Morgunblaðið - 28.04.2008, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2008 37
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÁRIÐ 2002 var ár íslensks rapps,
hver platan á fætur annarri kom
út, misjafnar að gæðum eins og
gengur. Að margra mati stóð þó
ein skífa upp úr það árið, fyrsta
plata hins dularfulla Móra sem
enn þann dag í dag hefur ekki
náðst almennilega á mynd. Hér
var á ferðinni alvöru bófarapp
með sönnum sögum úr undir-
heimum Reykjavíkur. Móri var
„alvöru“ og ekki spillti tónlistin
undir textunum; töff, grúvandi og
myrk. Í ársuppgjöri Morgunblaðs-
ins yfir bestu plötur ársins stóð
þetta m.a. um plötu Móra:
„ Íslenskt bófarapp sleit barns-
skónum á fyrstu skífu atvinnu-
krimmans Móra. Tónlistin er
framúrskarandi og fjölbreytt en
Móri er stjarna, flutningurinn
ótrúlega sannfærandi, hlustand-
inn trúir honum, sama hvað hann
er að segja frá skelfilegum hlut-
um. Móri beitir röddinni
skemmtilega, hrynjandi góð og
rímurnar vel samdar; „ef íslensk-
an er notuð rétt þá verður tung-
an hárbeitt“ eins og maðurinn
sagði.“
Ekki hefur borið mikið á Móra
eftir þessa sigra. Hann hefur
dvalið í Danmörku lengi en flutt-
ist hingað til lands aftur fyrir
u.þ.b. ári síðan. En ýmislegt er í
farvatninu og síðasta miðvikudag
hélt hann tónleika á Barnum,
Laugavegi 22, þar sem hann lék
nýtt efni í bland við gamalt.
„Ég var með trymbil mér til
halds og trausts,“ segir Móri.
„Tónleikarnir tókust afskaplega
vel upp að mínu mati.“
Móri segist hafa haldið áfram
að vinna að sinni tónlist úti í Dan-
mörku og fólk megi búast við
nokkrum breytingum á efninu
sem er framundan.
„Já, maður er aðeins að taka
sveig. Þetta er nokkuð tilrauna-
kenndara en áður. En textarnir,
þeir fylgja nokkuð svipuðum lín-
um og áður.“
Lítið álit á Poetrix
Móri vinnur væntanlega plötu
með Golden Boy (The End,
Steini), Jóa trommara og Hjalla
hljóðmanni eins og hann kallar
félaga sína.
„Við erum að taka upp í hljóð-
verinu hans Maximum/Magse
(Subta) sem kallast Stúdíó Hist-
ory. Hann sjálfur hefur hins veg-
ar ekkert komið að plötugerðinni,
ekki ennþá allavega. Annars er
ekkert ákveðið hvernig þetta
kemur út, hvort þetta verður
plata eða eitthvað annað. Mögu-
leikarnir eru orðnir miklu meiri
hvað útgáfumál varðar í dag.“
Tíu lög eru komin í sarpinn og
allt er þetta á góðum vegi að
sögn Móra. Lag er væntanlegt í
spilun og kallast það „Í kvöld“.
„Þetta fer á þær útvarps-
stöðvar sem vilja spila mig. Lagið
fjallar um mann sem ég hef lítið
álit á, hann Poetrix. Hann er að
setja gras og hörð efni undir
sama hatt sem er mikil heimska
að mínu mati.“
Rappstríðin eru margslungin, í
haust dissaði Erpur Eyvindarson,
Rottweilerhundur, Móra en Poet-
rix dissaði hins vegar Erp harka-
lega fyrir stuttu, sagði að Rott-
weilerhundarnir næðu „nýjum
víddum í tilgangsleysi“ í texta-
gerð sinni.
„Þarna er ég reyndar sammála
Poetrix,“ segir Móri og hlær.
„Þetta er líklega það eina sem ég
og hann erum sammála um. Ég er
reyndar með annað lag þar sem
ég tek Erp og félaga til bæna en
ég og Erpur erum alltaf að dissa
hvorn annan upp á djókið.“
Aðspurður hvort að um helbert
grín sé að ræða eftir allt saman
svarar hann lymskulega.
„Tjaa … jú, er það ekki bara?
Svona er nú þessi bransi einu
sinni.“
Móri
gengur
aftur
Draugur Hinn dularfulli Móri hefur aldrei náðst almennilega á mynd. Hann er að taka upp nýtt efni þessa dagana.
Morgunblaðið/Frikki
Rapparinn Móri er
með nýja plötu í bígerð.
Verður hún sú fyrsta
síðan hin lofaða skífa,
samnefnd honum,
kom út árið 2002.
SPILLING, valdníðsla og rasismi
innan lögreglunnar í glæpaborginni
Los Angeles er umfjöllunarefni
kvikmyndarinnar Konungar göt-
unnar (Street Kings) sem leikstýrt
er af David Ayer, eftir sögu-
hugmynd rithöfundarins James
Ellroy. Þeir sem þekkja til verka
höfundarins sjá strax að kunnuleg
Ellroyísk þemu eru hér á ferðinni.
Þekktust er líklega samnefnd kvik-
myndaaðlögun á skáldögu hans L.A.
Confidential, þar sem dregin er upp
bölsýn og miskunnarlaus mynd af
gerspilltri og glæpaskotinni lög-
gæslu í Los Angeles á sjötta áratugi
síðustu aldar. Ellroy er hins vegar
einn af þremur höfundum sem skrif-
aðir eru fyrir handriti Konunga göt-
unnar, og af útkomunni af dæma sé
ég enga aðra skýringu en þá að sá
ágæti rithöfundur Ellroy hljóti að
hafa komið lauslega að handrits-
skrifunum, svo illa er staðið að flest-
um þáttum handritsins, svo ekki sé
minnst á grunnatriði á borð við
fléttusmíð og samtöl. Ekki bætir úr
skák hæpin leikframmistaða einkar
sjúskaðs Keanu Reeves í hlutverki
aðalsöguhetjunnar, hins harðhenta
og drykkfellda fyrrverandi rann-
sóknarlögreglumanns Tom Ludlow.
Við og við grillir í texta og andrúms-
loft sem á rætur að rekja til Ellroy,
en þau tilþrif mega sín lítils innan
um þá vanhæfni sem annars ræður
ríkjum. Í umfjöllun sinni um spill-
ingu og kerfisbundinn rasisma í
stofnun lögreglunnar gerist myndin
sjálf sek um rasísk viðhorf og í til-
raun til fordæmingar á lögreglu-
ofbeldi upphefur myndin og rétt-
lætir (á einfeldningslegan hátt)
beitingu á hrottaskap og aðgerðum á
borð við þær að taka varnarlausa
menn af lífi, einfaldlega vegna þess
að þeir eru „óþokkar“. Engu að síð-
ur sjá aðstandendur myndarinnar
ekki sóma sinn í því að standa við þá
Ellroyísku rökvísi að spillingin
gegnsýri söguheiminn og að rætur
hennar sé að finna í kerfinu en ekki
einstökum svörtum sauðum. Þá er
sú réttlætiskennd sem á að drífa að-
alsöguhetjuna áfram í leit sinni að
morðingjum félaga síns fyrrverandi,
þar sem hann ber miskunnarlaust á
blökkumönnum í gettóinu og tekur
menn af lífi án dóms og laga, með
eindæmum þversagnakennd. Þessi
kvikmynd er vond á margföldum
forsendum en verst er þó að horfa
upp á þá afbökun á sagnasmíð og
heimssýn James Ellroy sem hér
birtist.
Afbakaður Ellroy
Lögga Keanu Reeves sýnir hæpna leikframmistöðu í Street Kings. Heiða Jóhannsdóttir
KVIKMYND
Smárabíó, Háskólabíó
og Borgarbíó
Leikstjórn: David Ayer. Aðalhlutverk:
Keanu Reeves, Forest Whitaker, Hugh
Laurie, Martha Higareda og Chris Evans.
109 mín. Bandaríkin, 2008.
Konungar götunnar (Street Kings)
mnnnn