Morgunblaðið - 16.04.2008, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 33
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
40+ félagsstarf fyrir fólk með
þroskahömlun | Félagsmiðstöðin er
opin kl. 17-22, spilakvöld / DVD-kvöld.
Matur: fiskréttur, verð kr. 700.
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl 8.30-9.15,
vinnustofa kl. 9-16.30, postulínsmáln-
ing kl. 9-12 og 13-16.30, síðasti skrán-
ingardagur fyrir leikhúsferð er 18.
apríl í Þjóðleikhúsið á Engisprettur.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handa-
vinna, smíði/útskurður kl. 9-16.30,
heilsugæsla kl. 10-11.30. Uppl. í síma
535-2700.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð-
un, glerlist, almenn handavinna,
morgunkaffi/dagblöð, fótaaðgerð,
hádegisverður, spiladagur, kaffi.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í hand-
mennt opin kl. 9-16, leiðb./Halldóra
frá kl. 13-16, leikfimi kl. 10, leiðb./
Guðný. Hársnyrting Guðrúnar sími:
553-3884/893-3384.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan Gullsmára 9 er opin kl. 10-
11.30. Sími 554-1226. Skrifstofan í
Gjábakka er opin kl. 15-16. Sími 554-
3438. Félagsvist er í Gjábakka kl. 13.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði,
Stangarhyl 4, kl. 10, söngvaka kl. 14,
umsjón Sigurður Jónsson og Helgi
Seljan. Söngfélag FEB æfing kl. 17.
Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl.
9.30, glerlistarhópar að störfum kl.
9.30 og 13, handavinnustofan opin,
leiðbeinandi við til kl. 17, félagsvist kl.
13, viðtalstími FEBK kl. 15-16, bobb kl.
16.30 og dans kl. 18-20 undir stjórn
Sigvalda.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Mynd-
list kl. 9, gnaga kl. 10, hádegisverður,
kvennabrids kl. 13. Kaffiveitingar.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 8, kvennaleikfimi kl.
9, 9.45 og 10.30, brids og bútasaum-
ur kl. 13.
stofnunar, segir frá athugunum sín-
um á gömlum bænabókum og fræðir
um þær. Kaffiveitingar á Torginu.
Vídalínskirkja Garðasókn | For-
eldramorgunn kl. 10-12.30, sr. Jóna
Hrönn verður með fræðslufyrirlestur,
pabbar og mömmur, afar og ömmur
velkomin, heitt á könnunni.
fyrir 10-12 ára kl. 17-18 í Rimaskóla og
Korpuskóla.
Grensáskirkja | Samverustund aldr-
aðra kl. 12, matur og spjall. Helgi-
stund kl. 14.
Hallgrímskirkja | Árdegismessa kl. 8.
Hugvekja, altarisganga, einfaldur
morgunverður í safnaðarsal eftir
messuna.
Háteigskirkja | Kvöldbænir og fyr-
irbænir kl. 18. Prestar og kirkjuverðir
taka við bænarefnum.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Súpa
og brauð kl. 18. Hægt er að kaupa
mat fyrir alla fjölskylduna á lágu
verði. Royal Rangers kl. 19, kristilegt
skátastarf, fyrir börnin og biblíu-
kennsla fyrir fullorðna.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og
venjulega. Línudans alla föstudaga kl.
15. Hláturhópur hittist kl. 13. Opið kl.
9-16. Uppl. 568-3132.
KFUM og KFUK á Íslandi | Vorferð
KFUM og KFUK í Ölveri fimmtudag-
inn 18. apríl. Farið frá Holtavegi 28 kl.
18. Kvöldverður snæddur í Ölveri og
starfið þar kynnt. Skráning í síma
588-8899 til hádegis 16. apríl.
Kristniboðssalurinn | Samkoma kl.
20. Kristín Bjarnadóttir segir fréttir
af kristniboði við strönd Keníu og
ræðumaður er Ragnar Schram. Yf-
irskrift ræðunnar er Drottinn vakir
yfir orði sínu. Kaffi eftir samkomu.
Langholtskirkja | Hádegisbænagjörð
með orgelleik og sálmasöng kl. 12.10.
Létt máltíð kl 12.30. Starf eldri borg-
ara kl. 13-16, sungið, spilað, föndrað,
og kaffisopi.
Laugarneskirkja | Foreldramorgunn
kl. 10, gönguhópurinn Sólarmegin kl.
10.30. Kirkjuprakkarar (1.-4. bekkur)
kl. 14.15. Umsjón hefur sóknarprestur
og kirkjuvörður safnaðarins.
Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15.
Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Opið
hús kl. 15, Svavar Sigmundsson cand.
mag., stofustjóri örnefnastofu Árna-
11.45, hádegisverður, verslunarferð í
Bónus kl. 13-16, tréskurður kl. 14.30,
kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30, morgunstund kl. 10, handa-
vinnustofan opin allan daginn, hár-
greiðslu- og fótaaðgerðarstofan opin
allan daginn, upplestur kl. 12.30, bók-
band kl. 13, dans kl. 14. Uppl. í síma
411-9450.
Þórðarsveigur 3 | Handavinna kl. 9,
salurinn opinn og ganga kl. 13, boccia
kl. 14, kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Áskirkja | Hreyfing og bæn í neðri
safnaðarsal kl. 11.
Bessastaðasókn | Foreldramorgunn í
Holtakoti kl. 10-12, hjúkrunarfræðing-
arnir Heiða Davíðsdóttir og Ásdís
Árnadóttir ræða um „andlega vanlíð-
an eftir barnsburð“. Opið hús eldri
borgara í Litlakoti kl. 13-16, spilað og
spjallað. Bæna/kyrrðarstund verður í
Leikskólanum Holtakoti kl. 20-21.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl.
12. Tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Létt-
ur málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina. Kirkjuprakkarar 7-9 ára kl.
16. TTT 10-12 ára kl. 17. Æskulýðs-
félag KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Bústaðakirkja | Starf eldri borgara
er í kirkjunni á miðvikudögum kl. 13-
16. Spilað, föndrað, handavinna og
óvænt uppákoma. Hafið samband við
kirkjuvörð í síma 553-8500 ef bíla-
þjónustu er óskað.
Dómkirkjan | Bænastund kl. 12.10-
12.30. Léttur hádegisverður á kirkju-
loftinu á eftir. Bænarefnum má koma
á framfæri í síma 520-9700 eða með
tölvupósti til domkirkjan@domkirkj-
an.is.
Fríkirkjan Kefas | Unglingasamkoma
kl. 20. Prédikun, tónlist og spjall.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund kl.
12. Altarisganga og fyrirbænir, há-
degisverður að lokinni stundinni, TTT
Hraunbær 105 | Handavinna og út-
skurður kl. 9, hádegismatur, brids kl.
13, kaffi.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, pútt á
Keilisvelli kl. 10-11.30, línudans kl. 11,
almenn handmennt kl. 13, pílukast kl.
13.30, Gaflarakórinn kl. 16.15.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa
kl. 9-16 hjá Sigrúnu, keramik, tau-
málun o.fl. Jóga kl. 9-12, Sóley Erla.
Samverustund kl. 10.30, byrjað að
lesa nýja bók. Böðun fyrir hádegi, há-
degisverður. Hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Listasmiðjan; út-
skurður, bútasaumur, glerlist, postu-
lín, frjáls verkefni. Ókeypis tölvu-
kennsla á miðvikud. og fimmtud.
Línudans, Bör Börsson, söngur, þegar
amma var ung og afi líka, brids, skap-
andi skrif, félagsvist, hláturklúbbur,
framsögn. Leikfimitilboð á þriðjud. kl.
9.15. Uppl. 568-3132.
Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sporthús-
inu í Dalsmára kl. 9.30-11.30, ringó í
Smáranum kl. 12, línudans í Húnabúð,
Skeifunni 11, kl. 17. Uppl. í síma 564-
1490.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er
keila í Keiluhöllinni við Öskjuhlíð kl. 10
og Listasmiðjan er opin kl. 13-16 á
Korpúlfsstöðum
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfræðingur frá heilsugæslunni
kemur kl. 10.30, leikfimi kl. 11, hand-
verksstofa opin og námskeið í mynd-
list kl. 13, kaffiveitingar kl. 14.30,
bingó kl. 15. Hárgreiðslustofa á
staðnum, sími 552-2488.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin kl.
9-16, félagsvist kl. 14, hárgreiðslu-
stofa Erlu Sandholt sími: 588-1288.
Norðurbrún 1 | Félagsvist kl. 14.
Sjálfsbjörg | Félagsvist kl. 19 í fé-
lagheimili Sjálfsbjargar á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fóta-
aðgerðir kl. 9-12. Aðstoð v/böðun kl.
9.15-16, handavinna kl. 10-12, sund kl.
100ára afmæli. Á morgun,17. apríl, verður Indriði
Indriðason ættfræðingur 100 ára.
Hann býr á Dvalarheimilinu
Hvammi og tekur á móti ættingjum
og vinum á afmælisdaginn milli kl.
14.30 og 17 á Hvammi. Indriði er
mjög ern og hress líkamlega miðað
við aldur.
60ára afmæli. Í dag, 16. apríl,er Sesselja R. Hennings-
dóttir sextug.
50ára afmæli. Föstudaginn18. apríl næstkomandi
verður Hálfdán S. Helgason (Halli
á Háhóli) fimmtugur. Af því tilefni
tekur hann og fjölskylda hans á
móti ættingjum og vinum með
veislu það kvöld í félagsheimilinu
Lyngbrekku (u.þ.b. 15 km fyrir
vestan Borgarnes). Veislan hefst
kl. 20.
Silfurbrúðkaup | Í dag, 16. apríl, eiga hjónin Kristján Ó Skagfjörð Há-
konarson og María Jórunn Þráinsdóttir, Eiríksgötu 13 í Reykjavík, 25
ára brúðkaupsafmæli.
dagbók
Í dag er miðvikudagur 16. apríl, 107. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Hann stendur mér við hlið til þess að veita mér lið og vernd. (Daníel 11, 1.)
Rannsóknastofa í kvenna- ogkynjafræðum býður til fyr-irlestrar á morgun, fimmtu-dag, kl. 12 í sal 4 í Há-
skólabíói.
Edda Jónsdóttir, sérfræðingur í
mannréttindafræðum, flytur þar erind-
ið Íslenskar konur og alþjóðastofnanir.
„Í fyrirlestrinum skoða ég þátttöku
kvenna í mannréttindatengdu alþjóða-
starfi, á vettvangi SÞ, Evrópuráðsins,
og Öryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu,“ segir Edda Jónsdóttir, sem
einkum beinir sjónum að þróuninni á
tímabilinu 1995-2006.
Í orði eða á borði
Edda bendir á að um langt skeið hafi
í orði kveðnu verið lögð áhersla á mál-
efni kvenna á alþjóðavettvangi, en það
sé fyrst á allra síðustu árum sem verk-
in hafi verið látin tala:
„Framboð Íslands til Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna hefur þar áhrif,
en staða jafnréttismála og verkefni á
þeim vettvangi hafa verið meðal
áherslumála í framboðinu,“ segir
Edda. „Þar er unnið á grundvelli álykt-
unar öryggisráðs SÞ nr. 1.325 sem
kveður á um aukna þátttöku kvenna í
alþjóðastarfi, þ.á m. öryggis- og frið-
armálum.“
Edda segir þátttöku kvenna í al-
þjóðastarfi skipta miklu máli, og eðli-
legt að konur eigi sína málsvara í því
starfi sem unnið er: „Reynslan sýnir að
ef konur koma að stjórnun á svæðum í
kjölfar átaka standa þær sig betur í að
tryggja öryggi kvenna á svæðinu og
gæta hagsmuna þeirra,“ segir hún.
„Því er ánægjulegt að sjá þá þróun
sem orðið hefur á síðustu árum, þar
sem hlutfall kvenna í hópi íslenskra
friðargæsluliða er nú orðið um 45%.
Annars staðar er þátttaka kvenna
minni, og hefur t.d. engin kona verið
fastafulltrúi fyrir hönd Íslands hjá
þeim þremur stofnunum sem ég skoða
sérstaklega í erindinu.“
Fyrirlesturinn á fimmtudag er öllum
opinn og aðgangur ókeypis. Heimasíða
Rannsóknastofu í kvenna- og kynja-
fræðum er á slóðinni rikk.hi.is og má
þar finna upplýsingar um næstu við-
burði á vegum rannsóknastofunnar.
Jafnrétti | Fyrirlestur á vegum RIKK á fimmtudag í sal 4 í Háskólabíói
Konur og alþjóðastofnanir
Edda Jónsdóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjum 1975.
Hún lauk stúdents-
prófi frá Kvenna-
skólanum í Reykja-
vík 1995, BA í
ítölsku og fjöl-
miðlafræði frá Há-
skóla Íslands 2002
og meistaraprófi í mannréttinda-
fræðum frá Bologna-háskóla 2007.
Edda starfaði með landsnefnd UNI-
FEM á Íslandi um nokkurra ára skeið,
m.a. sem formaður, en hefur frá 2007
verið sérfræðingur í utanríkisráðu-
neytinu. Eiginmaður Eddu er Karl R.
Lilliendahl kvikmyndatökumaður og
eiga þau soninn Lúkas.
Uppákomur
Bókasafn Kópavogs | Sergei Gushin, rúss-
nesk mynd um geimferðir. Veitingar, ókeyp-
is aðgangur. Laug. 19. apríl er rússnesk
sögustund fyrir börn kl. 14. Sun. 20. apríl
er rússnesk bíómynd kl. 14.
Fyrirlestrar og fundir
Árnagarður 311 | „Frá Leiðarljósi til L’el-
isir“ nefnist hádegisspjall Bandalags þýð-
enda, túlka og Þýðingaseturs Háskóla Ís-
lands sem er kl. 12.15. Erindi halda: Ellert
Sigurbjörnsson; Sérstaða sjónvarpsþýð-
andans, Nanna Gunnarsdóttir; Snertifletir
þýðingafræði og sjónvarpsþýðinga og
Anna Hinriksdóttir; Frá Leiðarljósi til L’el-
isir. Fjölbreytt flóra sjónvarpsþýðinga.
Háskólatorg 103 | Kynning á klassískri
kristinni bæna- og íhugunarhefð fyrir nú-
tímafólk. William Meninger trapistamunkur
heldur kynningarfyrirlestur 17. apríl kl. 12
en hann hefur þróað hugleiðslu- og íhug-
unaraðferð, Centering Prayer. Hún byggist
á bæn og íhugun í þögn. Sjá kyrrðardag 19.
apríl www.neskirkja.is.
MÍR-salurinn | Síberíuspjall á morgun kl.
20. Steingrímur Ólafsson iðnrekstrarfræð-
ingur, sem rekið hefur fyrirtæki í endur-
vinnsluiðnaði í Síberíu um árabil, verður
gestur MÍR og spjallar um Kúzbaz-hérað,
náttúru, þjóðlíf og samskiptin við hér-
aðsbúa og rússnesk yfirvöld. Aðgangur öll-
um heimill.
Fréttir og tilkynningar
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar-
og fataúthlutun kl. 14-17 í Hátúni 12b. Tekið
við hreinum fatnaði og öðrum varningi á
þriðjudögum kl. 10-15. Sími 551-4349, net-
fang maedur@simnet.is.
PARÍSARHJÓLIÐ The Singapore Flyer sést hér gnæfa yfir fjármálahverfi Singapore í gær, en það var þá opnað almenn-
ingi í fyrsta sinn. Um er að ræða stærsta parísarhjól í heimi, en það er 165 metra hátt. Til samanburðar er The London Eye í
Lundúnum 135 metra hátt.
Reuters
Flott útsýni