Morgunblaðið - 28.04.2008, Síða 10
10 MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Það er löngu tímabært að skipta út borgarfulltrúastólunum og setja græjur í staðinn sem
láta óþyrmilega vita með kröftugu sparki í óæðri endann um leið og Gosanef byrjar að vaxa.
VEÐUR
Björgvin Sigurðsson, viðskipta-ráðherra, kom heim með þau
gleðitíðindi um daginn frá Kína, að
sér hefði verið boðið að heimsækja
Tíbet og kynnast af eigin raun
ástandinu í landinu.
Þetta eru ánægjulegar fréttir.
Ekki þarf aðefast um, að
kínversk stjórn-
völd munu stað-
festa að um al-
vöru boð hafi
verið að ræða.
Og ekki þarf
að efast um, að
þegar staðfest-
ingin kemur mun ráðherrann fara.
Íslenzkir ráðherrar eru ekki þekkt-
ir fyrir að hafna slíkum boðum.
Eru einhver dæmi um að íslenzk-ur ráðherra hafi hafnað boði til
útlanda? Ekki svo elztu menn muni.
Þess vegna verður spennandi aðfylgjast með væntanlegri ferð
viðskiptaráðherra til Tíbet og
heimkomu hans. Ósagt skal látið
hvað hann fær að sjá.
Ráðamenn í kommúnistaríkjum
Austur-Evrópu voru sérfræðingar í
að sýna gestum sínum bara það,
sem þeir vildu að þeir fengju að sjá.
Kínverjar eru áreiðanlega engir
eftirbátar þeirra í því.
Aðalmálið í Tíbetferð við-skiptaráðherra verður auðvit-
að heimkoman. Ganga má út frá því
sem vísu, að ráðherrann verði upp-
lýstur um, að fulltrúar smáþjóða
eins og Íslendinga geti haft mikil
áhrif á að leysa vandamálin í Tíbet
ef yfirleitt er um einhver vandamál
að ræða.
Og ganga má út frá því sem vísu,að Björgvin taki slíkum til-
mælum vel.
Við erum svo góðir í þessu. Við Ís-lendingar.
STAKSTEINAR
Björgvin
Sigurðsson
Til Tíbet
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
!
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
"! !"
! !
#!"
#!"
!"
!"
"!
"!
! "
!
!"
!
*$BC
*!
$$B *!
$ %
&
'(
<2
<! <2
<! <2
$&% )*+,- .
C
$
<
D87
!
"
#
62
$"% & '
(
"(
)
!"*
$
!+
/0
11
' 2
-')*
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Kolbrún Guðríður Haraldsdóttir | 27.
apríl 2008
Gleðilegt sumar!
Jæja, ég fór loksins í
dag og fagnaði sumrinu
á viðeigandi hátt!
Dró hjólið fram úr
geymslunni, það var að
sjálfsögðu loftlaust eftir
veturinn og engin pumpa til á þessum
bæ. Fór því í göngutúr með hjólið á N1
á Gagnvegi, tekur ekki nema rúman
hálftíma. Veðrið er svo yndislegt að
ég hjólaði extra langa leið heim og
kom við í Bónus til að kaupa efnivið í
heilsu-smoothie.
Meira: bullukolla.blog.is
Ásgeir Kristinn Lárusson | 27. apríl
2008
Við erum það,
sem við étum
Daglega eru hundruð
þúsunda tonna af mat-
vælum flutt heimsálfa á
milli með tilheyrandi
kostnaði og mengun.
T.d. er þorskur fluttur
óunninn frá Noregi til
Kína, verkaður þar í neytendaumbúðir
og sendur aftur til Noregs! Þetta er
bara eitt dæmi um klikkunina, sem er í
gangi varðandi hringsólun (sóun) mat-
væla og greint er frá í NY Times í gær.
Meira: hugdettan.blog.is
Toshiki Toma | 27. apríl 2008
Mannréttindi og kirkja
,,Mannréttindi og kirkja
er mikilvægt efni til um-
hugsunar en það hefur
varla nokkuð verið til
umfjöllunar sem slíkt,
t.d. á málþingi eða ráð-
stefnum. En loksins þorir Reykjavík-
urprófastsdæmi eystra að halda mál-
þing með yfirskriftinni ,,Mannréttindi í
heimi trúarinnar“ þann 28. apríl kl
16:15 í Hjallakirkju.Augljóst er að um-
fangsefni sem eitt málþing getur
fjallað um er afmarkað, en ég fagna
þessari tilraun.
Meira: toshiki.blog.is
Sóley Tómasdóttir | 27. apríl 2008
Fordómafullur
borgarstjóri
Í kvöldfréttum sjónvarps
í gær sagði borgarstjóri
að fyrirætlanir Tjarnarkv-
artettsins um að efla
mannréttindaskrifstofu
borgarinnar hafi verið til-
raun til að þenja út stjórnkerfið.
Hann sagði jafnframt að starfsemi
skrifstofunnar hafi verið óljós og illa
skilgreind. Verkefni skrifstofunnar séu
ekki jafn brýn og að tryggja velferð og
góða þjónustu við borgarbúa.
Þessi ummæli borgarstjórans eru til
skammar, enda byggð á vanþekkingu
á málaflokknum, fordómum og virðing-
arleysi gagnvart minnihlutahópum og
borgarbúum öllum.
Borgarstjóri hélt því ranglega fram
að til hefði staðið að gera sérstakt
mannréttindasvið.
Oddviti F-listans í Tjarnarkvartett-
inum og núverandi borgarstjóri er ekki
betur að sér en það. Efling mannrétt-
indaskrifstofunnar snérist alls ekki
um stjórnkerfi. Hún snérist um að
ráða inn starfsfólk til að skrifstofan
gæti sinnt þeim verkefnum sem
henni ber samkvæmt mannréttinda-
stefnu borgarinnar. Sú stefna var unn-
in í þverpólitískri sátt og samþykkt
með öllum greiddum atkvæðum,
þ.m.t. atkvæði Ólafs F. Magnússonar.
Það er rétt hjá borgarstjóra að starf-
semin hafi verið óljós. Fyrst og fremst
vegna þess að allt þar til Tjarnarkv-
artettinn tók við hafði einni manneskju
verið ætlað að sinna öllum þeim fjölda
verkefna sem borginni ber. Fyrirætl-
anir um starfsfólk á skrifstofuna til við-
bótar við mannréttindastjórann voru til
þess eins að skerpa á starfseminni og
efla afköst hennar.
Að halda því fram að grundvall-
armannréttindi borgarbúa séu ekki
jafn brýn og velferð og góð þjónusta
væri án efa tilefni til afsagnar borg-
arstjóra í sanngjörnu og réttlátu sam-
félagi.
Borgarstjórinn telur 85 milljónir
króna í málaflokk mannréttinda vera
peningaaustur. [...] Borgarstjórinn í
Reykjavík ber ekki hagsmuni borg-
arbúa fyrir brjósti. Hans verk tala.
Hugsjónir sem fyrst og fremst snúast
um dauða hluti. Hús og götur. Bíla og
flugvélar. Borgarbúar, og grundvall-
armannréttindi þeirra eru ekki 85
milljóna króna virði að hans mati.
Slíkur borgarstjóri er ekki starfi sínu
vaxinn!
Meira: soley.blog.is
BLOG.IS
SAMKVÆMT nýjustu viðhorfs-
könnun Capacent Gallup fyrir ut-
anríkisráðuneytið um framboð Ís-
lands til öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna, eru 46,5% aðspurðra
hlynnt því að Íslendingar bjóði sig
fram til öryggisráðsins, 36,1% er
andvígt og 17,4% taka ekki af-
stöðu.
Umræðan um málið
hefur haft mikla þýðingu
Kristín A. Árnadóttir, stjórnandi
framboðs Íslands til öryggisráðs
SÞ, segir ljóst að umræða um mál-
ið hafi mjög mikla þýðingu. Í sept-
ember 2005 hafi 27,9% verið
hlynnt framboði Íslendinga, 53%
andvíg og 19,1% hafi ekki tekið af-
stöðu. Þá hafi verið mjög mikil
neikvæð umræða, meðal annars á
Alþingi, um kostnað við framboðið.
Um mitt ár í fyrra hafi spurningin
verið endurtekin og síðan á sex
vikna fresti.
Upplýsingar um kostnað
Kristín segir að í fyrrasumar
hafi komið fram meiri stuðningur
ríkisstjórnarinnar við framboðið
en áður og fyrirliggjandi upplýs-
ingar um kostnað hófstilltari en
fyrr. Samfara aukinni umræðu og
auknum upplýsingum hafi fólk
frekar tekið afstöðu til málsins og
stuðningur aukist við framboðið.
Spurningin er í reglulegum
skoðanavagni Capacent Gallup.
Úrtakið var 1.380 manns á öllu
landinu, 16-75 ára, handahófsvalið
úr þjóðskrá. Um símakönnun var
að ræða 9.-21. apríl sl. og var svar-
hlutfall 61,3%.
Stuðningur við
framboð til Ör-
yggisráðs eykst
!"
#
$ % &
'()% &
*(
+ ')
,-.
)
/
0 ))
/
*-.
2
*/
34!
/
.
!"#$ "
% #"
# &"#' $"
#$ " %( "