Morgunblaðið - 28.04.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.04.2008, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SLÖKKVILIÐIÐ þurfti að kljást við nokkra sinuelda í gær. Sá stærsti logaði við Hvaleyrarvatn í Hafn- arfirði um hádegi. Eldurinn barst í tré og annan gróður. Talið er að um hektari lands hafi brunnið og tóku slökkvistörf um fimm klukkustundir. Greiðlega gekk að slökkva minni- háttar sinubruna sem voru í Graf- arvogi, í Huldulandi, og á Garða- holti á Álftanesi. Jafnframt var slökkvilið kallað út vegna elds í þvottavél í Teigaseli. Þá komu upp sinubrunar í ná- grenni Selfoss og við Stokkseyri og fór sá fyrrnefndi nálægt íbúðar- húsum. Miklar ann- ir vegna sinuelda HALDNIR verða tónleikar til styrktar forvarnarfélaginu Blátt áfram 8. maí næstkomandi. Margar af stærstu stjörn- um íslensks tón- listarlífs munu koma þar fram og gefa vinnu sína. Tónleikarnir verða haldnir á skemmtistaðnum Nasa en fram koma 12 hljóm- sveitir, þar á meðal Sálin hans Jóns míns, Ný Dönsk, Buff, Ljótu hálfvitarnir, Mercedez Club, Brain Police, Ny- lon og Rokksveit Rúnars Júl- íussonar. Fræðsla og samskipti Sigríður Björnsdóttir, fram- kvæmdastjóri Blátt áfram, segir markmiðið með söfnuninni að fjár- magna auglýsingaherferð sem ætl- að er að minna foreldra og for- ráðamenn á mikilvægi forvarna og samskipta við börnin sín. „Vonir standa til að auglýsing- arnar verði sýndar í sjónvarpi á næstu vikum en þar leggjum við áherslu á forvarnir með fræðslu þar sem foreldrar tala við börnin sín um mörk og samskipti,“ út- skýrir Sigríður en þetta verður þriðja sjónvarpsauglýsinga- herferðin sem Blátt áfram stendur fyrir. Sigríður segir foreldra oft halda að þeir þekki til hlítar umhverfi barnsins og það fólk sem það um- gengst. „En staðreyndin er sú að það er oft mjög erfitt að vita hvort ein- hver í umhverfi barnsins er of- beldismaður. Þess vegna þarf að ræða við börnin hvað má ekki og kenna þeim að þau megi segja nei, líka við fólk sem er þeim nákomið. Opin samskipti tryggja síðan að barnið segi frá atvikum sem bregðast þarf við.“ Miðasala fer fram á Rizzo Piz- zeria við Grensásveg. Miðaverð er 2.000 kr. og er 20 ára aldurs- takmark á tónleikana. Stjörnu- tónleikar fyrir Blátt áfram Sigríður Björnsdóttir Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is KONA í þjónustuíbúðum aldraðra við Dalbraut í Reykjavík brenndist alvarlega þegar eldur kom upp í íbúð hennar síðdegis í gær. Henni er haldið sofandi í öndunarvél á gjör- gæslu Landspítalans. Annar íbúi, þrír starfsmenn, tveir slökkviliðs- menn og lögreglumaður voru einnig fluttir á slysadeild vegna reykeitr- unar og var slökkviliðsmönnunum haldið þar í nótt en hin fengu að fara heim að lokinni rannsókn. Að sögn lögreglu leikur grunur á að kviknað hafi í út frá sígarettu og verið er að athuga hvort eldvarnarkerfi hafi verið í fullkomnu lagi. Tilkynnt var um eldinn til lögreglu klukkan 17:15 og fór allt tiltækt slökkvilið og lögregla á staðinn. Mik- ill reykur var í húsinu og fóru tveir reykkafarar inn í herbergið þar sem eldur var laus og náðu konunni út. Húsið er á tveimur hæðum og var eldurinn í íbúð á neðri hæð en allar 23 íbúðirnar í álmunni voru rýmdar. Samtals eru 46 íbúðir í tveimur álm- um og þurftu um 50 manns aðstoð við að komast út. Marteinn Geirsson, deildarstjóri hjá slökkviliðinu, sagði á vettvangi að nokkurn tíma hefði tekið að flytja fólk úr íbúðum sínum enda sumir í hjólastólum og aðrir háðir göngu- grindum. Slökkvistarfi lauk um níu mínútum eftir að tilkynning barst eða kl. 17:24. Var ákveðið að enginn fengi að gista í íbúðunum í nótt. Íbúum var safnað saman í matsal og þangað mættu níu sjálfboðaliðar og starfsfólk frá Rauða krossinum til að veita íbúunum aðhlynningu og sálrænan stuðning, aðstoða þá við að nálgast lyf sín, svara spurningum, útvega þeim gistingu sem á þurftu að halda og skrá næturstað þeirra, auk þess sem starfsfólki var boðin áfalla- hjálp. Starfsfólki hrósað Oddný Daníelsdóttir, 81 árs, fór heim með dóttur sinni. Hún segist hafa verið í íbúð sinni á neðri hæð- inni þegar starfsstúlka hafi komið og beðið sig að fara út, því það væri kviknað í. „Ég flýtti mér svo mikið að ég gleymdi stafnum mínum,“ segir hún og bætir við að mikill reykur hafi verið á ganginum þegar hún hafi komið fram. Hún segist samt hafa tekið ástandinu með mikilli ró enda starfsfólkið verið mjög yfirvegað. „Starfsfólkið stóð sig mjög vel,“ seg- ir hún. Átta flutt á slysadeild eftir bruna í íbúð fyrir aldraða  Grunur um að kviknað hafi í út frá sígarettu  Eldvarnarkerfið kannað Morgunblaðið/Júlíus Aðstoð Lögregla, starfsfólk, gestir og slökkvilið aðstoðuðu íbúa við að komast út úr íbúðum sínum eftir að ljóst var að kviknað hafði í. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is „ÞAÐ er ekkert annað en þrjóskan sem heldur manni við þetta. Það er ekki hægt að hætta við, maður verður að ljúka þessu eins og hverju öðru verkefni svo maður geti snúið sér að því næsta,“ segir Þórhallur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Neyðarlínunnar, sem unnið hefur að því verkefni með fé- lögum sínum að ganga allar leið- irnar sem lýst er í göngubókinni Ís- lensk fjöll. Þórhallur hefur klifið 143 tinda af þeim 151 sem bókin fjallar um og gengur væntanlega á þann síðasta í lok næsta mánaðar. „Ég geri þetta bara fyrir sjálfan mig,“ segir Þórhallur og er ekkert of hrifinn af því að segja frá verk- efninu – en lætur til leiðast. Verk- efnið felst í því að ganga eftir bók Ara Trausta Guðmundssonar og Péturs Þorleifssonar, Íslensk fjöll – gönguleiðir á 151 tind. Fyrir tæp- um þremur árum ákvað hópur gönguáhugamanna sem kallar sig Tindátana og lengst af var undir forystu Leifs Hákonarsonar að leggja í hann. Markmiðið var að ganga á einn tind að meðaltali á viku og samkvæmt því átti að fara á síðasta fjallið um miðjan næsta mánuð. „Við höfum verið að saxa á bókina og svo vill til að ég er kom- inn lengst. Ég hef nú gengið á 143 tinda og átta eru eftir. Hins vegar var veðrið í vetur svo leiðinlegt að það næst ekki á upphaflegu tíma- áætluninni,“ segir Þórhallur. Gönguleiðirnar eru miserfiðar, sumar léttar og aðrar mjög erfiðar. Snæfell syðra er eftir, eitt það erf- iðasta í bókinni, og hefur Þórhallur gert eina tilraun við það en er nú með félögum sínum að athuga með aðra uppgöngu. Síðasta fjallið verð- ur aftur á móti Baula í Borgarfirði og hana ætlar Þórhallur að fara í fylgd Péturs Þorleifssonar, höf- undar bókarinnar, og fleira fólks, í lok næsta maímánaðar. Hvatning fyrir aðra „Það eiga allir að geta skemmt sér við það að ganga eftir þessari bók. Markmiðið er að ljúka henni og hvetja þannig aðra til að fara einhverjar af þessum gönguleið- um,“ segir Þórhallur. Hann hefur safnað GPS-punktum í ferðunum og mun koma þeim til ferðafélag- anna þannig að hægt verði að gera gönguferlana aðgengilega fyrir al- menning. Þá eru frásagnir og myndir úr völdum gönguferðum á síðunni climbing.is. Ekki þarf að taka fram að göngu- verkefni Þórhalls og félaga, að ganga á eitt fjall á viku samfellt í þrjú ár, er ákaflega krefjandi, bæði líkamlega og andlega. „Það fór út í það að maður hugsar um þetta öll- um stundum. Kvöldin fara í að und- irbúa næsta fjall, búa til ferla og leita upplýsinga. Svo röltir maður á Esjuna til að halda sér í formi þeg- ar ekki gefur til lengri ferða.“ Þórhallur hefur í þessum göng- um sínum komið á staði sem hann hefur ekki séð áður. „Landið okkar er stórkostlegt og það hefur verið ótrúleg upplifun að koma á þessa staði. Sumir þeirra eru aðgengileg- ir almennu ferðafólki,“ segir hann. Nú er 151. tindurinn á næsta leiti og Þórhallur byrjaður að huga að næsta stóra gönguverkefni. Hann reiknar með að það verði að ljúka göngu um Hornstrandir eftir bók Páls Ásgeirs Ásgeirssonar. Segist vera búinn að ganga hluta leiðanna en hyggst snúa sér að því að ljúka þeim þegar tindabókinni verður hallað aftur. Tindátar ganga skipulega á 151 tind á þremur árum eftir bókinni Íslensk fjöll „Þrjóskan heldur manni við þetta“ Þórhallur Ólafsson lýkur verkefninu í lok maímánaðar Lómagnúpur Þórhallur Ólafsson á Lómagnúpi fyrir skömmu, ásamt félaga sínum, Jóni Helga Guðmundssyni. Sífellt bætast tindar í safn þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.