Morgunblaðið - 28.04.2008, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.04.2008, Blaðsíða 13
BIRGJAR Mk One, breskrar smá- sölukeðju sem Baugur hefur ákveðið að selja, hafa gagnrýnt fyr- irtækið harka- lega eftir að ávís- anir, sem gefnar höfðu verið út sem greiðsla fyrir vörur og þjón- ustu voru ógiltar. Í frétt Tele- graph segir að Mk One skuldi birgjum sínum milljónir punda og er í fréttinni vitn- að í talsmann Venus Technology, eins birgjanna, þar sem hann segir Mk One skulda sínu fyrirtæki 300.000 pund, sem jafngildi þriðj- ungi ársveltu Venus. Segir talsmað- urinn að 95% viðskipta fyrirtækisins séu við Mk One og því sé Venus al- gerlega háð smásölukeðjunni. Lög- fræðingar birgjanna hafa þegar haft samband við Mk One og hafa í nokkrum tilfellum sent svokallaðar vikuviðvaranir, þar sem krafist er greiðslu útistandandi krafna innan sjö daga. Í fréttinni segir að fjöldi áhugasamra hafi haft samband við Baug um kaup á Mk One. Jón Ásgeir Jóhann- esson, stjórnar- formaður Baugs. Birgjar Mk One ósáttir ● Í BRETLANDI rannsaka sam- keppnisyfirvöld nú ásakanir um verðsamráð stærstu matvöruversl- unarkeðja landsins. Í Sunday Tele- graph kemur fram að meðal verslana sem eru til skoð- unar eru: Tesco, Asda, sem er í eigu Wal-Mart, J Sa- insbury og Morrison. Í Sunday Tim- es kemur fram að starfsmenn sam- keppniseftirlitsins hafi farið á skrifstofur verslunarkeðjanna og birgja þeirra en rannsakað er hvort þær hafi viðhaft ólöglegt verð- samráð á matvöru, snyrtivörum og heilsuvörum. Í samtali við AP-fréttastofuna neitaði talsmaður samkeppnisyf- irvalda að tjá sig enda sé það aldr- ei gert er rannsókn stendur yfir. Sama var uppi á teningnum þegar fréttastofan leitaði til talsmanna Sainsbury’s og Tesco. Rannsaka samráð í Bretlandi ● FRESTUR, sem Microsoft hafði gefið stjórn Yahoo til að taka yf- irtökutilboði fyrr- nefnda fyrirtæk- isins í það síðarnefnda, rann út um helgina án þess að svar hefði borist frá Yahoo. Þykir þetta auka líkurnar á því að Microsoft reyni fjandsamlega yfirtöku á Yahoo, þ.e. reyni að ná yfirráðum í fyrirtækinu í óþökk stjórnar Yahoo. Helsta deilu- málið hefur verið það verð sem Microsoft er tilbúið að greiða. Bauð Microsoft 29,68 dali á hlut, en stærstu hluthafar Yahoo telja eðli- legt verð nærri 35 dölum á hlut. Yahoo hefur verið að bíða eftir hærra boði frá Microsoft, en stjórnendur Microsoft segjast þreyttir á trega Yahoo til að ræða verðhugmyndir. Steve Ballmer, for- stjóri Microsoft. Stefnir í fjand- samlega yfirtöku MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2008 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Eftir Halldóru Þórsdóttur í Þýskalandi halldorath@mbl.is FYRSTA borunarverkefni Heklu Energy, dótturfyrirtækis Jarðbor- ana í Þýskalandi, er komið vel á veg, en boranir hófust í Mauer- stetten í Bæjaralandi í janúar. Verkefnið er samstarf við Exorku, sem á framkvæmdarétt á svæðinu, en Geysir Green Energy, móður- félag Jarðborana, á 66% hlut í Ex- orku. Verðmæti samningsins er um 1,5 milljarðar króna, en Exorka á fleiri vinnsluréttindi í Suður- Þýskalandi sem fyrirtækið hyggst nýta á næstu árum. Á hverjum borunarstað er ætl- unin að bora þrjár eða fjórar 4-5 kílómetra djúpar holur. Nú er búið að bora um 2,5 km niður í Mauer- stetten. Það vakti athygli blaða- manns hve borsvæðið er hljóðlátt, en þar munar talsvert um að bor- inn fær rafmagn frá landsnetinu, en er ekki knúinn með dísilrafstöð eins og jafnan er gert á Íslandi. Jarðfræðirannsóknir á svæðinu gefa til kynna að um lághitasvæði sé að ræða, þ.e. um 120-150 gráða heitt vatn. Hitinn verður nýttur til framleiðslu rafmagns með svo- nefndri Kalina-tækni, sem er t.a.m. notuð á Húsavík. Rafmagnsfram- leiðslan á hvert borsvæði er áætluð um 3-5 MW, sem verður háð bæði hitastiginu og því rennsli sem næst úr borholunum. Rafmagnið á síðan að selja inn á landsnet þeirra Þjóð- verja. Strangari umhverfisskilyrði Borinn sem er notaður er einn sá öflugasti í flota Jarðborana, en félagið hefur einnig fest kaup á nýjum bor, fyrir að andvirði 2 milljarða króna, frá þýska félaginu Bentec. Að sögn Bents S. Einars- sonar, forstjóra Jarðborana, bíða hans þegar ýmis verkefni, en bor- inn verður afhentur í október. „Mér líst mjög vel á metnaðinn hjá Heklu Energy. Þar er hæfi- leikaríkt starfsfólk sem hefur alla burði til að verða þekkt nafn á hin- um hraðvaxandi markaði endurnýj- anlegrar orku, en þar eru gríðarleg sóknarfæri,“ segir Bent. Stefnt er að því að næsta borverkefni Heklu hefjist seint í haust, en þar sem boranirnar eru enn á byrjunarstigi á eftir að koma í ljós hvernig næstu verkefni ráðast. Nú beinist sjónir manna helst að Þýskalandi, en Evrópa komi þó öll til álita. Að sögn Bents eru strangar um- hverfisverndarkröfur gerðar til framkvæmdaaðila í Þýskalandi. Vatninu sem er dælt upp úr jörð- inni þarf t.d. að skila aftur til baka, þess vegna þarf minnst tvær holur á hverju borsvæði. Ekki eru gerðar eins strangar kröfur á Íslandi. Endurnýjanleg orka í sókn Johann Fleschhut er héraðs- stjóri í Ostallgäu í Bæjaralandi, en auk framkvæmdanna í Mauerstett- en er ráðgert að hefja jarðboranir nálægt Marktoberdorf, höfuðborg héraðsins. Fleschhut segir sam- starfið við Exorku og Heklu hafa gengið vel og leggur áherslu á ánægju sína með vaxandi notkun endurnýjanlegra orkugjafa í hér- aðinu. Nýting vatns-, vind- og sól- arorku er í miklum vexti í hér- aðinu, en Þjóðverjar hafa sett sér það markmið að endurnýjanlegir orkugjafar skili a.m.k. um 20% orkunotkunar árið 2020. Árið 2006 var hlutfallið 5,8%. Hekla Energy hálfnuð með fyrstu holuna í Bæjaralandi Dótturfélag Jarðborana borar eftir jarðvarma á lághitasvæðum í S-Þýskalandi Öflugur Bor Heklu Energy í Mauerstetten gnæfir við Alpafjöllin. ÞETTA HELST ... ● TAP á rekstri Teymis á fyrsta árs- fjórðungi nam tæpum 4,9 millj- örðum króna, samanborið við 1,6 milljarða króna hagnað á sama tíma- bili árið 2007. Tekjur jukust um 24% frá sama tímabili í fyrra og námu um 6 millj- örðum króna en hins vegar varð 6,2 milljarða króna gengistap og skýrist það að stærstum hluta af geng- islækkun krónunnar. Hagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 1.003 milljónum króna sem er 28% aukning frá fyrra ári. Eiginfjár- hlutfall fyrirtækisins var 19% í lok mars 2008. Handbært fé frá rekstri fyrir greidda vexti og skatta nam 859 milljónum króna. Tap á rekstri Teymis 4,9 milljarðar Reuters Wachovia greiðir 144 milljónir Bandaríkjadala BANDARÍSKI bankinn Wachovia hefur samþykkt að greiða 144 millj- ónir dala í skaðabætur og sektir vegna ólögmætra viðskiptahátta tengdum símasölumönnum. Síma- sölumennirnir fengu gegnum síma fjárhagslegar upplýsingar frá öldr- uðu og efnalitlu fólki með því að lofa því vafasömum vörum eða þjónustu, svo sem afsláttarmiðum fyrir flug- ferðir. Sölumennirnir gátu, eftir að hafa aflað upplýsinganna, látið gera sérstakar ávísanir sem ekki þarf að undirrita og þar með dregið fé út af reikningum fórnarlambanna. Er því haldið fram að ákveðnir stjórnendur og lykilstarfsmenn Wachovia hafi vitað af þessari iðju símasölumann- anna og ekki gripið til aðgerða til að koma í veg fyrir hana. Þá sætir Wachovia rannsókn yf- irvalda vegna gruns um að bankinn hafi aðstoðað mexíkóska og kólumb- íska eiturlyfjasmyglara við að þvo illa fenginn gróða sinn í gegnum þar- lend millifærslufyrirtæki (e. money transfer companies). Wachovia er þó ekki eini bankinn sem sætir slíkri rannsókn nú. Í hópi þeirra ríkustu sæti listans með eignir upp á 31 milljarð punda en hann var í fyrsta sæti lista Forbes yfir auðugasta fólk heims. Fram kemur í grein Sunday Tim- es að auður ríkustu manna Bret- lands hafi margfaldast frá því stjórn Verkamannaflokksins komst til valda. Jafnvel frá þeim tíma er Gordon Brown tók við völdum hef- ur auður þeirra aukist um 15% þrátt fyrir erfiðleika á fjár- málamarkaði undanfarin misseri. Ríkasti maður Bretlands er stál- framleiðandinn Lakshmi Mittal en eignir hans eru metnar á 27,7 millj- arða punda. Roman Abramovich er í öðru sæti yfir ríkustu íbúa Bret- lands með auðæfi metin á 11,7 millj- arða punda. BJÖRGÓLFUR Thor Björgólfsson er í 29. sæti lista Sunday Times yfir ríkustu menn Bretlands. Eru eignir hans metnar á 2.070 milljónir punda, um 300 milljarða íslenskra króna, en hann var í 23. sæti listans í fyrra. Enginn Íslendingur kemst inn á lista yfir þá 100 ríkustu í Evr- ópu. Samkvæmt listanum yfir ríkustu menn heims eru indversku bræð- urnir Mukesh og Anil Ambani þeir ríkustu en eignir þeirra eru metnar á 43 milljarða punda. Í öðru sæti listans er Walton fjöl- skyldan sem meðal annars á Wal- Mart verslunarkeðjuna. Auður fjöl- skyldunnar er metinn á 38,4 millj- arða punda. Bandaríski fjárfestir- inn Warren Buffett skipar þriðja Útlitið svart í Bandaríkjunum ● ÚTLIT er fyrir að störfum muni fækka í apríl í Bandaríkjunum, fjórða mánuðinn í röð, samkvæmt fréttavef Bloomberg. Segir þar að meðal ástæðna séu samdráttur í byggingu nýrra fasteigna og í einkaneyslu. Miðgildisspá Bloomberg gerir ráð fyrir því að störfum fækki um 78.000 í apríl, en nýjar opinberar tölur verða birtar næstkomandi föstudag. Við sama tækifæri verða birtar nýjar tölur um hagvöxt í Bandaríkj- unum á fyrsta fjórðungi ársins og gera svartsýnustu spár ráð fyrir 0,4% hagvexti á tímabilinu. Gangi sú spá eftir er það versta frammistaða bandaríska hagkerf- isins í fimm ár. EINS og margoft hefur verið greint frá í fjölmiðlum hefur verð á hveiti, korni og hrísgrjónum hækkað mjög á undanförnum misserum og hafa margir af því áhyggjur hvaða áhrif það muni hafa á fátækustu íbúa jarð- arinnar. Í ljósi þessarar þróunar líta nú æ fleiri til kartöflunnar sem hugsan- legs bjargvættar og hafa Sameinuðu þjóðirnar lýst árið 2008 ár kartöfl- unnar. Kartöflur er hægt að rækta á mörgum svæðum þar sem aðrar plöntur þrífast illa og þær geta verið afar næringarmiklar, eins og frænd- ur okkar Írar þekkja vel. Á árlegri kartöfluhátíð í Bólivíu nýlega sýndu bændur uppskeruna. Kemur kartaflan okkur til bjargar? Reuters

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.