Morgunblaðið - 28.04.2008, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimsferðir bjóða frábært verð á flugsætum til París í sumar.
París er ótrúlega spennandi borg, hvort sem þú vilt þræða lista-
söfnin, spranga um í Latínuhverfinu eða njóta lífsins lystisemda
sem þessi einstaka borg býður í ríkum mæli. Notaðu tækifærið og
bjóddu elskunni þinni til Parísar á frábærum kjörum eða skrepptu
með fjölskylduna í hinn einstaka ævintýraheim Disney í París.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
París
í sumar
frá kr. 14.222
Verð kr. 14.222
Flugsæti aðra leið með sköttum, far-
gjald A. Netverð á mann.
Verð kr. 31.293
Flugsæti báðar leiðir með sköttum, far-
gjald A. Netverð á mann.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
TÓNLIST vorsins fyllti loftið á suð-
urhorni landsins í gær og ljóst af
mannfjöldanum sem streymdi út úr
húsunum að fólk er orðið langeygt
eftir góðu veðri.
Starfsfólk kaffihúsa í miðborg
Reykjavíkur hafði víða sett borð út
á gangstétt og vegfarendur kunnu
vel að meta þann gjörning svo
snemma sumars.
Í görðum var fólk að störfum eða
leik, margir voru að klippa runna
og þrífa eftir veturinn en börnin
léku sér í sumarlegum leikjum.
Fuglar sungu í trjám og lóan gladdi
hlustirnar með sínum alkunna
söng: dýrðin, dýrðin.
Gæðum veðursins var þó nokkuð
ójafnt skipt eftir landshlutum í gær
og bárust jafnvel fréttir af élja-
gangi og snjókomu á norðurhluta
landsins. Framundan eru norð-
lægar áttir, 5-13 metrar á sekúndu
og él norðanlands, áfram bjart
syðra en hitastigið er lágt, hlýjast
tíu stig sunnan til.
Stirður Hundurinn gengur hnípinn í burtu enda eru hafnfirsku yngismeyjarnar honum augljóslega færari í
„twister“. Leikurinn gengur út á að teygja sig á alla enda og kanta og snerta sem flesta litaða fleti.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Miðborg Reykjavíkur Víða stóðu borð kaffihúsa úti á gangstétt og sólþyrstur landinn gat þannig sleikt sólina um leið og kaffisopinn var drukkinn.
Landsmenn orðnir langeygir eftir blíðunni og þyrptust út í góða veðrinu
Tónlist
vorsins
fyllti loftið
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
LANDSPÍTALINN hefur auglýst
eftir geislafræðingum til starfa á
myndgreiningarsviði í 100% starf, en
40 af 52 geislafræðingum hafa sagt
upp störfum frá og með 1. maí og
ganga því út á miðnætti á miðviku-
dag að öllu óbreyttu.
Deilt um 100 tíma
Kristín Þórmundsdóttir, geisla-
fræðingur, segir að staðan sé
óbreytt. Stjórnendur spítalans hafi
rætt við hvern og einn geislafræðing
einslega og hafi þeim viðtölum lokið
á þriðjudag í liðinni viku án árang-
urs. Breytt vaktafyrirkomulag þýði
að geislafræðingar þurfi að vinna um
100 tíma til viðbótar á ári fyrir sömu
laun og það sætti þeir sig ekki við.
„Eins og staðan er í dag sýnist mér
að það stefni í það að við göngum út á
miðnætti á miðvikudaginn,“ segir
hún.
Að sögn Kristínar eru umræddir
geislafræðingar farnir að líta í kring-
um sig eftir nýrri vinnu en allir voni
samt að hægt sé að leysa hnútinn í
tíma.
Horft til Noregs
Landspítalinn auglýsti eftir
geislafræðingum í Morgunblaðinu í
gær. Hansína Sigurgeirsdóttir,
deildarstjóri á myndgreiningarsviði,
segir að gangi allar uppsagnirnar
eftir þurfi að ráða jafnmarga í stað-
inn. Hún segir að rætt hafi verið um
að auglýsa eftir geislafræðingum á
Norðurlöndum og jafnvel á Írlandi,
en fyrir utan föstu stöðurnar vanti
líka fólk í afleysingar. Hins vegar sé
ekki hægt að segja hve marga vanti
fyrr en vitað sé hvort uppsagnirnar
standi og þá hve margar.
Hansína segir að einkum sé horft
til Noregs en sex norskir geislafræð-
ingar hafi verið ráðnir á undanförn-
um tveimur árum.
Störf geislafræðinga á
Landspítalanum auglýst
Í HNOTSKURN
» Á Landspítalanum starfa 52geislafræðingar. 40 þeirra
hafa sagt upp og þar af fjórir frá
Noregi.
» Landspítalinn horfir helst tilNoregs til að manna stöður
geislafræðinga en í gær höfðu 12
staðfest uppsagnir sínar.
» Staða geislafræðinga áNorðurlöndum er ekki góð
vegna verkfalla í Danmörku og
Svíþjóð og of fárra starfa í Nor-
egi.
FYRSTU
geitungarnir
eru farnir að
sjást og feitar
og loðnar
hunangs-
flugur byrj-
aðar að
sveima mak-
indalega um
garða lands-
manna.
Erling Ólafsson skordýrafræð-
ingur hjá Náttúrufræðistofnun þor-
ir lítið að spá um hvernig skordýra-
sumarið verður, en segir þó að
snjórinn sem verið hefur í vetur
hafi haft verndandi áhrif á skor-
dýralífið.
Býflugan er mjög stundvís og fer
yfirleitt að sjást 19. maí, en í ár sást
sú fyrsta þó degi fyrr. Þá má nefna
að fiðrildið birkivefari er farið að
sjást mikið, en birkivefarinn liggur
í dvala fullorðinn. Hann hverfur svo
þegar vorið líður.
Skordýrin
komin á kreik
MÖRGUM sem fylgdust með út-
sendingu frá átökum lögreglu og
mótmælenda við Rauðavatn í síð-
ustu viku brá þegar lögreglumenn
gengu fram með miklum hrópum og
beittu piparúða á suma mótmæl-
endur. Arnar Rúnar Marteinsson er
aðalvarðstjóri hjá Lögreglu höfuð-
borgarsvæðisins og segir hann við-
brögð lögreglumanna við þessar að-
stæður þaulæfð og þjóna
mikilvægum tilgangi.
„Vinnubrögðin eru skipulögð og
lúta lögreglumenn ströngu boðkerfi
skipana þar sem yfirmaður á staðn-
um stýrir því hvað skuli gera hverju
sinni. Aðferðir okkar eru þær sömu
og notaðar eru í þeim löndum sem
við viljum bera okkur saman við og
alltaf leitumst við við að grípa ekki
til sterkari meðala en tilefni er til.“
Áður en úðanum var beitt segir
Arnar Rúnar að mótmælendur hafi
ítrekað verið varaðir við að piparúði
yrði notaður. „Okkar markmið er
ekki að reyna að klekkja á neinum
og við gætum þess að almenningur
hafi alltaf útgönguleið. Til þess að
svo verði upplýsum við mótmælend-
ur fyrirfram um hvað við hyggjumst
gera, hvort sem beita á úða eða
kylfum, og veitum þeim þannig
tækifæri til að yfirgefa svæðið án
átaka.“
Rétt aðferð
við beitingu
piparúða
♦♦♦