Morgunblaðið - 28.04.2008, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 28.04.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2008 11 LANDIÐ Rannís, Háskólinn í Reykjavík og Vinnova nýsköpunarmiðstöð í Svíþjóð bjóða til kynningarfundar um markaðsþróun á vettvangi (Living lab) í Háskólanum í Reykjavík þriðjudaginn 29. apríl kl. 8:00 til 9:00. Húsið opnar kl 7:45. Fundurinn verður haldinn á 3. hæð Háskólans í Reykjavík við Ofanleiti Léttur morgunverður Setning fundar Rögnvaldur Sæmundsson Háskólanum í Reykjavík Reynsla Svía af markaðsþróun á vettvangi Alexander Nilsson, Vinnova Hvers vegna nota fyrirtæki markaðsþróun á vettvangi? Pernilla Reydmark, Vinnova Geta íslensk fyrirtæki nýtt sér markaðsþróun á vettvangi? Anna María Pétursdóttir, Vífilfell Umræður og fyrirspurnir Markaðsþróun á vettvangi er samstarf framleiðanda við væntanlega kaupendur vöru eða þjónustu. Framleiðandi leitar til fjölda einstaklinga á markaðssvæði sínu með ósk um ábendingar og ráð varðandi hönnun og viðmót vöru eða þjónustu. Framleiðandinn þarf að skilja skoðanir og skilaboð markaðarins til að auka líkurnar á að afurðin falli kaupendum í geð. Margskonar fyrirtæki og stofnanir nota þessa aðferð og eru hugbúnaðarfyrirtæki þar í sérflokki. Fjöldi slíkra verkefna er rekinn á Norðurlöndum og í Evrópu. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Vinsamlega tilkynnið komu á fundinn til Rannís í síma 515 5800 eða með tölvupósti rannis@rannis.is Markaðsþróun á vettvangi opinn kynningarfundur Rannís Rannsóknamiðstöð Íslands Laugavegi 13, 101 Reykjavík www.rannis.is Bolungarvík | Fulltrúar A-lista í Bolungarvík segja að á haustmánuð- um 2007 hafi verið farið að gæta óánægju innan raða A-lista með samstarfið við K-listann. Þá lagði oddviti fram á fundi A-lista tillögu meirihlutans að fjárhagsáætlun bæj- arsjóðs. Komu þá upp efasemdar- raddir er varða fjárhagsstöðu sveit- arfélagsins. Í framhaldi af því óx ólga og óánægja innan A-listans í samstarfinu. Þetta kemur fram í yf- irlýsingu frá fulltrúum listans. Í yfirlýsingunni segir að í ein- stökum nefndum bæjarins hafi kom- ið upp trúnaðarbrestur milli meiri- hlutaaðila og að fulltrúar A-lista hafi verið sniðgengnir í öllu samstarfi innan nefndanna. Vegna þessa hafi minnstu munað að upp úr samstarfi A- og K-lista slitnaði í vetur. Tókst að koma í veg fyrir slit en samstarf listanna hefur ekki orðið samt síðan. Þá segir í yfirlýsingunni að þegar fráfarandi bæjarstjóri gaf út yfirlýs- ingu varðandi staðsetningu Inn- heimtustofnunar sveitarfélaga á Flateyri átti forseti bæjarstjórnar (oddviti A-listans) fund með bæjar- stjóra og lýsti óánægju sinni með viðbrögð bæjarstjóra. Sú yfirlýsing bæjarstjóra endurspeglaði ekki skoðun meirihluta bæjarstjórnar í því máli enda hafði bæjarstjórn ekki ályktað um málið. „Þegar svo oddviti K-lista og jafnframt formaður bæj- arráðs ber blak af bæjarstjóra á op- inberum vettvangi þrátt fyrir að oddviti A-listans hefði sett ofan í við hann, keyrir um þverbak,“ segir í yf- irlýsingunni. Því megi vera ljóst að töluverður aðdragandi sé að slitum meirihlutasamstarfs A- og K-lista í bæjarstjórn Bolungarvíkur. Ótrúleg samsuða af rangfærslum Í yfirlýsingu frá Grími Atlasyni, bæjarstjóra Bolungarvíkur, segir m.a. að yfirlýsing A-listans sé „ótrú- leg samsuða af rangfærslum þar sem sannleikurinn er togaður og beygður að þörfum þeirra sem eiga vondan málstað að verja.“ Grímur segir í sinni yfirlýsingu að Anna Guðrún Edvardsdóttir, oddviti A-listans, hafi engan fund átt með sér þar sem yf- irlýsing Gríms um staðsetningu Inn- heimtustofnunar sveitarfélaga bar á góma. Fundurinn hafi fjallað um önnur mál. „Við ræddum ekkert um Flateyri eða Innheimtustofnun sveitarfélaga. Að halda öðru fram eru ósannindi sem kemur svo sem ekki á óvart þegar litið er á þau makalausu og óheiðarlegu vinnu- brögð sem A-listinn hefur lagt stund á síðustu daga,“ segir Grímur. A- og K-listi kveðast á Hornafjörður | „ÞAÐ var mikið sungið, hlegið og sprellað, eins og venjulega þegar margar kon- ur koma saman,“ segir Ingibjörg Guðjónsdóttir, stjórnandi Kvennakórs Garðabæjar. Kórinn var í gær á leið heim af Lands- móti kvennakóra sem haldið var á Höfn í Hornafirði um helgina. Vel á fjórða hundrað konur úr þrettán kvennakórum tóku þátt í landsmótinu sem Kvennakór Hornafjarðar bauð til að þessu sinni. Konurnar skiptu sér í hópa sem unnu út frá mismun- andi meginhugmyndum. Þær voru því að kynna sér nýja hluti og syngja með nýjum kórum, auk þess að njóta samvistanna og upplifa Hornafjörð á nýjan hátt. Afrakstur helgarinnar var fluttur á tónleikum sem fram fóru í gær, auk þess sem allir þátttakendur sungu saman nokk- ur lög. „Það skemmtu allir sér vel. Með þátttöku í mótinu erum við líka að sýna samstöðu og byggja upp þessi samtök sem við erum hluti af,“ segir Ingibjörg. Vel á fjórða hundrað kvenna tók þátt í landsmóti Morgunblaðið/Sigurður Mar Mikið sungið og hlegið Eftir Kristínu Sigurrós Einarsdóttur Hólmavík | Það var sann- arlega vor í lofti þegar nýtt Þróunarsetur var tek- ið í notkun á Hólmavík á sumardaginn fyrsta. Þróunarsetrinu var fundinn staður í húsi sem er um 60 ára gamalt og hýsti áður skrifstofur Kaupfélags Steingríms- fjarðar og Hólmadrangs. Þar eru í dag átta skrif- stofurými ásamt fundarsal og öðru sameiginlegu rými, auk þess á eftir að innrétta þar eina hæð. Atvinnuþróun- arfélag Vestfjarða, Sauðfjársetur á Ströndum, Fræðslumiðstöð Vest- fjarða, Þjóðfræðistofa, Náttúrustofa Vestfjarða, Strandagaldur, Menning- arráð Vestfjarða og Héraðsblaðið Gagnvegur hafa aðstöðu í húsinu ásamt námsveri sem sveitarfélagið Strandabyggð hefur komið á lagg- irnar. Að stærstum hluta er um að ræða starfsemi sem er tilkomin á Hólmavík á síðustu mánuðum með nýjum störfum sem henni fylgja. Við opnunina kom fram að upp- haflega hefði ekki ríkt mikil bjartsýni um notagildi húss sem þessa á Hólmavík en nú væri það í raun búið að sprengja starfsemina utan af sér þar sem héraðsbókasafnið og héraðs- skjalasafnið hefði í fyrstu verið ætl- aður staður í húsinu en ekki verður rúm fyrir það að svo stöddu. Á sumardaginn fyrsta voru einnig afhentir styrkir Menningarráðs Vestfjarða, samtals að upphæð 17,6 milljónir króna til 47 verkefna og fór sú athöfn fram á Hólmavík. Það má því segja að Strandamenn hafi tekið sumrinu með bjartsýni í huga og bros á vör. Morgunblaðið/Kristín Sigurrós Einarsdóttir Menningarstyrkir Menningarráð Vestfjarða veitti styrki til 47 verkefna að þessu sinni. Styrkþegar standa fyrir fjölbreyttum verkefnum. Húsnæðið sprungið utan af starfseminni Þróunarsetur Strandamenn voru ánægðir við opnun Þróunarseturs. Hér eru Arnar S. Jóns- son, Jón Jónsson og Elín Gróa Karlsdóttir. Þróunarsetur opnað á Hólmavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.