðarhlíð 45, réð smekkvísin áfram ríkjum. Þegar svo heilsan fór að bila fyrir alvöru leið henni vel í ör- ygginu í Skógarbæ, þar sem gott og velviljað starfsfólk sá til þess að ævi- kvöldið yrði léttbært. Þær eru miklar umbreytingarnar sem Marta lifði. Hún fæddist í litlum bæ á afskekktri klettaströnd, sem löngu er kominn í eyði. Þeysti sem barn berbakt á klettabrúnum og horfði á eftir hundinum sínum fyrir björg og brotna í þúsund mola, eins og hún orðaði það. Flutti með foreldr- unum til Hríseyjar, tók seinna þátt í uppbyggingu öflugs útgerðarfyrir- tækis með manni sínum á Akureyri og í Reykjavík. Á meðan breyttist Ís- land í nútímaþjóðfélag, úr árbátum í skuttogara, úr mó í hitaveitu. Að leiðarlokum eru þakkir efst í huga; þakkir almættinu fyrir að hafa tengt mig jafn góðri og glæsilegri konu og hér er gengin, og þakkir til hennar og fólksins hennar fyrir allt það góða sem hún gaf mér og öðrum í kringum sig. Kjartan Jóhannesson. Meira: mbl.is/minningar Amma í Úthlíð var einstök kona. Hún bjó reyndar ekki alla tíð í Úthlíð- inni, en þar bjó hún á æskuárum okk- ar og eigum við þaðan margar góðar minningar um sílíkonsteik og fleira. Úr Úthlíðinni flutti amma í Bólstað- arhlíðina. Þar tók amma vel á móti manni, hellti upp á kaffi á gamla mát- ann og ef maður var heppinn bauð hún inn í sjónvarpshol þegar Leið- arljós var í sjónvarpinu. Þótt við bræðurnir hefðum ekki fylgst með þeim þáttum þá gerði það lítið til því amma útskýrði allt jafnóðum. Amma var alltaf glæsileg, flott í tauinu og lagningin óaðfinnanleg. Hún var glaðlynd, hress og skemmtileg og naut sín vel meðal vina og vandamanna. Amma var allt- af jákvæð og kvartaði sjaldan. Hún hafði staðið af sér ýmis áföll á síðari árum ævi sinnar og það með bros á vör. Við minnumst slysafrétta af ömmu fyrir nokkrum árum, en þá hafði hún dottið og útlit var fyrir að hún ætti aldrei eftir að ganga aftur. Viku seinna var hún farin að ganga aftur, komin með gervilið og hafði aldrei verið betri. Hjá okkur bræðrunum voru engin áramót án ömmu, ekki það að amma væri svo spennt fyrir sprengjum og látum, eins og við bræðurnir lengst af, heldur fylgdi hátíðleikinn henni einhvern veginn í hús í lok hvers árs. Í hugum okkar heldur hún áfram að vera hjá okkur og minnumst við hennar sérstaklega um hver áramót hér eftir. Við kveðjum þig nú í bili elsku amma, sjáumst síðar á nýjum stað. Sindri og Örvar. Elsku amma Marta. Ég fór fyrir þig á bláa hjólinu út í Sunnukjör og keypti tvo potta af mjólk. Stundum fékk ég að hringja í þig í Úthlíð 12 ef ég skildi ekki skriftina þína. Og fékk svo bland í poka fyrir afganginn. Frá þér fór ég aldrei svangur því Marta Sveins var undantekningarlaust með eitthvað ljúffengt á boðstólum. Við fórum saman í neglingu í Bólstaðar- hlíðina þangað sem þú fluttir seinna. Þar var fátt ljúfara en að fá sér blund í sófanum eftir skóla með Yves Mont- and í eyrunum og góðgæti í magan- um. Margar mínar bestu minningar tengjast þér elsku Amma. Með þér var lífið dans á rósum. Þú hélst frá- bærar veislur og sjálf varst þú veisla. Veisla fyrir alla sem þekktu þig. Ég er stoltari en allt að vera kominn af jafn yndislegri manneskju og þér. Núna ertu aftur með stráknum sem þú kysstir forðum í eyjunni okkar Hrísey. Guð veri með þér. Jóhannes Kjartansson. Marta Sveinsdóttir ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BRYNDÍS GRÓA JÓNSDÓTTIR, Melteig 22, Keflavík, verður jarðsett frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, þriðjudaginn 22. apríl kl. 13.00. Emil Ágústsson, Ingileif Emilsdóttir, Snorri Eyjólfsson, Anna María Emilsdóttir, Árni Hannesson, Ægir Emilsson, Sóley Ragnarsdóttir, Sigríður Þórunn Emilsdóttir, Valdimar Ágúst Emilsson, Ágústa Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR MAGNI MAGNÚSSON framkvæmdastjóri, til heimilis á Stekkjarflöt 21, Garðabæ, andaðist þriðjudaginn 8. apríl á líknardeild Landspítalans á Landakoti. Útför hans fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ miðvikudaginn 16. apríl kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Rannsóknasjóð Ingibjargar R. Magnúsdóttur í hjúkrunarfræði í Háskóla Íslands. Minningakort fást hjá Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði í Háskóla Íslands. Sími 525 5280. Netfang: hildurfr@hi.is Gunnar Magnús Ragnarsson, Fran Ragnarsson, Ingjaldur Henrý Ragnarsson, Hafdís Odda Ingólfsdóttir, Egill Þór Ragnarsson, Ása Björk Sigurðardóttir, Eiríkur Snorri Ragnarsson, Leifur Ragnar Ragnarsson og fjölskyldur. ✝ Við, fjölskylda INGIBJARGAR ÞORSTEINSDÓTTUR, þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát hennar. Ennfremur þökkum við öllum er sýndu henni vináttu og virðingu við útför hennar. Guð blessi ykkur. Hjartans þakkir til starfsfólks Grundar. Þorsteinn Johansson, Kolfinna Ketilsdóttir, Katla, Þorsteinn, Ingibjörg og fjölskyldur. ✝ Okkar ástkæri, PÁLL LÝÐSSON bóndi og sagnfræðingur, Litlu-Sandvík, sem lést 8. apríl, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 19. apríl kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Slysavarnafélagið Landsbjörgu. Elínborg Guðmundsdóttir, Sigríður Pálsdóttir, Aldís Pálsdóttir, Sigurður Arvid Nielsen, Lýður Pálsson, Guðríður Bjarney Kristinsdóttir, Guðmundur Pálsson og barnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SIGURÐUR S.R. MARKÚSSON vöruflutningabílstjóri, Ægisvöllum 10, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 18. apríl kl. 14.00. Elín Óla Einarsdóttir, Kristín R. Sigurðardóttir, Þórunn Sigurðardóttir, Grétar Ólason, Katrín Sigurðardóttir, Klemenz Sæmundsson, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.