Morgunblaðið - 28.04.2008, Side 40

Morgunblaðið - 28.04.2008, Side 40
MÁNUDAGUR 28. APRÍL 119. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Alvarlega slösuð  Átta voru fluttir á slysadeild Landspítalans eftir eldsvoðann að Dalbraut 27 í Reykjavík síðdegis í gær. Samkvæmt upplýsingum frá slysadeild Landspítala voru meiðsl flestra minniháttar nema konunnar sem var í íbúðinni þar sem eldurinn kom upp. Hún liggur alvarlega slös- uð á gjörgæsludeild. » Forsíða Vilja norskt svínasæði  Svínabændur vilja fá að flytja inn svínasæði frá Noregi til notkunar á svínabúum hér á landi, í stað þess að flytja inn kynbótadýr í gegnum ein- angrunarstöðina í Hrísey. Yf- irdýralæknir hefur lagst gegn mál- inu. » 2 Samningurinn skoðaður  Núgildandi samningur við rekstr- araðila Breiðafjarðarferjunnar Baldurs verður tekinn til endurskoð- unar við næstu endurskoðun sam- gönguáætlunar í ljósi þess hvernig gengur að bæta vegasamband við suðurhluta Vestfjarða. » 2 Fangi í aldarfjórðung  Rúmlega sjötugur karlmaður hef- ur verið handtekinn í Austurríki grunaður um að hafa haldið dóttur sinni fanginni í kjallara í 24 ár. Hann er einnig grunaður um að hafa átt með henni sjö börn. » 14 SKOÐANIR» Staksteinar: Til Tíbet Forystugreinar: Millistig | Þriðja leiðin Ljósvaki: Ný Evrópa í boði Palin UMRÆÐAN» Framkvæmdaáætlun um málefni innflytjenda Verðhækkanir … auka neyðina Setningarhátíð Ólympíuleikanna … Færri kaupsamningar Þvagskál án vatns það sem koma skal Opinn fundur um fasteignamarkaðinn Síðasti garðurinn FASTEIGNIR » Heitast 7°C | Kaldast -1°C  Norðan-strekkingur og slydda með köflum norðanlands en skýjað með köflum sunnan til. Hlýjast sunnanlands. » 10 Reynslan úr Snigla- bandinu kemur sér vel fyrir Pálma Sig- urhjartarson þegar hann semur leik- hústónlist. » 36 TÓNLIST» Snigillinn í leikhúsinu KVIKMYNDIR» Stendur sig illa í nýjasta hlutverkinu. » 37 Ný kynslóð kvik- myndaáhugafólks fær tækifæri til þess að kynna sér verk meistarans Stanley Kubrick. » 34 KVIKMYNDIR» Gallokuð augu FÓLK» Hláturinn vinnur gegn sorginni. » 33 FÓLK» Fann mjög fjölhæfan starfskraft. » 33 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Lokaði dóttur sína inni í 24 ár 2. Sturla: Ég berst fyrir ykkur 3. Bein útsending frá Hnjúknum 4. Mótmælaganga Sturlu OLÍUMÁLVERK eftir Nínu Tryggvadóttur var slegið á 3,8 milljónir króna á listmunauppboði Gallerís Foldar á Radisson SAS Hótel Sögu í gærkvöldi. Tryggvi Þór Friðriksson hjá Galleríi Fold segir að uppboðið hafi gengið mjög vel, metverð hafi fengist fyrir ýmsa hluti og fáein verk hafi verið dregin til baka þar sem ekki hafi fengist viðunandi verð fyrir þau. Málverkið Hafnarsvæðið eftir Nínu Tryggvadóttur var metið á 4 til 5 milljónir og bendir Tryggvi Þór á að með 10% uppboðsgjaldi og um 6% höfundarréttargjaldi hafi þurft að greiða um 4,5 milljónir fyr- ir verkið. Á uppboðinu var 131 verk boðið upp við hamarshögg. Tvær vatnslitamyndir eftir Ás- grím Jónsson fóru á um 2,4 millj- ónir og um 3,5 milljónir króna með gjöldum. Tvær myndir eftir Krist- ján Davíðsson voru slegnar á tæp- lega 2 milljónir króna. Tryggvi Þór segir að húsfyllir hafi verið í Súlnasalnum í byrjun og hann geti ekki annað en verið ánægður með uppboðið. Þetta var síðasta uppboð Gallerís Foldar í vetur og þráðurinn verður svo tekinn upp aftur í haust. Hafnarsvæðið eftir Nínu fór á 3,8 milljónir Morgunblaðið/Árni Sæberg Ánægja með listmunauppboð Gallerís Foldar LANDSPÍTALINN hefur auglýst eftir geislafræðingum til starfa en 40 af 52 geislafræðingum hætta störfum 1. maí ef ekki leysist úr deilunni milli þeirra og stjórnenda spítalans. Ef svo fer sem nú horfir verður sú raunin. Hansína Sigurgeirsdóttir, deildar- stjóri á myndgreiningarsviði LSH, segir að ef uppsagnirnar gangi eftir þurfi að ráða jafnmarga í staðinn og rætt hafi verið um að auglýsa á Norð- urlöndunum og jafnvel á Írlandi. Þeg- ar starfa sex norskir geislafræðingar á Landspítalanum og er einkum horft til Noregs í von um framtíðarstarfs- krafta. | 4 Horft til Noregs NÝJASTA æðið í netheimum er hringitónn sem er upp- taka af kröftugum viðvörunarhrópum lögreglu þegar pip- arúða var beitt á mótmælendur við Rauðavatn í síðustu viku. „Gas! Gas! Gas! Af götunni!“ hrópar sérsveit- armaður á upptökunni eins og frægt er orðið, en mynd- skeið af átökunum var mikið sýnt í sjónvarpi. Ungur Mosfellingur setti hringitóninn á netið, að eigin sögn vegna þess að honum hefði þótt „svolítið kómískt móment, þetta öskur.“ Í gær höfðu ríflega 2.200 manns farið inn á síðuna gas.rlr.is og rúmlega 1.000 sótt hringitóninn. Þótt áhorfendum heima í stofu hafi sumum brugðið við hrópin, þá segir Arnar Rúnar Marteinsson yfirmaður mannfjöldastjórnunarhóps Lögreglunnar á höfuðborg- arsvæðinu um eðlileg og úthugsuð vinnubrögð að ræða. | 4 Gas! Hringitónn slær í gegn Morgunblaðið/Júlíus Öskur Viðvaranir lögreglu eru orðnar að hringitóni. ÞAÐ getur verið dýrt að vera kvik- myndaunnandi. Sjaldgæfar eða gamlar myndir getur verið erfitt að komast yfir hér á landi og þó að sendingarkostnaður sé ef til vill eðlilega hár þá eru það önnur gjöld sem valda verulegri verðhækkun. Tökum dæmi af frönskunema sem pantar sér mynddiskinn um Amélie hjá Amazon í Frakklandi. Verð disksins er átta evrur eða 923 kr. og sendingarkostnaðurinn er 1.037 kr. Heildarverð disksins frá Amazon er því 1.960 kr. Þegar til Íslands kemur æsast svo leikar. Þá er 196 kr. tolli smurt of- an á, 528 kr. í virðisaukaskatt (sem reiknast ekki bara af verði disksins heldur líka af sendingargjaldinu) og svo 450 kr. í tollmeðferðargjald. En það gjald er óháð stærð og þyngd sendingar. Amélie kostar því hingað komin 3.134 kr. eða 27 evr- ur. Ágæt verðhækkun það. Auratal jmv@mbl.is RAPPARINN dularfulli, Móri, er að snúa aftur eftir nokkurt hlé. Hann varð einn sá fyrsti til að semja alvöru íslenskt bófarapp á sínum tíma. Hann skýtur föstum skotum að öðrum íslenskum röppurum og tekur Poetrix, Erp og Rottweilerhundana sérstaklega fyrir í nýjustu textun- um. Reyndar gæti meira grín en al- vara verið á bak við beittustu send- ingarnar. | 37 Sendir röppurum tóninn ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.