Morgunblaðið - 28.04.2008, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2008 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Buxur í miklu úrvali
Rýmingarsala!
Verslunin flytur í nýtt og enn
glæsilegra húsnæði
25-40% afsláttur af öllum vörum
Allt á að seljast
Arctic Spas Faxafeni 9 (ATH: aðkoma í kjallara bakhús)
Sími 554 7755 www.arcticspas.is & www.heitirpottar.is
GUNNAR Gunnarsson aðstoðar-
vegamálastjóri hefur ákveðið að kæra
Árna Johnsen alþingismann til lög-
reglu vegna ummæla í aðsendri grein
í Morgunblaðinu um samgöngumál
Vestmannaeyja. Telur hann vegið að
sér sem opinberum starfsmanni og
lögfræðingi. Árni kveðst standa við
gagnrýni sína á vinnubrögð Vega-
gerðarinnar og Gunnars.
Gunnar Gunnarsson sendi frá sér
eftirfarandi yfirlýsingu vegna um-
mæla í Morgunblaðsgrein Árna:
„Ég ætti í sjálfu sér að láta skrif
Árna Johnsen um mig í Morgun-
blaðinu í dag, 26. apríl, mér í léttu
rúmi liggja. Það er hins vegar ekki
víst að allir aðrir geri það. Í grein
þessari er vegið að mér sem opinber-
um starfsmanni og lögfræðingi. Því
hef ég ákveðið að kæra Árna Johnsen
til lögreglu fyrir brot á 234. og 235. gr.
almennra hegningarlaga, sbr. 242. gr.
sömu laga. Þar kemur fram, að hafi
ærumeiðandi móðgun eða aðdróttun
verið beint að manni sem er opinber
starfsmaður og móðgunin eða að-
dróttunin varðar að einhverju leyti
starf hans, þá skal slíkt brot sæta op-
inberri ákæru eftir kröfu hans.
Það er ekki óvenjulegt, að opinber-
ir starfsmenn þurfi að sitja undir rógi
og dylgjum, en það er fátítt, að slíkt
komi frá alþingismönnum. Það er
Sjálfstæðisflokknum og íslensku
þjóðinni til skammar, að þessi maður
skuli geta skrifað undir greinar í fjöl-
miðlum sem alþingismaður.“
Verður að þola gagnrýni
Árni sagðist í samtali við Morgun-
blaðið hafa gagnrýnt Vegagerðina
fyrir slæleg vinnubrögð. „Hann verð-
ur bara að þola það eins og honum
best lystir. Það er auðvelt að benda á
ýmisleg skringilegheit í þessu ferli
sem sýna að þetta var ekki rétt unn-
ið.“ Að öðru leyti sagði Árni að Gunn-
ar virtist í yfirlýsingu sinni aðallega
vera að veitast að sér persónulega, til-
veru sinni, nafni og starfi en ekki
leggja í að svara fyrir sig. „Það væru
mörg mál í gangi ef allir kærðu út af
svona,“ sagði Árni.
Kærir Árna John-
sen vegna ummæla
Árni
Johnsen
Gunnar
Gunnarsson
RÓSA Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði,
vill koma eftirfarandi á framfæri
vegna viðtals við Lúðvík Geirsson,
bæjarstjóra í Hafnarfirði í sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins: „Ég er
mjög undrandi á því að bæjarstjórinn
segi að taka þurfi lán til að fjármagna
framkvæmdir í bænum og að lántak-
an sé í samræmi við langtímaáætlun.
Við afgreiðslu á langtímaáætlun bæj-
arins 1. apríl lögðu bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna
fram bókanir og vildu fresta af-
greiðslu áætlunarinnar þar sem í
henni væru ekki skýrar upplýsingar
um fyrirhugaða lántöku. Ég vek
einnig athygli á að í fjárhagsáætlun
fyrir árið 2008, sem samþykkt var í
desember síðastliðnum, er skýrt
kveðið á um að ekki þurfi að koma til
lántöku þrátt fyrir miklar fjárfest-
ingar og framkvæmdir á árinu. En
svo kom það fram á fundi bæjarráðs í
mars að taka þyrfti lán til að eiga fyr-
ir útgjöldum. Bæjarstjórinn virðist
ekki viðurkenna það í dag.
Að mínu mati hefur áætlanagerð
og fjármálastjórnun meirihluta Sam-
fylkingarinnar einfaldlega beðið
skipbrot.
Bæjarstjórinn lýsir því einnig hve
mikla heimavinnu þurfti að vinna
innan Samfylk-
ingarinnar til að
meirihlutinn gæti
tekið ákvörðun
um sölu á hlut
bæjarins í Hita-
veitu Suðurnesja
til OR. Það er ein-
mitt málið og seg-
ir allt um ákvarð-
anafælni
meirihlutans í
Hafnarfirði, því ekki þurftu sveitar-
stjórnirnar í Grindavík, Sandgerði,
Vogum og Garði langan tíma til að
taka tilboðum í þeirra hluti í HS. Þau
sveitarfélög ákváðu strax að selja
þegar ljóst var hve hátt verð var í
boði. Bæjarstjórinn segir einnig í við-
talinu að auðvelt sé að koma eftir á og
segja að nær hefði verið að selja sl.
haust. Það erum við Sjálfstæðismenn
alls ekki að gera, því við lögðum fram
formlega tillögu á fundi bæjarstjórn-
ar 4. september sl. um að selja skyldi
hlutinn strax. Við það væri bæjar-
félagið þegar búið að hagnast um
a.m.k. 1,3 milljarða króna eins og
komið hefur fram og eru einfaldlega
staðreyndir, en ekki leikur að tölum.
Umræðustjórnmál Samfylkingarinn-
ar eru að reynast Hafnfirðingum
dýrkeypt.“
Segir bæjarstjórann
fara rangt með
Rósa
Guðbjartsdóttir
BARNAVINAFÉLAGIÐ Sumargjöf veitti í gær fjóra
styrki samtals að upphæð þrjár milljónir króna til
verkefna í þágu barna og fékk Möguleikhúsið hæsta
styrkinn, tvær milljónir króna.
Styrkirnir voru afhentir í leikskólanum Grænu-
borg í Reykjavík. Mýrin, barnabókmenntahátíð í
Reykjavík 19.-23. september 2008, fékk 200.000
krónur.
Þjóðminjasafnið fékk 300.000 kr. vegna gerðar
hljóðleiðsagnar fyrir börn um grunnsýningu safns-
ins, Þjóð verður til.
Bryndís Guðmundsdóttir, talmeinafræðingur, fékk
500 þúsund krónur vegna þróunarvinnu og útgáfu
framburðarbókarinnar Lærum og leikum með hljóð-
in.
Á meðfylgjandi mynd má sjá fulltrúa styrkþega:
(f.v.) Margrét Hallgrímsdóttir og Rúna K. Tetzschn-
er, f.h. Þjóðminjasafns, Kristín Viðarsdóttir, f.h.
barnabókmenntahátíðarinnar Mýrarinnar, Bryndís
Guðmundsdótir, talmeinafræðingur, Bjarni Ingvars-
son og Pétur Eggerz, f.h. Möguleikhússins ásamt
Jóni Frey Þórarinssyni og Kristínu Ólafsdóttur, f.h.
Barnavinafélagsins Sumargjafar. Barnið á myndinni
heitir Ólafur Karl Kolbeinsson Kvaran.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verkefni í þágu barna
Barnavinafélagið Sumargjöf gefur þrjár milljónir króna