Morgunblaðið - 16.04.2008, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 43
- kemur þér við
Sérblað umVerk og vit
fylgir blaðinu í dag
Móðir í algjörri
afneitun
Skagastrætó
slær í gegn
Allir geta náð
tökum á golfinu
Íshokkíhetjan Rúnar
Freyr gerist poppari
Ágúst Bogason vill
halda í jöfnuðinn
sem eftir er
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
LÍBANSKA myndin Caramel
fjallar um konur, gerð og skrifuð af
konu, hinni heillandi og hæfi-
leikaríku Nadine Labaki sem jafn-
framt fer með aðalhlutverk Layale.
Hún er bæði eigandi og ein í
kvennahópnum sem vinnur á hár-
greiðslu- og snyrtistofu í Beirút.
Andinn svífur innandyra, skrafað,
spjallað og hlegið og mikil sam-
heldni ræður ferðinni. Viðskiptin
snúast vitaskuld um kvenfólk en
karlar eru lífseigt umræðuefni í
hópnum. Einkum og sér í lagi ásta-
mál Layale, hún er í þingum við gift-
an mann sem nýtur góðs af henni en
vill ekki skilja við konuna. Nisrine
(Al Masri) er að fara að gifta sig en í
fortíðinni hefur köttur komist í ból
bjarnar og hún er í öngum sínum,
heittrúaður músliminn. En konur
kunna ráð við slíkum smámunum.
Þannig rekur myndin sig áfram,
það eiga flestir í persónulegum
vanda og veröldin svipuð þeirri til-
veru sem konur búa við um allan
heim, þó að einhverjum áhorfendum
þyki vafalaust kjör þeirra og staða
ósanngjörn að einhverju leyti. Það
kemur t.d. undarlega fyrir sjónir
Vesturlandabúans að hin andlega og
efnahagslega sjálfstæða Layale býr
enn hjá foreldrum sínum.
Labaki dregur fram forvitnilegar
hliðar á samfélaginu, sumar eru
framandi en tónninn er alþjóðlegur,
þetta eru harðduglegar og áhuga-
verðar konur sem kunna að komast
af hvað sem tautar og raular. Hand-
ritið er ekki síður fyndið en drama-
tískt og leikurinn afbragð og
ánægjulegt að fá að skyggnast um í
þessum óljósa heimi þó ekki sé til
annars en að fræðast og skilja ögn
betur heimsmyndina.
Beirútskar blómarósir
KVIKMYND
Regnboginn: Bíódagar Græna
ljóssins
Leikstjóri: Nadine Labaki. Aðalleikarar:
Nadine Labak, Yasmine Al Masri, Joanna
Moukarzel, Gisèle Aouad. 96 mín. Frakk-
land/Líbanon 2007.
Caramel ’– Sukkar Banat
bbbnn
Forvitnileg „Labaki dregur fram
forvitnilegar hliðar á samfélaginu,
sumar eru framandi en tónninn er
alþjóðlegur.“
Sæbjörn Valdimarsson
SJÁLFSAGT muna einhverjir eftir
Airplane!, skopstælingunni um Air-
port-myndirnar, og háðfuglinum
David Zucker sem kom stæl-
ingabylgjunni af stað. Hún stendur
enn, tæpum þremur áratugum síðar,
en verður verri og ófyndnari með
hverju árinu. Samt er það svo að
þessi kvikmyndagrein kostar smá-
aura í framleiðslu og fær unglinga-
hjörð til að kaupa sig inn svo sem
tvær fyrstu sýningarhelgarnar og
dótið skilar vænni fúlgu í kassann.
Meðan svo er sitjum við uppi með
fyrirbrigðið, síðast var það Meet the
Spartans, nú er röðin komin að Leð-
urblökumanninum og öðrum ofur-
hetjum bíómyndanna sem fá sinn
skammt af aulafyndni í The Super-
hero Movie. Afbakanirnar eru
byggðar á sömu formúlu; snúið út úr
frummyndinni með hallærisbrönd-
urum, fluttum og gerðum af liðleskj-
um í leik, handritsgerð og leikstjórn.
Bell er þó hreint ekki alvondur To-
bey Maguire-fimmaurabrandari,
annað er hvimleitt. Dapurlegt að sjá
Leslie gamla Nielsen taka þátt í
slóðaskapnum í slæmum sketsum,
hann er nú einu sinni leikarinn sem á
bestu atriðin í myndabálknum. Skopstæling Ýmsar ofurhetjur
bíómyndanna fá sinn skammt af
aulafyndni í The Superhero Movie.
Leðurblöku-
maðurinn
sem náði sér
ekki á flug
KVIKMYND
Háskólabíó, Smárabíó,
Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri: Craig Mazin. Aðalleikarar:
Drake Bell, Sarah Paxton, Christopher
McDonald, Leslie Nielsen, Marion Ross.
85 mín. Bandaríkin 2008.
The Superhero Movie
bbnnn
Sæbjörn Valdimarsson
HEIMILDARMYNDIN Logandi
vatn tekur fyrir átakamál sem hef-
ur klofið bandarískt samfélag í ára-
tugi – fóstureyðingar. Bretinn
Tony Kaye vann að myndinni yfir
17 ára tímabil og ræddi við fjölda
fólks. Bæði þá sem styðja rétt
kvenna („pro-choice“) og þá sem
eru á móti fóstureyðingum („pro-
life“). Vandi Bandaríkjamanna er
að bókstafs- og öfgatrúarmenn
hafa mikið til rænt umræðunni um
fóstureyðingar og konur þurfa að
verja réttindi sín gagnvart þeim.
Á þessu tímabili náði Kaye að
safna og festa á filmu ekki ein-
göngu marga skemmtilega talandi
hausa og merkilegar – og stundum
framandi – skoðanir, heldur gríp-
andi sögur um mannleg afdrif. Til
dæmis er ótrúleg saga Normu
McCorvey, konunnar sem var
„Jane Roe“ í dómsmálinu sem
gerði fóstureyðingar löglegar í
Bandaríkjunum. Nú berst hún á
móti fóstureyðingum í fylkingunni
Operation Rescue. Maður getur
kannski glott yfir þessu, en hún
hefur að minnsta kosti ekki drepið
neinn. Það hafa aftur á móti nokkr-
ir af skoðanabræðrum hennar gert!
Eitt af því fyrsta sem ég hugsaði
þegar myndin byrjaði var: Af
hverju er myndin svart/hvít? Það
eru nokkur svör við því. Kaye hef-
ur sjálfur látið hafa eftir sér að
ekki sé hægt að komast að end-
anlegri niðurstöðu – málið sé á
gráu svæði! – þess vegna passi
svona filma.
Logandi vatn er fallega svart/
hvít. Grái liturinn gerir alla jafna.
Hvort sem það er ofmálað banda-
rískt kvenfólk eða illa hirtir banda-
rískir karlmenn, og allt þar á milli.
Sérstaklega í ljósi þess að Kaye
velur nærgöngula nærmynd sem
sitt helsta römmunarplan.
Myndin hefði líka verið hrein-
lega of óhugnanleg í lit. Myndirnar
af sundurlimuðum fóstrunum hefðu
ofboðið langflestum, held ég. Samt
þýðir ekkert að loka augunum fyrir
því sem er gert.
Logandi vatn er hugrökk mynd.
Kaye reynir að leyfa sem flestum
skoðunum á málinu að njóta sín og
leggur fyrir áhorfandann að gera
upp hug sinn í þessu erfiða máli.
Hann bendir á að valið sem fólk
stendur frammi fyrir er margþætt
og erfitt. Hvort myndin hafi nokk-
ur áhrif á öfgamenn í Bandaríkj-
unum er annað mál. Ég efast um að
þeir komi upp úr skotgröfunum!
Anna Sveinbjarnardóttir
Átakamál „Kaye reynir að leyfa sem flestum skoðunum á málinu að njóta sín …“
Líf verður til
KVIKMYND
Regnboginn – Bíódagar Græna
ljóssins
Leikstjóri: Tony Kaye. Fram koma: Pat
Buchanan, Noam Chomsky, Randall
Terry, Alan Dershowitz, Emily Lyons, Pet-
er Singer, Nat Hentoff, Frances Kissling,
Norma McCorey o.fl. 152 mín. Bandarík-
in. 2006.
Logandi vatn – Lake of Fire
bbbbn