Morgunblaðið - 29.04.2008, Page 1
STOFNAÐ 1913 116. TBL. 96. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
NÝR LÍFSSTÍLL
HÚN HJÓLAR Í VINNU OG Í VERSLUN OG HVET-
UR FÓLK TIL AÐ GERA HJÓLASAMNING >> 19
FRÉTTASKÝRING
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
ÞRÁTT fyrir að brunavarnakerfi í þjónustu-
íbúðum fyrir aldraða á Dalbraut hafi virkað
tókst ekki að koma í veg fyrir banaslys í
brunanum sem þar varð á sunnudagskvöld.
Tvær úttektir voru gerðar á kerfinu í febr-
úar af ólíkum aðilum.
Brunamálastofnun hefur nú slysið í heild
sinni til rannsóknar, en stofnunin hefur það
lögbundna hlutverk að rannsaka öll bruna-
tilvik sem leiða til banaslyss.
Að sögn Björns Karlssonar bruna-
málastjóra er í byggingarreglugerð kveðið á
um mun ríkari eldvarnakröfur til húsnæðis á
borð við sérbýli fyrir aldraða og fatlaða.
Sama gildir um hótel, heimavistir o.s.frv.
Í lokuðum rýmum í húsnæði af ofan-
greindu tagi er ekki nóg að sé reykskynjari,
heldur sjálfvirkt brunaviðvörunarkerfi. Þar
skal líka vera út- og neyðarlýsing, viðeigandi
handslökkvitæki, brunaslöngukerfi og fleira.
Líta atburðinn alvarlegum augum
Björn segir að svo virðist sem brunavarnir
á Dalbraut hafi uppfyllt kröfur reglugerðar.
„En samt gerist þessi hræðilegi atburður,“
segir hann. „Það eru einmitt manneskjur
sem e.t.v. eru ekki að öllu leyti sjálfbjarga,
sem ætlunin var að verja þegar þessar regl-
ur voru settar í byggingarreglugerð. En sú
varð ekki raunin nú og lítum við atburðinn
mjög alvarlegum augum. Við ætlum að
reyna hvað við getum til draga af þessu lær-
dóm.“
Sigurður Friðriksson, framkvæmdastjóri
Félagsbústaða, sem rekur þjónustuíbúðir
aldraðra við Dalbraut, segir að staðfest hafi
verið í gær á fundi með SHS, velferðarsviði
Reykjavíkurborgar og forstöðumanni Dal-
brautar, að brunavarnakerfið á Dalbraut
hafi virkað og sent boð til Öryggismiðstöðvar
Íslands sem hafði þá samband við Dalbraut
og fékk þær upplýsingar að búið væri að
hringja á lögreglu og slökkvilið.
Sigurður segir að úttekt á vegum öryggis-
fyrirtækisins Securitas á brunavörnum hinn
18. febrúar sl. hafi sýnt að kerfið var í lagi, en
Securitas setti upp kerfið á sínum tíma og
þjónustar það. Nokkrum dögum fyrr hafði
eldvarnaeftirlit SHS tekið út kerfið. Nokkr-
ar kröfur voru gerðar eftir úttektina sem
orðið var við að sögn Sigurðar. Auk þess
voru nokkrar ábendingar til lengri tíma litið,
t.d. þær að eldvarnahurðir hafi ekki virkað
sem skyldi. Reykur smaug meðfram hurð-
inni og upp á 2. hæð og þurfti að rýma hana.
Morgunblaðið/Júlíus
Bruni Sjálfvirk viðvörunarkerfi þurfa að
vekja rétt viðbragð við eldsvoðum.
Reyk-
skynjarar
ekki nóg
Ríkari eldvarnakröfur
gerðar til sérbýla
VÍSITALA neysluverðs hækkaði
um 3,4% í apríl og hefur ekki
hækkað jafnmikið milli mánaða í
tuttugu ár. Samkvæmt þessu er
tólf mánaða verðbólga nú 11,8% og
hefur það m.a. þau áhrif að mán-
aðarleg greiðslubyrði af 18 millj-
óna króna íbúðaláni, sem tekið var
hjá Íbúðalánasjóði fyrir einu ári,
hefur hækkað um rúmar 6.000
krónur á einum mánuði.
Forsætisráðherra, Geir H.
Haarde, sagði á Alþingi í gær að
verðbólgutölurnar sem gefnar
voru út í gær hefðu verið verri en
búist hefði verið við. „Hins vegar
hefur það legið í hlutarins eðli að
við myndum ganga í gegnum til-
tekinn verðbólgukúf.“ Sagði Geir
að nú væri líklegt að verðbólgukúf-
urinn gengi hraðar yfir en áður var
talið.
Grétar Þorsteinsson, forseti
ASÍ, segir Íslendinga í mjög slæm-
um málum takist ekki að hemja
ástandið. „Ég held að við séum
stödd á ögurstundu næstu daga og
næstu vikur.“ Segir hann ljóst að
kjarabætur sem náðust í kjara-
samningi SA og ASÍ í febrúar
rýrnuðu dag hvern. Segir hann það
„deginum ljósara að ekki einu sinni
kraftaverk getur tryggt forsendur
kjarasamninga þegar kemur að
þessari endurskoðun eða uppsögn
eftir atvikum“.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri SA, segir fulltrúa
SA og ASÍ funda reglulega um
kjaramál en ekki hafi verið reiknað
með svo mikilli verðbólgu við gerð
kjarasamninga í febrúar. „Þetta er
allt of mikil verðbólga.“
Mesta hækkun milli
mánaða í tuttugu ár
Formaður ASÍ segir kraftaverk ekki geta tryggt forsendur kjarasamninga
Í HNOTSKURN
» Vísitala neysluverðs í aprílhækkaði um 3,4% frá því í
fyrri mánuði og hefur vísitalan
ekki hækkað meira milli mán-
aða í tuttugu ár, eða síðan í júlí
1988.
» Tólf mánaða verðbólgamælist nú 11,8% og verð-
bólga til þriggja mánaða
mælist 28%. Án húsnæðisliðar
er tólf mánaða verðbólga
10,6%. Verðbólgutölur | 8 og miðopna
Superstar >> 45
Öll leikhúsin
á einum stað
Leikhúsin í landinu
LÖGREGLAN hafði hendur í hári
tveggja veggjakrotara aðfaranótt
mánudags en rekja mátti slóð
þeirra frá miðborg Reykjavíkur
upp í Hlíðar þar sem þeir voru
handteknir.
Benedikt Lund hjá rannsókn-
ardeild lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu segir „krotara“
plágu og telur að ekkert muni
breytast fyrr en almenningur rís
upp á móti og menn fara að skilja
að um er að ræða eignaspjöll en
ekki list. | 4
Morgunblaðið/Valdís Thor
Röktu slóð krotaranna
frá miðborg upp í Hlíðar
Lýti Þetta var meðal þess sem krotað var á veggi aðfaranótt mánudags.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
FORSTJÓRAR Landspítalans
greindu frá því í gær að ákveðið
hefði verið að fresta breytingum á
vaktafyrirkomulagi geislafræðinga
og skurð- og svæfingarhjúkrunar-
fræðinga til 1. október í haust en
þær áttu að taka gildi 1. maí.
Fresturinn var ákveðinn vegna
sjónarmiða sem hafa komið fram
um að starfsmenn fái lengri tíma til
samráðs og til að koma að sínum
sjónarmiðum. Áskorun Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga um
lengri tíma til að tryggja samráðs-
ferli milli stjórnenda og starfs-
manna var einnig höfð til hliðsjón-
ar.
Útspilið rætt
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formað-
ur Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga, segir að hjúkrunarfræð-
ingarnir, sem hlut eigi að máli, hafi
hist á þriðjudögum og haldi upp-
teknum hætti í dag. Þá verði farið
yfir breytta stöðu í ljósi ákvörðun-
ar stjórnenda spítalans og eftir
fundinn megi gera ráð fyrir að fyr-
ir liggi hvort afstaða þeirra hafi
breyst. Hafa beri í huga að um ein-
staklingsuppsagnir hafi verið að
ræða og því taki félagið ekki
ákvörðun í málinu en hún muni
sitja fundinn.
Ákvörðun stjórnenda Landspít-
alans er í samræmi við ályktun Fé-
lags íslenskra hjúkrunarfræðinga
og segist Elsa vera ánægð með að
mark hafi verið tekið á henni.
Kristín Þórmundsdóttir geisla-
fræðingur segir að tíðindin hafi
borist í lok vinnutíma og því hafi
geislafræðingar ekki haft tíma til
að ræða málið en það verði gert í
dag. Stjórnendur spítalans hafi
haft þrjá mánuði til að leysa málið,
án árangurs, og með það í huga
megi ekki búast við miklu á fimm
mánuðum en batnandi mönnum sé
best að lifa. | 2
Viðsemjend-
ur undir feldi
Morgunblaðið/Júlíus
Frestun Landspítalinn hefur
frestað breytingum til hausts.
Í HNOTSKURN
» Útspil Landspítalans geturbreytt því að 96 hjúkr-
unarfræðingar og 40 geisla-
fræðingar, sem hafa sagt upp á
spítalanum, gangi út á mið-
nætti á morgun og komi ekki
aftur.
» Hjúkrunarfræðingarnir oggeislafræðingarnir, sem
um ræðir, segja að breytt
vinnufyrirkomulag skerði
launin verulega.
Breytingum á
vaktafyrirkomu-
lagi frestað