Morgunblaðið - 16.04.2008, Page 40

Morgunblaðið - 16.04.2008, Page 40
40 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „ÉG er að fríka út,“ sagði pollró- legur nemi í arkitektúr, Hrafn- hildur Jónsdóttir, þegar blaða- maður leit inn með ljósmyndara á efstu hæð Listaháskóla Íslands í gær. Þar sátu sveittir nemendur á lokaári í arkitektúr og lögðu loka- hönd á útskriftarverk sín í tölvum. Arkitektúrnemar sýna afrakstur hönnunarvinnu við menningar- og náttúrufræðihús á Álftanesi, sem er í deiliskipulagi fyrir svæðið en þó ekkert ákveðið hvort ráðast eigi í framkvæmd þess. Í næstu stofu sátu, öllu sveitt- ari, nemar í fatahönnun að setja saman flíkur. Blasti þar fyrst við svört flík alsett álkeilum, lokaverk Örnu Sigrúnar Haraldsdóttur. „Ofursexí grimm kona í brynju með klær,“ svaraði Arna án um- hugsunar þegar blaðamaður bað hana að segja frá verkinu í stuttu máli. Hún væri orðin „rugluð af þreytu og stressi“. Úr LHÍ var haldið á Kjarvals- staði þar sem allir virtust vera að smíða, mála eða festa eitthvað. Við inngang stóð kofi einn en þó ekki í honum jólasveinn heldur fúlskeggjaður myndlistarnemi, Guðbrandur Bragason. „Ég er eini nemandinn sem er að útskrif- ast úr verslunarfræðideild sem kaupmaður,“ sagði Guðbrandur blaðamanni. „Ég verð hérna með hveiti, salt og sykur og ýmislegt. Kandís, döðlur, koníak, slifsi.“ Annar myndlistarnemi var í næsta horni að smíða, Steinunn Gunnlaugsdóttir. „Það ríkir aldrei friður,“ sagði Steinunn um verkið, líkt og borg yxi verkið og tæki yfir svæði, skriði út úr Kjarvals- stöðum. Annar myndlistarnemi, Jóhanna K. Sigurðardóttir, var að bisa við að koma myndvarpa fyrir sem varpaði teikningu af huggu- legum manni á vegg. „Þetta er reyndar ég,“ sagði Jóhanna við blaðamann þegar hann spurði hvort maðurinn væri austurríski myndlistarmaðurinn Egon Schiele. Annars staðar var Friðgerður Guðbrandsdóttir vöruhönn- unarnemi að reisa vegg úr pappa, hönnun sem hún kallar Stuðla. Veggir þessir eiga að nýtast sem skilrúm og hefur hver litur sinn eiginleika. Útskriftarsýning LHÍ verður opnuð á laugardaginn kl. 20 á Kjarvalsstöðum. Nánari upplýs- ingar um sýninguna má finna á vef skólans, www.lhi.is. „Rugluð af þreytu og stressi“ Útskriftarnemar Listaháskóla Íslands leggja lokahönd á verk sín Morgunblaðið/Valdís Thor 1 2 3 4 5 6 SÝND Á AKUREYRI - Sigurjón M. Egilsson Mannlíf eeee ,,Myndin er sannarlega þess virði að fólk flykkist á hana.“ - Páll Baldvin Baldvinnsson Fréttablaðið eee ,,Pétur Jóhann í toppformi í aðalhlutverkinu í bland við bráðskemmtilega toppleikara og furðufugla..." - Snæbjörn Valdimarsson Morgunblaðið eee VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG / ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Á STÓRA PLANIÐ kl. 6D - 8D - 10:10D B.i. 10 ára DIGITAL SHINE A LIGHT kl. 8 - 10:30 LEYFÐ DIGITAL RUINS kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára FOOL'S GOLD kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 7 ára DOOMSDAY kl. 8 LÚXUS VIP DOOMSDAY kl. 10:30 B.i.16 ára 10,000 BC kl. 8 B.i. 12 ára DIGITAL 10,000 BC kl. 10:10 LÚXUS VIP THE BUCKET LIST kl. 6 B.i. 7 ára STEP UP 2 kl. 5:40 LEYFÐ UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 6 LEYFÐ ,,Góð framleiðsla með topp leikurum í öllum hlutverkum, sem óhætt er að skella gæðastimplinum á." - Stefán Birgir Stefánsson sbs.is SÝND Í ÁLFABAKKA VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.