Morgunblaðið - 28.04.2008, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2008 19
UMRÆÐAN
Umsóknarfrestur er til 30. maí
Kynntu þér námið á www.hr.is
HJÁ ATVINNULÍFINU
KEMUR ÞÉR Á KORTIÐ
Tölvunarfræði er afar fjölbreytt fagsvið sem býður upp á marga valkosti fyrir nám og störf,
allt frá hagnýtum verkefnum til fræðilegra, frá umsjón tölvukerfa til smíði flókinna hug-
búnaðarkerfa, frá forritun til stjórnunar. Tölvunarfræðinám er góður grunnur fyrir starfsferil á
fjölmörgum sviðum.
Tölvunarfræðinám við Háskólann í Reykjavík einkennist af fjölbreytileika og skapandi um-
hverfi þar sem nemendum gefst kostur á að vinna verkefni í nánum tengslum við fræðimenn
og fyrirtæki.
• BSc í Tölvunarfræði (90 einingar)
• BSc í Hugbúnaðarverkfræði (90 einingar)
• BSc í Stærðfræði (90 einingar)
• MSc í Tölvunarfræði
• MSc í Hugbúnaðarverkfræði
• MSc í Máltækni
• PhD í Tölvunarfræði
• Kerfisfræðigráða (60 eininga
nám í fjarnámi og með vinnu)
TÖLVUNARFRÆÐI
Tölvunarfræðideild HR býður upp á nám í
FRAMKVÆMDA-
ÁÆTLUN um mál-
efni innflytjenda sem
félags- og trygginga-
málaráðherrann Jó-
hanna Sigurðardóttir
hefur nýlega lagt
fram er fagnaðarefni
í sjálfu sér, og já-
kvætt að þingsálykt-
unin kemur inn á
margvísleg svið. Inn-
flytjendamál eru ekki
eitt tiltekið mál held-
ur snerta þau
menntamál, heil-
brigðismál, atvinnu-
mál og fleira.
Þess vegna finnst
mér mikilvægt að
benda á það sem
liggur í framkvæmd-
inni.
Ef við horfum á
þingsályktunina í
heild sinni, þá sést
hve mikil ábyrgð og
mörg verkefni hvíla á
fjölmenningarsetrum
til að sjá um verk-
efni. Það þýðir að
peningar renna frá
ríkistjórninni til fjölmenningarset-
urs sem ríkisstofnunar. Í kjölfarið
ráða svo fjölmenningarsetrin aðra
aðila til að sjá um verkefnið. Þau
ráða því hver fær hvað mikið, og
hver gerir hvað.
Þetta finnst mér frekar óskil-
virk leið til að taka á þessum mál-
um. Peningar tapast þegar ein-
hver „milliliður“ stendur á milli
ráðstöfunarfjár og framkvæmda-
aðila verkefna. Í ýmsum tilvikum í
þessari þingsályktun renna pen-
ingar beint til þeirra sem sinna
sjálfir verkefninu, já, en það er
samt gríðarlega mikið sem hvílir á
fjölmenningarsetrum, sérstaklega
á landsbyggðinni.
Ég myndi frekar mæla með því
að þessi styrkur rynni beint til
viðkomandi aðila – hvort sem við
erum að tala um skóla, spítala,
fræðsluaðila eða aðra sem sjá um
tiltekin verkefni, til að ná mark-
miðum í þeirra starfsgrein. Þannig
væri þessum markmiðum þessarar
þingsályktunar náð með skilvirk-
ari hætti án þess að eiga hættu á
að tapa peningum í milliliði.
Ég er einnig nýbúinn að tala við
fleiri aðila um þessi mál, og mér
var m.a. sagt að síðan málþing
innflytjendaráðs var haldið í jan-
úar síðastliðnum hafi þeir ekki
heyrt orð um þessa áætlun fyrir
en hún birtist á netinu. Grasrótin
var í raun á ýmsan hátt lokuð úti
við vinnslu þessarar áætlunar. Það
er ekki til fyrirmyndar að búa til
einhverja risastóra áætlun, eins og
þessa þingsályktun, án þess að
leita stöðugt náins samráðs og
samvinnu þeirra sem málið snýst
um og þeirra sem mesta þekkingu
hafa.
Eitt mál sem mér finnst afar
mikilvægt í þingsályktunni er at-
vinnumál.
Í þingsályktunni er talað um
eftirlit á vinnumarkaði og fræðslu
til atvinnurekenda, sem leggja
áherslu á að sjá til þess að at-
vinnurekendur virði lög og kjara-
saminga, og einnig um fræðslu til
atvinnurekenda. Ég tel eftirlit á
vinnumarkaði mjög brýnt mál, en
varðandi fræðslu til atvinnurek-
enda getum við augljóslega gert
ráð fyrir því að innlendir atvinnu-
rekendur séu meðvitaðir um hvað
stendur í lögum og kjarasamn-
ingum. Hins vegar eru margir, ef
ekki flestir innflytjendur, sem
koma til landsins, ekki vel upp-
lýstir um atvinnuréttindi sín og
skyldur.
Hér er aðstöðumun-
urinn og óréttlætið
stingandi. Samt er ná-
kvæmlega ekkert í
þingsályktuninni sem
skýrir hvernig rík-
istjórnin ætlar að upp-
lýsa innflytjendur,
sem hingað koma, um
atvinnuréttindi sín og
skyldur.
Við Vinstri-græn
lögðum fram frumvarp
í nóvember síðast-
aliðnum sem mun
gera einmitt það, með
því að veita atvinnu-
leyfi til einstaklinga
en ekki fyrirtækja, og
þar á meðal fá ein-
staklingar í hendur
allar nauðsynlegar
upplýsingar á móð-
urmáli sínu. Um það
vorum við Vinstri-
græn og Samfylkingin
sammála í kosn-
ingabarráttunni í vor.
Við Vinstri-græn
höfum ennfremur lagt
til að tímabundið at-
vinnuleyfi sé veitt út-
lendingi til að ráða sig til starfa í
tiltekinni starfsgrein, og að út-
lendingi sé heimilt að ráða sig til
nýs atvinnurekanda innan þriggja
mánaða frá starfslokum að upp-
fylltum skilyrðum en óháð tiltek-
inni starfsgrein ef sérstaklega
stendur á. Þessum skilyrðum var
bætt við af því það þýðir auðvitað
ekki neitt að veita einstaklingi at-
vinnuleyfi ef hann er ennþá bund-
inn af því að vinna á einum til-
teknum vinnustað. Eins og var
bent á í nóvember síðastliðnum þá
á maður að hafa frelsi til að vinna
þar sem maður vill, þar sem þess
er þörf, að byrja þegar manni
hentar og hætta þegar maður vill
hætta. Þetta er í samræmi við inn-
flytjendastefnu ríkistjórnarinar.
Þetta frumvarp fékk stuðning frá
þingmönnum í Framsókn og
Frjálslyndum, Ungum jafn-
aðarmönnum, og mörgum stofn-
unum hér á landi.
En frumvarp ríkistjórnarinar
frá janúar síðastliðnum skilgreinir
tímabundið dvalarleyfi atvinnu-
leyfi sem „Leyfi veitt útlendingi
til að starfa tímabundið á inn-
lendum vinnumarkaði hjá til-
teknum atvinnurekanda“ og ekk-
ert meir.
Þetta er gríðarlega mikilvægt
mál sem við erum að ræða hér
um. Við megum ekki labba svona
hægt, við megum ekki sætt okkur
við slík hænuskref. Okkar vantar
lagabreytingu sem upplýsir þau
sem hingað koma um atvinnurétt-
indi sín og sem auðveldar aðlögun
og samþættingu. Við þurfum að
sjá til þess að enginn eigi á hættu
á að missa starf sitt vegna at-
vinnurekanda sem reyna að
blekkja erlent starfsfólk, og þær
blekkingar bitna einnig á íslensku
starfsfólki.
Ég tel að þessi þingsályktun-
artillaga sé ekki nógu framsýn og
framsækin í þessum efnum. Það
er ömurlegt ef fólk af erlendum
uppruna er dæmt til að vera ann-
ars flokks þegnar, og þegar fram í
sækir kemur slíkt niður á sam-
félaginu öllu. Ég skora á rík-
istjórnina að hugsa lengra inn í
framtíðina.
Framkvæmda-
áætlun um mál-
efni innflytjenda
Paul F. Nikolov skrifar um at-
vinnuréttindi og aðlögun er-
lends starfsfólks á Íslandi
Paul F Nikolov
» Okkar vant-
ar laga-
breytingu sem
upplýsir þau
sem hingað
koma um at-
vinnuréttindi
sín og sem auð-
veldar aðlögun
og samþætt-
ingu.
Höfundur er varaþingmaður Vinstri-
grænna.
RAUÐI krossinn og aðrar
hjálparstofnanir finna verulega
fyrir áhrifum þeirra
gríðarlegu hækkana
sem hafa orðið á
matvælamörkuðum
heims á und-
anförnum árum.
Þeim fjölskyldum
sem hingað til hafa
átt í erfiðleikum með
að fæða sig kann að
verða það ofviða með
stórauknum út-
gjöldum vegna mat-
vöru.
Hundruð milljóna
manna í fátækum
löndum heims gætu
verið í hættu ef mat-
vælaverð heldur
áfram að hækka
mikið. Versnandi
lífskjör almennings í
fátækustu löndum
heims hafa á þessu
ári víða hrint af stað
hörðum mótmælum
og uppþotum, þar á
meðal á Haítí, Fíla-
beinsströndinni, Filippseyjum,
Indónesíu, Egyptalandi og Eþí-
ópíu. Eftir því sem fram-
færslubyrðin verður þyngri má
búast við auknum óróa og hugs-
anlegum mannúðarvanda af þeim
sökum.
Áhrif eldsneytisframleiðslu
og aukinnar kjötneyslu
Sífellt meiri eft-
irspurn er eftir korn-
vöru til að framleiða
kjöt fyrir þau hundr-
uð milljóna nýrra
neytenda sem aukin
iðnvæðing hefur
skapað. Sem dæmi
má nefna að frá árinu
1980 hefur kjötneysla
í Kína aukist úr 20 kg
í 50 kg á hvern íbúa í
landinu. Hröð upp-
bygging víða í Asíu
hefur jafnframt vald-
ið því að mikil land-
flæmi sem hingað til
hafa verið nýtt til
landbúnaðar hafa ver-
ið tekin undir verk-
smiðjur, vegi og önn-
ur mannvirki.
Mikilvægt er að
margföldun á olíu-
verði sé tekin inn í
myndina við athugun
á markaðsverði mat-
væla. Flutningskostn-
aður hækkar en einnig má nota
kornvöru til að framleiða elds-
neyti og hátt olíuverð gerir slíkar
afurðir eftirsóknarverðar. Þverr-
andi olíulindir og aukin notkun
munu að líkindum hækka olíu-
verð enn frekar og valda aukinni
eftirspurn eftir matvælum til
eldsneytisframleiðslu. Samkvæmt
tölum frá Bloomberg hefur hveiti
hækkað um 130% á síðastliðnum
12 mánuðum, sojabaunir um 87%
og hrísgrjón um 74%. Þessar
hækkanir bætast ofan á verð-
hækkanir undanfarinna ára.
Ríkar þjóðir
bregðist við vandanum
Rauði krossinn stendur fyrir
öflugu hjálparstarfi víða um heim
og aðstoð hreyfingarinnar á
neyðartímum hefur bjargað lífi
milljóna manna á undanförnum
áratugum. Hækkandi mat-
vælaverð í heiminum mun enn
auka á þjáningar þeirra sem hafa
átt erfitt með að fæða sig og fjöl-
skyldur sínar og því hefur þörfin
fyrir öflugan stuðning almenn-
ings í þróuðum ríkjum sjaldan
verið meiri.
Nauðsynlegt er að ríkar þjóðir
heims bregðist fljótt við þeim
vanda sem skapast hefur vegna
þróunar verðlags á matvælum.
Aukinna fjárframlaga er þörf til
að sjá fólki í fátækum löndum
fyrir fullnægjandi lífsviðurværi,
ekki síst með matargjöfum til al-
næmissjúkra, aldraðra og ann-
arra sem ekki eru færir um að
sjá um sig sjálfir. Nauðsynlegt er
einnig að aðstoða efnalitla smá-
bændur í sunnanverðri Afríku og
víðar með útsæði og önnur að-
föng til landbúnaðar. Með því má
tryggja að þessi fátæku samfélög
verði sjálfum sér næg um brýn-
ustu nauðsynjar og þurfi síður á
beinni matvælaaðstoð að halda í
framtíðinni.
Verðhækkanir á
matvælum auka
neyð í heiminum
Kristján Sturluson skrifar um
áhrif verðhækkana á matvæli í
heiminum
Kristján Sturluson
»Neyðar-
beiðnum
Rauða krossins
mun fjölga í
kjölfar verð-
hækkana á mat-
vælamörkuðum
heims.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Rauða kross Íslands.