Morgunblaðið - 28.04.2008, Page 16

Morgunblaðið - 28.04.2008, Page 16
16 MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ VESTURLAND Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is GAIL Einarson-McCleery, ræðismaður Ís- lands í Toronto, segir að mikil eftirvænting ríki í röðum félagsmanna Íslensk- kanadíska félagsins í Toronto (ICCT) vegna beins áætlunarflugs Icelandair til borgarinnar frá Keflavík, sem hefst á föstu- dag. Mikil og fjölbreytt starfsemi er hjá ís- lenska félaginu, þar á meðal íslensku- kennsla og þorrablót að íslenskum sið, og segir Gail Einarson-McCleery að áhuginn hafi aukist að undanförnu. Væntanlegt áætlunarflug hafi endurnært mannskapinn og það hafi berlega komið í ljós á Íslands- dögum í fyrra mánuði. Þá hafi félagsmenn og annað áhugafólk um Ísland og íslenska menningu fjölmennt á Íslandskynningu þar sem boðið hafi verið upp á íslenskan mat, ís- lenska tónlist, íslenskar kvikmyndir og fleira frá Íslandi. Ljósmynd/Brandur Ólafsson Spenna Robert Keddy, nýráðinn for- stöðumaður Icelandair í Toronto, Gail Ein- arson-McCleery ræðismaður og Markús Örn Antonsson sendiherra. Eftirvænting vegna beina flugsins MARKÚS Örn Antonsson, sendi- herra Íslands í Kanada, og Ís- lendingafélagið í Toronto heiðr- uðu á dögunum fjóra einstaklinga af vesturíslenskum ættum sem nýlega hafa hlotið æðsta heið- ursmerki Kanada, Order of Can- ada, sem landstjórinn veitir. Um 100 manns af íslensku ætt- erni í Toronto og nágrenni sóttu athöfnina en orðuþegarnir búa í Toronto og nágrenni í Ontario. Markús Örn Antonsson ávarp- aði orðuþegana og vakti athygli á því hve hópur Vestur Íslendinga væri orðinn fjölmennur og dreifður um allt Kanada. Það væri ætíð fagnaðarefni þegar ein- staklingar með rætur á Íslandi sköruðu fram úr í Kanada og fengju æðstu viðurkenningu fyrir framlag sitt til hins kanadíska samfélags. Á Íslandi væri slíkum tíðindum tekið með mikilli ánægju. Orðuþegarnir eru þessir: Tom Cochrane, söngvari og lagahöfundur, sem hefur látið mannúðarmál mjög til sín taka, m.a. með tónleikahaldi og fjár- öflun í þágu baráttunnar gegn sjúkdómum í Afríku. Donald K. Johnson kaupsýslu- maður sem hefur stutt marg- víslega menningarstarfsemi í Kanada af ráðum og dáð og bar- ist fyrir tekjuskattsbreytingum sem urðu til þess að greiða fyrir auknum stuðningi kanadískra fyrirtækja við menningarlífið. rithöfundasambandinu. Hefur hún m.a. skrifað barnabækur og útvarpsleikrit auk þess sem hún hefur flutt daglega pistla hjá út- varpsstöðvum víða um Kanada. Við lok athafnarinnar færði sendiherra Íslands orðuþegunum að gjöf heildarútgáfu af Íslend- ingasögunum í enskri þýðingu en þeir voru auk þess gerðir að heiðursfélögum ICCT. Orðuþegar af íslenskum ættum heiðraðir í Toronto Heiðursfólk Markús Örn Antonsson sendiherra í móttökunni í Toronto ásamt orðuþegunum Betty Jane Wylie, Clara Will og Donald K. Johnson. Tom Cochrane var fjarstaddur. Fjórmenningarnir hafa skarað fram úr á ýmsum sviðum í Kanada Í HNOTSKURN » Íslendingafélagið í Tor-onto (ICCT) var stofnað ár- ið1959 og eru um 300 fjöl- skyldur á póstlistanum. » Sendiráð Íslands í Kanadavar formlega opnað í Ott- awa um 42 árum síðar eða 22. maí 2001. Clara Will er uppeldisfræð- ingur. Hún hefur vakið mikla at- hygli fyrir störf sín að málefnum barna sem þurfa á sérkennsluúr- ræðum að halda. Auk þess er hún forystumaður í velferðarsam- tökum er starfa í þágu barna og unglinga. Betty Jane Wylie er kunnur rithöfundur og ljóðskáld sem hef- ur gegnt formennsku í kanadíska ÚR VESTURHEIMI Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur vala@simenntun.is Borgarnes | Verið er að loka Svæðisskrifstofu Fasteignamats ríkisins í Borgarnesi og miðast lokunin við fyrsta maí, en stutt er síðan starfs- fólkinu, Kristínu Valgarðsdóttur matsfulltrúa og Ingimundi Grétarssyni umdæmisstjóra, varð ljóst að hverju stefndi. Óskiljanlegur flýtir ,,Okkur var tilkynnt um þetta í byrjun mars og þá átti samkvæmt fyrstu áætlun að loka hér á hálfum mánuði, en þeirri ákvörðun var síðan breytt. Við fengum upphaflega þrjá daga til að ákveða hvort við vildum taka tilboði um starf í Reykjavík og tilboðið var ekki skriflegt og frek- ar óljóst,“ segir Ingimundur. Þetta hafi verið brot á stjórnsýslulögunum því þau hafi átt rétt á því að fá rökstuðning fyrir því hvers vegna verið væri að leggja niður störf þeirra. ,,Þetta var einhver óskiljanlegur flýtir, frekar gerræð- islegt, okkur var ekki einu sinni tilkynnt þetta skriflega og áttum að gefa munnlegt svar innan þriggja daga án þess að það lægi fyrir hvað ver- ið var að bjóða okkur. Sá kostur sem mér stóð til boða var að taka á mig 30 til 40% kjaralækk- un og það sér hver maður að svoleiðis gengur ekki. Okkur var boðið að FMR myndi leggja okkur til bíl, að við fengjum að ferðast á milli Borgarness og Reykjavíkur á vinnutíma og á kostnað FMR, en þar komum við að kjarna málsins, því upphaflegu rökin fyrir lokuninni voru þau að þetta væri hagræðing og sparn- aður sem ætti að ná fram á árinu 2008.“ Ingi- mundur segir að ef þetta hefði gengið fram hefði sá kostnaður sem gat sparast verið ein og hálf milljón sem samsvaraði rekstrarkostnaði á skrifstofunni, en kostnaðurinn á móti við bíla- reksturinn var kostnaður upp á þrjár til fjórar milljónir á ári, eftir því hvort þau hefðu bæði tekið störfin. ,,Þannig að rökin sem voru sett fram héldu engan veginn og þetta hefði bara haft útgjaldaaukningu fyrir hið opinbera í för með sér,“ segir Ingimundur. Ferlið var þannig að forstjóri FMR lagði þessa tillögu fyrir á minnisblaði til ráðherra sem gerði ekki athugasemdir við það að skrif- stofunni í Borgarnesi yrði lokað. Þegar nið- urstaðan var ljós sendi Ingimundur öllum sveit- arstjórnum á Vesturlandi og Vestfjörðum bréf með samantekt á öllu í sambandi við rekstur skrifstofunnar. Auk þess sendi hann þingmönn- um kjördæmisins afrit. ,,Í þessari samantekt kemur í ljós að það er enginn sparnaður og það hefði enga hagræðingu í för með sér að loka, en þá var gripið til þeirra raka að segja að verkefni væru orðin óveruleg á þessum svæðisskrif- stofum um allt land, að tíma þeirra væri lokið því verkefnin væru flutt annað. En það er svo undarlegt við þetta að rökin virðast bara eiga við verkefni sem unnin eru á landsbyggðinni og þau áttu þá bara við í Borgarnesi og á Egils- stöðum, en ekki á Akureyri og á Selfossi,“ segir Ingimundur. Hann furðar sig á hversvegna þar hafi engu verið breytt ef þessi störf og verkefni eru óþörf. Starfsstöðin í Borgarnesi hefur verið með næst flest verkefni starfsstöðva á landsbyggðinni og hefur það verið raunin á undanförnum árum. ,,Ef þessi störf hér eru óþörf, þá ættu að vera í uppnámi svona 7 störf á Akureyri, 5 störf á Sel- fossi og 14 störf í Reykjavík, og þá engin verk- efni fyrir það starfsfólk. Þetta bara stenst ekki nánari skoðun því skrifstofan í Borgarnesi vann 14% af öllum verkefnum sem tengjast skrán- ingu og mati fasteigna á landsvísu, en við vor- um með 5% af vinnuaflinu þannig að við vorum að leysa helmingi fleiri verkefni á hvert stöðu- gildi. Auk þess vorum við með langlægsta rekstrarkostnaðinn í þessu útibúi hérna, 2,46% af heildarútgjöldum og með langlægsta rekstr- arkostnaðinn á hvert unnið verk. Alls voru unn- in um 2.600 verkefni á árinu 2007 fyrir sveit- arfélög og einstaklinga, sem hér eftir munu búa við mun lakari þjónustu en verið hefur.“ Stjórnarþingmenn hafa sýnt málinu tómlæti Ingimundur telur að stjórnarþingmenn hafi sýnt málinu ákaflega mikið tómlæti. ,,Ég fékk viðbrögð frá nánast öllum sveitarfélögum á Vesturlandi og Vestfjörðum og þau sendu bréf til að mótmæla þessari ákvörðun og ég veit að samantektin mín var lögð fyrir ráðherra, sem hafði byggt ákvörðun sína á öðrum upplýs- ingum, og þrátt fyrir að enginn hafi hrakið mín- ar upplýsingar í samantektinni ákvað ráðherra að halda sig við ákvörðunina um að loka,“ segir Ingimundur og bætir við að hann skilji ekki tómlæti þingmanna á annan veg en þeir séu þessu samþykkir. Skýrt stendur í stjórnarsátt- málanum að það eigi að flytja og fjölga störfum úti á landi. ,,Það vakti með mér bjartsýni og ég vonaði að störf yrðu flutt hingað, þannig að það er ekki hægt að líta þetta í stjórnarsáttmál- anum öðruvísi en sem markleysu. Eftir að hafa kynnst innviðum Fasteignamatsins á stofnunin fyrst og fremst við stjórnunar- og skipulags- legan vanda en ekki rekstrarlegan. Það er ótrú- legt að búa við það á 21. öldinni að forstjórar ríkisstofnana séu ráðnir á pólitískum for- sendum en ekki faglegum. Þegar menn eru ráðnir fyrir slíka verðleika verða ákvarðanir alltaf í samræmi við það. Opinber rekstur líður í alltof miklum mæli fyrir það að hinir pólitísku flokkar eru að koma sínum mönnum að sem stjórnendum. Síðan eru ekki fagleg sjónarmið ráðandi við ákvarðanatöku, heldur eins og í þessu tilviki, þar sem engin rök eru, geðþótta- ákvörðun sem síðan er varin af ráðherra. Það er algjörlega óþolandi að ríkisstofnanir séu í gíslingu pólitískra afla,“ segir Ingimundur. Hann hefur starfað á skrifstofu FMR á Vest- urlandi og Vestfjörðum í 13 ár og segir það í rauninni forréttindi og mikill skóli að hafa feng- ið að kynnast landsvæðinu og öllu því ágæta fólki sem hann hefur verið í samskiptum við. ,,Þetta hefur verið lærdómsríkur og skemmti- legur tími, og maður hefur aflað sér mikillar þekkingar og reynslu á þessu svæði. Það er auðvitað viss söknuður að starfinu, ég hef eign- ast ágæta félaga hjá FMR, í það heila tekið starfar þar gott fólk. Við Kristín göngum líka stolt frá okkar verkum hjá FMR. Svo er það alltaf þannig að allar breytingar bjóða líka upp á ný og spennandi tækifæri, öllum er hollt að endurmeta stöðu sína og það mun ég gera, enda reynslunni ríkari eftir þessa undarlegu reynslu.“ Engin rök fyrir lokun skrifstofu FMR í Borgarnesi Morgunblaðið/Guðrún Vala Starfsmenn Svæðisskrifstofu Fasteignamats ríkisins í Borgarnesi verður lokað á næstunni. Kristín Valgarðsdóttir matsfulltrúi og Ingimundur Grétarsson störfuðu á skrifstofunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.