Morgunblaðið - 28.04.2008, Síða 29

Morgunblaðið - 28.04.2008, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2008 29 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9- 16.30, boccia kl. 10, félagsvist kl. 13.30-15.30. Árskógar 4 | Baðþjónusta kl. 8.15-16, opin handavinnu- og smíðastofa kl. 9-16, söngstund kl. 10.30, félagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Söguklúbburinn „Ég man þá tíð“ kl. 13.30. Slök- unarnudd (s. 535-2760), almenn handavinna, lífsorkuleikfimi, morg- unkaffi/dagblöð, fótaaðgerðir, hádeg- isverður, bútasaumur, kaffi. Á morg- un, þriðjud. 29. apríl, kl. 14.45 mun barnakór Háteigskirkju syngja sum- arlög fyrir kaffigesti. Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í hand- mennt opin kl. 9-12, leiðb/Halldóra, leikfimi kl.10, leiðb/Guðný Helgadótt- ir. Myndlistarnámskeið kl.13-16, leiðb/ Hafdís og brids kl. 14. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan Gullsmára 9 er opin mánudaga og miðvikudaga kl. 10- 11.30. Sími 554-1226. Skrifstofan í Gjábakka er opin á miðvikudögum kl. 15-16. Sími 554-3438. Félagsvist er í Gjábakka í miðvikudögum kl. 13 og föstudögum kl. 20.30 en í Gullsmára á mánudögum kl. 20.30. Félag eldri borgara Kópavogi, ferða- nefnd | Ferð um Vatnsleysuströnd – Voga – Njarðvíkurnar – Keflavík- urflugvöll – Keflavík – Garðskaga – Sandgerði – Hafnir – Reykjanesvita og Grindavík verður farin föstudag- inn 2. maí. Brottför frá Gjábakka kl. 9.45 og Gullsmára kl. 10. Kvöldmatur í Grindavík. Skráningarlistar í fé- lagsmiðstöðvunum. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13, kaffitár kl. 13.30, línu- danskennsla kl. 18, samkvæmisdans, byrjendur kl. 19 og framhald kl. 20. Félagsheimilið Gjábakki | Handa- vinnustofan opin, boccia kl. 9.30, lomber og canasta kl. 13.15 og skap- andi skrif kl. 20. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postulínshópur kl. 9, ganga kl. 11.40, hádegisverður, brids og handavinna kl. 13, Félagsvist kl. 20.30. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl.8, kvennaleikfimi kl. 9-9.45, 10.30, karlaleikfimi kl. 9.30, boccia kl. 10.30, gönguhópur kl. 11. Tekið á móti munum á vorsýningu fé- lagsstarfsins í Jónshúsi kl. 10-16. Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustof- ur opnar kl. 9-16.30, m.a. tréút- skurður og fjölbreytt handavinna. sund og leikfimiæfingar í Breiðholts- laug kl. 9.50. Frá hádegi spilasalur opinn, kóræfing kl. 14.20. Á morgun kl. 13.15 er lagt af stað í rútu á sam- ráðsfund í Ráðhúsinu, skráning á staðnum og s. 575-7720. Furugerði 1, félagsstarf | Furugerði 1. Í dag kl. 9, alm. handavinna, bók- band. kl. 13.15, leikfimi og kl. 14, fram- haldssagan. kl. 15, kaffiveitingar Hraunbær 105 | Handavinna og út- skurður kl. 9, bænastund kl. 10, há- degismatur, myndlist kl. 12, kaffi. Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9-16 hjá Sigrúnu, kortagerð, handstúkuprjón o.fl. Jóga kl. 9-11, Sóley Erla. Frjáls spilamennska kl. 13- 16. Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sport- húsinu kl. 9.30-11.30. Uppl. í síma 554-2780. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun þriðjudag er sundleikfimi í Graf- arvogssundlaug kl. 9.30. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morg- unkaffi og spjall kl. 9.30, sögustund og spjall, Sigurrós kl. 10.30, hand- verks- og bókastofa kl. 11.30, kaffi- veitingar kl. 14.30, söng- og sam- verustund kl. 15. Hárgreiðslustofa sími 552-2488, fótaaðgerðastofa sími 552-7522. Norðurbrún 1 | Smíðastofan og vinnustofa í handmennt opnar kl. 9- 16, boccia kl. 10. Nýtt símanúmer á skrifstofu 411-2760. Hárgreiðslu- stofa Erlu Sandholt, sími: 588-1288. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höf- uðborgarsvæðinu | Brids kl. 19 í fé- lagheimili Sjálfsbjargar á höfuðborg- arsvæðinu, Hátúni 12. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla kl. 9-16, handavinna kl. 9.15-15.30, boccia kl. 11, leikfimi kl 11.45, hádegisverður, kóræfing kl. 14.30, kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, bókband, morgunstund kl. 9.30, boccia kl. 10, upplestur kl. 12.30, handavinnustofan opin allan daginn, söngur kl. 10.30, frjáls spila- mennska kl. 13. Þórðarsveigur 3 | Félagsráðgjafi er á staðnum fyrsta mánud. í mán. kl. 10. Salurinn opinn kl. 13, leikfimi kl. 13.15, boccia kl. 14, kaffiveitingar. Kirkjustarf Áskirkja | Djákni Áskirkju verður með bænastund/morgunsöng á Dal- braut 27, kl. 9.30 í dag. Grafarvogskirkja | TTT fyrir 10-12 ára kl. 17-18 í Grafarvogskirkju og Húsaskóla. Æskulýðsfélag fyrir ung- linga í 8.-10. bekk kl. 20 í Grafarvogs- kirkju. Kristniboðssalurinn | Fundur í kvöld kl. 20 í Kristniboðssalnum Háaleit- isbraut 58-60. Ræðumaður dr. Kjart- an Jónsson. Laugarneskirkja | Morgunbæn í kirkjunni kl. 8. 80ára afmæli. Í dag, 28.apríl, er áttræður skipasmiður úr Hólminum, Erlingur Viggósson. dagbók Í dag er mánudagur 28. apríl, 119. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Enn sagði hann við þá: „Gætið að, hvað þér heyrið. Með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða og við yður bætt.“ (Mk. 4, 24.) Dagsbrúnarfyrirlesturinnverður fluttur á miðviku-dag, kl. 16 á 4. hæð JL-Hússins, Hringbraut 121. Fyrirlesarar eru tveir að þessu sinni. Þorgrímur Gestsson blaða- maður og rithöfundur mun flytja er- indið Öryggissjóður verkalýsðins – sagnfræði eða rannsóknarblaða- mennska? og Hörður Zophaniasson erindið Aldarsaga Hlífar. Þorgrímur og Hörður hafa báðir nýlega gefið út bækur þar sem skoðuð eru efni tengd verkalýðsmálum. Þorgrímur fjallar um bók sína, Ör- yggissjóður verkalýðsins, sem kom út fyrir réttu ári og sagði blaða- manni frá inntaki erindis síns: „Í fyrri hluta fyrirlestrarins fjalla ég um sagnfræðileg vinnubrögð, og velti fyrir mér mismunandi aðferð- um blaðamanns annars vegar og sagnfræðings hins vegar þegar skrifað er um sögu,“ segir hann. „Sagnfræðingar með akademíska menntun hafa óneitanlega umfram blaðamenn að hafa lært sagn- fræðikenningar og vinnubrögð stétt- arinnar. Blaðamaðurinn, sem skrifar um sagnfræðilegt efni, nálgast það hugsanlega öðruvísi að afla heimilda og vinna úr þeim, og rekja söguna með aðgengilegum hætti. Vaknar sú spurning til hverra skrif þessara tveggja stétta eigi erindi, og hvað greini að afrakstur erfiðis þeirra.“ Í seinni hluta fyrirlestrarins skoð- ar Þorgrímur nánar sögu verkalýðs- hreyfingarinnar: „Ég velti því meðal annars fyrir mér hvernig atvinnu- leysistryggingasjóður hefur fjar- lægst verkalýðshreyfinguna. Áður voru það verkalýðsfélögin sem borg- uðu út atvinnuleysisbætur og héldu skrá yfir atvinnuleysi, en nú eru það svæðisbundnar atvinnumiðlanir á vegum sveitarfélaganna sem gegna því hlutverki,“ segir hann. „Vaknar sú spurning hvort valdið hefur fjar- lægst fólkið, og menn hafa jafnvel spurt hvað orðið hafi um verkalýðs- hreyfinguna, hvort hún sé horfin. Nú þegar þegar hætta er á þrengingum í þjóðarbúinu er svo gaman að spyrja hvort verkalýðshreyfingin komi aftur í leitirnar, og hvort fólkið í landinu þurfi á henni að halda.“ Dagsbrúnarfyrirlesturinn er öll- um opinn og aðgangur ókeypis. Að fyrirlestrinum standa Bókasafn Dagsbrúnar, Efling-stéttarfélag, og Reykjavíkurakademían. Fræði | Árlegur fyrirlestur Bókasafns Dagsbrúnar verður á miðvikudag Ráða fræði eða frásögn?  Þorgrímur Gestsson fæddist 1947 og ólst upp í Reykjavík og Hafnarfirði. Hann lauk kenn- araprófi frá Kennaraskól- anum 1967 og stundaði nám í tvo vetur við Blaðamannaskólann í Osló. Þorgrímur starfaði við kennslu, en síðar við blaða- mennsku og hefur unnið við blöð og útvarp. Hann hefur síðustu 13 ár unnið við sjálfstæð ritstörf. Þorgrímur á tvær dætur og eitt barnabarn. Tónlist Grensáskirkja | Árlegir vortónleikar Ála- fosskórsins verða haldnir í dag kl. 16 og mánudaginn 28. apríl í Bókasafni Mosfells- bæjar kl. 20.30. Stjórnandi Álafosskórsins er Helgi R. Einarsson. Meðleikari er Arn- hildur Valgarðsdóttir, píanó. Fyrirlestrar og fundir Eirberg | Í dag flytur Ingibjörg Hjaltadóttir lektor við HÍ og sviðsstjóri á öldrunardeild LSH erindið Flytja aldraðir of fljótt á hjúkr- unarheimili á Íslandi? Málstofan RSH er í stofu C-201, 2. hæð, Eirbergi, Eiríksgötu 34 og er öllum opin. Bent er á bílastæði sunnan við gömlu Hringbrautina. MEÐLIMIR rússnesku rétt- rúnaðarkirkjunnar héldu páskana hátíðlega um helgina. Samkvæmt páska- hefð í Rússlandi á fólk að heilsast þennan dag með orðunum „Kristur er uppris- inn,“ kyssast svo þrisvar og skiptast á rauðmáluðum eggjum. Í borginni Stavropol í suð- vesturhluta Rússlands hafði þessi strákur komið sér vel fyrir á góðum stað og fylgd- ist með guðsþjónustu í til- efni dagsins. Páskar í Rússlandi Atvinnuauglýsingar Litlulaugaskóli – Laugum, Suður - Þingeyjarsýslu Lausar kennarastöður Kennara vantar við Litlulaugaskóla í eina og hálfa stöðu næsta vetur. Um er að ræða bekkj- arkennslu á mið- og/eða unglingastigi, kennslu í smíði og dönsku. Litlulaugaskóli sem er staðsettur á Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu er fámennur skóli með rúmlega 40 nemendur. Í skólanum er því sam- kennsla árganga mikil sem og samstarf við önnur skólastig, bæði leik- og framhaldsskóla ásamt því sem unnið er að spennandi þróunarverkefnum. Umsóknarfrestur er til 14. maí. Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma 464 3166 og 464 3167. Baldur Daníelsson, skólastjóri. Félagslíf MÍMIR 6008280419 l° I.O.O.F. 19  18804288  I.O.O.F. 10  1894288  f.l. HEKLA 6008042819 IV/VV LF. Raðauglýsingar FRÉTTIR SÓL Á Suðurlandi skorar á Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra að hafna umsóknum Landsvirkjunar um virkjanaleyfi í Þjórsá. Þá skora samtökin á sveitarstjórnir að hafna framkvæmdaleyfum og minna á lof- orð sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúp- verjahrepps um að setja virkjun ekki inn á aðalskipulag fyrr en sam- ið hefði verið við landeigendur. „Landsvirkjun ætlar að byrja að virkja Þjórsá, jafnvel þótt samn- ingum við landeigendur sé ólokið,“ segir í ályktun samtakanna. „Eign- arnám vatnsréttindahafa við Þjórsá blasir því við, þvert á gefin loforð ráðamanna, nema ráðherrar Sam- fylkingar grípi inn áður en það verð- ur of seint. Ráðherrar Samfylking- arinnar hafa ítrekað lýst því yfir að eignarnám komi ekki til greina vegna virkjana í neðri hluta Þjórsá. Þeir hljóta því að stöðva slík áform strax: Landsvirkjun hefur tímasett framkvæmdir við virkjanir í neðri hluta Þjórsár. Tímasetningarnar hafa þó aðeins verið kynntar sveit- arstjórnarmönnum en ekki almenn- ingi. Sérstaka athygli vekur að Landsvirkjun ætlar að sækja um virkjanaleyfi til iðnaðarráðherra vegna Hvamms- og Holtavirkjunar nú á næstu vikum og vegna Urr- iðafossvirkjunar í ársbyrjun 2009. Sækja á um framkvæmdaleyfi til sveitarstjórna fyrir Hvamms- og Holtavirkjun í sumar og fyrir Urr- iðafossvirkjun í mars á næsta ári. Samningum við landeigendur á að ljúka í júlí á næsta ári.“ Í áskorun samtakanna segir að þetta hafi kom- ið fram á fundi Landsvirkjunar með sveitarstjórnarmönnum í byrjun apríl. Skora á Össur að hafna leyfum ÁSTÞÓR Magnússon hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram kem- ur m.a. að hann hyggst ekki taka þátt í forsetakosningum í sumar. Í tilkynningunni kemur einnig fram að Ástþór telur að forseti Ís- lands gæti gegnt forystuhlutverki í friðarmálum á alþjóðavettvangi „… og lagt grunninn að nýjum og betri heimi fyrir komandi kynslóðir. […] Þótt margir hafi verið til að for- dæma mig og hugmyndir mínar um að virkja Bessastaði til friðarmála hefur hugmyndafræðin byrjað að skila sér í þjóðarvitundina,“ segir m.a. í tilkynningunni. Ástþór ekki í framboð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.