Morgunblaðið - 28.04.2008, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.04.2008, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2008 23 ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÐUR ÞORKELSSON, Hörgshlíð 6, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 30. apríl kl. 15.00. Svanhildur Guðnadóttir, Guðrún Þórey Þórðardóttir, Þorvaldur K. Þorsteinsson, Svanhildur Þorvaldsdóttir, Þór Tryggvason, Margrét Á. Þorvaldsdóttir, Georg Garðarsson og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA MARÍA KRISTJÁNSDÓTTIR, Urðarvegi 15, Ísafirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði miðvikudaginn 23. apríl. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 3. maí kl. 11:00. Ólafur Sveinbjörn Vilhjálmsson, Sigrún Þórey Ágústsdóttir, Guðjón Andersen, Vilhjálmur Ólafsson, Birna Ólafsdóttir, Kristján Ólafsson, Hulda V. Steinarsdóttir, Guðbjartur Brynjar Ólafsson, Sóley Sveinsdóttir, Sesselja Anna Ólafsdóttir, Jón Pétur Einarsson, Ólafur Helgi Ólafsson, Þórey María Ólafsdóttir, Þórður E. Sigurvinsson, Lilja Debóra Ólafsdóttir, Sæmundur B. Guðmundsson, Nína Dís Ólafsdóttir, Magnús Salvarsson, ömmubörn, langömmubörn og aðrir ástvinir. ✝ Baldvin LárusGuðjónsson fæddist í Reykjavík hinn 26. júlí 1933. Hann lést á gjör- gæsludeild Land- spítala í Fossvogi 18. apríl síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guðjón B. Baldvinsson, deild- arstjóri í Reykjavík, f.v. formaður BSRB, f. á Refsstöðum í Hálsahreppi í Borg- arfirði 26.7. 1908, d. 6.1. 1990 og Steinunn Jónsdóttir, f. á Hóli í Höfðahverfi í Þingeyj- arsýslu 29.3. 1907, d. 22.12. 1987. Alsystkini Baldvins eru Valgerður Jóndís, f. 1931 og Hilmar Gylfi, f. 1935, d. 16.5. 2003. Sammæðra eru Katrín Kristín, f. 1938, dóttir Guðjóns Jónssonar, f. 9.11. 1908, d. 9.5. 1943, Sveinn Guðmundur, f. 1947 og Jóhannes Gunnar, f. 1948, synir Guðmundar Gísla Guð- mundssonar, f. 8.4. 1909, d. 16.12. 1988. Samfeðra er Baldur Freyr, f. 1942, sonur Önnu Guðmunds- dóttur, f. 12.6. 1900, d. 6.9. 1995. Sonur Baldvins og Þóru Aldísar Hjelm, f. 17.6. 1939, d. 1.9. 1995, er Þorsteinn Valur, f. 1957, sam- býliskona Sigríður Björnsdóttir, f. 1958, dætur Sædís Mjöll, f. 1984, Valdís Jóna, f. 1992, d. 1992 og Snædís Bára, f. 1993. Baldvin Lárus kvæntist hinn 26. desember 1959 Höllu E. Stef- ánsdóttur, f. undir Glóðarfeyki, Grundargerði í Skagafirði 2.4. 1951, börn a) Jón Gunnar, f. 1973, d. 1974, b) Eva Dögg, f. 1977, gift Þorbirni Ingasyni, f. 1976, sonur Tómas Friðrik, f. 2006, og c) Embla Ýr, f. 1979, gift Daníel Frey Atlasyni 1977. 3) Gunnur Kristín, f. 1953, gift Hlyni Þor- steinssyni, f. 1953, synir a) Gunnar Kristján Steinarsson, f. 1972, kvæntur Önnu Bjarnadóttur, f. 1975, sonur Bjarni Steinn, f. 1998 b) Þröstur, f. 1982, kvæntur Evu Írisi Eyjólfsdóttur, f. 1983, dóttir Svala Kristín, f. 2007, c) Birkir Örn, f. 1984, d) Haukur Smári, f. 1990, og e) Þorsteinn Húni, f. 1991. 4) Kristján Gunnar, f. 1954, kvæntur Guðrúnu Önnu Jóhanns- dóttur, f. 1954, börn a) Jóhann Rúnar, f. 1973, dóttir Guðrún Anna, f. 1998, b) Ír- is Ósk, f. 1977 sambýlismaður Guðmundur Helgi Önundarson, f. 1967, sonur Pétur Snær Pét- ursson, f. 1999. Baldvin Lárus ólst upp fyrstu fimm árin í Reykjavík, fimm ár að Unhól í Þykkvabæ og síðan í Bjarnastaðarhlíð í Skagafirði. Hann gekk í Steinstaðarskóla og fór síðan í framhaldsnám í Skóga- skóla í tvo vetur. Hann var á strandferðaskipinu Esjunni frá 1948 til 1949. Vann sem mjólk- urbílstjóri í Blönduhlíð Skaga- firði, vann við sjómennsku, keyrði strætisvagn hjá SVR, rak blóma- verslunina Erika Blóm, keyrði sendiferðabíl, vann í Blikksmið- unni JBP, vann við smíðar og síð- ast vann hann við verslunarstörf í Húsasmiðjunni í Hafnarfirði. Baldvin og Halla bjuggu fyrstu níu árin í Reykjavík, síðan í Garðabæ í þrjátíu ár, þá í Mos- fellsbæ og síðast í Hveragerði. Baldvin Lárus verður jarðsung- inn frá Garðakirkju á Álftanesi í dag og hefst athöfnin klukkan 15. 1932. Börn Baldvins og Höllu eru 1) Katr- ín Kristbjörg, f. 1959, sambýlismaður Sig- urbjartur Guð- mundsson, f. 1957, synir Baldvin Lárus, f. 1995 og Atli Karl, f. 1997. Sonur Sig- urbjarts og Þuríðar Ottesen er Pétur, f. 1984. 2) Guðjón Bald- vin, f. 1961, kvæntur Ingunni Lilju Guð- mundsdóttur, f. 1961, dætur a) Rósa María, f. 1979 dóttir Katrín Ýr, f. 2001, b) Gyða Kolbrún, f. 1982, sambýlis- maður Axel Sigurður Axelsson, f. 1976, synir Benedikt Guðjón, f. 2000 og Valur Axel, f. 2005, c) Halla Karen, f. 1988, sambýlis- maður Arnar Ingi Tryggvason, f. 1986, og d) Jóhanna Lilja, f. 1991. 3) Börkur Bragi, f. 1963, kvæntur Matthildi Sigurjónsdóttur, f. 1957, börn Breki Mar, f. 1985, Íris Katr- ín, f. 1986, og Sigurjón Mar, f. 1992. Börn Höllu og Gunnars Kristjáns Jónassonar, f. 6.10. 1930, d. 23.9. 1953, eru: 1) Stein- unn Hrefna, f. 1950, gift Róberti Guðna Einarssyni, f. 1951, börn a) Regína, f. 1969, börn Alexander Davíð Rafnsson, f. 1990, Hrefna Rún Óðinsdóttir, f. 1993 og Guðný Karen Oliversdóttir, f. 2002, b) Ríkarður, f. 1976, kvæntur Söru Arnarsdóttur, f. 1977, börn Matt- hías, f. 2003 og Íris, f. 2005, og c) Rakel, f. 1983. 2) Björk Kolbrún, f. 1951, gift Guðmundi Jónssyni, f. Pabbi. Hann kom inní líf okkar þegar ég hef verið fjögurra ára. Þá var ég yngstur fjögurra barna hennar mömmu. Mömmu, ekkjunnar ungu, sem stritaði myrkranna á milli til að sjá stóru heimili farborða. Það var okkur mikil gæfa að hann skyldi finna hana mömmu. Það þurfti stórt hjarta, ótakmarkaða ást, kær- leik, og umhyggju til að leggja í þessa ferð sem hann kom með okkur í, sem stóð í rúm fimmtíu ár. Hann gekk okkur öllum í föður stað og ól okkur upp. Ég man ekki annað en að hafa kallað hann pabba alla tíð og það gerðum við öll. Árin urðu ekki mörg þar til að við höfðum eignast þrjú systkin til viðbótar. Hann átti einn son frá sínu fyrra sambandi. Heimilið var stórt, það voru erfiðir tímar, fé- lagsleg aðstoð engin, ekkert var sjálf- gefið. Hann bætti við sig fleiri störf- um, vinnudagurinn var oft langur, allir skyldu hafa í sig og á, enginn leið skort. Húsakostur var þröngur, hann setti markmiðið hátt og náði því, keypti hús í Garðabæ þar sem allir fengu nægt rými. Við áttum góðar stundir saman, hann var alltaf sveitakall í sér, nýtinn, sparsamur og ótrúlega fjölhæfur þótt hann hafi ekki verið langskólageng- inn. Hann var heimspekingur af Guðs náð. Lífið, vinnan og reynslan hafði mótað hann. Hann átti ekki auðvelda æsku, fór á milli landshluta og heimila með móður sinni. Við ræddum þann tíma í lífi hans ekki mikið, ég veit það nú, að sumar minningarnar voru sárar. Hann vildi frekar ræða um framtíðina, tækifærin og hvað væri á döfinni. Vildi vita hvernig barnabörn- unum gengi og hver væri að gera hvað. Ég veit að hann fann hamingj- una og lífsfyllinguna með henni mömmu og okkur, börnunum hans. Við eigum svo margar góðar minn- ingar sem koma svo mikið fram núna í sorginni. Sorginni sem er svo sár, missirinn er mikill, mestur er missir mömmu. Blessuð sé minningin um pabba. Kristján Gunnar og Guðrún Anna. Minning er það eina sem við ástvin- ir eigum þegar einhver af okkur fellur frá. Pabbi minn var einstakur maður, tilfinningaríkur, léttur í lundu og mik- ill húmoristi. Hann var mikil fé- lagsvera og vildi vera innan um fólk. Þegar hann var ungur sagðist hann alltaf ætla að eiga átta börn og með hjálp mömmu tókst honum það. Hon- um fannst mjög vænt um öll börnin sín og sagði að þau væru svo falleg. Þegar hann var ungur maður söng hann í kirkjukór Goðdalasóknar og eftir að hann hætti að vinna fór hann í kór eldri borgara í Mosfellsbæ og síð- ar í Hveragerði. Hann hafði yndi af því að vera úti í náttúrunni og vorum við fjölskyldan saman í veiðiklúbb sem fór víða um land að veiða og vera saman. Hann hlakkaði alltaf til hinnar árlegu veiðiferðar. Margar skemmti- legar sögur eru til úr veiðiferðunum. Hann hafði gaman af því að skera út í við, vinna við silfursmíði og bók- band. Hann var vinnusamur og vildi alltaf hafa eitthvað fyrir stafni. Hon- um fannst mjög vænt um barnabörn- in sín, sagði þeim sögur og spjallaði mikið við þau. Hann hafði unun af því að ferðast bæði innan- og utan lands og fór víða. Ég þakka pabba fyrir umhyggjuna sem hann sýndi mér og mínum þann tíma sem við áttum saman. Minningin lifir. Katrín K. Baldvinsdóttir. Ekki datt okkur í hug að við þyrft- um að kveðja afa okkar svona fljótt. Það eru ótrúlega margar minningar sem koma upp í hugann þegar ein- hver svona nákominn kveður. Við eig- um margar og frábærar minningar um okkar yndislega afa. Hann var alltaf skemmtilegur og til í að fíflast sem okkur þótti alls ekki leiðinlegt. Hann vildi allt fyrir okkur gera, göngutúrarnir voru ófáir ásamt öllum sögunum sem hann sagði okku; þrátt fyrir að hafa unnið mikið hafði hann alltaf tíma fyrir okkur. Einnig leyfði hann okkur að leika með hlutina sína eins og við vildum sem okkur þótti æðislegt. Það var alltaf gott að koma í heim- sókn til afa og ömmu og þá sérstak- lega þegar við fengum að vera eftir og gista, þá var snúist í kringum okkur eins og prinsessur. Afi mun alltaf lifa í minningunni og við munum sakna hans mikið en við vitum þó að hann vakir yfir okkur á stað þar sem honum líður vel. Rósa María, Gyða Kolbrún, Halla Karen og Jóhanna Lilja Guðjónsdætur. Baldvin Lárus Guðjónsson ✝ Maðurinn minn, faðir okkar og afi, EINAR WERNER ÍPSEN, Marteinslaug 7, andaðist á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn 18. apríl. Bálför hans fer fram frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 30. apríl kl. 13.00. Íris Þórarinsdóttir, Jón Rúnar, Karl Ágúst, Halldór Bjarki og barnabörn. Elsku afi. Við eigum eftir að sakna þín mikið. Þú varst alltaf svo góður við okkur og við munum eftir svo mörgum stundum með þér og ykkur ömmu. Bíltúrar, gisting hjá ykkur í Mosó, spjall o,fl. Þú varst alltaf að segja fyndna brandara og varst svo skemmtilegur. Við ætlum að passa ömmu og gera allt fyrir hana sem við getum. Guð geymi þig. Baldvin Lárus og Atli Karl. HINSTA KVEÐJA Þegar ég sezt loks niður til að festa á blað fáein minningarorð um Fríðu föður- systur mína, eða Lillu eins og hún var ætíð kölluð, flýgur hugurinn til liðinna ára vestur í Rauðasandshreppi. Í bernsku minni voru flestir bæir sveit- arinnar enn í byggð og víða margt í heimili. Reyndar hafði fækkað mikið frá þeim árum þegar hver jörð var margsetin, auk aðkomufólks sem stundaði sjóinn. En enn var haldið úti kraftmiklu samfélagi með m.a. tveim kaupfélögum og þrem kirkjusóknum. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að alast upp í þessu samfélagi og í þeirri náttúrufegurð sem einkennir mína gömlu heimasveit. Hjá því góða fólki sem þar lifði og starfaði. Fyrstu minningar mínar um Lillu frænku eru úr frumbernsku. Reyndar er mér sagt að ég eigi alls ekki að geta munað eftir mér frá þeim árum, vel fyrir fjögurra ára aldur, en ég man samt. Þá dvaldi Lilla í Kollsvíkinni með Eyrúnu dóttur sína sem var á svipuð- um aldri og ég. Ég var elstur í bræðra- hópnum, sá næsti tveim árum yngri. Því var mikill fengur að Eyrúnu til að leika við, auk frændsystkina minna á Stekkjarmel. Börn eru töluverðir mannþekkjarar. Ég fann fljótt að Lilla frænka mín var góð kona og létt í lund, mild og hlý í allri framgöngu. Átti til að vera smástríðin, eins og fleiri í ættinni, en alltaf á sinn góðlátlega hátt. Eyrúnu taldi ég mig eiga stóran hlut í og tók því fremur illa þegar þær mæðgur fluttu úr Víkinni og Lilla hóf búskap í Kvíg- indisdal ásamt manni sínum, Vali Thoroddsen. Bjuggu þau þar rausn- arbúi meðan aldur og heilsa leyfði. Var Lilla frænka orðlögð fyrir myndarskap og snyrtimennsku í heimilishaldi og þau hjón samhent. Þrátt fyrir að Kvígindisdalur sé í Henríetta Fríða Guðbjartsdóttir ✝ Henríetta FríðaGuðbjartsdóttir fæddist á Láganúpi í Kollsvík í Rauða- sandshreppi 13. des- ember 1928. Hún lést á Dvalarheimili aldraðra í Borg- arnesi 28. febrúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Háteigskirkju 11. mars. hreppnum og ekki ýkja langt frá, þá voru sam- göngur oft erfiðar, sér- staklega yfir vetrartím- ann. Því varð „vík milli vina“ við þessa brottför þeirra mæðgna, en góð- ur vinskapur hélst á milli heimila þó að fund- ir yrðu stopulli. Við Ey- rún áttum reyndar eftir að endurnýja kynnin betur síðar, bæði í barnaskólanum fyrir vestan og þegar við dvöldum í Borgarnesi í gagnfræðaskóla. Og hún var alltaf sama indæla frænkan og mikill missir þegar hún lézt, langt fyrir aldur fram. Ekki sízt fyrir blessunina hana Lillu, hún bar ekki sitt barr eftir það enda þær mæðgur alltaf nánar. En hún átti góða fjölskyldu, mann, börn og tengdabörn sem reyndust henni afskaplega vel. Jafnt í sorginni og þegar hún fór að missa heilsuna. Fyrir nokkrum árum brugðu Valur og Lilla búi og hafa síðan haft sitt heimili að mestu í Borgarnesi, en dvalið í Kvígindisdal á sumrum eftir því sem heilsa og aðrar aðstæður hafa leyft. Ég þakka Lillu frænku minni fyrir samfylgdina um lífið og veit að við munum sjást aftur síðar. Kvöldið áður en ég frétti lát Lillu varð mér einkenni- lega mikið hugsað til Eyrúnar frænku minnar. Kannske er það tilviljun – og þó. Við Agnes sendum Vali, sem staðið hefur sem klettur við hlið hennar í blíðu og stríðu, börnum þeirra og fjöl- skyldunni allri samúðaróskir og biðjum almættið að veita þeim styrk. Guðbjartur Össurarson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.