Morgunblaðið - 28.04.2008, Síða 30

Morgunblaðið - 28.04.2008, Síða 30
30 MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞAÐ SEGIR MÉR ENGINN TIL VERKA! ÉG VILDI AÐ EINHVER GERÐI ÞAÐ... ÉG VEIT EKKI HVAÐ ÉG Á AÐ GERA! ÞAÐ ER ALLT Í LAGI, JÓN... ÞAÐ VEIT ÞAÐ ENGINN ÉG VERÐ AÐ FINNA TEPPIÐ MITT! VÁ! ÉG GET EKKI GENGIÐ Í GEGNUM FLEIRI SVONA NÆTUR! ÞESSIR DRAUMAR! ÞETTA ER Í FYRST SKIPTI SEM MIG HEFUR DREYMT AÐ ÉG SÉ FASTUR UPPI Í SVEIT ÉG ÆTLA EKKI AÐ SLÁST VIÐ ÞIG! FYRST ÞÚ VILT EKKI LÁTA MIG FÁ BÍLINN ÞÁ SKALTU BARA EIGA HANN! ÞAÐ ERT ÞÚ SEM VERÐUR AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ AÐ ÞÚ SKULIR VERA ÞJÓFUR! ÉG GET EKKI FENGIÐ ÞIG TIL AÐ BREYTA RÉTT ALLT Í LAGI... TAKK! HEYRÐU, FÉLAGI! EF ÞÚ ÆTLAR EKKI AÐ RÓLA ÞÁ ÆTTIR ÞÚ KANNSKI AÐ HLEYPA ÖÐRUM AÐ! Í FYRSTA MATREIÐSLUTÍMANUM ÞÍNUM ÆTLA ÉG AÐ KENNA ÞÉR SVOLÍTIÐ SEM ALLAR UNGAR, TILVONANDI BRÚÐIR VERÐA AÐ KUNNA... HVERNIG Á AÐ HITA AFGANGA ÉG Á EFTIR AÐ SVELTA HÉRNA ÚTI Í NÁTTÚRUNNI NÚNA ÞARF ÉG BARA AÐ LÍTA TIL HIMINS OG BIÐJA UM ÞAÐ SEM MIG LANGAR Í OG ÓSKIR MÍNAR VERÐA UPPFYLLTAR ÉG ÆTLA AÐ FÁ TVO OSTBORGARA OG STÓRAR FRANSKAR ÉG KEYPTI KJÓL TIL AÐ VERA Í Á SAMKOMUNNI HJÁ GAMLA SKÓLANUM MÍNUM MIG VANTAR EITTHVAÐ SEM SEGIR, „ÉG ER EKKI LÚÐI LENGUR“ VANTAR ÞIG EITTHVAÐ SEM SEGIR ÞAÐ... EÐA ÖSKRAR ÞAÐ? EINUM OF... HA? NÚNA SKULUM VIÐ LÁTA KONUNA ÞÍNA VITA HVAR ÞÚ ERT HVERNIG ÞÁ? Á ÉG AÐ SETJA SMÁAUG- LÝSINGU Í BLAÐIÐ? ÉG ÆTLA AÐ SENDA HENNI HLUTA AF BOLNUM ÞÍNUM! NEI! BÍDDU! ÉG ER MEÐ BETRI HUGMYND! ÚFF! EF HANN HEFÐI RIFIÐ BOLINN MINN ÞÁ HEFÐI HANN SÉÐ BÚNINGINN dagbók|velvakandi Umræðan um holdafar UNDANFARIÐ hefur umræðan um holdafar farið vaxandi, annars vegar hvað varðar mjóslegna og hins vegar fjörlega vaxna. Eins og þjóð- inni er kunnugt eru nokkrir dagar síðan Frakkar ákváðu að setja í lög að ólöglegt væri að ástunda hvers konar megrunaráróður sem gæti haft í för með sér tjón fyrir þá sem ánetjuðust. Fjörutíu þúsund Frakk- ar eru illa haldnir af átröskunum. Þetta er auðvitað sorglegt því hverju breytir það hvernig við lítum út þeg- ar kemur að því sem skiptir í raun máli? Sumir segja að horaðir séu eins og ríkir, passi holdafarið og passi peningana sína. En hins vegar að feitir séu birtu- og gleðigjafar hvar sem þeir fara. Dæmi hver sem vill um það. Ég sjálf er komin af feitu fólki og játa það fyrir þjóðinni að ég á miklu betra með að líða feita, hafa ánægju og gleði af þeim og meiri tilhneigingu en ekki til að þefa slíka uppi. Mér finnst í raun ég vera komin heim þegar íturvaxið fólk verður á vegi mínum því að mamma mín var feit, afi minn var feitur, flest mitt fólk hefur átt við þetta vanda- mál að stríða og þar á meðal hef ég barist við það sjálf. Læknisfræðin myndi örugglega styðja þá hugmynd að ef fólk verður veikt þá hlýtur að vera betra að hafa 10 kíló á sér af aukaforða því þá hefur það frekari varnir heldur en horaðir sem engu mega tapa. Ég er ekki að mæla með offitu en ég er heldur ekki hrifin af öllum þessum gegndarlausu megr- unarkúrum þar sem fólk missir 30- 50 kíló á 5–10 mánuðum. Það er miklu hollara að brosa við bæði feitu og mjóu fólki og vera minnug þess að ýkjur í hvaða átt sem er eru aldr- ei góðar. Jóna Rúna Kvaran. Lýðræði eða skrílræði. ÉG styð aðgerðir lögreglu 23. apríl heils hugar, enda er hennar hlutverk að halda uppi lögum og reglu. Vöru- bílstjórar áttu upptökin og bera því ábyrgð, þótt í hópinn bættist skríll, sem þyrsti í hasar. Eftir ítrekaðar aðvaranir lögreglu um beitingu valds, ef vegurinn yrði ekki rýmdur, lét hún til skarar skríða eftir mót- þróa og hótanir óeirðaseggja. Ég hef verið hallur undir félags- hyggjuflokka, en mér blöskrar að at- kvæðasmölun Vinstri grænna og Framsóknar kemur í veg fyrir að þeir fordæmi lögbrot undir yfirskini mótmæla. Í þessum flokkum eru vafalaust fáeinir viti bornir menn, sem átta sig á því, að lýðræði er ekki sama og skrílræði, þótt lýður sé stundum notað í neikvæðri merk- ingu. Ætli þeir að byggja fylgi sitt á skrílnum, hljóta skynsamir menn að flýja raðir þeirra frekar fyrr en seinna. Ef það er eilífðarhlutverk stjórnarandstöðu að vera eilíft á móti öllu, er ég ekki hissa á því að hún skuli alltaf vera í minnihluta. Ég hvet svo að lokum vörubílstjóra til að fara að lögum, jafnt umferðar- lögum sem öðrum, og bendi þeim á að nota atkvæðið sitt betur í næstu kosningum. Ef þeir sætta sig ekki við íslensk lög, er alltaf möguleiki að flytja úr landi. Þórhallur Hróðmarsson. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is HÉR er ein forvitin kýr sem þefar af henni Þórhildi en hún er í öruggu fangi Ásgerðar frænku sinnar. Kýrnar láta ekki alltaf nægja að þefa held- ur smakka þær gjarnan líka og eins gott að passa litrík föt sem gætu bragðast vel. Morgunblaðið/hag Í Húsdýragarðinum FRÉTTIR HIN árlega kaffisala Kristniboðs- félags kvenna verður í Kristniboðs- salnum að Háaleitisbraut 58-60, fimmtudaginn 1. maí og hefst kl. 14. Allir eru velkomnir og mun ágóð- inn renna til kristniboðs, hjálpar- og þróunarstarfs m.a. í Kenýa og Eþíópíu. Í Kenýa hefur skólastarf verið ríkur þáttur í kristniboðsstarfinu og hafa um 60 grunnskólar verið byggðir, sem Íslendingar hafa lagt drjúgan skerf til. Nú reisir Kristni- boðssambandið fimm framhalds- skóla í Pókothéraði í Kenýa með aðstoð ÞSSÍ. Sr. Jakob Ág. Hjálm- arsson er þar nú við kennslu á Fræðslumiðstöð kirkjunnar í Ka- pengúría og tvær íslenskar fjöl- skyldur starfa á vegum Kristni- boðssambandsins í Eþíópíu. Verkefnin eru óþrjótandi. Kristniboðsfélag kvenna er elsta kristniboðsfélag á landinu, rúmlega hundrað ára. Ein af mörgum fjár- öflunarleiðum þess er hin árlega kaffisala. Í skóla Unglingsstúlkur í einum af nýju framhaldsskólunum í Pókothéraði. Kaffisala Kristni- boðsfélags kvenna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.