Morgunblaðið - 28.04.2008, Síða 36
36 MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Maður borgar 400 kall fyr-ir kaffi á kaffihúsumborgarinnar.
Kostnaðarverð er varla meira
en 50 kall.
Fyrir hvað er maður að borga
350 kall?
Upplifunina!
Það er málið. Það er upplifun
að drekka kaffi á kaffihúsi. Hafið
þið ekki fundið fyrir því? Maður
verður allur annar.
Maður er að borga fyrir stemn-
inguna, andrúmið, fólkið sem sit-
ur allt í kring, húsið, innrétting-
arnar, viðmót starfsfólksins,
útsýnið, suðið sem hangir alltaf í
loftinu á þessum stöðum, sum-
staðar á góðum kaffihúsum má
jafnvel heyra gott bít, þið vitið,
hvæsið í kaffivélinni, klingið þeg-
ar kaffilagarinn lemur fantinum í
vélina, klírrið í leirtauinu, þið vit-
ið, kling, bamm, stím, hott, hott,
fussss.
Við erum yfirleitt að greiðamest fyrir andrúmsloftið,
reynsluna, upplifunina af því að
fá okkur hlutina, pulsu, peysu,
plötu, lamb.
Líka þegar við kaupum bíl:
Bíllinn er vafalaust fjór-
hjóladrifinn þótt við förum aldrei
út úr 101. Það er bara svo góð
tilfinning að hafa drif á öllum.
Svo mikil upplifun. Öðruvísi upp-
lifun. Það liggur við að maður
hafi farið á fjöll í raun og veru.
Hafið þið prófað að opna vín-
flösku með tappatogara frá
Georg Jensen?
Prófið það!
Við erum öll í því að reyna aðupplifa lífið.
Og við erum til í að borga.
Látið mig hafa vatn en hafið
það í fallegu glasi á kringlóttu
borði á kaffihúsi við glugga sem
snýr út á fallegt torg. Inni þarf
að vera fólk. Fyrir utan þarf að
vera kona með hund og maður að
leika sér við dóttur sína. Það þarf
að vera sól. Það þarf að vera einn
róni. Erlent dagblað. Þjónn í
hvítri skyrtu. Maður með kringl-
ótt gleraugu. Síðan eitthvað
óvænt. Ambíans. Auðvitað.
Reikningurinn skal vera upp á
dágóða summu.
Hamingjan felst í því að borga.
Að borga
»Hafið þið prófað aðopna vínflösku með
tappatogara frá Georg
Jensen?
Prófið það!
Morgunblaðið/Þorkell
Kaffi „Sumstaðar á góðum kaffihúsum má jafnvel heyra gott bít.“
AF LISTUM
Þröstur Helgason
throstur@mbl.is
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
PÁLMI Sigurhjartarson er kunnur
fyrir störf sín með Sniglabandinu
og dúkkar auk þess reglulega upp
hér og hvar á bak við nótnaborðið.
Hann er hins vegar minna þekktur
fyrir leikhústónlist sína en nú hefur
verið gerð bragarbót á því því að
þrjú þannig verk koma nú út á staf-
rænu formi á tónlist.is. Um er að
ræða tónlist við leikritin Fröken
Júlía (2001), Þjóðarsálin (2006) og
Óskin (2008) en það er barnaleikrit
sem verður frumsýnt í Bókasafni
Kópavogs 3. maí næstkomandi.
Leikritið er samið af Pálma og
konu hans, Sigrúnu Sól Ólafsdóttur
leikstjóra.
„Það er þetta með leikhústónlist-
ina að henni hættir til að gufa upp
um leið og sýningum er hætt,“ segir
Pálmi. „Ég passaði mig á því að
hljóðrita þetta allt saman og því
hæg heimatökin að koma þessu út.“
Ólík verk hafa kallað á ólíkar
nálganir en tónlistin á það þó sam-
eiginlegt að vera samin í mikilli ná-
lægð við allt leikhúsferlið.
„Mér finnst best að vinna tónlist-
ina á miðju sviði ef svo mætti
segja,“ útskýrir Pálmi. „Hún er því
unnin í nánu samstarfi við leikhóp-
inn og ég hef nánast spunnið hana
eftir andblæ atriðanna. Reynslan úr
Sniglabandinu kom sér vel, en við
stýrðum útvarpsþáttum sem gengu
út á það að spinna á staðnum.“
Þjóðarsálin var t.a.m. sýnd í reið-
höll Gusts í Kópavoginum og þá sat
Pálmi á forargólfi á bak við flyg-
ilinn með brokkandi hesta í kring-
um sig. Lögin fyrir Óskina samdi
hann hins vegar á gítar, hljóðfæri
sem er honum alla jafna ekki tamt
að vinna á.
„Mér fannst nauðsynlegt að „af-
læra“ dálítið fyrir það verk. Hljóm-
unum fækkaði þegar ég var kominn
með ókunnugt hljóðfæri í hend-
urnar og það verklag hentaði af-
skaplega vel fyrir þetta verkefni.“
Annars er Pálmi á leið til Lund-
úna með Gísla Erni Garðarssyni en
þar mun hann dvelja um tveggja
mánaða skeið. Ástæðan er uppsetn-
ing á söngleiknum Ást, sem nú kall-
ast Love – The Musical en Pálmi er
tónlistarstjóri sýningarinnar.
„Ég sé um að spila alla tónlistina
þar. Við erum búin að skipta út öll-
um íslensku lögunum og byggjum
eingöngu á breskri popptónlist. Ég
finn mig afskaplega vel í þessu leik-
húsumhverfi – og í þessari sýningu
er ég t.d. aleinn með tónlistina. Það
er ekkert band á sviðinu. Það gerir
hlutina bæði einfaldari og flóknari.
Allt klabbið er á einum herðum en
um leið er maður frjáls til að gera
hlutina eftir eigin höfði.“
Pálmi Sigurhjartarson fer til London til að sjá um
tónlistina í bresku uppfærslunni á söngleiknum Ást
Morgunblaðið/hag
Tónskáld Pálmi Sigurhjartarson segir að leikhústónlist hætti til að gufa upp þegar sýningum lýkur.
Spunameistarinn
ÞEGAR Tom Cruise kom síðast
fram í þætti Opruh Winfrey hagaði
hann sér vægast sagt undarlega,
hoppaði í sófanum, æpti ástarjátn-
ingar til Katie Holmes út í loftið og
endaði á því að hlaupa baksviðs og
teyma hana fram. Framkoma hans í
þættinum hefur haft mjög slæm
áhrif á orðspor hans og atvinnuhorf-
ur sem leikara. Nú hefur honum ver-
ið boðið að koma aftur í tilefni þess
að 25 ár eru liðin frá frumsýningu
kvikmyndarinnar Risky Business
þar sem Cruise sló í gegn í fyrsta
sinn.
Í þættinum verða sýnd myndbönd
sem vinir Cruise hafa gert honum til
heiðurs á þessum tímamótum. At-
hygli vekur að
viðtalið mun fara
fram á heimili
Cruise-hjónanna
í Colorado, en
ekki í sjónvarps-
sal. Oprah Win-
frey hefur senni-
lega lært það af
reynslunni að
hleypa honum ekki nálægt sófanum
sínum.
Fær Cruise aftur í þáttinn
Oprah Winfrey