Morgunblaðið - 16.04.2008, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 39
TÓNLEIKAMYNDIN Shine a
Light (Lát ljós þitt skína) hefst með
nokkurs konar inngangi, eða forspili,
þar sem leikstjórinn Martin Scorsese
og meðlimir rokkhljómsveitarinnar
The Rolling Stones, sem er viðfangs-
efni myndarinnar, spekúlera í und-
irbúningi tónleikaupptökunnar.
Tónninn í þessum aðdraganda rokk-
tónleikanna sem á eftir fylgja er létt-
ur og stundum kómískur. Þar má
segja að Scorsese leitist við að brjóta
ísinn og draga örlítið niður af stall-
inum þá risa sem þar mætast, þ.e.
sjálfan sig sem einn virtasta kvik-
myndaleikstjóra Bandaríkjanna og
Rollingana sem eina frægustu rokk-
sveit 20. aldarinnar.
Scorsese birtist hér sem tauga-
veiklaður og trekktur, ögn uppnum-
inn af því að eiga samskipti við Mick
Jagger. Bæði Scorsese og hljóm-
sveitarmeðlimir verða hins vegar að
hálfgerðum smástrákum frammi fyr-
ir Bill Clinton, heiðursgesti tón-
leikanna, sem er öryggið og valds-
mannsbragurinn uppmálaður.
Tónleikarnir sem um ræðir voru
haldnir sem styrktartónleikar fyrir
Clinton-stofnunina í Beacon-
leikhúsinu í New York haustið 2006.
Þar eru Rollingarnir í toppformi,
lagalistinn er blanda af rokksmellum
og blúslögum sveitarinnar, og gesta-
söngvararnir Jack White, Christina
Aguilera og Buddy Guy eiga innslag.
Mick Jagger (sem er 63 ára þegar
tónleikarnir eru haldnir) stekkur um
sviðið eins og unglingur, geislandi
sínum sérstaka kynþokka og sviðs-
þokka. Hrukkur og (misdjúpar)
skorur á andlitum rokkaranna minna
á tímans tönn, en að öðru leyti er
kvikmyndin í heild sinni eins konar
ögrun við lögmál tímans og viðteknar
hugmyndir um það að aldurinn dragi
lífsorkuna og sköpunarkraftinn úr
fólki, nokkuð sem er leikstjóranum
e.t.v. hugleikið, en hann er á sama
aldri og þeir Jagger og Richards. Ég
held að óhætt sé að fullyrða að eng-
inn kæmist upp með þá sviðstakta
sem Mick Jagger hefur tamið sér án
þess að líta út eins og vanviti, en þeir
virka þveröfugt hjá Jagger og því er
það alltaf upplifun að sjá söngvarann
á sviði, og reyndar hljómsveitina alla,
þar sem rokkararnir og tónlistin
renna saman og verða eitt.
Það er þessi stemning sem Scor-
sese leggur sig í líma við að fanga í
kvikmyndinni, en innskotum um bak-
grunn hljómsveitarinnar er haldið í
lágmarki. Einstaka safnupptökum úr
viðtölum, aðallega við Jagger og
Richards, er skotið inn, og er leið-
arstefið þar spurningin um hversu
lengi þeir telji sig geta haldið þessu
áfram, auk þess sem atriðin veita
innsýn í hina ólíku persónuleika
tvíeykisins. En fyrst og fremst er
Shine a Light tónleikamynd, og eng-
in venjuleg tónleikamynd. Scorsese
hefur safnað saman hópi snillinga til
að sjá um kvikmyndatöku, en stjórn-
ina annast Robert Richardson, einn
nánasti samstarfsmaður Scorseses
undanfarin ár. Ekkert fer fram hjá
tökuliðinu og hraðar klippingarnar
skapa fágaða og lifandi samfellu, sem
veitir áhorfendum þau forréttindi að
vera líkt og alls staðar í salnum í
einu.
Sá samfundur Scorseses og The
Rolling Stones sem á sér stað í Shine
a Light er áhugaverð viðbót við sam-
slátt kvikmyndalistarinnar og Roll-
inganna, þar sem leikstjórar á borð
við Jan-Luc Godard, Maysles-
bræður og Peter Whitehead hafa
gert sér mat úr þeim efniviði sem
hljómsveitin er. Að sama skapi má
líta á myndina sem skemmtilega
hugleiðingu á ferli leikstjóra sem
hefur notast við tónlist hljómsveit-
arinnar á afgerandi hátt í myndum
sínum og gerir þessa tónleikamynd
að nokkurs konar sýnidæmi um þá
lífsorku sem felst í listinni.
Keith og Mick Eru báðir fæddir árið 1943, þótt ótrúlegt megi virðast.
Engin venjuleg tónleikamynd
KVIKMYND
Sambíóin Álfabakka,
Kringlunni og Keflavík
Leikstjórn: Martin Scorsese. Fram koma:
The Rolling Stones o.fl. 122 mín. Banda-
ríkin/Bretland, 2008.
Lát ljós þitt skína (Shine a Light)
bbbbn
Heiða Jóhannsdóttir
PLÖTUBÚÐ Smekkleysu að
Laugavegi 28 verður brátt lokað og
stendur yfir rýmingarsala í versl-
uninni til mánaðamóta. Þá verður
Laugavegurinn enn einni versl-
uninni fátækari.
„Við ætlum að
leggja verslunina
niður í þessu
formi um sinn,“
segir Ásmundur
Jónsson, fram-
kvæmdastjóri
Smekkleysu. „Við
munum reyna að
efla samstarfið
við þá aðila sem
eru á markaðnum núna eins og
Skífu-verslanirnar og Eymundsson.
Okkar vörur eru til þar og munu
verða til þar í meira mæli,“ segir Ás-
mundur. Smekkleysa muni nú ein-
beita sér enn frekar að eigin fram-
leiðslu og því efni sem fyrirtækið er
umboðsaðili fyrir á íslenskum mark-
aði, sölu og dreifingu á plötum er-
lendra útgáfufyrirtækja.
„Það má líka segja að við höfum
ekki séð, í því plássi sem verslunin
var í, vaxtarmöguleika til þess að
þetta yrði þokkalega arðbær eining,
smásalan. Við erum líka í því að efla
okkar viðveru á netinu.“
Vefsala Smekkleysu
Á vefsíðu Smekkleysu,
www.smekkleysa.net, er hægt að
kaupa plötur, m.a. valda geisladiska
sem hægt er að hala niður í tölvu á
meðan beðið er þess að diskurinn
berist manni í pósti.
Ásmundur segir síðuna hafa verið
í mjög góðu standi hvað útgáfu
Smekkleysu varðar, útgáfan hafi öll
verið sýnileg þar og á næstu miss-
erum stendur til að styrkja vefsíðuna
enn frekar hvað þjónustu við not-
endur varðar og plötusölu. Útgefnir
plötutitlar á vegum Smekkleysu eru
hátt í 300. „Fyrir utan þá útgáfu sem
við höfum réttinn á á Íslandi, þá á ég
við Bjarkar- og Sykurmolakatalóg-
inn og ýmislegt annað, nokkrar plöt-
ur Sigur Rósar o.s.frv. sem eru gefn-
ar út og dreift undir öðrum
merkjum,“ bætir Ásmundur við.
Malaði ekki gull
Plötubúð Smekkleysu við Lauga-
veg hefur ekki malað gull, að sögn
Ásmunds, þann stutta tíma sem hún
hefur verið starfrækt. Margt komi
til, m.a. breyting á því formi sem tón-
list er seld á. „Okkar verslun hefur
verið staðsett við hliðina á Skífunni,
að Laugavegi 28. Það er mín von að
þeir aðilar sem eru með Skífuna
muni efla sína þjónustu,“ segir Ás-
mundur. Smekkleysubúðin hafi verið
lítil og ekki haft möguleika á því að
bjóða upp á eins breitt úrval tónlist-
ar og Smekkleysumenn hafi viljað.
Smekkleysa lokar
plötuverslun sinni
Vefsíðan styrkt og samstarf eflt við
verslanir Skífunnar og Eymundsson
Morgunblaðið/Valdís ThorÁsmundur Jónsson
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Regnboganum
Sími 551 9000
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
J E S S I C A A L B A
ÞAÐ GETUR VERIÐ SKELFILEGT AÐ SJÁ
The air I breathe kl. 6 B.i. 16 ára
FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
„Vel gerð ævintýra-
og fjölskyldumynd.
Með betri slíkum
undanfarin misseri.”
- VJV, Topp5.is/FBL
eeee
Sýnd kl. 8 og 10 Sýnd kl. 6
- H.J., MBL
eeee
DAGSKRÁ OG MIÐASALA Á MIDI.IS
ALLAR UPPLÝSINGAR
Á GRAENALJOSID.IS
CARAMEL FALLEG
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 6 m/ísl. tali
l
ATH:
Á UNDAN MYNDINNI
VERÐUR FRUMSÝNT
FRÁBÆRT MYNDSKEIÐ
(TRAILER)
ÚR ICE AGE 3!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:15Sýnd kl. 8 og 10 POWERSÝNING
Sala á 12 mynda pössum hafin á Miði.is
og í Regnboganum.
BÍÓDAGARREGNBOGINN11.-30. APRÍL
GRÆNA LJÓSSINS
10
Bella enskur texti kl. 6 Leyfð
The Age og Ignorance enskur texti kl. 8 Leyfð
Surfwise sýnd á myndvarpa - ótextuð, enskt tal kl. 8 Leyfð
Lake of Fire sýnd á myndvarpa - ótextuð, enskt tal kl. 10 B.i. 14 ára
War/Dance sýnd á myndvarpa - ótextuð, enskt tal kl. 10:15 Leyfð
-bara lúxus
Sími 553 2075
TILBOÐ
Í BÍÓ
* Gildir á allar sýningar merktar
með rauðum tíma
*
- A.S., MBL
- S.V., MBL
- S.V., MBL
eee
- H.J., MBL
- H.J., MBL
Tropa de Elite enskur texti kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
King of Kong íslenskur texti kl. 10 Leyfð
The Band’s Visit enskur texti kl. 6 Leyfð
Caramel enskur texti kl. 8 Leyfð
Beufort enskur texti kl. 5:40 B.i. 14 ára
- V.J.V.,
TOPP5.IS/FBL
“Tryllingslegt hnefahögg
í andlitið!”
- S.V., MBL
- K.H.G., DV